Tíminn - 06.04.1986, Page 19
Sunnudagur 6. apríl 1986
Tíminn 19
HALASTJARNAN
HALLEY HEIMSÓTT
Á föstudaginn í næstu viku verður
halastjarnan Halley næst jörðu í
þessari heimsókn sinni. T>á getur
fólk á suðurhveli jarðar séð hana án
sjónauka, og reyndar nokkra daga
fyrir og eftir. Halley mun heimsækja
okkur næst árið 2061, svo þetta er
sjálfsagt eina tækifærið sem flestum
okkar býðst til að líta fyrirbærið
augum.
Það hafa líka margir lagt mikið á
sig til að berja Halley augum og verið
tilbúnir til að greiða vænlegar upp-
hæðir fyrir. Ferð með þeim fræga
fræðingi, Carl Sagan, um Kyrrahafið
í fjórtán daga kostar til dæmis rétt
tæpa hálfa milljón íslenskra króna.
Það skal strax tekið fram að þegar er
uppselt í ferðina og margir á biðlista
ef einhver forfallaðist.
En það hafa fleiri en þeir sem ætla
með Sagan lagt peninga og fyrirhöfn
í að kynnast þessari frægustu hala-
stjörnu allra tíma. Sovétmenn sendu
tvö geimför á móti Halley, .lapanir
sömuleiðis, en Bandaríkjamenn létu
sér nægja eitt. Ekki er enn komið á
hreint hvað þessar framkvæmdir
muni kosta, enda ætti það varla að
skipta almennan lesanda máli, því
talan væri hvort sem er fyrir ofan
skilning hans.
Þessi geimför fóru til móts við
Halley um miðjan síðasta mánuð og
voru næst henni þann 6., 8., 9., 10.
og 13. mars.
Halastjarnan Halley hefur nálgast
Jörðu á 7ó ára fresti frá því fyrir
daga mannsins. Heimsókn hennar
var fýrst skráð árið 240 f. kr. og allt
frá þeim tíma hefur hún vakið for-
vitni jarðarbúa. En í síðasta mánuði
gerðist það í fyrsta skipti að jarðar-
búar fóru á móti halastjörnunni,
áður höfðu þeir látið sér nægja að
bíða eftir að hún kæmi til þeirra.
Vega I, sovéskt könnunarfar, var
fyrst af geimförunum til nálgast
Halley þann 6. mars. í geimrann-
sóknárstöðinni í Moskvu var saman-'
kominn mikill fjöldi af sovéskum
vísindamönnum auk um eitt hundr-
að starfsbræðra þeirra frá ýmsum
löndum. Það ríkti mikil spenna í
loftinu því enn var óvíst hvort geim-
farið þyldi allt sem á því byldi, og
menn voru ekki vissir um að frá því
kæmu nokkrar upplýsingar.
Þegar fyrstu myndirnar fóru að
berast jókst spennan og mönnum
fannst sem þeir væru að sjá eitthvað
sem enginn hafði séð áður. Myndirn-
ar birtust á stórum sjónvarpsskermi
og vísindamennirnir fylgdust með
Vega I nálgast kjarna halastjörnunn-
ar. Eftir því sem Vega I nálgaðist
tók kjarninn að koma í ljós á
skerminum, eða það sem vísinda-
mennirnir töldu vera kjarnann.
„Ef þetta væri aðeins ryk, þá væri
þetta ekki eins óreglulegt og það
sýnist," sagði Fred Whipple, 79 ára
bandarískur vísindamaður sem árið
1950 kom með hina svokölluðu
„Skítuga-snjólbolta“-kenningu.
Hún gerir ráð fyrir að halastjarnan
samanstandi af ís, ryki og málmögn-
um. Hann telur að myndirnar sem
Vega I náði renni stoðum undir
kenningu sína.
Vega I náði 500 myndum af Halley
áður en það varð rykskýjunum að
bráð.
Viku síðar nálgaðist bandaríska
geimfarið Giotto Halley. Því var
ætlað að komast nær Halley en öll
hin, eða í um 500 kílómetra fjarlægð
frá kjarnanum.
I geimrannsóknarstöðinni í Darm-
stadt í Þýskalandi var spennan engu
minni en í Moskvu vikuna áður. Að
senda geimfar svona nálægt kjarnan-
um er mikið hættuspil.
„Þetta er eins og rússnesk rúll-
etta,“ sagði einn af vísindamönnun-
um, „þú getur lifað hana af en eitt
skot mun drepa þig.“
Giotto stóðst álagið og sendi um
2000 ntyndir til jarðar, auk annarra
athugana. Á myndunum kom í ljós
kjarni halastjörnunnar og það mátti
greina að yfirborð hans var með
fjöllum, hæðum og gljúfrum. Hann
var svartur ólíkt því sem menn
höfðu búist við. Þetta' voru mun
betri myndir en hin geimförin höfðu
náð.
Þegar Giotto fór inn í rykmökkinn
hætti það að senda myndir. Vísinda-
mennirnir voru ánægðir með það
Ljósmynd sem sovéska geimfarið Vega I tók af ftjarna Halley.
Ljósmynd sem
bandaríska
geimfariö
Giotto tók af
Halley. Ef
myndin
prentast vel
má sjá svartan
kjarna hala
stjörnunnar
efst í vinstra
horninu.
sem komið var og héldu hátíð. En
hálftíma síðar byrjuðu að berast
nýjar myndir, Giotto hafði komist í
gegnum mökkinn, laskað en ennþá
starfhæft.
Vísindamenn verða sjálfsagt lengi
að vinna úr öllum þeim upplýsingum
sem könnunarförin fimm sendu til
jarðar, en það er þegar ljóst að
manninum hefur tekist að ræna Hall-
ey sumum þeim leyndardómum
sem alltaf hefur fylgt henni.
FDD
BUVELAR UM
ALLT LAND
Dráttarvélar
Plógar
Herfi
Jarðtætarar
Mykjudælur
Haugsugur
Mykjudreifarar Áburðardreifarar Ávinnsluherfi
Sláttuþyrlur
~pt;z
Sláttutætarar
Heykvíslar
Heybindivélar
-
Rúllubindivélar
Heyhleðsluvagnar Baggafæribönd Heyblásarar
Heydreifikerfi
og matarar
Súgþurrkunar-
blásarar
VIJTU
L-—
Fóðurturnar
Votheysskerar
Hjólkvíslar
Kjarhfóöurvagnar
Flórsköfur
Mjaltatæki
Mjólkurkælitankar
OPIÐHUS
HLUTI AF
ER AÐEINS
ÚRVALINU
KAUPFÉLÖGIN OG
= i*J M:
-rfif AnV. TTPI n 1: U-i
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900