Tíminn - 23.05.1986, Síða 1

Tíminn - 23.05.1986, Síða 1
LÁNSKJ ARAVÍSITALA fyr ir júnímánuö hefur verið reiknuö út og reyndist hún 1448 stig, sem er 1,12% hækkun frá marsvísitölu. Júnívísitalan samsvarar spá Seölabankans frá því í mars sl. Lánskjaravísitalan hefur hækkað um 1,4% síöustu 3 mánuði - mars-júní - sem samsvarar 5,7% verðbólgu á heilu ári. Hækkunin frá því í júní í fyrra er 26,6%. HERMANN Guðjónsson hefur ver- ið settur vita- og hafnarmálastjóri frá og með 16. maí. ALMANNATRYGGINGAR hækka nú um mánaðamótin um 3,06%. Auk þess hefur verið ákveðið að greiða 3000 kr. lífeyrisuppbót elli- og örorkulíf- eyrisþegum sem njóta óskertrar tekju- tryggingar. Öðrum verður greidd uppbót í hlutfalli við skertar tekjutryggingar. SKÓLAGARÐAR Reykjavíkur hefja starfsemi sína um næstu mánaða- mót eins og venja er. Þeir verða á fimm stöðum í borginni; í Skerjafirði, Laugar- dal, við Ásenda, Stekkjarbakka og á Ártúnsholti. 9-12 ára börnum er heimil þátttaka í starfi garðanna og kostar það kr. 250. SÉRFRÆÐINGAR frá Alþjóða kjarnorkumálanefndinni eru væntanlegir til ráðgjafar um rannsóknir á geislavirkni í umhverfinu og matvælum. Heilbrigðis- ráðherra hefur falið Geislavirnum ríkisins að hefja undirbúning reglubundinna geislamælinga í umhverfi og matvælum, til þess m.a. að auka öryggi landsmanna og tryggja verðmæti útflutnings. Það fær- ist í vöxt að kaupendur óski vottorða um geislavirkefni í sjávarafurðumáerlendum mörkuðum. SAMVINNUFERÐIR opna í dag nýja söluskrifstofu í nýbyggingu Hótel Söau og er henni aðallega ætlað að selja feröir innanlands fyrir erlenda ferðamenn. RÆKJUVERÐ var ákveðið á fundi verðlagsráðs sjávarútvegsins á mið- vikudaginn meðsamkomulagi. Niðurstað- an varð sú að lágmarksverð á rækju frá 1. júní til 30. september 1986 skuli vera 6% hærra en það verð sem gildir til maíloka. GRENSÁSVEGSMÁLIÐ er enn í kyrrstöðu hjá rannsóknarlögregl- unni. Konan liggur enn á sjúkrahúsi og hún hefur ekki verið yfirheyrð ennþá. Sambýlismanni hennar hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi eins og komið hefur fram. AKÆRUR í okurmálinu halda áfram að streyma frá Sakadómi. Á miðvikudag- inn voru eftirtöldum birtar ákærur: Jón Baldursson Torfufelli 24, Stefán Haralds- son Flókagötu 3, Bent Scheving Thor- steinsson Oldugötu 17 og Bryndís Val- björnsson Leifsgötu 26. KRUMMI „Það verður æ athyglisverðara fjármálalífið í Reykjavík." Yfirlýsingar Sjálfstæöismanna vekja athygli: „Aðförin að Mikla- garði er hneyksli" - segir Alfreö Þorsteinsson „Ég tel þessa aðför að Mikla- garði vera hneyksli. Samkeppni stórmarkaðanna, Hagkaupa og Miklagarðs, hefur verið reykvísk- um neytendum til góðs og þeir munu fljótt finna fyrir því í hækkuðu vöruverði ef Miklagarði verður lokað. Hér er því einnig um að ræða aðför að Reykvíkingum almennt," sagði Alfreð Þorsteins- son í samtali við Tímann í tilefni af yfirlýsingum sjálfstæðismanna í Reykjavík um að Miklagarði muni verða lokað eftir tvö ár, haldi þeir meirihluta sínum í borginni. Alfreð sagði að það hefði komið sér á óvart að sjálfstæðismenn skyldu lýsa því yfir fyrir kosningar að þeirætluðu að loka Miklagarði, „en það sýnir að þeim er rammasta alvara. Þetta gerist á sama tíma og borgin stendur í milljónafram- kvæmdum vegna nýbyggingar Hagkaupa. Hagkaup eiga allt gott skilið en mismunun af þessu tagi er óþolandi. Sjá nánar leiðara bls. 6. íramir eru komnir Frank Stapleton einn af burðarstólpum írska landsliðsins kom til Reykjavíkur í gær. írska landsliðið mun leika við það íslenska næstkomandi sunnudag og hefst leikurinn á Laugardalsvellinum klukkan 17. Eins og myndin ber með sér er Stapleton alveg tilbúinn í slaginn. Bara eftir að fara úr æfingagallanum. Tímamynd Pctur Falsaðir dollarar í umferð Tveir menn komnir í gæslu- varöhald grunaö- irum peningafals Tveir menn hafa verið úr- skurðaðir í gæsluvarðhald í eina viku vegna rannsóknar á fölsuðum 100 dollara-seðlum sem hafa verið í umferð að undanförnu. Peningunum hef- ur verið skipt hjá einstakling- um, í verslunum og bönkum og er ljóst að upphæð þeirra skipt- ir hundruðum þúsunda. Rannsóknarlögreglan fékk þetta mál til rannsóknar á mið- vikudagskvöldið og rakti slóð seðlanna til tveggja manna sem báðir eru íslendingar. Peir voiu síðan úrskurðaðir í gæslu- varðhald í gær. Ekki eru öll kurl komin til grafar í þessu máli og ekki er enn Ijóst hversu mörgum peningaseðlum hefur verið skipt, né hvaðan þeir koma. Rannsóknarlögreglan varðist allra frétta af þessu máli þegar Tíminn hafði sam- band við hana í gærkvöldi þar sem rannsókn er enn á frum- stigi. -gse Hafskipsmálið hjá rannsóknarlögreglunni: Hafskipsmenn kæra til Hæstaréttar Enn hefur enginn starfsmaöur Útvegsbankans verið yfirheyröur Fjórir rannsóknarlögreglumenn leggja nú nótt við dag ásamt aðstoðarmönnum við rannsókn hins svokallaða Hafskipsmáls. Enn hafa ekki aðrir verið kallaðir til yfirheyrslu en sexmenningarnir sem úrskurðaðir voru í gæsluvarð- hald í fyrradag. Fimm þeirra, Björgólfur Guðmundsson, Ragnar Kjartansson, Helgi Guðmundsson, Páll Bragi Kristjónsson og Þórður H. Hilmarsson hafa kært gæslu- varðhaldsúrskurðinn til Hæstarétt- ar, en þeir voru allir úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 25. júní. Málin verða lögð fyrir réttinn í dag og lögmenn fimmmenninganna munu kynna sér málsatvik. Hæstarétti er skylt að skila niðurstöðum sínum þremur dögum eftir að öll gögn hafa komið fram, svo þeirra er vart að vænta fyrr en um miðja næstu viku. Rannsóknarlögreglan hefur enn ekki viljað gefa upp hver þau brot eru sem mennirnir eru grunaðir um, né á hvaða tímabili þau eru framin. Þó er Ijóst á rannsóknarað- ferðum og íöngum gæsluvarð- haldsúrskurði að mennirnir eru grunaðir um mjög alvarleg auðgun- arbrot, auk skjalafals og rangs framburðar. Enginn starfsmaður Útvegs- bankans hefur verið kallaður til yfirheyrslu, en rannsóknarlög- reglustjóri hefur lýst því yfir að einhver eða einhverjir af starfs- mönnum hans séu grunaðir um brot í opinberu starfi. -gse

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.