Tíminn - 06.05.1986, Side 16
, w JnSKSHrff 1 \ EVERTON hreppti annað sætið í 1. deild ensku knattspyrnunnar með því að sigra West Ham í gær. Gary Lineker ■ skoraði tvívegis í sigrinum og varð lang markahæstur í Englandi. Oxford sigraði ! Arsenal 3-0 og bjargaði sér frá falli í 2. deild. Ipswich beit því í það súra epli að ! falla. Carlisle féll úr 2. deild í þá þriðju með tapi í gær.
gnn
„Sigurvegarinn er frá Keflavík“ tilkynnti Páll Þorsteinsson kynnir kvöldsins. Ragnar Örn Pétursson fellur saman
af fögnuði og er að myndast við að klappa. Hann hefur tryggt sér farseðil til Ítalíu á hcimsmeistaramótið með
drykk SÍnum „Starlight“ Tímamynd: Eggert
Keppt í sætum kokkteilum:
„Starlight" Ragnars vann
Meðal verðlauna var 100 ára gamalt koníak
Ragnar Örn Pétursson barþjónn
og veitingamaður Glaumbergs í
Keflavík þótti hrista besta drykk-
inn í kokkteilkeppni Barþjóna-
klúbbs íslands sem fram fór á
Hótel Sögu á sunnudagskvöld.
Keppt var í sætum kokkteilum.
Drykkur Ragnars ber nafnið Star-
light og hann inniheldur: 1,5 senti-
lítra af vodka, 1,5 sentilítra af
bananalíkjör, 1 sentilítra af Gren-
adin og 2 sentilítra af rjóma. Þetta
er hrist saman og loks er skreytt
með kirsuberi og súkkulaðispæn-
Ég tippaði á réttan hest,“ sagði
Ragnar í samtali við Tímann
skömmu eftir að verðlaunin voru
afhent. Meðal þess sem Ragnar
fékk í verðlaun var hundrað ára
gamalt koníak í krystalsflösku.
„Konan mín Sigríður sagði við
'mig fyrir keppnina að ef ég myndi
ekki vinna með þessum drykk þá
gæti ég allt eins hætt þessu,“ sagði
Ragnar. Hann hefur með sigrinum
tryggt sér rétt til þátttöku á heims-
meistaramótinu sem fram fer á
Ítalíu á næsta ári.
í öðru sæti varð Hafsteinn Egils-
son þjónn á Sögu og í því þriðja
varð Vilhelm Norðfjörð þjónn í
Kreml.
-ES
Davíð mettar
fimmtán þúsund
200 metrar af afmælistertu og 7m2 höfuö-
terta á afmæli Reykjavíkur
Reykjavfkurborg mun bjóða þeim
sem leggja leið sína um Lækjargöt-
una þann 18. ágúst næstkomandi
upp á rjómatertu. Og þar sem þann
dag ber upp á afmæli borgarinnar
búast borgaryfirvöld við miklum
fjölda og því þarf tertan að vera stór.
Afmælisnefnd Reykjavíkurborgar
hefur falið bökurum á Reykjavíkur-
.svæðinu að baka tertu sem metta
geti um fimmtán þúsund rnanns.
Aðalskipulag tertunnar liggur nú fyrir
og mun hún verða í formi fjögurra
öndvegissúlna sem ganga út fra 7m2
höfuðtertu.
Þegar fyrsta prufueintak tertunnar
var smakkað af helstu yfirvöldum
borgarinnar í blíðviðrinu fyrir utan
Höfða í gær, fannst flestum við-
„Málningarslys" í miöbænum:
Slettist á bifreiðir
Þrjár bifreiðir og nokkrir vegfar-
endur fengu yfir sig málningarslettur
á laugardag, þegar húseigandi nokk-
ur sem var að mála hjá sér, missti
málningarfötuna niður á götu. Ekki
þurfti að kalla á lögregluna, því ein
af þessum þremur bifreiðum var
lögreglubifreið sem einmitt var
stödd á mótum Frakkastígs og
Laugavegar þegar málningarfatan
féll í götuna.
Páll Eiríksson aðstsoðaryfirlög-
regluþjónn sagði í gærdag að hann
vissi nú ekki hvernig málningin hefði
verið á litinn, en hann gerði hinsveg-
ar fastlega ráð fyrir því að hún hefði
verið græn. „Er það ekki litur borg-
arinnar á afmælinu?“ spurði Páll.
Sigurður Guðmundsson, fortnaður afmælisnefndar Reykjavíkur, tekur fyrstu
skóflustunguna í fyrsta prufucintak af afmælistertunni. Spenntir smakkarar
fylgjast með. Tímamynd: Pétur
staddra tertan smakkast hið besta.
Borgarstjóri lét þau orð falla að
þetta væri bara helvíti góð terta.
Tímanum tókst að grafa upp
uppskrift tertunnar og látum við
hana fylgja hér ef einhver vildi halda
upp á afmæli sitt af. sömu reisn og
Reykjavíkurborg.
Uppskrift af afmælistertu
fyrir 15.000 manns:
Botn:
240 kg sykur
240 kg makkarónumassi
1.600 stk egg
96 kg hveiti
240 kg sntjörlíki
Frómas:
2.880 stk egg
120 kg sykur
4.000 blöð matarlím
32 kg sherry
40 kg ntakkarónur
240 I. rjómi
Skreyting:
320 kg marsipan
480 I. rjómi
Almenningi skal bent á að ef þeir
hyggjast búa sér slíka tertu þá kostar
efnið í hana 526.027,40 kr. ef verslað
er í ÁTVR, Melabúðinni og Álf-
heimabakaríi. Bindindismönnum og
óvirkum alkóhólistum skal einnig
bent á að sherryinu má sleppa.
-gse
Tillögur svæðabúmarksnefndar:
Sérleyfishafar og
langferðabílstjórar:
Gerðardómur
dæmir fyrir
fyrsta júní
Deila Félags sérleyfishafa og
Sleipnis, Verkalýðsfélags lang-
ferðabílstjóra, fór fyrir gerðar-
dóm sl. föstudag, og er niður-
stöðu að vænta fyrir 1. júní.
Að sögn Ágústs Hafberg for-
svarsmanns sérleyfishafa, ber
mikið á milli og sagði hann að
Sleipnismenn færu fram á rúm-
lega 40% kauphækkun fram til 1.
des. n.k. Væri það meira en
sérleyfishafar treystu sér til að
greiða. Sagði Ágúst að mismun-
andi fyrirkomulag tíðkaðist við
launagreiðslur langferðabíl-
stjóra. Sé vinnutími reglulegur
frá mánudegi til föstudags er
greitt skv. 23. flokki almennra
kjarasamninga. Ef unninn er hins
vegar óreglulegur vinnutími
kæmu 10% álagsgreiðslur og við
þrískiptar sex tíma vaktir bættust
20% ofan á grunntaxta. Hefðu
þeir síðast töldu því laun á bilinu
24.500 kr. til 27.000 ktá mánuði.
Auk þess væru möguleikar á
yfirvinnu miklir.
Ekki náðist í Daníel Óskarsson
formann Sleipnis, til að fá álit
hans á málinu. PHH
bænda til leigu?
Leið til aö umbuna þeim sem vilja draga saman
Nú bendir ýmislegt til þcss að
bændur geti farið að leigja fram-
leiðslurétt sinn, svipað því sem tíðk-
ast hefur með aflakvóta sjómanna.
„Leigan má eingöngu vera með
þeim hætti að búmarksstjórn svæðis-
ins taki réttinn á leigu og endurleigi
hann á sama verði að viðbættum
kostnaði til þeirra er óska að fram-
leiða yfir fullvirðismarki. Leigðum
rétti skal skipt milli umsækjenda í
hlutfalli við útreiknaðan fram-
leiðslurétt. Leigu fyrir ærgildisafurð
skal ákveða fyrir upphaf verðlagsárs
og eins fyrir allt landið. Hún má að
hámarki nema 5% af verði afurða,"
segir í tillögum svæðabúmarks-
nefndar. Leigan verður ennfremur
að vera í samráði við framleiðsluráð
landbúnaðarins og samþykkt af
landbúnaðarráðherra.
Leiga á framleiðslurétti hefur ver-
ið óleyfileg hingað til, en svæðabú-
marksnefnd hugsar hana sem leið til
að umbuna þeim sem draga vilja
saman og um leið geta þeir sem óska
að framleiða umfram sinn fram-
leiðslurétt, leigt viðbótarrétt af þeim
sem vilja draga saman.
Tillaga þessi kemur í framhaldi af
skoðanakönnun þeirri sem fram fór
innan búnaðarfélaganna um fram-
leiðslustjórnun í landbúnaði. Þar
kom fram að 67,8% spurðra vildu
hafa möguleika á því að leigja ónot-
aðan framleiðslurétt og voru menn
hlynntir því að búnaðarsamböndin
hefðu milligöngu um leiguna, en
leigan gildir fyrir eitt ár í senn.
ABS
Framleiðsluréttur