Tíminn - 23.05.1986, Síða 5
Föstudagur 23. maí 1986
Tíminn 5
111 ÚTLÖND
illllllllliHIIIIIIII
Vopnabröltinu linnir ei:
NATO samþykkti nýja
efnavopnaframleiðslu
ísland meðal þeirra ríkja sem gert hafa athugasemdir við áform
Bandaríkjastjórnar um framleiðslu á nýrri gerð efnavopna
Bríissel-Rcuter
Varnarmálaráðherrar NATO-
ríkjanna samþykktu í gær áætlun
sem gerir ráð fyrir að Bandaríkja-
menn hefji að nýju framleiðslu á
efnavopnum. Caspar Weinberger.
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, viðurkenndi þó að nokkur
mótstaða hefði verið innan banda-
lagsins vegna áforma Bandaríkja-
manna um efnavopnaframleiðslu.
Ráðherrarnir fjórtán samþykktu
hernaðaraðgerð þar sem gert er ráð
fyrir að Bandaríkjamenn hefjí fram-
leiðslu tvíefnaskiptra stórskotaliðs-
kúlna og sprengna eftir sautján ára
hlé á cfnavopnaframleiðslu.
Bandaríska þingið hafði áöur sam-
þykkt þessa ráðagerð en þó með því
skilyrði að NATO-ríkin samþykktu
hana.
Tvískipt efnavopn eru byggð á
tveimur hættulausum efnum sem
breytast í banvænt gas þegar þeim er
blandað saman með sprengingu.
Nokkrir NATO ráðherranna létu
skrá niður efasemdir gegn því sem
Weinberger kallaði „nauðsyn þess
að endurnýja efnavopnabirgðir
okkar".
Manfred Wörner varnarmálaráð-
herra V-Þýskalands tók þó fram að
ekkert ríki hefði reynt að stöðva
framgang áætlunarinnar. Hann sagði
ísland, Noreg, Danmörk, Lúxem-
borg, Holland og Grikkland hafa
verið þau ríki sem gerðu sínar at-
hugasemdir við ráðagerðina.
Ekki varþóbúist viöaðeinhverjar
athugasemdir yrðu settar á lokasam-
þykktina sem birta átti í gærkvöldi.
Spánn:
Fölleitir
Bretar
flykkjast
í sólina
Madríd-Reuter.
Spánverjar búast við miklum
ferðamannastraumi frá Bretlandi á
komandi sumri. Talsmaður ferða-
málaráðuneytisins spánska sagði í
gær að búist væri við sex milljónum
náhvítra Breta yfir til Spánar á þessu
ári. Þessi fjöldi mun bæta upp
minnkandi fjölda bandarískra ferða-
langa á Spánarströndum.
„Við búumst við um sex milljón-
um Breta á þessu ári en þeir voru
fimm milljónir á síðasta ári,“ sagði
talsmaðurinn við fréttamann Reut-
ers.
Spánverjar telja aukninguna stafa
af sterkri stöðu breska sterlings-
pundsins gagnvart pesetanum og
fáum vinnudeilum í ríki Thatchers á
þessu ári.
Talsmaðurinn bjóst við að um 100
þúsund færri Bandaríkjamenn létu
sjá sig á sólarströndum Spánar á
þessu ári og á óttinn við hryðjuverk
þar stærstan hlut að máli.
Á síðasta ári heimsóttu 43,2 mill-
jónir erlendra ferðamanna Spán.
Weinberger varnarmálaráðherra Bandaríkjanna og Wörner varnarmálaráð-
herra V-Þýskalands skoða hér ný morðtól. Báðum fínnst efnavopnafram-
leiðslan hin mesta nauðsyn.
Ekki er heldur búist við að utanríkis-
ráðherrar NATO-ríkjanna, sem
hittast í Halifax á Englandi í lok
þessa mánaðar, breyti nokkru í þess-
ari samþykkt.
NATO heldur því fram að Sovét-
ríkin búi yfir 800 þúsund tonnum af
taugagasi og hafi þjálfað um 80
þúsund menn til efnavopnahernað-
ar. Bandaríkjanienn eiga nú rúm 30
þúsund tonn af efnavopnum sem öll
eru frá árunum fyrir 1969 en þá var
framleiðsla þeirra stöðvuð.
HOLLAND:
STYRIFLAUGA-
UMRÆÐA ÚTI
Fátt getur nú komið í veg fyrir uppsetningu
bandarískra stýriflauga eftir kosningasig-
ur Kristilegra demókrata
Haag-Reuter
Sigur samsteypustjórnar hægri-
og miðflokkanna í kosningunum í
Hollandi er talinn hafa rutt úr vegi
síðustu hindruninni gegn staðsetn-
ingu bandarískra stýriflauga í land-
inu innan tveggja ára.
Bandalag kristilegra demókrata
og frjálslyndra komu út úr kosning-
unum með öruggan tólf sæta meiri-
hluta á liinu 150 manna stjórnar-
þingi. þægilegur meirihluti á þcssu
öðru fjögurra ára tímabiÚ stjórnar
Ruud Lubbers forsætisráðherra.
Blöð í Hollandi hafa almennt
lýst kosningunum scm miklum
pcrsónulegum sigri fyrir liinn 47
ára gamla Lubbers en flokkur
hans, Kristilegir démókratar, fékk
alls 54 þingsæti.
Verkamannaflokkurinn, stærsti
stjórnarandstöðuflokkurinn, fékk
52 þingsæti og bætti því við sig
fimm þingmönnum. Það var þó
ekki nóg og sagði Max Van Den
Berg. formaður flokksins, af sér í
gær. Það var einmitt hann sem
skipulagt hefur baráttu stjórnar-
andstöðunnargegn uppsetningu 48
bandarískra stýriflauga í landinu.
Baráttan gegn uppsetningu
flauganna virðist hinsvegar hafa!
misst nokkuð gildi sitt í huga!
almennings því lítill áhugi virtist
vera á málinu eftir miklar deilur,
sem raunar hafa sett mest mark á
hollensk stjórnmál síðustu fjögur
árin.
Lubbcrs tók við forsætisráð-
herraembættinu árið 1982, þá aö-
eins 43 ára að aldri og yngsti
forsætisráðherra hollenskar sögu.
Persónulegt fylgi hans og góð
frammistaða í lokaslag kosninga-
baráttunar nú er talin hafa ráðiö
mestu um hversu margir kjóscndur
gál'u Lubbers og flokki hans sitt
atkvæði.
Þeir sem stutt hafa hina nýju
efnavopnaáætlun segja Sovétstjórn-
ina einungis ganga til samninga um
alþjóðlegt bann á efnavopn þegar
Bandaríkin hafi yfir að ráða nógu
miklu magni af nýjum efnavopnum.
Andstæðingar bandarísku ráða-
gerðarinnar segja að nýju cfnavopn-
in muni hleypa af stað nýrri efna-
vopnaframleiðslu og líkurnar séu nú
litlar fyrir árangri í Genfarviðræðun-
um um banna efnavopn.
Spanjólar hafa reist heilmikið af svokölluðum Lundúnapöbbum. Þar munu
sex milljónir Breta sitja við glasaglaum þetta árið.
BANGLADESH:
Fátækar konur
fluttar út
sem frillur
Daccu-Reuter
Lögrcglan í Bangladesh réðst inn
í hús eitt í Dacca nú í vikunni og
frelsaði fimmtíu konur á aldrinum
14 til 30 ára sem þar var haldið
nauðugum. Konurnar átti að selja
sem frillur ellegar hórur til Mið-
Austurlanda.
Lögreglan handtók fjóra þcirra
sem höfðu konurnar í haldi en
sagðist leita fleiri manna úr þessum
hópi sem smyglað hefur hundruðum
kvenna til Mið-Austurlanda og ann-
arra landa í gegnum lndland og
Pakistan.
Konurnar sögöu lögreglunni að
þeim hafði veriö lofað góðri vinnu
erlendis: „En við geröum okkur
fljótlega grein fyrir að okkur var
ætlað að lifa lífi hjákvenna," bætti
ein kvennanna við.
„Smyglararnir herja yfirleitt á fá-
tækar fjölskyldur og lofa dætrunum
hálaunuðum störfum. Flestar þeirra
enda samt í vændishúsum eða
kvennabúrum þeirra ríku í útlönd-
um,“ sagði yfirmaður lögreglunnar f
Dacca.
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:.... 91-31815/686915
AKUREYRI:...... 96-21715/23515
BORGARNES: ........... 93-7618
BLÖNDUÓS:........ 95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR: ... 95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:........ 96-71489
HUSAVÍK:....... 96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: ......... 97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: .. 97-3145/3121
FASKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ..... 97-8303
irrterRerrt
Líbýa:
Engin enska
- rússneskan kemur í
staöinn
Bahrein-Rcutcr.
Stjórnvöld í Líbýu hafa hætt
enskukennslu á öllum stigum
skólakerfisins og sett rússnesku-
kennslu inn í staðinn. Þetta kom
fram í fréttatilkynningu JANA,
hinnar opinberu fréttastofu Lí-
býu.
Haft var samband við einn af
fréttastjórum JANA frá Bahrein
og sagði hann enga ástæðu hafa
verið gefna fyrir afnámi enskunn-
ar. Breytingin hefur þegar gengið
í gildi og r'ússneskan hljómar nú
um sali og allra líbýskra skóla-
stofa.
Bandarískar herflugvélar, þar
meðtaldar herþotur sem lögðu
upp frá enskum herflugvelli,
vörpuðu sprengjum á Tripóli og
Benghazi í síðasta mánuði.
Bretland:
Ríkisskólarnir fá
lélegar einkunnir
Lundúnir-Reuter.
Bresk börn þurfa að sækja lélega
skóla þar sem foreldrar borga mik-
inn hluta bókakostnaðarins. Kenn-
ararnir skilja ekki þarfir barnanna
og um þriðjungur kennslustundanna
er illa undirbúinn. Þetta kemur fram
í skýrslu sem unnin var á vegum
stjórnvalda.
„Af núverandi útgjöldum til
menntamála verður ekki annað séð
en að hnignunin haldi áfram," sagði
í skýrslunni sem samin var af skóla-
eftirlitsmönnum hins opinbera.
Eftirlitsmennirnir fóru um 1648
ríkisskóla til að kanna gæði
menntunar þeirrar sem boðin er
hinum 9,4 milljón skólanemendum
á Bretlandi. í skýrslunni voru
skólarnir sagðir í heildina vera frá-
hrindandi og óhreinir.
Kennarar, sem nýlega hættu
skyndiverkföllum er staðið hafa yfir
síðasta árið, hafa ásakað stjórn
Thatchers um að veita ekki nógu
miklu fé í menntakerfið.
í skýrslunni kom fram að í 40%
skólanna sem kannaðir voru höfðu
foreldrar þurft að greiða þriðjung
eða meira á móti ríkinu til að
mennta börn sín en „opinberlega“
bjóða ríkisskólarnir upp á ókeypis
menntun.
Vélaeigendur:
TAKIÐ EFTIR!!!
Eigum fyrirliggjandi eða útvegum
með stuttum fyrirvaraeftirfarandi
x Alla helstu varahluti fyrir
Caterpillar og Komatsu
vinnuvélar.
x Beltakeðjur og aðra
undirvagnshluti í allar gerðir
beltavéla.
x Slitstál, skerablöð og
tannarhorn fyrir jarðýtur og
veghefla.
x Riftannaodda fyrir jarðýtur.
x Spyrnubolta og skerabolta
allar stærðir.
x Stjórnventla og vökvadælur
fyrir 12/24 volta kerfi.
x Slitplötur og aðra varahluti í
mulningsvélar.
x Hörpunet allar stærðir fyrir
malarhörpur.
x Færibönd og varahluti í
færibönd.
x Drifkeðjurogfæribandakeðjur
fyrir verksmiðjur og
landbúnaðarvélar. Einnig fyrir
lyftara, vökvakrana, rafstöðvar,
loftpressur, götusópa,
dráttarvélar og flutningatæki.
ALLT Á EINUM STAÐ:
Og við teljum niður
verðbólguna hraðar en margir
aðrir.
VÉLAKAUP h/f
Sími641045