Tíminn - 06.04.1986, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Sunnudagur 6. apríl 1986
- bara ve! ánægöir með okkur, segja
Gunnar og Guðbjörn Guðbjörnssynir,
tenórsöngvarar
„Áfram veginn í vagninum ek ég“, söng Stefán íslandi og nefndi ævisögu sína, að
lokinni ferð sinni eftir langferðaleiðum, sem hafði borið hann á fræg leiksvið og í
stærstu hlutverk óperubókmenntanna. En öll byrjun er erfið og leið söngvarans er
torsótt. Þrátt fyrir það er mikil uppsveifla í íslenskum tónlistarmálum og mikill fjöldi
fólks stundar nú söngnám. Það er sjálfsagt því að þakka, hve vel hefur verið búið að
bóli lista og menningar á hraunhólma okkar hér langt norður í íshafi og því, hve lítil
samkeppnin hér er innbyrðis, miðað við það sem þekkist erlendis. Menn fá ungir
tækifæri til að spreyta sig á margvíslegum verkefnum, án þess þó að slakað sé á
kröfum við þá. Bræðurnir Gunnar og Guðbjörn Guðbjörnssynir eru fulltrúar þeirrar
kynslóðar sem nú kemur akandi á vagni Stefáns inn á söngsviðið.
Rauðhærðir tenórar
„Halló, ertu frá blaðinu?“, glumdi
hvell tenórrödd í dyrasímanum, þeg-
ar blaðamaður Tímans hringdi bjöll-
unni að heimili þeirra bræðra, Þórs-
götu 23. Þar búa þeir á annarri hæð
í eigin íbúð, báðir stúdentar frá
Verzlunarskóla íslands, Gunnar
tæplega eins árs og Gubjörn fjögurra
ára. Þeirstunda söngnám hjáSigurði
Demetz Franzsyni í Nýja tónlistar-
skólanum, báðir eru þeir tenórar og
loks eru þeir báðir tveir rauðhærðir.
„En það gerir ekkert til“, svaraði
Guðbjörn og bauð blaðamanni að
henda af sér frakkanum í stofustól-
inn, „því að einn aðalkeppinautur
Caruso um aðdáendurna á sínum
tíma, John McCormack, var íri og
líka rauðhærður.“ „Annars hefði
verið gaman að verða fyrsti rauð-
hærði tenórinn“, kallaði yngri
bróðirinn, Gunnar, fram úr eldhús-
inu, þar sem hann var í þann mund
að leggja síðustu hönd á gríðarstóra
pizzu sem hann svo renndi inn í
ofninn.
Við fengum okkur allir því næst
sæti inni í stofunni yfir rjúkandi
bolla af ítölsku kaffi. Til að tolla í
tískunni hafa bræðurnir fengið sér
páfagauka, en þeir njóta víst tónlisí-
ar betur en aðrar skepnur og fara
ekki í manngreinarálit hvað varðar
söngvara. Á veggjum hanga myndir
eftir eldri bróður þeirra og myndlist-
armann, Daða Guðbjörnsson, og á
píanóinu voru nóturnar að óperunni
Tosca eftir Puccini, sem Þjóð-
leikhúsið mun setja á fjalirnar á vetri
komanda. „Já, við sungum þarna
fyrir í aukahlutverk fyrir tenór niðri
í leikhúsi um daginn“, sagði
Guðbjörn, en hvor um sig fór með
aukahlutverk í Grímudansleik
Verdis, sem var til sýnis fyrir jól.
„En annars er það helst Stabat
Mater eftir Dvorak með Sinfóníu-
hljómsveit íslands sem er á döfinni
hjá mér þessa dagana“, sagði Guð-
björn ennfremur.
Stabat Mater
„Stabat Mater fjallar um þjáningu
Maríu meyjar undir krossinum.
Ljóðin eru til í frægri þýðingu Matt-
híasar Jochumssonar þjóðskálds,
„Stóð móðir undir krossi“, en það
varð aldeilis hamagangur í öskjunni
þegar mótmælendur komust að því,
að presturinn þeirra væri farinn að
vinna verk fyrir kaþólikkana. Hvað
um það, - tónlist Dvorak er gífurlega
falleg. Maður finnur svo mikla sorg
í henní, - enda hafði tónskáldið
misst þrjú börn með stuttu millibili,
á meðan hann vann verkið. Tenór-
inn opnar það og er reyndar syngj-
andi allan tímann, svo mér er sýnt
mikið traust í fyrsta sinn sem ég kem
fram á stórum tónleikum. Ég á
Guðmundi Emilssyni þökk að gjalda
fyrir þetta tækifæri sem hann gefur
mér, en hann stjórnar verkinu."
„Hann hefur sýnt mikinn dugnað við
að koma ungu og efnilegu listafólki
á framfæri hér á landi,“ sagði
Gunnar. „Ég söng sjálfur í Purcell
óperu hjá honum í vetur, Álfa-
drottningunni, en svo fleiri dæmi séu
tekin má nefna Mörtu Halldórsdótt-
ur og Jóhönnu Þórhallsdóttur.
Dæmin eru miklu fleiri og hann á lof
skilið fyrir þetta framtak, því að það
er allt of algengt, þó það sé ekki
einhlítt, að það séu alltaf sömu
söngvararnir sem eru látnir syngja
hérna.“ Guðbjörn hélt svo áfram:
„Ég er að sjálfsögðu ekki að tala um
skólasýningarnar eins og Brottnám-
ið úr kvennabúrinu eftir Mozart,
sem ég sjálfur tók þátt í, eða Ástar-
drykkinn, sem Söngskólinn setti
upp. Núna er allt á „atvinnumanna-
basis“, - þarna syngja einnig Sigríð-
ur Ella, Katrín Sigurðardóttir og