Tíminn - 23.05.1986, Blaðsíða 2

Tíminn - 23.05.1986, Blaðsíða 2
2 Tíminn Föstudagur 23. maí 1986 Aðalfundur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna: Minni framleiðsla en aukið verðmæti Aðalfundur Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna hófst í gær á Akureyri, og voru þar mættir á annað hundrað fulltrúar frá 70 aðildarfrystihúsum S.H. Par kom fram að heildarfram- leiðsla félagsaðila S.H. 1985 var samtals 78.529 smál. eða 3,2% minni en 1984. Útflutningur S.H. árið 1985 var hins vegar 85,4 24 smál. og er þar um 3,0% aukningu að ræða frá árinu áður. Verðmæti útflutningsins var kr. 2.447,2 millj. eða 50,7% meira en 1984. Heildarvörusala Coldwater Sea- food í Bandaríkjunum dróst saman um 5,1% en jókst að verðmæti um 3,7%. Alls fóru 46,8% af útflutningi S.H. til Bandaríkjanna. Mikil sölu- aukning varð til Bretlands á árinu, eða sem nam 47,5%. Eru menn bjartsýnir á aukna sölu til Bretlands- eyja og var því ákveðið að stækka frystigeymslur Icelandic Freezing Plants Ltd. um 22.457 m\ Þá var breska fiskheildsölufyrirtækið Brekkes keypt, og talið er að við það skapist nýir og víðtækir sölumögu- leikar m.a. með ferskan fisk. Framleiðsluhæsta frystihúsið inn- an S.H. bæði hvað varðar magn og verðmæti, var Útgerðarfélag Akur- eyringa. Nam hlutdeild þeirra í magni 8,66%, en 9,02% að verð- mætum. Reyndar nam framleiðsla B.Ú.R. og ísbjarnarins scm og Granda hf samanlagt 6.752 smál. eða 8,92% af heildar- framleiðslu S.H., en tekið er fram að þessar tölur séu ekki með öllu samanburðarhæfar vegna samein- ingar frystihúsanna. Eftir landssvæðum var framleiðsl- an mest á Norðurlandi, 16.162 smál., en Vestmannaeyjar og Vestfirðir voru nánast með sömu framleiðslu- tölur, um 13.600 smál. -PHH Nýkjörin stjórn Svd. Ingólfs við nýkeyptan torfærubð af M. A.N. gerð. Bfllinn er að sögn þeirra Ingólfsmanna mjúkur og liðlegur sem fólksbfll. Hann getur borið 20-25 manns ásamt öllum útbúnaði sem þeim fylgir og jafnframt dregið vagn með tveimur stórum snjóbflum. Tæki þetta er hið fyrsta hér á landi sem notað er við björgunar- og leitarstörf. Aðalfundur Svd. Ingólfs: 31 útkall síðasta ár - mikilvirkt torfærutröll bættist í flotann Sigurður Blöndal skógræktarfrömuður gróðursetur tré við Suðurlandsbraut. Líf og land: Tré fyrír 3 milljónir Samtökin Líf og land hafa á- Suðurlandsbraut, milli Álfheima framlög inn á hlaupareikning nr. sölu barmmerkja á fjölförnum kveðið í tilefni 200 ára afmælis Reykjavíkurborgar, að safna 3 millj. kr. til kaupa á trjágróðri. og Skeiðarvogs. 109 í Sparisjóði Rvk. og nágrennis. stöðum unt allt land, nk. föstudag Eins hefur garðyrkjustjóri Rvk. og laugardag. Söfnun stendur nú yfir fram til veitt trjáplöntum viðtöku. Þá " -PHH Gróðursetja á trén á svæði við 24. maí nk. og er hægt að leggja nrunu samtökin einnig standa fyrir Heimilishjálpin í Kópavogi: Umtalsverð kjarabót um 20% launahækkun hjá flestum „Ég vil nú meina að þetta séu að mörgu leyti betri samningar en „Bol- ungarvíkursamningarnir“, því hér er um varanlegan samning að ræða og leiðréttingu á starfsmati þeirra sem vinna hjá heimilishjálpinni,” sagði Bragi Guðbrandsson félags- málastjóri Kópavogs við Tímann aðspurður um hvort Kópavogsbær hefði gert annað Bolungarvíkursam- komulag við Sókn. Bragi sagði að með þessum samn- ingum fengi starfsfólk við heimilis- hjálpina sömu laun og aðstoðarfólk á dagvistarstofnunum, en það væri gamalt baráttumál þeirra. I samningi þeim sem gerður hefur verið er miðað við að lægsti taxti sem borgað verður eftir, samsvari 57. launaflokki BSRB, en það er í samræmi við þá sérkjarasamninga sem gerðir voru við starfsmannafé- lag Kópavogs. Starfsfólk heimilis- hjálparinnar getur þó hækkað um tvo launaflokka með því að fara á tvö námskeið. Að sögn Braga þýðir þetta samkomulag að lang flestir starfsmenn heimilishjálparinnar fái yfir 29 þúsund krónur í mánaðar- laun, þar sem næstum allir hafa annað hvort að baki námskeið eða langa starfsreynslu. Ef miðað er við 18 ára starfsreynslu, sem ekki er óalgeng hjá þessum hópi, lætur nærri að launahækkunin sé að meðaltali um 20-21%, en sé miðað við lægsta hugsanlega taxta sem borgað er eftir (þ.e. engin námskeið eða starfsald- ur) er hækkunin í kringum 14%. Bragi undirstrikaði þó að þessi launahækkun kæmi í kjölfar endur- mats á starfi heimilishjálparinnar og nýrri starfslýsingu þar sem tillit væri tekið til fleiri atriða en áður hafi verið gert. „Það má því segja að hér sé um leiðréttingu á launum þessa fólks ræða,“ sagði Bragi að lokum. -BG Björgunarsveit Slysavarnadeild- arinnar Ingólfs í Reykjavík var köll- uð út 31 sinni í fyrra. Útköllin voru 18 á sjó, 12 á landi og eitt í lofti. Þetta kom fram á aðalfundi Ingólfs, sem haldinn var um borð í skipi Slysavarnafélags íslands, fyrrum varðskipinu Þór. Fram kom að umsvif sveitarinnar aukast stöðugt, ár frá ári, og einkum hjá björgunarsveitinni. I henni eru 75 manns auk fimmtán nýliða og 20 varamanna. Alls telur slysavarna- deild Ingólfs á annað þúsund manns. Ný stjórn var kjörin á aðalfundin- um. Hanaskipa: ÖrlygurHálfdánar- son formaður, Brynjólfur Þ. Brynj- ólfsson varaformaður, Guðni Sig- þórsson gjaldkeri, Gunnar Karl Guðjónsson ritari, Skúli Ólafsson meðstjórnandi, Sigurður Guðmars- son meðstjórnandi, Páll Fransson, Jón A. Jónsson og Gunnar Magnús- son meðstjórnendur. Deildin hefur nýlega fest kaup á mikilvirku torfærutrölli, sem ber um 25 manns með öllum útbúnaði. Bíll- inn er af M.A.N. gerð og getur dregið sleða með tveimur snj óbílum. Upplýsinga- þjónusta landbúnaðar - stofnuð af aðilum sem starfa í land- búnaði Stofnuð hefur verið upplýs- ingaþjónusta landbúnaðarins. Verkefni hennar verða kynningar og fræðslustarf unr landbúnaðinn og framleiðsluvörur hans. Meðal annars mun Upplýsingaþjónust- an gefa út fréttabréf. annast út- gáfustarfsemi og hafa samstarf við fjölmiðla um málefni land- búnaðarins. Stofncndur voru Framleiðslu- ráð Iandbúnaðarins. Stéttarsam- band bænda, Búnaðarfélag íslands, Landbúnaðarráðuneyt- ið. Mjólkursamsalan í Reykja- vík, Ósta- og smjörsalan, Bú- vörudeild SÍS, SS og samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði. Auk þessara aðila verður leitað eftir þátttöku fleiri aðila sem starfa í landbúnaði og þeir sem ákveða þátttöku fyrir 1. júlí munu taldir sem stofnaðilar. í stjórn Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins voru kosnir Guð- mundur Stefánsson, Óskar H. Gunnarsson. Hákon Sigurgríms- son, Magnús Friðgeirsson og Guðmundur Sigþórsson. -ABS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.