Tíminn - 11.03.1986, Qupperneq 2

Tíminn - 11.03.1986, Qupperneq 2
2 Tíminn Þriðjudagur 11. mars 1986 Frá úrslitaleik kvennaflokksins. Esther og Valgerður spila við Dísu Péturs- dóttur og SofTíu Guðmundsdóttur. Meðal áhorfenda er Björn Theódórs- son forseti Bridgesambands íslands, Gunnar Þorkelsson, Guðmundur Hr. Sigurðsson Og KrÍStín Þórðardóttir. Tímamynd-Svcrrir Islandsmót í bridge: Esther og Ragnar íslandsmeistarar - í kvenna- og yngri flokki Úrslitin í íslandsmóti kvenna og yngri spilara í bridge um helgina urðu ekki óvænt: sveit Estherar Jakobsdóttur vann sveit Soffíu Guðmundsdóttur í úrslitaleik kvennaflokksins og sveit Ragnars Magnússonar vann svcit Eymundar Sigurðssonar í úrslitaleik yngri flokks. Sveit Estherar hefur orðið Is- landsmeistari í kvennaflokki í öll skipti sem keppt hefur verið um þennan titil. Sveit Estherar vann sveit Soffíu með miklum yfirburðum, 85-13 eftir að staðan í hálfleik var 48-11. í úr- slitaleik um 3. sæti vann sveit Sigrún- ar Pétursdóttur sveit Öldu Hansen, 87-45 eftir að staðan í hálfleik var 46- 6. í yngri flokki vann sveit Ragnars sveit Eymundar 135-41 eftir að stað- an var69-9 í hálfleik. í leik um 3. sæt- ið vann sveit JúlíusarSigurjónssonar sveit Þrastar Ingimarssonar 119-70. í sveit Estherar spiluðu auk henn- ar Valgerður Kristjónsdóttir, Halla Bergþórsdóttir, Kristjana Stein- grímsdóttir og Ragna Ólafsdóttir. Með Ragnari spiluðu Anton Gunn- arsson, Karl Logason, Svavar Björnsson og Ragnar Hermannsson. -GSH Hæstaréttardómar: Dómasafn 1985 komið Fyrra bindi Hæstaréttardóma árið 1985 er væntanlegt til dómvarðar innan hálfs mánaðar. Verðið á fyrra bindinu hefur ekki verið ákveðið en lætur nærri sex hundruð krónum. Eins og sakir standa er ekki hægt að kaupa Hæstaréttardóma, frá nokkrum árum. Uppseld eru bindi frá árunum 1945 og fram til 1957. Ekki hefurenn verið tekin ákvörðun hvenær endurprentun verður. Safn það sem nú er til sölu kostar um tíu þúsund krónur, og laganentar fá helmingsafslátt. laðbera vantar / eftirtalin hverfi. Sólheima, Nökkvavog, Tjarnargötu, Skerjafjörð, Ármúla, Haga. Tímmn SIÐUMULA 15 © 686300 Búist við mjög hagstæðri vertíð við Breiðafjörð: Útgerð og fiskvinnsla græða vel þessa dagana „Við sjáum fram á mjög hagstæða vetrarvertíð við Breiðafjörð - eina þá hagstæðustu sem við munum eftir. Þá miklu fiskigegnd sem nú er í Breiðafirði tel ég fyrst og fremst eftirfarandi þrem ástæðum að þakka; friðun Breiðafjarðar, hag- stæð skilyrði í sjónum og stjórnun fiskveiða,“ sagði Hjálmar Gunnars- son, útgerðarmaður í Grundarfirði í samtali við Tímann. Að sögn Hjálmars tóku útgerðar- menn við Breiðafjörð sig saman um að friða 900 fermílna hafsvæði á Breiðafirði fyrir 17 árum. Þar hafi ekki verið lögð þorskanet síðan. „Árangurinn af því hefur verið að koma í Ijós á undanförnum árum svo óyggjandi er.“ Hjálmar sagði bátana vera með fremur lítið af netum, en yfirleitt fá 15-30 tonn í lögn. „Nánast enginn ormur er í fiskinum, sem er fullur af gotu og lifur og fer allur í 1. flokk. Sjómenn og verkafólk leggur nótt við dag og hefur vonandi eitthvað upp úr krafsinu. Og útgerðarmenn og fiskverkendur græða vonandi vel þessa dagana. Ekki verður annað séð en að flestir verði búnir með kvóta sinn á páskum. Þá geta menn bundið báta sína í sátt við alla, fram á haustið." Hjálmar var spurður hvort hann telji að slaka eigi meira á í kvótamál- unum. „Ekki að svo stöddu - sjáum fyrst til hver útkoman verður eftir tvö ár.“ Veðráttuna sagði hann hafa verið með eindæmum hagstæða til sjó- sóknar það sem af er. „Þó bar þar einn skugga á - sjóslysið á Ás á dögunum - sem kannski er fyrirboði þess sem koma skal ef smábátaöldin á aftur að ganga í garð.“ Línuveiðarnar framan af vetri sagði Hjálmar aftur á móti hafa verið tregar og aflinn frekar lélegur. Skel- veiðar sem menn hafi stundað lítils- háttar í janúar og febrúar hafi skilað lélegum árangri, enda skelin rýr til frálags á þeim tíma að sögn Hjálm- ars. -HEI NVR SK0U SETTUR Útflutnings og markaðsskóli ísíands var í fyrsta sinn settur í gær af Sverri Hermannssyni menntamálaráðherra. Þessi nýi skóli á að bæta úr brýnni þörf á mannskap með þekkingu og menntun á markaðs- og útflutnings- málum og að honum standa í samein- ingu Útflutningsmiðstöð iðnaðarins og Stjórnunarfélag íslands. Stjórn- unarfélagið mun sjá um rekstur skólans, en kennslan mun einkum felast í námskeiðahaldi. Við undir- búning að stofnun skólans hafa að- standendur notið drjúgrar aðstoðar norska útflutningsskólans, en skóla- stjóri hins nýja skóla hefur verið ráð- inn Jens Pétur Hjaltested. (Tímamynd-Árni Bjarna) Siggi var að kaupa kjarabæturnar sínar.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.