Tíminn - 06.04.1986, Blaðsíða 22
22 Tíminn
Sunnudagur 6. apríl 1986
Ef þú átt leið um
Norðurárdalinn í Borg-
arfirðinum kemstu
ekki hjá því að sjá
Samvinnuskóiann
Bifröst.
Þar á setri er starf-
ræktur viðskipta- og
félagsmálaskóli á
framhaldsskólastigi.
Félagslífið er að öllu
leyti í höndum
nemenda sjálfra og er
gífurlegur kraftur í
fólki allan veturinn. Til
þess að sem best megi
takast starfa ýmsir
klúbbar innan skóla-
félagsins.
Sigurvegarinn í
„Bifróvision“ árið
1986, Inga Vala
Jónsdóttir, frá
Akureyri.
Hefð er fyrir því að
þröngur hópur fyrstu
bekkinga láti raka af
sé hárið og stofni
hið svokallaða
skallafélag.
Leiklistarklúbbur er einn virkasti klúbbur innan
skólans en hann hefur í vetur sett upp tvö leikrit
sem bæði hafa hlotið góðar viðtökur og vakið
gífurlega kátínu meðal áhorfenda. Einnig hefur
klúbburinn séð um hinar stórbrotnu kvöldvökur
sem haldnar eru á laugardagskvöldum og er
þessum kvöldvökum líkt við kjötkveðjuhátíðina í
Brasilíu.
Listaklúbbur sér um skreytingar við flestar þær
hátíðir sem markvcrðar niega teljast. Þær helstu
eru: Fullveldishátíðin en þá er ölium íbúum
Norðurárdals boðið til veislu.Og svo er Afmælis-
hátíð en þá er fyrra árs nemum boðið. Á þessu
ári var haldið upp á 30 ára afmæli skólans hér að
Bifröst. Á Þorra er svo Varmalandsmeyjum boðið
og stíga þær í léttan dans með 1. bekkjarstrákum.
Heiðursgestur hátíðarinnar í ár var Vigdís
Finnbogadóttir forseti Islands.
Sönglagakeppnin „Bifróvision" var haldin um
síðustu helgi en hún er árlegur viðburður og var
haldin í 25. skiptið. Þar lék skólahljómsveit
Samvinnuskólans „Sambandsmafían" og varð
hrifning svo mikið er þeir birtust á svæðið að því
var líkt við hljómleikaferð Duran-Duran til
Bandaríkjanna. Söngvararnir stóðu sig allir mjög
vel og sungu allt frá ballöðum í „Whitney Houston-
stíl“ og upp í spaghettí-rokkara. Sigurvegarinn var
hin listræna og mjög svo fríkaða Inga Vala
Jönsdóttir frá Akureyri.
Jþróttaklúbbur er fjölmennasti klúbbur skólans
og eru þar iðkaðar allflestar íþróttir og hafa
Bifrestingar verið nær ósigrandi hér í Borgarfirði
á öllum sviðum að undanskildum frjálsum íþrótt-
um og sundi.
Blaðamannaklúbbur gefur út 2 símaskrár á ári
auk þess að gefa út víðþekkt slúðurblað þar sem
engu er leynt og öll glappaskot nemenda og önnur
„skot“ eru miskunnarlaust dregin fram í dagsljósið
mörgum til mikillar grernju.
Útvarpsklúbbur sér um útvarpsefni sem berst
nemendum til eyrna urn innanhússkerfi og þar
boðið upp á ýmislegt eyrnakonfekt, allt frá RÚV
til ýmissa þátta sem nemendur sjá sjálfir um.
Öflugur Ijósmyndaklúbbur er starfandi og þykja
meðlimir hans frekar „myndarlegir". Aðstaða
ljósmyndaklúbbs er talin bera af framköllunarstof-
um í Norðurárdal (Þær eru ekki fleiri).
Margir fleiri klúbbar eru starfandi en við látum
þetta gott heita um félagslífið.
Næsta haust eru fyrirhugaðar breytingar á
inntökuskilyrðum í skólann og er ætlunin að
Samvinnuskólinn verði skóli á 3. og 4. ári fram-
haldsskólastigsins. Mun þessi breyting vafalaust
auka gildi samvinnuskólaprófsins enn frekar.
A kvennafrídaginn fóru
kvenremburnar til
Reykjavíkur en eftir sátu
karlrembusvínin og
brugðu á leik.
S Rocky fimm? Sivar Arni í
skoðunarferð hjá
Kaupfélagi Borgfirðinga.
Ekki er allt sem sýnist.
Mannskapurinn er ekki
allur farinn að geispa
heldur er verið að taka
lagið fyrir svefninn.
Á-kennarakvöldi bregða
lærifeðurnir á leik og
gera stórlega grín að
nemendum.
Forseti íslandsfrú Vigdís
Finnbogadóttir gestur
skólansáþorra. _________
Karlakór Bifrastar nefnist
„Bældir tónar“
I.H./M.R.K./H.J