Tíminn - 21.03.1986, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Föstudagur 21. mars 1986
Fjármálaráðherra um rafeindavirkja:
GET EKKI RÆTT VID ÞA
FYRR EN ÞEIR SNÚA AFTUR
eindavirkjar f þjónustu hins opin-
bera hefðu boðað verkfall í byrjun
þessa árs en samkomulag hefði náðst
um að skjóta spurningunni um lög-
mæti þess til félagsdóms. Hinn 13.
mars s.l. hefði dómurinn svo komist
að þeirri niðurstöðu að verkfall þetta
væri ólögmætt. Forsendurnar fólust
í því að hluti uppsagna næði einungis
til ráðningakjara en ekki til starf-
anna sjálfra.
Þorsteinn sagði að fráhvarf raf-
eindavirkja frá störfum sínum væri
ólögmætar verkfallsaðgerðir sem
stríða gegn lögum og gerðu sam-
komulagi og það bæri að harma.
Meðan að slíkt ólögmætt verkfall
stæði yfir væri enginn grundvöllur til
viðræðna. Slíkt kæmi ekki til greina
fyrr en rafeindavirkjar hæfu störf á
ný.
Helgi Seljan sagði að það bæri að
vekja athygli á því að ástandið sem
væri að myndast í fjarskiptamálum
boðaði hreina neyð og því yrði
fjármálaráðherra að eiga frumkvæði
að einhvers konar lausn deilunnar.
Öllum væri Ijóst að fjarskiptaþáttur-
inn væri orðinn það mikilvægur í Iífi
allra landsmanna að málið þyldi
enga bið.
Eiður Guðnason tók til niáls í
annað sinn og sagði að svör ráðherra
hefðu valdið sér verulegum yon-
brigðum. Hann sagðist ekki hafa
kynnt sér nákvæmlega dómsorð eða
dómsforsendur en hins vegar væri
það ljóst að í samkomulagi deilu-
aðila frá 3. janúar segði að aðilar litu
svo á að frestun á boðuðu verkfalli
hefði ekki áhrif á gildi uppsagna-
bréfa.
Eiður sagði það ekkert einhlítt
hvort að um ólögmætar aðgerðir
væri að ræða en á meðan deilan
stæði stefndi stöðugt í meira óefni
hvað varðar mikilvæga öryggishags-
muni í landinu og því yrðu að nást
sættir.
Þorsteinn Pálsson steig aftur í
ræðustól og sagði það hafa valdið sér
vonbrigðum þegar að Helgi Seljan
hefði í ræðustól á Alþingi sagt að
finna þyrfti lausn á umræddri deilu
hvað sem liði niðurstöðu félags-
dóms. Þorsteinn kvaðst vænta þess
að hann hefði ekki átt við að draga
ætti í efa gildi niðurstöðunnar.
Helgi Seljan gerði athugasemd
við orð ráðherra og sagðist ekki
véfengja úrskurð félagsdóms, hins
vegar bæri brýna nauðsyn til þess að
fjármálaráðherra hefði forgöngu um
að finna lausn þessa máls. Það væri
í raun skylda hans og ríkisstjórnar-
innar.
Karvel Pálmason sagði að í mikið
óefni væri komið. Ýmis konar
vandamál hrönnuðust upp vegna
nefndrar deilu og ykjust stöðugt. Því
væri brýnt að vita hvort mætti skilja
orð ráðherra svo að hann vildi á
engan hátt beita sér fyrir lausn
málsins þar til rafeindavirkjar væru
komnir aftur til starfa. Slík afstaða
benti tíl þess að í enn meira óefni
væri komið.
Eiður Guðnason gerði stutta at-
hugasemd og sagði það sinn skilning
að þó að verkfall hefði verið dæmt
ólögmætt þá gilti það ekki um upp-
sagnirnar. Harma bæri afstöðu
fjarmálaráðherra þar sem hann vildi
greinilega ekki hlusta á óskir sem
fram væru komnar um að hánn beitti
sér fyrir lausn málsins.
Þorsteinn Pálsson kvaðst enn
verða að ítreka að fjármálaráðu-
neytið liti svo á að staða rafeinda-
virkja sé önnur en annarra opinberra
starfsmapna samkvæmt niðurstöðu
félagsdóms. Ekki væri unnt að eiga
kjarasamningaviðræður við aðila
sem ættu í ólögmætu verkfalli.
í lok umræðunnar tóku þeir
Karvel Pálmason, Ólafur Þ. Þórðar-
son og Guðmundur J. Guðmunds-
son til máls. _SS
Umræður utan dagskrár um deilu
rafeindavirkja og ríkisvaldsins fóru
fram í sameinuðu Alþingi í gær.
Eiður Guðnason steig fyrstur í
ræðustól sem málshefjandi. Hann
sagðist vilja vekja á því athygli að nú
væri nokkuð um liðið síðan að um
120 rafeindavirkjar í þjónustu hins
opinbera hættu þar störfum. Frá því
að þetta gerðist síðastliðinn föstudag
væri svo komið með símakerfi
landsmanna aðekki væri lengur hægt
að hringja út fyrir höfuðborgarsvæð-
ið, nema með handvirkri þjónustu
og margra klukkustunda bið og að
dagskrá ríkisfjölmiðlanna væri kom-
in úr skorðum.
Eiður sagði að þetta mál snerist
alls ekki um það hvort að nýgerðir
kjarasamningar séu brotnir eða
ekki, heldur um það hvort að raf-
eindavirkjarnir 120 fái að gerast
félagar í Sveinafélagi rafeindavirkja.
Það væri alvarlegt mál ef ríkisstjórn-
in missti svo marga vel þjálfaða
starfsmcnn.
Þingmaðurinn sagði það augljóst
að þessi deila væri komin í einhvers
konar sjálfheldu og þar sem fjár-
málaráðherra hefði um skeið verið
fjarverandi væri tímabært að beina
þeirri spurningu til hans hvað hann
hygðist gera svo að lausn fyndist. Ef
vilji væri fyrir hendi ættu menn að
geta talað saman.
Þorsteinn Pálsson fjármálaráð-
herra tók næstur til ntáls og kvaðst
taka undir það með Eiði Guðnasyni
að það væri alvarlegt mál þegar að
fjarskipti trufluðust, en það hefði nú
átt sér stað vegna þess að stór hópur
rafeindavirkja hefði lagt niður störf.
Ráðherra sagði það rétt að fram
kæmi um hvað málið snerist. Raf-
I)
NISSAN
Nissan Mid 4
M
MlD n
Sýnum framtíðarbíl Nissan verksmiðjanna laugardag og
sunnudag kl. 14—17 og næstu daga. Síðan verður þessi
fullkomnasti sportbíll í heimi sendur aftur utan á alþjóð-
legar bílasýningar.
Allt er þegar fernt er.
fjórhjóladrif
fjórhjólastýring
fjórir yfirliggjandi knastásar
fjórir ventlar á hvem strokk, alls 24 ventlaar
Notið þetta einstaka tækifæri að sjá hvað framtíðin
ber í skauti sér.
INGVAR HELGASON HF
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.