Tíminn - 11.03.1986, Blaðsíða 4

Tíminn - 11.03.1986, Blaðsíða 4
Shari Belafonte Harper með manninum sínum í ferðalagi á Englandi, ; ■ ■ :- : Cindy Sullivan kemur bráðum í Hótel. I Anne Baxter í síðasta atriðinu sem hún lék í HÓTEL-þáttunum I og var hann sýndur 29. jan. í Bandaríkjunum. Hún er þarna sem rVictoria Cabot að dansa við leikarann Robert Lansing. Nokkr- r um dögum eftir að þessi mynd var tekin var Anne Baxter látin. Ein fyrrverandi ein núverandi Lana Clarkson er líka væntan- leg í Hótel og kannski tekur hún lagið, því hún er í kvennahljóm - sveit. HOTEL - LEIKKONUR Fyrrv. HÓTEL-leikkonan er Anne Baxter. Hún tók við hlut- verki sem eigandi Hótels St. Gregory af Bette Davis, þegar hún forfallaðist vegna veikinda. Þá var látið líta svo út í sjónvarpsþáttun- um, að eigandinn (Bette Davis) væri í Brasilíu, þar sem hún hafi stofnsett nýtt hótel, en hún hafi beðið mágkonu sína (Anne Baxter) að taka við stjórn St. Gre- gory- Anne Baxter varð bráðkvödd ný- lega, svo að hún er því „fyrrv. HÓTEL-leikkonan“ í þessum pistli. Hún var mjög ung þegar hún fór í leikskóla hjá Maria Ouspenskaya og 13 ára kom hún fyrst fram í leiksýningu á Broadway í „Seen But Not Heard“. Hún lék á sviði í New York, en var svo uppgötvuð fyrir kvikmyndir og lék í mörgum myndum. 1946 fékk Anne Baxter Oscars-verðlaun fyrir leik sinn í myndinni „The Razor’s Edge“ þar sem hún lék á móti Tyrone Power. 1960 yfirgaf hún Hollywood og fluttist til Astralíu með þáverandi eiginmanni sínum, Randolph Galt. Hún bjó þar í nokkur ár og hefur skrifað bók um dvöl sína þar. Anna Baxter átti síðast heima f Connecticut og hún átti þrjár upp- komnar dætur. Núverandi HÓTEL-leikkona er svo hin fagra Shari Belafonte Harper, dóttir söngvarans Harry Belafonte. Hún leikur afgreiðslu- dömu á hótelinu St. Gregory. Shari hefur verið gift í átta ár. Maður hennar heitir Bob Harper. Þau hafa þekkst síðan þau voru í skóla og trúlofuðust þar. Bob vinnur fyr- ir stórt auglýsingafyrirtæki. Þá eru það tvær tilvonandi leikkon- ur í HÓTEL-þáttunum: Cindy Sullivan og Lana Clarkson. Báðar Kaliforníu-stúlkur í húð og hár; ljóshærðar og vel vaxnar. Cindy er rnikil íþróttastúlka og unir sér vel á ströndinni og einnig er hún í hesta- mennsku og stundar skíðaíþróttina þegar hún kemst til þess. Hún hef- ur áður komið fram í sjónvarps- þáttunum „Hardcastle & McCormick" og „The Love Boat“, og á næstunni leikur hún í HÓTEL. Lana Clarkson hefur leikið í mörgum bandarískum sjónvarps- þáttum, svo sem „Knight Rider“ o.fl. en hún kemurfram í HÓTEL- þætti bráðlega þar sem hún leikur rússneskan njósnara! Þegar Lana er ekki fyrir framan myndavélarnar er hún á kafi í að syngja með kvennahljómsveit, sem er mjög vinsæl. Þriðjudágur 11. mars 1986 Illlllllllllllll ÚTLÖND llllll iiiiiiiiiiii FRÉTTAYFIRLIT f íeutei r BEIRÚT — Sérstök sendi- nefnd hóf í gær kapphlaup við tímann um að reyna fá lausa átta franska gísla sem haldið er í Líbanon, Gíslatakan hefur varpað skugga á kosninga- baráttuna fyrir þingkosningarn- ar næsta sunnudag. Blöð hægrimanna hafa gagnrýnt mjög ríkisstjórn sósíalista vegna gíslatökunnar. JÓHANNESARBORG - Lögreglan í Suður-Afríku sagði níu menn hafa látið lífið í ætt- flokkabardaga og tvo aðra hafa látist í mótmælum gegn stjórn- völdum. Ofbeldisaðgerðirnar virðast ekki vera í samræmi við tilkynningu P.W. Botha forseta landsins í síðustu viku þar sem sagt var að vegna lítillar ókyrrðar í landinu yrði neyðar- lögum aflétt. STOKKHÓLMUR — Sví- ar minntust Ólofs Palme fyrrum forsætisráðherra með mínútu- þögn í landinu öllu. Morðinginn er enn ófundinn og hafa lög- regluyfirvöld undirbúið mikla öryggisvörslu vegna komu helstu þjóðarleiðtoga heims til jarðarfarar Palmes næstkom- andi laugardag. VÍN — Kurt Waldheim fyrrum aðalritari SÞ snéri sér aftur að kosningabaráttu sinni fyrir austurrísku forsetakosning- arnar sem fram fara í maí næstkomandi. Vinsældir hans virðast hafa aukist þrátt fyrir að honum hafi verið borið á brýn að hafa starfað í nasistasam- tökum á stríðsárunum. Hann hefur harðlega neitað þeim ásökunum. PARIS - Franska fjármála- ráðuneytið staðfesti fréttir um að pólsk stjórnvöld hefðu sam- ið við vestræna lánardrottna sína um að fresta afborgunum af erlendum lánum er greiðast áttu á þessu ári. MADRID — Felipe Gonzalez forsætisráðherra og leiðtogi spánskra sósíalista hefur reynt allt til að fá landsmenn sína til að krossa við áframhaldandi aðild að NATO í þjóðarat- kvæðagreiðslunni sem fram fer á morgun. Síðustu skoð- anakannanir sýndu samt að meirihluti kjósenda var andvíg- ur aðildinni að NATO en barátt- an um atkvæði kjósenda hefur valdið miklum ruglingi á Spáni og virðist atkvæðagreiðslan snúast minnst um aðildina sjálfa. Stjórnvöld annarra að- ildarríkja NATO eru uggandi yfir ákvörðun Spánverja sem gæti leitt til að þrýstingi yrði beitt á önnur ríki um að láta fara fram þjóðaratkvæðagreið- slu um sama mál. MANILLA — Stuðnings- menn Ferdinands Marcosar fyrrum forseta töluðu opinber- lega gegn ríkisstjórn Corazon Aquino í gær. Þeir sögðu stjórnvöld einræðisleg í gerð- um sínum og að Marcos væri enn forseti landsins. CANAVERALHÖFÐI, Flórída — Kafarar byrjuðu í gær á því vandasama verkefni að bjarga áhafnarklefa geim- ferjunnar Challengers frá hafs- botni. Áhafnarklefinn fannst síðastliðinn föstudag og eru leifar hinna sjö áhafnarmeð- lima þar inni. BONN - Samningaviðræður vestur-þýskra og bandarískra stjórnvalda um að V-Þýska- land gerist aðili að „stjörnu- stríðs“ rannsóknum Reagans Bandaríkjaforseta hafa siglt í strand í bili og ekki er búist við að samkomulag verði undirrit- að í þessum mánuði.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.