Tíminn - 11.03.1986, Side 7

Tíminn - 11.03.1986, Side 7
Tíminn 7 Þriðjudagur 11. mars 1986 VETTVANGUR lllllllllllllllllllllllllllllll llllilllllllllli llllllllllllllll Magnús Finnbogason, bóndi, Lágafelli Frjáls álagning á vöruverð Grein þessi er hluti af útvarpser- indi, sem höfundur flutti fyrir nokkru. Varla hefur það farið fram hjá neinum að landbúnaðurinn á í viss- um markaðserfiðleikum og offram- leiðsla er í nokkrum greinum hans. Fyrst og fremst stafar þetta af dugnaði bænda og aukinni tækni, ásamt því að ísland er gott land- búnaðarland með mikla og fjöl- breytta framleiðslumöguleika, þá kemur það einnig til að allar okkar nágrannaþjóðir vernda sinn land- búnað mun meira en hér er gert. Er þetta gert á margvíslegan máta t.d. með beinum styrkjum en einnig og ekki síður með alls konar innflutn- ingstakmörunum sem erfitt er framhjá að komast. Um alllangt skeið gátum við flutt út landbúnaðarvörur með viðun- andi árangri hvað verð snerti þó svo hafi ekki verið nú síðustu ár og kemur þar margt til eins og áður segir. Ég held að útflutningur búvöru sé íslendingum lífsnauðsyn sé til lengri tíma litið en markaðsleit og markaðssókn verða að byggjast á íslenskum aðstæðum. Hérermikið olnbogarými og miklir framtíðar- möguleikar í hreinu og tæru lofti og heilbrigði búfjárins mikið meiri en annarsstaðar þekkist. Eiturefna- notkun í landbúnaði er að heita ntá óþekkt miðað við önnur lönd. Með skynsamlegri sölumennsku hlýtur því að vera hægt að finna markaði sem tilbúnir eru að gefa mikið fyrir sérstæða og heilnæma vöru sem lít- ið er til af, - við verðum að gera okkur ljóst að framleiðslugeta okk- ar þó mikil sé er sem dropi í haf milljóna þjóðanna. Því verðum við að kosta kapps um að vekja ekki stærri markaði en við erum menn til að standa við. Lágt verð á landbúnaðarvörum hefur mikið að segja fyrir afkomu fólks, því gekk mér illa að skilja þegar ein af kröfum verkalýðsleið- toga við kjarasamninga fyrir 2 árum var að niðurgeiðslur á land- búnaðarvöru yrðu lækkaðar og þeim peningunt sem þannig spöruðust varið til að lækka beina skatta. Grunur minn er sá að þeir sem við samningaborðin sátu fyrir Hl Þaö er stutt síðan smásöluálagning var gefin frjáls á kjöti en á þeim tíma hefur hún margfaldast þvert ofan í kenningar mark- aðshyggjumanna sem segjaaðfrjálsálagning lækki vöruverð, en reynslan sýnir annað. verkalýðinn hafi alls ekki verið úr hópi hinna láglaunuðu því þessi skattalækkun sem þarna fékkst skipti láglaunamanninn engu máli, því að lækkun skatta hefur nánast engin áhrif fyrir en komið er upp fyrir meðallaun, en matarkaup eru því stærra hlutfall ráðstöfunar- tekna sem launin eru lægri. Ég tel því að lágt verð á landbún- aðarvörum sé almennum lágtekju- manni mun meiri kjarabót heldur en fikt með barnabætur beina skatta og persónuafslætti. Þó sjónvarp útvarp og blöð geri oft mikið úr hækkunum á landbún- aðarvörum, þá er minna um að skýrt sé frá því hvernig verðið verð- ur til og hvernig það skiptist frá bónda til neytanda. Ef við tökum t.d. dilkakjöt þá er niðurgreiðsla á því núna 19,25 kr. á kg. og hefur aldrei verið lægri, hlutfall af útsölu- verði um 5-8%. 16. október kostaði 14 kg lambsskrokkur sem keyptur var niðurbrytjaður úr kjötborði í miðl- ungdýrri búð í Reykjavík 3.743.00 kr. - heildsöluverð var þá 2.628 kr. en verð til bónda 2.187.00. Ef við skoðum þetta aðeins nánar þá var verð til bónda 156 kr. á kg., slátur og heildsölukostnaður 56 kr. á kg. smásöluálagning um 80 kr., versl- unareigandi fær því meir en helm- ing af verði til bóndans. Nú liggur í verði til bóndans fjárfesting , vinna hans og fjölskyldunnar í heilt ár ásamt fjármagnskostnaði og flut- ingi á lambi á sláturstað en kaup- maðurinn fær kjötið að búðardyr- um ber það inn, brytjar og selur og greiðir eftir 6 vikur, - fyrir þetta þarf hann eðlilega að fá greitt en að þetta séu eðlileg skipti á fjármun- um, því neita ég algerlega. Það er stutt síðan smásöluálagning var gefin frjáls á kjöti en á þeim tíma hefur hún margfaldast þvert ofan á kenningar markaðshyggjumanna sem segja að frjáls álagning lækki vöruverð. Reynslan sýnir annað. Þetta með frjálsa álagningu kemur víða við. Óbrytjaður saltfiskur er með hámarksálangingu hann hækkaði á síðasta ári unt 38% en brytjaður saltfiskur er með frjálsa álagningu, hann hækkaði á sama tíma um 83% í framfærsluvísitölu sem er vegið meðaltal hækkana frá Verðlags- stofnun, sem sagt meir en helmingi meiri hækkun álagningar sé hún frjáls. Ég vil því fara fram á það við sjónvarp og blöð næst þegar þau birta töflur um hækkanir á land- búnaðarvörum að þær sýni greini- lega hvað hvcr aðili fær í sinn hlut, bóndi, vinnslu- og heildsöluaðilar og síðast en ekki síst smásalinn. Dvöl svokallaðs varnarliðs og áhrif þess á íslenskt þjóðlíf ogefna- hagsmál hafa lengi verið umdeild og ekki er ég talsmaður aukinna áhrifa hersetunnar. Þó finnst mér undirlægjuháttur stjórnvalda í tíð núverandi ríkisstjórnar slíkur að ekki verði lengur við unað þegj- andi. Mér finnst ferðir Geirs á fund bandarískra stjórnvalda í sam- bandi við flutninga til hersins beri meira svipmót af bænaskrám ís- lendinga til danska konungsvalds- ins á öldinni sem leið, heldur en samskipti tveggja fullvalda ríkja. Hersetan er staðreynd hvort sem okkur líkar betur eða verr því hljótum við að krefjast þess að stjórnvöld gæti hagsmuna íslend- inga undanbragðalaust. Við getum ekki búið við það íselndingar að erlent herlið skipi hér fyrir verk- um á friðartímum og Bandaríkja- menn haldi uppi siglingum til landsins í krafti bandarískra einok- unarlaga frá 1904 á'sama tíma og véfengdur er réttur okkar til að beita lögum um varnir gegn búfjár- sjúkdómum (gin- og klaufaveiki) frá 1928 á þeim forsendunt að fallin sé hefð á þessa flutninga vegna þess að lögunum hafi ekki verið beitt þann tíma sem varnarlið hefur dvalið hér. Ég sé engin rök mæla með því að hefð gildi ekki jafnt um íslensk lög og bandarísk, því finnst mér þessi málflutningur alvcg út í hött. Ég tel að undanbragaðlaust beri að stöðva allan innflutning á hrábú- vöru til hersins. Viðeigumsvomikið í hættu ef eitthvað ber útaf, okkar búfé er búið að lifa svo lengi í ein- angrun að margir þeir sjúkdómar sem erlendis eru landlægir og gcra lítinn skaða gætu hér gert mikinn usla, þó heppnin hafi verið með til þessa þá getur alltaf út af borið og það er of seint að birgja brunninn þegar barnið er dottið ofan í - þar að auki crum við með umfram- framleiðslu af búvörum sem vantar markað fyrir ég get ekki séð að efnahagslíf okkar verði svo mikið háðara dvöl hersins þó þessi sala verði upptekin heldur en það er nú þegar. Ég veit ekki betur en heitt vatn og rafmagn sé selt á völlinn auk margs annars sem sj álfsagt þykir og sjálfsagt er í samskiptum þjóða. Hitt gengur ekki að herliðið haldi sighérsem herraþjóðogsegi okkur fyrir verkum. Við verðum að bera höfuðið það hátt í þessum sam- skiptum að bandarísk stjórnvöld óvirði ekki íslenska ríkisstjórn með mútuboðum eins og gert var í sum- ar í sambandi við herflutningana. Á síðastliðnu suntri tóku gildi ný lög um stjórn búvöruframleiðslu hér á landi ogleystu af hólmi gömlu framleiðsluráðslögin. Segja má að þessi lagasetning hafi verið orðin mjög brýn. Eðlilega eru skiptar skoðanir um ágæti þessara laga en þó held ég að mestu skipti hvernig til tekst um framkvæmd þeirra. Þrátt fyrir augljósa agnúa, eru í þessum mörg góð nýmæli og mögu- leikar til raunverulegrar stefnu- mótunar í Iandbúnaði. Það sem mér finnst mestu muna fyrir okkur í bili eru ákvæði um staðgreiðslu' þess hluta búvöruverðs sem ríkis- sjóður hefur samið um kaup á. Það tryggir mun beturen áður að við bændur fáum það kaup sem okkur ber og gerir næstum útilokað að ganga á okkar kauplið skorti einhversstaðar á að fullt verð náist í vinnslurásinni. Það tel ég mikla frantför frá eldri lögum. Eins má nefna stórauknar tekj- ur framleiðslusjóðs og þá jafnframt raunverulega möguleika hans á stuðningi við ný atvinnútækifæri á sveitum. Höfuðgallinn á framkvæmd lag- anna til þessa er hvað illa hefur gengið að ákveða framleiðslurétt hvers svæðis og hvers bónda, sá dráttur er óþolandi. Á jarðræktarlögum voru einnig gerðar nokkrar breytingar á síðasta vetri, þar vil ég fyrst til nefna það ný mæli aðskjólbeltarækt færnú bein- an fjárstuðning, þá má nefna að stuðningur við kornrækt er óbreyttur. Mín skoðun er sú að þessir tveir þættir geti sameiginlega orðið landbúnaðinum mikil lyfti- stöng á komandi árum ásamt rækt- un orkuskóga sem ekki hefur verið mikið rædd hingað til. Þannig finnst ntér að þrátt fyrir tímabundna erfiðleika og Rauð- vínspressu getum við horft vonglöð fram á veginn. 1 BÓKMENNTIR Stríðssaga Churchills Winston Churchill feryfir Rín í innrásarpramma í marsmánuði 1945. Við hlið hans situr Montgomery marskálkur. Winston Churchill: The Second World War. Volume I. The Gathering Storm. Volume II. Their Finest Hour. Penguin Books 1985. 724, 684 bls. Fáirstjórnmálamenn þessararald- ar hafa verið þekktari og dáðari en hinn mikli stríðsleiðtogi Breta, Sir Winston Churchill. Hann var maður tveggja alda, og lifði mikið breyt- ingaskeið í veraldarsögunni. Þegar hann fæddist árið 1874, stóð sól breska heimsveldisins í hádegisstað og er hann lést, árið 1965, var heims- veldið að mestu hrunið, en ný stór- veldi höfðu tekið við forystuhlut- verki í veröldinni og deildu hart. Á sama tíma urðu miklar breytingar á Bretlandi sjálfu, sem ekki verða tí- undaðar hér. Sem ungur rnaður tók Churchill þátt í nýlendustyrjöldum Breta á Kúbu, í Indlandi, Egyptalandi og Súdan og hann var fréttamaður í Búastríðinu um aldamótin, þar sem hann var tekinn til fanga, en slapp með ævintýralegum hætti. Churchill hóf afskipti af stjórn- málum um aldamót og var fyrst kos- inn á þing fyrir íhaldsflokkinn árið 1900. Fjórum árum síðar gekk hann í frjálslynda flokkinn og gengdi ýms- um ráðherraembættum á hans veg- um til ársins 1915 er hann neyddist til að segja af sér embætti flotamálaráð- herra eftir ófarirnar við Gallipoli. Tveim árum síðar varð hann þó hermálaráðherra. Churchill rakst jafnan hcldur illa í flokki og 1924 gekk hann aftur í íhaldsflokkinn og varð fjármálaráðherra á hans vegum til 1931, er hann sagði af sér. Hann var síðan utan stjórnar til 1939 er hann varð flotamálaráðherra á ný og síðan forsætisráðherra f maí 1940, en því embætti gegndi hann til 1945, er flokkur hans tapaði sögufrægum þingkosningum. Hann var aftur for- sætisráðherra 1951 og gegndi þá embættinu til 1955, er hann lét af op- inberum störfum vegna heilsubrests. Þrátt fyrir miklar annir í stjórn- málum, varChurchill mikilvirkur rit- höfundur.Um aldamótin samdi hann nokkrar bækur um herferðir er hann tók þátt í í nýlendunum og á 4. ára- tugnum sendi hann frá sér þrjú rit. Eftir að hann lét af embætti forsæti- sráðherra árið 1945 hóf hann að rita sögu síðari heimsstyrjaldarinnar og kom fyrsta bindi hennar út árið 1948. Fyrir þá sögu hlaut hann Nóbels- verðlaunin í bókmenntum árið 1953. Á árunum 1956-1958 kom svo út annað mikið ritverk eftir Churchill, A History of the Englishspeaking Peoples, Saga enskumælandi þjóða. Flest ritverk Churchill eru sögu- legs eðlis, en engu að síður ber frem- ur að líta á hann sem rithöfund en sagnfræðing. Stílsnilld hans er viðbrugðið, orðgnóttin mikil og framsetningin einkar skýr og skemmtileg. Eins og áður sagði kom 1. bindi styrjaldarsögu Churchill út árið 1948 og síðan komu bindin hvert af öðru. Sagan hefur síðan verið endurútgef- in oftar en einu sinni, en bindatalan ekki alltaf hin sama. Þessi útgáfa frá Penguin er t.d. í sex bindum. í 1. bindinu, sem nefnist,The Gat- hering Storm, eru tvö fyrstu bindi frumútgáfunnar. Þar segir frá versn- andi samskiptum ríkja allt frá lokum fyrri heimsstyrjaldar og fram til þess að seinni heimsstyrjöldin braust út. Önnur bók, sem í frumútgáfu bar heitið The Twilight War, er hér gefin út ásamt hinni fyrstu og nær hún yfir tímabilið frá því í september 1939 og fram í maí 1940, er Churchill var forsætisráðherra. í 2. bindi þessarar útgáfu eru einnig tvær bækur, The Fall of France og Alone. Segir hin fyrri frá falli Frakklands, en hin síð- ari frá því tímabili styrjaldarinnar, er Bretar stóðu einir gegn herjum nas- ista. Eins og vænta má, er heimildagildi þessara bóka mikið. Höfundurinn lifði allt tímabilið og var beinn þátt- takandi í mörgum helstu atburðum og ákvörðunum. Hann kann því frá mörgu að segja, sem fáir aðrir kynnt- ust nema af afspurn, en hins vegar verður að viðurkennast, að hann lít- ur ekki alltaf hlutlægt á málin og það, hve nærri hann stóð atburðarásinni, háir honum á stundum í frásögninni. Engu að síður eru bækurnar stór- skemmtilegar aflestrar, enda Churchill mikill stílsnillingur og bjó yfir fágætri frásagnargáfu. Jón Þ. Þór

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.