Tíminn - 11.03.1986, Page 9

Tíminn - 11.03.1986, Page 9
8Tíminn Þriðjudagur 11. mars 1986 Þriðjudagur 11. mars 1986 Tíminn 9 ÍÞRÓTTIR ÍÞRÓTTIR Hetjurnar heim HM í handknattleik 1986: Júgóslavar vel að sigri komnir - lögðu Ungverja í úrslitaleiknum og töpuðu ekki leik Júgóslavar tryggðu sér heims- meistaratitilinn í handknattleik á laugardaginn með sigri á Ungverjum í þokkalega leiknum úrslitaleik. Lokatölur í leiknum urðu 24-22 eftir að staðan í hléi varð 12-12. Ungverjar komu nokkuð á óvart með því að vera betri í fyrri hálfleik og leiða leikinn. í upphafi síðari hálfleiks; skoruðu Júgóslavar tvívegis og létu þá forystu ekki af hendi. Þegar stað- an var 18-16 þá fengu Ungverjar tvö hraðaupphlaup í röð en klúðruðu báðum og staðan breyttist í 21-17 fyrir Júkkana. Lokatölur urðu síðan 24-22 eins og fyrr segir. Leikmenn Júgóslavíu eru vel að heimsmeistaratitlinum komnir. Lið- ið er heilsteypt og hefur verið saman frá því vel fyrir ÓL í Los Angeles þar sem liðið sigraði. Sjö leikmenn hafa leikið um og yfir 100 landsleiki og við íslendingar sáum þá allflesta keppa hér á landi í hittifyrra með landsliði Júgóslavíu og einnig með félagslið- inu Metaloplastica Sabac sem spilaði gegn FH í Evrópukeppni meistara- liða. HM í Sviss: Lokaniðurstaðan - Kang varð markahæstur allra og setti nýtt met Lokaniðurstaða í HM í hand- knattleik varð sú að Júgóslavar urðu heimsmeistarar eftir að hafa sigrað Ungverja 24-22 í úrslitum. A-Þjóð- verjar urðu í 3. sæti með 24-23 sigri á Svíum. Spánverjar urðu 5 með því að merja íslendinga 24-22. f 7. sæti höfnuðu V-Þjóðverjar með 25-18 sigri á Dönum. Rúmenar urðu 9. eft- ir sigur á Sovétmönnum 25-21 og Svisslendingar höfnuðu í 11. sæti með 27-22 sigri á Kóreu. Þá komu Tékkar í 13. sæti Pólverjar urðu 14. Kúbumenn 15. og Alsír í síðasta sæt- inu. S-Kóreumaðurinn Kang varð markahæstur á mótinu með 67 mörk og bætti fyrrum markamet á HM sem • Rúmeninn Stinga átti og var 65 mörk. Kúbumaðurinn Duranona varð næst markahæstur með 56 mörk en Kristján Arason varð í fimmta sæti yfir markahæstu leikmenn. Stúdentar unnu HSK fslensku landsliðsmennirnir í handknattlcik komu heim úr frægðarför til Sviss ásamt fylgdarliði aðfaranótt sunnudags. Liðinu var vel fagnað með blómum og kossum. Sverrir Ijósmyndari var og mættur og má sjá á þessum myndum hans þann kátleika sem ríkti og ennfremur þá þreytu sem sat í leikmönnum. Efst er Þorgils Ottar eða „Snældu-Blesi“ eins og hann var. gjarnan kallaður vegna spelknanna með vökva á vélina. Þá má sjá Jón Hjaltalín formann HSÍ veifa blómum og lukkutrölli keppninnar og að neð- an er meistarinn sjálfur, Bogdan þjálfari, skælbrosandi ásamt aðstoðar- Hskum og leikmönnum. I__________________________________________________________________________ Fram með fullt hús Framstúlkurnar tryggðu sér fullt hús í 1. deild kvenna í handknattleik er liðið vann Stjörnuna í síðasta leiknum sínum með 26 mörkum gegn 21. Fram hafði tryggt sér ís- landsmeistaratitilinn fyrir allnokkru Úrslitakeppnin í blaki: síðan. Staðan í hálfleik í leiknum um helgina var 10-10 en Fram átti nóg eftir til að vinna örugglega. Gurrí skoraði mest 9 fyrir Fram en Arna gerði 6. Erla gerði 7 fyrir Stjörnuna og Anna gerði 5. Úrslitakeppnin í 1. deild í blaki byrjaði um helgina. Ekki tókst þó að spila alla þá leiki sem settir voru á þar sem ekki fékkst hús til að leika í. 1 eina leiknum í fjögurra liða úrslita- keppninni um Islandsmeistaratitil- inn sigruðu Stúdentar lið HSK nokk- uð örugglega 3-0. Hrinurnar enduðu 15-11, 15-10 og 15-9. f keppni neðri liðanna sigraði KA lið HK naumlega 3-2. Næstu leikir verða í kvöld en þá leika Stúdentar við HSK að Laugarvatni og Víkingar mæta Þrótti í Kennaraháskólahús- inu. Skotland: Mikið gekk á Það gekk mikið á í leik Celtic og Hibernian í skosku bikar- keppninni um helgina. Lokatölur urðu þær að Hibernian náði sigri með marki á síðustu mínútu 4-3. McClair skoraði fyrir Celtic í lok fyrri hálfleiks en Cowan jafnaði fyrir baráttuglaða Hibemian- menn. Mark McGhee skoraði síðan 2-1 fyrir Celtic en Chisholm jafnaði á 76. mínútu. Cowan kom Hibernian yfir úr víti stuttu seinna en McClair skoraði líka úr viti og liðin voru jöfn áður en Eddie May skoraði glæsimark með skalla á síðustu mínútunni og kom Hiberninan áfram i bikarn- um. í öðrum leikjum gerðist það helst að Aberdeen og Dundee skildu jöfn. Hewitt skoraði bæði mörk Aberdeen en Brown og Harvey skoruðu fyrir Dundee. Dundee United lagði Motherwell' 1-0 með marki frá Gough. Þá sigraði Hearts, efsta liðið í deild- inni, St. Mirren í skemmtilegum leik. Valur Ingimundarson, besti leikmaður Njarðvíkinga, dripplar hér framhjá Kristni og undirbýr körfuskot. Tímamynd-Svcrrír V-þýska knattspyrnan: - lendir í eins leiks banni - Bayern tapaði óvænt Frá Guðmundi Karissynií V-Þýskalandl: Bremen jók forskot sitt þrátt fyrir að ná að- Ásgeir Sigurvinsson fékk að líta sitt fjórða eins jafntefli 0-0 gegn Bochum. Bayern Munc- gula spjald á þessu tímabili fyrir ósköp sak- hen tapaði nefnilegaóvænt fyrir Dússeldorf2-3. leysislegt brot. Hann verður því að hvíla næsta Aðkomuliðið komst í 3-0 áður en Bæjarar leik. Stuttgart lék gegn Nuremberg og vann 3-1. vöknuðu til lífsins. Önnur úrslit urðu þau að Allgöver skoraði tvö mörk og Schafer eitt. Schalke vann Köln 3-0og Dortmund vann Keis- Stuttgart er í sjötta sæti deildarinnar. erslautern 4-2. Aumingja Beckenbauer Frá Guðmundi KaHssyni, Þýskalandi. Það ætlar ekki af Franz Beckenbauer, þjálf- ara þýska landsliðsins í knattspyrnu að ganga. Um helgina bættist við enn eitt fórnarlamb meiðsla sem eru á góðri leið með að gera Beck- enbauer ókleift að velja landslið fyrir HM í Mexíkó. Sá sem meiddist um helgina var Pierre Littbarski. Þessi stórsnjalli útherji varð að hajtra útaf í leik Kölnar og Schalke og stuttu Pétur skoraði Eins og fram kemur á annarri síðu í íþrótta- umfjöllunum þá sigraði Hercules, lið Péturs Peturssonar, Celta í spænsku knattspyrnunni. Leikurinn endaði 2-1 og var það Pétur Péturs- son sem skoraði sigurmark Hercules í leiknum. Hann náði boltanum af varnarmanni Celta og óð upp völlinn. Lét síðan þrumuskot ríða af er nálgaðist markið og inn fór tuðran. Hercules er í mikilli botnbaráttu og þessi sigur var kærkom- inn. Liðið er nú í fjórða neðsta sæti er sex um- ferðir eru eftir í deildinni. Hamlen með jafntefli Frá Guðmundi Karlssyni í V-Þýskalandi: Hamlen, lið Kristjáns Arasonar í 2. deild í handknattleiknum í Þýskalandi varð að láta sér nægja jafntefli gegn Fredenburg 20-20 um helg- ina. Kristján spilaði hálftognaður á öxl og gerði aðeins 3 mörk. Hamlen er nú í öðru sæti í deild- inni. Fjórum stigum á eftir Dormangen en á leik til góða. seinna var hann skorinn upp á ökkla sem þýðir átta vikna hvíld að minnsta kosti. Hann mun því ekki leika meira með Köln á þessu tímabili. „Littbarski er einmitt sá leikmaður sem við þörfnumst í Mexíkó. Hann er góður með bolt- ann og það er mikilvægt," sagði Beckenbauer og var ekki kátur. Áður hafa leikmenn eins og Rudi Völler, sem fór á skurðarborðið fyrir stuttu, Augenthaler, sem tognaði á lærvöðva um helgina og Uwe Rahn, sem fór í uppskurð fyrir tveimur mánuðum, verið höfuðverkur Beckenbauers. Dregið í Englandi Það bendir margt til þess að liðin frá Liverpool muni keppa til úrslita í ensku bikarkeppninni í Wembley þann 10. maí í vor. í gær var dregið í undanúrslitin þrátt fyrir að enn sé ekki nema eitt lið komið ör- ugglega í undanúrslitin, Southampton. „Dýrlingarnir“ munu mæta annaðhvort Liverpool eða Watford en þessi lið eiga að eigast við í kvöld. í hinum undanúrslita- leiknum leika annaðhvort Sheffield Wed. eða West Ham gegn Luton eða Everton. Leikirnir í undanúrslitunum eiga að fara fram þann 8. apríl. Heimsmethjá McKoy Kanadamadurinn Mark McKoy setti enn eitt heimsmetid í frjálsum íþróttum innanhúss um helg- ina. Það var á móti Tokyó í Japan. Hann setti met í 60m grindahlaupi. Tími McKoy var 7,47 sekúndur en fyrra metid átti A-Þjódverjinn Thomas Munkelt og var það 7,48 sekúndur. Njarðvík meistari - sigruðu Haukana í öðrum úrslitaleiknum með Vals-körfu á síðustu stundu Njarðvíkingar eru íslandsmeistar- ar í körfuknattlcik 1986. Það var Ijóst eftir sigur þeirra á Haukum í Hafnarfirði um helgina. UMFN er því íslandsmeistari í körfuknattleik þriðja árið í röð, frábær árangur hjá Su ðurnesj apiltunum. Leikurinn í Hafnarfirði var æsi- spennandi undir lokin. Staðan jöfn 86-86 þegar nokkrar sekúndur voru til leiksloka en þá skoraði Valur Ingi- mundarson fyrir Njarðvík 86-88 og titillinn var í höfn. Njarðvíkingar höfðu burstað Haukana í fyrstu viðureign liðanna í Njarðvík og Hafnfirðingarnir þurftu því að sigra til að fá aukaleik um ís- landsmeistarabikarinn. Ekki leit út fyrir að svo yrði í fyrri hálfleik. Valur Ingimundarson fyrirliði Njarðvíkur og hans menn léku vel í fyrri hálfleik en Haukarnir voru langt frá sínu besta. Þar munaði mestu um að Pálmar Sigurðsson var í engu stuði og reyndi lítið sjálfur. Að vísu stjórnaði hann spilinu ágætlega en einstaklingsframtak hans verður að koma til eigi Haukar að leika til sigurs. Hins vegar var lykilleikmaður Njarðvíkinga Valur Ingimundarson í góðu formi strax í upphafi leiks, setti niður tvær þriggja stiga körfur og virkaði óstöðvandi eins og hann gerir oftast. Er gengið var til lilés höfðu Njarð- víkingar farið illa með heimamenn, höfðu 18 stiga forskot 52-34 og höfðu látið Haukana líta út sem byrjendur í íþróttinni. Það sama var ekki upp á teningn- um í síðari hálfleik. Leikmenn Hauka sýndu sitt rétta andlit og hófu að saxa á forskot Suðurnesjamanna. Pálmar fór að gera hluti upp á eigin spýtur og þó hann hafi kannski ekki hitt eins og hann gerir best var hann sýnu hættulegri. Olafur Rafnsson og Henning Henningsson sýndu einn- ig sínar bestu hliðar og lvar Webster hélt áfram sínum góða leik í vörn sem sókn - grimmur frákastmaður Webster og er einnig farinn að setja niður fullt af stigum. Góð tækni og mikill baráttuvilji Haukanna setti Njarðvíkinga útaf laginu. Það er þó einkenni góðra liða að setja niður körfur þegar mikið liggur við. Það var hin mesta nauð- syn þegar Valur Ingimundarson fékk boltann nokkrum sekúndum fyrir leikslok og staðan 86-86. Njarðvíkingar hafa verið góðir og dulítið heppnir í vetur. Hinsvegar er það alkunn staðreynd að meistara- heppni fylgir aðeins besta liðinu og besta lið vetrarins er lið Njarðvíkur. Valur Ingimundarson, ísak Tómas- son, Jóhannes Kristbjörnsson, Árni Lárusson, Kristinn Einarsson, Helgi ■ Rafnsson, Hreiðar Hreiðarsson og Teitur Örlygsson hvar finnst meiri breidd, leiksamvinna og betri ein- staklingar en einmitt í liði Njarðvíkur Haukar sitja eftir með sárt ennið enn einu sinni. Þeir hafa óneitanlega ver- ið óheppnir með mannskap sinn í vetur. Viðar Vignisson og Reynir Kristjánsson hafa þurft að hætta með liðinu. ívar Ásgrímsson meiddist fyrir lokaslaginn og meiðsli hafa einn- ig plagað lykilmann liðsins Pálmar Sigurðsson. Stigin: Njarðvík: Valur 34, ísak 13, Kristinn 12, Jóhannes 11, Helgi 8, Hreiðar 4, Árni 2, Ingimar2, Teit- ur 2. Haukar: Webster 30, Pálmar 18, Henning 17, Ólafur 12, Kristinn 4, Eyþór 4. V ", 'á;v’ ! ■k ILriTTUfíl símkerfið hefur leyst öll símavandamál okkar, innan fyrirtækisins sem utan og þó hefur viðskiptavinum okk- ar fjölgað stórlega síðan við fengum það. En ánægjan með Kanda-sím- kerfið er jafnvel enn meiri innan fyrirtækisins. Það er alveg sama hvar ég er stödd, þegar hringt er í mig, ég get svarað símtalinu í næsta síma, í stað þess að hlaupa lang- ar leiðir eins og ég þurfti áður. Eða þegar ég þarf að ná í ein- hvern, og veit ekki hvar hann er staddur, get ég kallað í mörg sím- tæki í einu og hann síðan svarað þar sem hann er staddur, og þetta er bara lítið brot af öllu því sem hægt er að gera með þessu símkerfi frá Kanda.“ Með Kanda EK-516B getur þú: 1. Geymt samtöl. 2. Hringt handfrjálst á bæjarlínu. 3. Haldið símafundi. 4. Kallað í mörg símtæki í einu á innanhússlínu. 5. Lokað fyrir allar hringingar, ef þú vilt ekki láta trufla þig. 6. Flutt skiptiborð milli símtækja. 7. Flutt símtöl milli símtækja á einfaldan hátt. 8. Sett hindrun á langlínusímtöl á einstök símtæki. 9. Tengt rafhlöðu við kerfið, þannig að það vinnur þó rafmagn fari af. 10. Valið sjálfur biðtónlistina á símanum. Kanda EK-516B símkerfið er fyrir allt að 5 línur og 16 Verð kr* 5 línum og 8 símtækjum 144.745,- 5 — 12 - 184.095,- 5 — 16 — 214.379,- Við komum á staði og veitum ráðgjöf um hentug sím- kerfi. *Verð miðað við gengi 10.02. 1986. VIP TÖKUM VEl Á MÓTI MR símtæki. Símkerfi með *

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.