Tíminn - 06.04.1986, Blaðsíða 13
Sunnudagur 6. apríl 1986
Tíminn 13
Páll P. Pálsson.
Stofnandi kórsins, Sigurður Þórð-
arson.
Karlakór Reykjavíkur, eins og hann nú er skipaður. Fremst fyrir miðju eru stjórnandinn, Páll P. Pálsson og
Guðrún Kristinsdóttir, undirleikari kórsins.
Stofnaður af
Sigurði Þórðarsyni
Kórinn stofnaði Sigurður Þórðar-
son, sem var stjórnandi kórsins í 36
ár og tónskáld, en hann samdi lögsent
segja ntá að séu samtengd kórnum í
hugum manna þegar þau eru flutt og
nægir að minna á „ísland, ísland eg
vil syngja", en það lag hefur líklega
verið flutt qftar og á fleiri stöðum en
nokkurt lag sem íslenskur kór hefur
flutt í hálfa öld.
Karlakór Reykjavíkur var þriðji
kórinn sem í Reykjavík var stofnað-
ur, en hann er stofnaður 3. janúar.
1926. Var það lán hans að fá Sigurð
til að leiða sig framan af árum, en
hann var menntaður tuttugustu aldar
iónlistarmaður, sem iagt hafði stund
á fiðluleik og tónsmíðar í Leipzig, er
hann ungur var þar viö verslun-
arnám. Hann tók snemma að ferð-
ast með kórinn um ísland og fór
með hann til höfuðborga Norður-
landa 1935 og til Danmerkur, Aust-
urríkis, Tékkóslóvakíu og Þýska-
lands 1937.
Margir ágætir sólistar komu við
sögu á ferli Sigurðar og ber þar hæst
Stefán Islandi, sem m.a. var með í
fyrstu utanferðunum.
Þegar Sigurður lét af störfum 1962
óttuðust margir um framtíð kórsins,
þótt hann héldi áfram að líta til með
honum sem kórstjóri eldri félaga.
Eftir að Jón S. Jónsson hafði stjórn-
að kórnum í tvö ár tók við Páll P.
Pálsson. Verður ekki fjölyrt unt
hæfileika hans hér, svo vel þekktur
sem hann er af frábærum störfum í
þágu íslensks tónlistarlífs frá því er
hann ungur fluttist til íslands frá
Austurríki 1949. í stjórnartíð Páls
hcfur kórinn farið sjö ferðir erlendis
og gert sex hljómplötur, sem tala
sínu máli, - eða syngja, - um það
starf sem Páll hefur unnið.
Þótt meðal félaga kórsins séu,
mætir félagar scm starfað hafa yfir
30 ár, verður að minnast sérstaklega
Hallgríms Sigtryggssonar. Hann er
nú 91 árs gamall og söng með
kórnum frá stofnun, 1926 til 1962.
Hann er nú „Nestor“ eldri félaga,
sem nærri má geta. Þá verður að
geta um Ragnar Ingólfsson, sem hóf
að syngja 1950 og er enn ódeigur í
liðinu. Hann var formaður frá 1963-
1977 og enn nýtur starfið óeigin-
gjarnra krafta hans.
Karlakór Reykjavíkur varð 60 ára þann 3. janúar sl. og
mun hann í næstu viku minnast afmælisins veglega með
fjórum hátíðartónleikum sem verða dagana 8., 9., 10. og
12. apríl í Langholtskirkju. Hefjast þeir klukkan 20.30 þrjá
fyrstu dagana, en kl. 14.30 síðasta daginn sem er
laugardagur. Þá verður fljótlega eftir síðustu tónleikana
tekin skóflustungan að nýju félagsheimili sem rísa mun
að Skógarhlíð 20 eða nánar tiltekið í norðanverðri
Öskjuhlíð.
Á framangreindum hljómleikum
verður Páll Pampichler Pálsson
stjórnandi, og Guðrún A. Kristins-
dóttir píanóleikari. Einsöngvarar
eru þeir Friðbjörn G. Jónsson,
Hjálmar Kjartansson, Hreiðar
Pálmason og Ólafur Magnússon.
Fjölmargir eldri félagar kórsins
munu syngja með á tónleikunum
nokkur iög.
Pourqouis Pas
Næsta verkefni Karlakórs Reykja-
víkur verður söngur með Sinfóníu-
hljómsveit íslands hinn 10. maí n.k.
í Háskólabíói. Flutt verður þar m.a.
verk eftir Skúla Halldórsson,
tónskáld, við Ijóð Vilhjálms frá Ská-
holti „Pourqouis Pas", en verk þetta
hefur kórinn og hljómsveitin flutt
áður.
Tilefni flutnings þessa nú, er að
liðin eru 50 ár frá því er hið franska
vísindaskip, er bar nafn þetta, fórst
hér við land og með því hinn heims-
þekkti vísindamaður Charcot.
Karlakór Reykjavíkur hefur verið
boðið að syngja í tilefni al' þessu á
fjórum stöðum á og við Bretagne-
skaga í Frakklandi í byrjun júní n.k.
og þá m.a. þetta verk, en þar verður
haldin mikil minningarhátíð um hið
hörmulega slys.
BIIRSDORf
kr. 24.403.-*
NÝR SÆLUREITURÁ LANDAKORTINU
Flugleiðir kynna nýjan sumarstað í Vestur-Þýskalandi: Dorint-sumarhúsaþorpið
við Biersdorf, nálægt Bitburg í Suður-Eifelhéraði.
Umhverfið er fallegt og friðsælt. Sumarhúsin standa í skógivaxinni hlíð og er
gott útsýni þaðan yfir vatnið Stausee. Bátaleiga er við vatnið og hægt er að
læra á seglbretti. Sumarhúsagestir geta farið í minigolf, leikið tennis innanhúss
og utan, synt í stórri Sundlaug og skroppið í gufubað á eftir. Þarna eru auk
þess tveir fyrsta flokks veitingastaðir, bar, diskótek og keilusalur.
í boði eru íbúðir og 2 herbergja sumarhús. öll húsakynni eru nýleg og vönduð.
Farþegar á leið til Biersdorf fljúga til Luxemborgar, en þaðan er innan við
klukkustundar akstur til Biersdorf. Hægt er að velja á milli þess að fara með
rútu eða leigja bíl. Við mælum með síðari kostinum, því það gefur sumarleyfinu
meira gildi. Frá Biersdorf er stutt að fara til borga eins og Brussel, Kölnar,
Frankfurt, Mainz og Strassborgar. Þá er örskammt niður í Móseldalinn.
íslenskur fararstjóri er til aðstoðar og skipuleggur skoðunarferðir.
* Miðað við verðtímabilið 15. maí til 21. júní 1986. Verð fyrir einstakling, miðað við 2 í íbúð í 2 vikur, og flug báðar leiðir.
Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn og ferðaskrifstofur.
Samband við söluskrifstofur í Lækjargötu, Hótel Esju og Álfabakka 10 í síma 690100.
Upplýsingasími: 25100 FLUGLEIDIR