Tíminn - 18.02.1986, Side 12
12 Tíminn
Þriðjudagur 18. febrúar 1986
m
W
Hraungerðishreppur
Jón Helgason ráöherra og Þórarinn Sigurjónsson alþingismaöur
verða til viðtals og ræöa þjóðmálin í Þingborg miövikudaginn 19. febr.
kl. 21.00.
Allir velkomnir.
Þykkvabær
Jón Helgason ráöherra og Þórarinn Sigurjónsson alþingismaöur
veröa tii viðtals og ræöa þjóðmálin í samkomuhúsinu Þykkvabæ,
fimmtudaginn 20. febr. kl. 21.00.
Allir velkomnir.
Aðalfundur Framsoknarfélags
Hveragerðis og nágrennis
veröur haldinn fimmtudaginn 20. febrúar kl. 20.30 aö Austurmörk 2 (í
fundarsal verkalýösfélagsins Boöans)
Fundarefni:
1. Inntaka nýrra félaga
2. Venjuleg aöalfundarstörf
3. Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga
4. Önnur mál.
Stjórnin.
Konur Höfn og
Austur-Skaftafellssýslu
Landssamband framsóknarkvenna heldur námskeiö fyrir konur á öll-
um aldri á Höfn Hornafirði dagana 21., 22. og 23. febrúar. Námskeiðið
hefst 21. febrúar kl. 20.00.
Veitt veröur leiösögn í styrkingu sjálfstrausts, ræöumennsku, fundar-
sköpum og framkomu í sjónvarpi.
Leiöbeinendur veröa Unnur Stefánsdóttir og Þórdís Bergsdóttir.
Þátttaka tilkynnist Agnesi Ingvarsdóttur í síma 8588.
LFK
Ungt fólk - Borgarfjörður og Mýrar
Kynningarfundur um störf og baráttumál ungra framsóknarmanna
verður haldinn í Snorrabúð í Borgarnesi laugardaginn 22. febrúar kl.
14.00. Framsögumaður á fundinum verður Finnur Ingólfsson formað-
urS.U.F.
S.U.F.
Sjórnmálaskóli Landssambands framsóknarkvenna og Sambands ungra framsóknarmanna
Stjórnmálaskóli LFK og SUF hefst þriðjudaginn 25. feb. n.k. kl. 20.30 að Rauðarárstíg 18 og verður síðan á mánudögum kl. 20.30 og laug-
ardögum kl. 10.00.
Skólinn verður starfandi á eftirtöldum dögum.
Stjórnkerfi íslands 25. feb.kl. 20.30 Alþingi
Efnahagsmálin íslenskhaglýsing
l.marskl. 10.00
3. mars kl. 20.30 Atvinnufífið. Efnahagsmál á fræðilegum grunni
8. marskl. 10.00 Sjávarútvegur
10. marskl. 20.30 Landbúnaður
17. mars kl. 10.00 Iðnaður
22. marskl. 20.30 Vinnumarkaðurinn
Opinber þjónusta 24. mars kl. 10.00 Fjárlagagerð
1. apríl kl. 20.30 Heilbrigðiskerfið
5. aprílkl. 10.00 Menntakerfið
7. aprll kl. 20.30 Húsnæðiskerfið
Allt áhugasamt framsóknarfólk velkomið, upplýsingar veitir Þórunn í
síma 24480.
LFK og SUF
DAGBÓK
Föstumessur og bænastundir
í Fríkirkjunni
Á þessari föstu verða sungnar þrjár
föstumessur í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Hin fyrsta þeirra vcrður fimmtudags-
kvöldið 20. febrúar kl. 20.30, næsta 6.
mars kl. 20.30 og hin síðasta 20. mars kl.
20.30.
Þessar samverustundir hafa jafnan ver-
ið hátíðlegar. Það gæðir þær sérstökum
andblæ, að þær eru sungnar að kveldlagi.
Lesið er úr píslarsögunni (frásögn guð-
spjallanna af því. er Jesús var handtekinn.
færður fyrir rétt, dæmdur til dauða og líf-
látinn), sungið úr Passíusálmum síra Hall-
gríms Péturssoanr, huglciðing flutt og Lit-
anía síra Bjarna Þorsteinssonar sungin af
presti og kirkjukör. I föstumessunum er
notaður hinn fagri föstuhökull Unnar Ól-
afsdóttur, cr hún vann sérstaklega fyrir
Fríkirkjuna.
Þá verða bænastundir í Fríkirkjunni
alla föstuna kl. 18.00 hvern virkan dag,
nema á mánudögum. Hin fyrsta þcirra
verður þriðjudaginn 18. febrúar Þessar
bænir vara svo sem stundarfjórðung
hverju sinni. Lesið er úr Ritningunni og
Passíusálmum. bænir fluttar og stundum
sunginn sálmur. Hin ríka kyrrð, sem cin-
kennir kirkjuhúsið okkar (bifreið'aitmferð
heyrist ekki inn í kirkjuna) verður mörg-
um undrunar- og gleðiefni. er sækja þess-
ar bænastundir.
Gunnar Björnsson,
Fríkirkjuprestur.
Háskólatónleikar í
Norræna húsinu
Þriðju húskólatónleikarnir á vormisscri
verða haldnir í Norræna húsinu miðviku-
daginn 19. febrúar. Sr. Gunnar Björnsson
leikur ú selló og David Knovvles ú píanó.
Flutt verða verk eftir Saint-Saéns, Elgar,
Couperin, Dcbussy, Popperog Paganini.
Tónleikarnir hefjast kl. 12.30 ogstanda
í u.þ.b. húlftíma.
Tónleikanefnd Háskóla íslands.
Jónas Gudvardsson ásamt nokkrum
verkum sínum á sýningunni.
(Tímamynd: Sverrir)
Sýning
Jónasar Guðvarðssonar
í Listasafni A.S.I
S.l. laugardag opnaði Jónas Guðvarðs-
son myndverkasýningu í sýningarsal
Listasafns A.S.Í. að Grensásvegi 16. Á
sýningunni eru 54 myndverk, lágmyndir
og skúlptúrar, sem hann vinnur í tré. með
gleri og málm ívafi. Myndirnar eru flestar
unnar á síðustu 3 árum.
Jónas stundaði myndlistarnám í Mynd-
listarskólanum í Reykjavík og í Escuela
Massara í Barcelona. Þetta cr 8. einka-
sýning Jónasar. cn hann hefur einnig tck-
ið þátt í samsýningum. hér á landi og er-
lendis.
Sýningin stendur til sunnudagsins 2.
mars og er opin kl. 16.00-20.00 virka
daga, og kl. 14.00-22.00 laugardaga og
sunnudaga.
Sovésksýning
Sýning á sovcskum bókum, hljómplöl-
um. frímcrkjum og auglýsingaspjöldum
var opnuð í húsakynnum MÍR að Vatns-
stíg 10 laugardag 15. febrúar. Á sýning-
unni eru um 300 nýútkomnar bækur um
margvíslegt efni: skáldverk, fræðirit.
listaverkabækur, orðabækur, barnabæk-
ur o.s.frv. Einnig sýnishorn af hljómplöt-
um, sem gefnar hafa verið út í Sovétríkj-
unum á síðustu misserum, frímerkjum og
plakötum af ýmsu tagi. Sýningin verður
opin út fcbrúarmánuð. á laugardögum og
sunnudögum kl. 14-19, en aðra daga kl.
17-19. Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Jámflatarmyndir í
Nýlistasafninu
Föstud. 14. febr. opnaði Birgir
Andrésson sýningu á myndverki í Nýlista-
safninu, Vatnsstíg 3b.
Á þessari sýningu eru sýndar járnflatar-
myndir, en þetta er 3ja sýningin um sama
viðfangsefni. Birgir hefur tekið þátt í sam-
sýningum og haldið einkasýningar, bæði
hér heima og erlendis.
Sýningin stendur til 23. febrúar og er
opin á virkum dögum kl. 16.00-20.00, en
um helgar kl. !4.(K)-20.00. Aðgangur er
ókeypis.
Jöklarannsóknafélag íslands:
Aðalfundur
Aðalfundur Jöklarannsóknafélags ís-
lands verður haldinn að Hótel Hofi,
Rauðarárstíg, þriðjudaginn 25. febrúar
kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Vcnjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar. 3. Önnur mál. 4.
Kaffidrykkja. 5. Klifur í Skaftafellsfjöll-
um. Ari T. Guðmundsson sýnir myndir.
Fræðsla ætluð forráðamönnum
fermingarbarna
Forráðamönnum fermingarbarna er
boðið til fjögurra kvölda námskeiöa, þar
sem boðin er kynning á því sent fcrming-
arbörnin sjálf eru að fást við nú í nánd
ferminganna. Fyrsta samverustund var
mánud. 17. febrúaroghófst kl. 20.15, eins
og allar hinar. Fundarstaður er safnaðar-
heimili Bústaðakirkju. Dr. Einar Sigur-
björnsson talaði fyrsta kvöldið, en
mánud. 24. febrúar talarsr. ÓlafurOddur
Jónsson. þriðjud. 4. mars sr. Heimir
Steinsson og loks fjallar sr. Karl Sigur-
björnsson þriðjud. 11. mars um ferming-
una og aLarisgönguna.
Kennslumiðstöð Námsgagna-
stofnunar:
Kynning á nýju myndbandi um
íslenska þjóðbúninga
í dag, þriðjud. 18. febrúar kl. 16.00,
verður kynnt í Kennslumiðstöö Náms-
gagnastofnunar. Laugavegi 166, nýtt
myndband um íslcnska þjóðbúninga.
Myndbandið var gert á vegum samstarfs-
nefndar um íslenska þjóðbúninga og er
það í tveimur hlutum. Á fyrri hluta bands-
ins er lýst þróun búninganna. Á síðari
hluta bandsins er lýsing á því hvernig
klæðast beri búningunum, svo sem hvern-
ig á að skauta, hnýta slifsi o.fl.
Textann mcð myndbandinu gerðu Elsa
E. Guðjónsson og Fríður Ofafsdóttir.
Búningarnir voru flestir fengnir að láni hjá
Þjóðdansafélagi Reykjavíkur og sýning-
arstúlkurnar eru úr því félagi. Tónlist er
eftir Jón Ásgeirsson. Þulur er Sigríður
Thorlacius.
Gerð þessa myndbands er kostuð af fé
úr Afmælissjóði Sigríðar Thorlacius og
styrk frá Þjóðhátíðarsjóði. Ismynd sá um
kvikmyndun og annan frágang. Mynd-
bandið verður til sölu hjá Námsgagna-
stofnun.
í samstarfsnefnd um íslenska þjóðbún-
inga eiga sæti: Elsa Guðjónsson. sem er
íormaður. Sigurveig Sigurðardóttir, Dóra
Jónsdóttir, Sigríður Halldórsdóttir og
Fríður Ólafsdóttir.
Kynningin er opin öllu áhugafólki.
Hjartavernd
2. tbl. 22. árg. af Hjartavernd kom út
fyrir síðustu áramót. Útgefandi er Hjarta-
vernd, Landssamtök hjarta- og æða-
verndarfélaga á íslandi.
Fremst í ritinu er grein Dr. Nikulásar
Sigfússonar yfirlæknis: „Monica"-rann-
sókn Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.
Þar segir hann frá fundi, sem haldinn var í
Porvoo í Finnlandi og var það 3. fundur-
inn um s.k. Monica-rannsókn. Þar segir
tn.a., að á undanförnum 10-20 árum hafi
sú breyting orðið á þróun hjarta- og æða-
sjúkdóma að dánartíðni vegna kransæða-
stíflu og slags (heilablóðfalls/heilablæð-
ingar) hefur lækkað verulega í nokkrum
löndum. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
gengst fyrir fjölþjóðarannsókn á þessu
máli. Margir telja að minnkandi sígarettu-
reykingar, lækkandi blóðfita og bætt með-
ferð á hækkuðum blóðþrýstingi hafi hér
valdið miklu.
Jóhann Ragnarsson læknir skrifar: Há-
þrýstingur af þekktri orsök. Ólafur Ólafs-
son landlæknir skrifar um iðkun íþrótta
meðal karla með tilliti til kransæðasjúk-
dóma. Dr. Sigurður Samúelsson fyrrv.
prófessor skrifar grein, sem er útdráttur
úr erindi er hann flutti á aðalfundi Hjarta-
verndar 1984, „Þáttur Hjartaverndar í
heilbrigðisþjónustunni". Ýmsar fréttir
eru af rannsóknum á vegum Hjartavernd-
ar og sagt frá félagsstarfinu.
Ársrit Útivistar 1985
Tileinkað 10 ára afmæli félagsins
Ársrit Útivistar fyrir árið 1985 er ný-
komið út, en það er hið ellefta í röðinni.
Stærsta grein ritsins er afmælisgrein í til-
efni 10 ára afmælis Útivistar, sem Sigur-
þór Þorgilsson ritar. Jón Jónsson jarð-
fræðingur heldur áfram þáttaröð sinni
„Eyjafjallapistlar" og hann ritar auk þess
grein um Mýrdalsfjöllin. Nanna Kaaber
segir frá ferð á Hornstrandir, Leifur Jóns-
son segir frá eftirminnilegri landmælinga-
ferð í Kerlingarfjöll 1956 og Einar Hauk-
ur Kristjánsson ritar greinina „Dægra-
dvöl". Þá eru í ritinu tvö kvæði eftir Hall-
grím Jónasson og ársskýrsla Útivistar f.
árið ’84.
Ritstjóri þessa rits var Ingibjörg S. Ás-
geirsdóttir. Félagið er opið öllum almenn-
ingi. Ársritið fæst á skrifstofu félagsinsað
Lækjargötu 6a.
Ársrit 1986 er væntanlegt í maí og hef-
ur Sighvatur Blöndal tekið að sér ritstjóm
þess.
Erla Einarsdóttir ritstjóri.
íslensk fyrirtæki
í nýjum búningi
Þar má m.a. Finna umboðaskrá og skipa-
skrá
Frjálst framtak hf hefur í 16. sinn sent
frá sér bókina „íslensk fyrirtæki 1986".
bókin er nú í nýjum búningi. Hún skiptist
í fimm meginkafla. Fyrsti kaflinn er um
íslensk útflutningsfyrirtæki, annar kaflinn
er vöru- og þjónustuskrá, þriðji kaflinn er
umboðaskrá fjórði kaflinn er fyrirtækja-
skrá og fimmti kaflinn er skipaskrá, en í
henni eru veittar upplýsingar um öll ís-
lensk skip, einkennisstafi þeirra, stærð,
skráningu, vélartegund, eigendur o.fl.
Ritstjóri bókarinnar er Erla Einars-
dóttir og er þetta þriðja árið sem hún rit-
stýrir bókinni, sem er 1184 bls. Hún er
prentunnin hjá Prentstofu G. Benedikts-
sonar í Kópavogi og bundin hjá Bókfelli
hf. Kápuhönnun annaðist Auglýsinga-
stofa Emst Bachmanns.