Tíminn - 06.04.1986, Page 2

Tíminn - 06.04.1986, Page 2
2 Tíminn Sunnudagur 6. apríl 1986 Frá fréttaritara Tímans á Akureyri LITIÐINNHJA LEIKF í tilefni af sýningu Leikfélags Akureyrar á söngleiknum Blóðbræðrum, leit útsendari Tímans inn áæfingu til að forvitnast um efni verksins og spjalla við leikhúsfólkið. Signý Pálsdóttir varð fyrir fyrstu árásinni. Signý sem starfað hefur sem leikhússtjóri hjá Leikfélagi Akureyrar undanfarin 4 ár, hefur nú sagt starfi sínu lausu. Umsóknarfrestur um starfið er útrunninn, og hefur Pétur Einarsson leikari, verið ráðinn leikhússtjóri til næstu tveggja ára. Blóðbræður eru síðasta verkefni yfirstandandi leikárs, og jafnframteini söngleikurinn. Signýsagði að söngleikir virtust vera hvað vinsælustu verkin að undanförnu. Nægir þar að nefna gífurlega aðsókn að My Fair Lady ’84 og Edith Piaf ’85. Snemma í vetur var fólk farið að spyrja um Blóðbræður, og nú þegar liggja fyrir miðapantanir alveg fram í maí. Þess má geta að 8 leikhús á Norðurlöndum og fjölmörg leikhús á meginlandi Evrópu sýna Blóðbræður á þessu leikári. Blóðbra Laugardaginn 22. mars var söng- leikurinn Blóðbræður frumsýndur á Akureyri og hefur síðan verið sýnd- ur við góðar undirtektir. Blóðbræð- ur (Blood Brothers) er eftir breska skáldið Willy Russel. Russel hefur starfað mikið að leikhúsmálum í heimalandi sínu, og skrifað mörg leikrit, m.a. Educating Rita. Magn- ús Þór Jónsson betur þekktur sem Megas þýddi bæði texta og söngva, en leikstjóri er Páll Baldvin Báld- vinsson.- Ingvar Björnsson hannar lýsingu, Gylfi Gíslason gerir leik- mynd og um búningana sér Frey- gerður Magnúsdóttir. Hljómsveitar- stjóri 9 manna hljómsveitar er Roar Kvam. Söngleikurinn Blóðbræður var frumsýndur í London 1983, undir- tekir voru fádæma góðar, og til marks um það, útnefndu breskir leiklistargagnrýnendur Blóðbræður besta söngleik ársins. Verkið greinir frá fyrstu 25 árun- um í ævi tvíburanna, sent búið hafa aðskildir og í gjörólíku umhverfi allt frá fæðingu. Móðir þeirra er einstæð, bláfátæk og á 7 börn fyrir. Hún neyðist til að láta annan tvíburann til ríkrar barnlausrar konu, og sver að enginn fái nokkru sinni vitneskju um uppruna drengsins. Inní þetta blandast hjátrú. þess efnis að ef tvíburabæður sern ókunnugt er um skyldleika sinn, uppgötvi sannleik- ann, muni báðir deyja. En margt fer öðruvísi en ætlað er, og þeir bræður kynnast, og sverjast raunar í fóstbræðralag, þrátt fyrir ólíka þjóðfélagsstöðu. Mæðurnar reyna allt hvað þær geta til að stía þeim í sundur, en hvað eftir annað grípa örlögin í taumana og leiða þá R/TKim 119 Vekjum athygli á W\ vetrartilboði okkar Á OC ALFA-LAVAL MJALTAKERFUM UM 100 BÆNDUR FÁ NÚ SÉRSTAKA FYRIRGREIÐSLU MÉÐ ENDURBÓTUM Á MJALTABÚNAÐr i ALLT FRÁ SPENA OG ÚT í TANK MUELLER [EGJROFA bTva] MJÓLKURKÆLITANKAR Flestar stærðir fyrirliggjandi á mjög hagstæðu verði. f VÉLBÚNAÐUR í FÓÐRUN OG HIRÐINGU Kjarnfóðurvagn HJOLKVISLAR FLÓRSKÖFUKERFIN hafa létt mörgum bóndanum verkin. BUNADARDEILD ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900 OG KAUPFÉLÖGIN UM LAND ALLT VOTHEYSVAGNAR Átakamikið verk -segir Ellert Ingimundarson, annar aðalleikarinn í Blóðbræðrum Með aðalhlutverk í Blóðbræðr- um fer Ellert A. Ingimundarson. Ellert var fenginn til Leikfélags Akureyrar sérstaklcga fyrir þessa sýningu. Honum var nánast kippt út úr sýningum á Land míns föður í Reykjavík, og vegna manneklu við uppfærslu Silfurtunglsins, kom hann norður fyrr en áætlað var. Ellert útskrifaðist úr Leiklistar- skóla íslands 1982, og hefur síðan starfað við atvinnuleikhúsin í Reykjavík. S.l. sumar setti hann ásamt fleirum upp sýningu sem var blanda af drama og ballett. og var hún sýnd á Ung Nordisk Kunst Festival. listahátíð ungs fólks sem Svíar buðu til og kostuðu í alla staði. I Blóðbræðrum fer Ellert með hlutverk annars tvíburabróður- ins, Mikka, sem alinn er upp í fátækrahverfinu. Mikki er frekar léttur náungi á yngri árum sagði Ellert, en svo fer feimnin við hitt kynið að segja til sín, og þá býr hann sér til einhverja harða yfir- borðsskel út á við. Hann lendir í alls kyns veseni, t.d. innbroti með eldri bróður sínum. Peir tvíburabræðurnir Mikki og Eddi, laðast mjög hvor að öðrum þrátt fyrir ólíkar þjóðfélagsaðstæð- ur og án þess að vita nokkuð um skyldleika sinn. Þeir sverjast meira að segja í fóstbræðralag 7 ára gamlir. Hins vegar blundar alltaf viss öfund hjá Mikka vegna alls- nægta hins, og það veldur á endan- um alls kyns flækjum. Pað er mjög gaman að fást við þetta verk. Textinn er tilfinninga- ríkur og tær. Þar er allt sagt beint, engar hálfkveðnar vísur. Verkið er mjög átakamikið, gleðin og sorgin takast á, og þjóðsagnakennd hjátrú blandast hörðum raunveruleika nútímans, svo úr verður eins konar blanda af dramatík og komik. Russel virðist að hluta til miða verkið við heimaslóðir sínar í Liv- erpool. Hann talar t.d. um „uppfrá" og „niðurfrá", og á þar annars vegar við hverfi hástéttar- innar en hins vegar við fátækra- hverfin. Hann Mikki minn býr þarna einhversstaðar mitt á milli. eiginlega á framfæri fátækrahjálp- arinnar. Það er geysilegur munur á málfari þessara tveggja stétta í Englandi, og Edda finnst Mikki tala voða sniðuglega. Það er erfitt að koma þessum mun tii skila á íslensku, þótt Megas hafi sjálfsagt fundið einu réttu leiðina. Það kem- ur svo bara í ljós hvernig hún er, sagði Ellert Ingimundarson að lokum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.