Tíminn - 23.05.1986, Page 11

Tíminn - 23.05.1986, Page 11
Föstudagur 23. maí 1986 lllliB MINNING Sigurður Jónsson Fæddur 23. maí 1916 Dáinn 16. apríl 1986 „Oft er sannleikur eyrum beisk- ur.“ Það er eins og dauðinn komi okkur alltaf á óvart, jafnvel þótt manni bjóði í grun hvers megi vænta eftir langvarandi veikindi eins og Sigurður vinur minn og svili varð að heyja. Mig langar aðeins til að minnast hans með örfáum orðum, ég rifja ekki upp æviferil hans, það verður af öðrum gert. Sigurður var fæddur að Þorvaldsstöðum í Breið- dal 23. maí 1916, sonur hjónanna Guðnýjar Jónasdóttur og Jóns Björgúlfssonar, bónda. Systkinahópurinn var stór 13 talsins og var Sigurður elstur, svo nærri má geta að snemma hefur þurft að taka til hendi. Hann sagði mér margt úr sinni heimabyggð og ég ætla, að eftir því sem árunum fjölgaði hafi hugur- inn verið sterkari á heimaslóðum. Sigurður var fyrstur manna að aka á stórum hópferðabíl austan frá Breiðdal til Reykjavtkur 1941 og lýsir það sér hve hörkuduglegur hann var og lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna að fara slæma eða enga vegi, það var mikið þrekvirki. í>eir sem fæddust fyrst á þessari öld hafa með sanni lifað tvenna tíma, breytingu á atvinnu- og þjóðlífshátt- um, sem ekki höfðu breyst mikið um aldir og ólust upp við rótgróna bændasamfélagsmenningu. Hann fór á héraðsskólann á Eið- um og var þar í tvo vetur. Frá þeim tíma átti hann margar mjög skemmtilegar minningar, enda var hann mikill bókamaður, las mikið af öllum fræðibókum, sem hann komst yfir að lesa og átti gott bókasafn, tel ég að hann hafi kunnað íslendinga- sögurnar og fornaldasögu Norður- landa utanbókar, enda furðaði mig oft á því, hvað hann hafði sterkt minni á allt sem hann las. Upp úr 1940 kom hann til Reykja- víkur og fór að stunda vinnu hér á veturna en var með hópferðabíl á sumrin fyrir austan, sem þeir bræður áttu. 10. janúar 1945 steig Sigurður sitt gæfuspor er hann gekk að eiga eftirlifandi konu sína Ástu Gunn- steinsdóttur, foreldrar hannar voru Sólveig Jónsdóttir og Gunnsteinn Einarsson, skipstjóri og hreppstjóri frá Nesi við Seltjörn. Þau Ásta og Sigurður eignuðust 4 börn, 2 dóu í frumbernsku en hin eru Sólveig, gift Ómari Bjarnasyni, símaverkstjóra og Gunnsteinn tæknifræðingur, gift- ur Guðbjörgu Hermannsdóttur, hjúkrunarfræðingi og eru barna- börnin fjögur. Á þessum árum ók hann áætlunar- þílum fyrst frá bifreiðastöðinni Heklu, en síðar Steindóri. En árið 1954 veikist hann og var frá vinnu á annað ár, en þegar hann fór að ná sér stofnaði hann verslunina Stein- nes á Seltjarnarnesi og rak hana í 14 ár, fyrst í leiguhúsnæði en byggði síðan sína eigin verslun, síðan selur hann hana og fer að aka sendibíl á Sendibílastöðinni h/f., og jafnframt byrjar hann í starfi hjá Trausta, sem er stéttarfélag sendibílstjóra. Sigurður var einstaklega vandaður og samviskusamur maður. Hann var hæglátur, en hafði ákveðnarskoðan- ir og kaus að vinna að þeim með hógværð. Oft var róðurinn þungur eins og vill vera hjá þeim sem fara fyrir, en Sigurður hélt sínu striki í rólegheitum, en með festu, þannig reyndist hann mér og mínum í félagsskap tengdafólks síns og hafi hann þökk fyrir það allt. Pessi fátæk- legu orð eru þakklætisvottur til Sigurðar vinar míns. Flest bendir í þá átt að saga hvers og eins sé þar með ekki öll, þótt önn dagsins á okkar jörð sé að baki. Svo votta ég Ástu konu hans og allri fjölskyldunni mína dýpstu samúð. Og kveð hann með ljóðlín- unum alþekktu. Og nú fór sól að nálgasi œginn og nú var gott að hvíla sig og vakna upp ungur einhvern daginn með eilífð glaða kringum þig. (Þ.E.) Guðm. Gunnarsson Að morgni 16. apríl andaðist í Landakotsspítala Sigurður Jónsson frá Porvaldsstöðum í Breiðdal. Hann var fæddur 23. maí 1916 og hefði því orðið sjötugur í dag. Foreldrar Sigurðar voru hjónin Guðný Jónasdóttir og Jón Björgólfs- son bæði áttu þau ættir að rekja til séra Einars prests og sálmaskálds í Heydölum. Guðný var fædd að Hóli í Breiðdal 30. október 1891. Voru foreldrar hennar hjónin Helga Eyjólfína Por- varðardóttir og Jónas Erlendsson. Ung var hún tekin í fóstur af þeim hjónum Björgu Björnsdóttur og Árna Birni Árnasyni á Dísastaðaseli í Breiðdal. Jón var fæddur að Snæhvammi í sömu sveit 5. mars 1881 sonur hjón- anna Kristínar Jónsdóttur og Björg- ólfs Stefánssonar bónda þar, síðar bónda að Kömbum í Stöðvarfirði. Þessi ár voru barnmörgum fjölskyld- um þung í skauti og 5 ára gamall fer Jón í fóstur að Þorvaldsstöðum. Þessi fósturheimili reyndust til fyrir- myndar og til marks um það hversu fósturbörnin unnu sínum fóstur- mæðrum er það, að aliar dætur þeirra utan ein, heita Björg að seinna nafni svo sem þær hétu báðar. Frá Þorvaldsstöðum fór Jón aldrei meðan hann lifði. 1915 kaupir hann bú þeirra fóst- urforeldra sinna en þau voru Björg Stígsdóttir og Sigurður Guðmunds- son, sem auk búskaparins stundaði silfursmíði. Petta ár 1915 andast fóstra Jóns. Tók þá Guðný við búsforráðum á Þorvaldsstöðum og giftu þau sig hið santa ár. Sigurður fóstri Jóns dvaldi áfram í skjóli þeirra hjóna ásamt dreng er hann hafði einnig tekið í fóstur Pétri Guðmundssyni og var um 10 ára er þetta gerðist. Þessi drengur dvaldi svo á Þorvaldsstöðum til fullorðins ára og var sem einn af systkinunum. Þar dvaldi og móðir Jóns með yngsta son sinn en hún hafði þá misst mann sinn og son með stuttu millibili. Einnig átti þar skjól hin síðustu ár sín, fósturfaðir Guðnýjar er hann var ekkjumaður orðinn og einnig bróðir hans. Fleiri gamalmenni nutu þar athvarfs og aðhlynningar til hinsta dags að lokinni starfæfi, því margt var hjúa á heimilinu svo sem títt var á stórum búum þeirra tíma. Þorvaldsstaðir er innsti bær í Norðurdal í Breiðdalshreppi. Jörðin stór og afréttarlönd hennar liggja að þremur hreppum. Það þurfti atorku og mannafla til að nytja þessa stóru jörð. Þessi upptalning hér að framan er aðeins til að skýra það úr hvaða farvegi Sigurður Jónsson var sprott- inn og inn í hvaða umhverfi hann fæðist, sem elsta barn sinná foreldra. En börnin á Þorvaldsstöðum urðu alls 13, þannig að menn geta gert sér í hugarlund að snemma hvíldf á herðum hans erfiði og nærri ofur- mannleg ábyrgð sem mundi hafa bugað margan ungling. En það var fjarri Sigurði að bugast og hann var þessum vanda vaxinn að vera sá stóri bróðir sem allir gátu leitað til um ráð og hjálp. Axlaði hann snemma byrð- ar bústjórnar ásamt móður sinni í fjarveru föður síns sem var hlaðinn trúnaðarstörfum fyrir sveit og sýslu og þurfti því oft að vera fjarverandi. Sigurður hinn stóri bróðir varð þannig stoð og stytta heimilisins og það hélst áfram þótt hann flytti að heiman og hinir næstu í röðinni tækju við hans hlutverki á búinu. Hann hélt áfram að vera sá sem allir gátu leitað til og kvabbað á með stórt og smátt, vinir, kunningjar og vandamenn. Sigurður varð snemma bók- hneigður, enda gott safn bóka á heimilinu og mikið lesið. Gamla fólkið er þarna dvaldi heill hafsjór af sögum og ljóðum og hafði á hrað- bergi sagnir frá gamalli tíð. Þetta drakk Sigurður í sig í uppvextinum sem barn og unglingur. Enda fannst mér alltaf að hann væri stóri hlekkur- inn, tengiliður okkar yngri systkin- anna við fortíðina, því flest þetta gamla fólk var horfið til feðra sinna í okkar uppvexti, enda aldursmunur 20 ár á elsta og yngsta systkini. Ungur fór Sigurður í Alþýðuskólann á Eiðum og ætla ég að það hafi verið honum drjúgt veganesti út í lífið. En best mun honum hafa dugað sjálfs- námið, því hann var alla tíð bókelsk- ur maður og unni sögnum og Ijóðum svo að sjaldgæft má telja. Svo var hann vel að sér í sögu að langskóla- gengið fólk mátti vara sig að etja við liann kappi á þeim vettvangi. Hafði hann og mjög gaman af að ræða þessi fræði svo og ættfræði við sína líka. Fannst manni stundum sem hinir fornu kappar og söguhetjur stigu fram Ijóslifandi. Enda ræddi hann þær ekki sem sögupersónur, heldur var því líkast að hann væri að ræða fólk sem hann gjörþekkti eins og nágranna í næsta húsi. Sigurður hafði ákveðnar skoðanir og var reiðubúinn að berjast fyrir sannfæringu sinni ef á þurfti að halda. Samviskusamurvarhann með afbrigðum og sem títt er um slíka menn hlóðust á hann hverskonar trúnaðarstörf. Var það fjarri honunt að skorast undan erfiði og ábyrgð, því slíku hafði hann vanist frá blautu barnsbeini. Um laun var ekki spurt. Sem fyrr er sagt vann Sigurður á búi foreldra sinna fram yfir tvítugt. Um 1939 ræðst faðir okkar í að byggja stórt og mikið timburhús á Þorvaldsstöðum. Var Sigurður að sjálfsögðu ein aðaldriffjöðurin í þeim framkvæmdum. Keypti hann þá vörubifreið til aðdrátta á bygg- ingarefninu. Um 1941 ræðst hann í að kaupa 18 manna bifreið til fólksflutninga ásamt tveimur bræðra sinna. Var þetta taumlaus bjartsýni á þeim tíma, því varla var þá vegspotti sem heitið gæti því nafni niður á firðina. Á þessum bíl hélt hann samt uppi áætlunarferðum að minnsta kosti í 2 sumur til Seyðisfjarðar. En ekki lét hann sitja við það heldur mun hann einnig var frumkvöðull að farþega- flutningum með rútu milli Breiðdals- víkur og Reykjavíkur, og mun sú ferð þeim minnistæð er hana fóru. Enda talið ógerlegt. Rútuna leigði hann svo á veturna til meiraprófs, sem þá var eingöngu þreytt í Reykja- vík. Var hann og með þennan bíl í hverskonar keyrslu t.d. fyrir herinn. En þá var mikill skortur á bílum í Reykjavík sakir stríðsins. Uppúr þessu ílendist Sigurður í Reykjavík. Réðist hann næst til bílastöðvarinnar Heklu í Lækjargötu var þar fyrst með leigubíl en tekur síðan að aka Hreðavatnsrútunni á vegum Heklu. Síðar er Hekla lagðist niður gerðist hann bílstjóri hjá Bifreiðastöð Steindórs um langt árabil. Keyrði þá t.d. Hafnarfjarðarstrætó, einnigsuð- ur með sjó en lengst til Stokkseyrar og Eyrarbakka. Voru þetta oft erfið- ar ferðir í ófærð og vondum veðrum, kom sér þá vel þrek og óbilandi kjarkur Sigurðar á hverju sem gekk. Þó kom þar að hann varð að hætta akstri sökum atvinnusjúkdóms bif- reiðastjóra bakveiki. Þá reisir hann verslunar og íbúðarhús að Mela- braut 57 og hefur búið þar síðan. Þarna á Melabruutinni rak hann verslun um árabil ásamt fjölskyldu sinni, þar til hann fór að aka sendi- ferðabifreiðum. Fyrst á Sendibíla- stöðinni en síðustu árin starfaði hann hjá Trausta, félagi sendibíl- stjóra, þar sem hann gegndi trúnað- arstörfum meðan heilsa og kraftar leyfðu. Kvæntur var Sigurður Ástu Gunn- steinsdóttur frá Nesi við Seltjörn, dóttir hjónanna Sólveigar Jónsdótt- ur og Gunnsteins Einarssonar bónda og skipstjóra. Sigurður og Ásta gengu í hjónaband lO.janúar 1945. Þeim varð 4 barna auðið en 2 þeirra dóu í frumbernsku, en á lífi eru: Sólveig húsmóðir á Seltjarnarnesi gift Ómari Bjarnasyni verkstjóra hjá símanum. Þeirra börn eru: Ástríður Kristín, Sigurður og Ólafur. Gunnsteinn byggingatækni- fræðingur kvæntur Guðbjörgu Jónu Hermannsdóttur hjúkrunarfræðingi, þau eiga eina dóttur Guðrúnu Margréti. Fósturson áttu þau einnig Sigurð- ur og Ásta, Jón Ómar Jóhannsson. Var hann hjá þeim frá fermingu til Tíminn 15 þess er hann sjálfur stofnaði sitt heimili. Mjög var kært með þeim Sigurði og mun hann hafa litið á þau hjón sem foreldra. Fjölskylda Sigurðar var honum það athvarf er aldrei brást til hinstu stundar í stormum lífsins ogveikind- astríði síðustu ára. Kona hans Ásta Gunnsteinsdóttir hefur að hætti góðra kvenna reynst hans styrka stoð og sterkust þá mest á reyndi. Börn, tengdabörn og barnabörn eiga á bak að sjá föður og afa sem var óþreytandi í ást sinni og umhyggju fyrir þeim til hinstu stundar. Um- hyggja hans náði lengra og voru lítil takmörk seti, systkini, vinir og vandamenn allir eiga minningar um ntanninn sem alltaf var reiðubúinn að gera greiða. Systkinabörnin litu á Sigga frænda sem einskonar alls- herjar afa. Eg vil að lokum færa þakkir frá okkur systkinunum, mökum okkar og börnum. Samúðarkveðjur send- um við þér Ásta mín, börnum, tengdabörnum og sér í lagi afabörn- unum. Pig dreymdi vorið í dölunum fyrir austan Oft dvaldi hugur við endurminningar bjarlar Pegar að loknu hásumri lífsins haust- ar í hjartanu fegurst bernskuminningin skartar. Við trúwn að baki tjaldanna fyrir handan sé tími og eilífð hugtök er engu breyta Vöknum ung svo laus við veraldar- vandann í veröld Ijóssins hverfur myrkur og þreyta. Síðasta setningin scm ég heyrði þig segja bróðir var: „Eg vildi að ég gæti séð eitthvað í kringum mig." Ég trúi að nú hafi sú ósk ræst. Hafðu þökk fyrir allt. Þórey Jónsdóttir frá Þorvaldsstööum 16. apríl lést góðurvinurogfélagi, Sigurður Jónsson framkvæmdastjóri Trausta, félags sendibílstjóra. Sigurður fæddist á Þorvaldsstöðum í Breiðdal 23. maí 1916. Hann var sonur hjónanna Jóns Björgúlfssonar og Guðnýjar Jónasdóttur, elstur þrettán barna. Þó svo að Þorvalds- staðir væru innsti bærinn í Norður- dal, þá var þar mjög gestkvæmt og létt yfir fólki. 1941 keypti Sigurður með bræðrum sínum 18 manna Chevrolet rútu. Alla tíð síðan hefur það verið uppáhaldstegund hans enda sagði hann eitt sinn þegar læknar voru búnir að koma honum aftur á fætur eftir veikindi að lengi mætti lappa upp á gamlan Chevrolet. Á þessum bíl sínum fór hann til Reykjavíkur fyrstur manna akandi úr Breiðdal. Þar kynntist hann konu sinni, Ástu Gunnsteinsdóttur, fædd í Nesi á Seltjarnarnesi. Þar bjuggu þau síðan í farsælu hjónabandi, eignuðust fjögur börn en misstu tvö í æsku. Þau sem komust á legg eru: Sólveig gift Ómari Bjarnasyni síma- manni og eiga þau þrjú börn, og Gunnsteinn tæknifræðingur kvæntur Guðbjörgu Hermannsdóttur og eiga þau eina stúlku. Næstu árin stundar hann akstur í Bretavinnunni, með áætlunarferðir til Seyðisfjarðar, áætlunarferðir í Borgarnes og í tíu ár samfellt var hann rútubílstjóri hjá Steindóri. Þá var hann orðinn svo slæmur í baki að hann lá rúmfastur í eitt ár og hafði ekki heilsu til þess að byrja akstur á ný. Hóf hann þá verslun á Seltjarnar- nesi í smáum stíl fyrst, þar sem hann á hækjum smíðaði alla innréttingu sjálfur. Seinna byggði hann myndar- legt verslunarhús á nesinu og versl- aði í 14 ár. Ekki mun hann hafa auðgast á versluninni, var of mikið ljúfmenni og lánaði viðskiptamönn- um fullmikið á stundum og var slakur við innheimtu hjá þeim. Þess vegna og við skárri heilsu þá byrjaði hann akstur á ný 52ja ára gamall. Hann keypti hlut í Sendi- bílastöðinni h/f. og hóf akstur á stöðinni 1968. Ekki höfðum við trú á að hann myndi endast lengi í starfinu, þar sem um er að ræða starf fyrir hrausta menn. En hann var fljótur að afla sér vinsælda og eign- aðist góða viðskiptavini. Það leið ekki á löngu þar til hann var kominn í stjórn Sendibílastöðvarinnar jafn- framt sem hann var kjörinn formað- ur Trausta, félags sendibílstjóra. Þegar hann tók við stjórn Trausta átti félagið ekki neitt og hafði fram að því átt mjög erfitt uppdráttar. Var utan við öll samtök og kerfi, litlu meira en átthagafélag sem hélt spilakvöld einu sinni á ári. Hann reisti félagið við með því að opna skrifstofu, þar sem hann var til viðtals eftir vinnutíma. Hann barðist ötullega fyrir hagsmunum félaganna án þess að missa sjónar á því, að til þess að halda vinnu, þá þýðir ekki að spenna bogann of hátt heldur skal fara með gát. Starf Sigurðar var meira af hugsjón og innri þrá en peninganna vegna, enda voru laun hans í peningum lftil, laun hans voru að sjá félagið eflast og dafna. Hann lagði úr eigin vasa fé, þegar fest voru kaup á húsnæði fyrir félagið, og gekk í persónulegar ábyrgðir fyrir félagana. Hann var heppinn með meðstjórnendur, einn af hverri stöð, ágætismenn sem lagt hafa grunn að sterku bílstjórafélagi. En bílstjórar eru menn sem vilja vera sjálfs sín herrar og erfitt er að ná saman sem afli hvað þá sterku afli. Honum var ljóst að margt er þar ógert, en hann hefur á fáum árum skapað samstöðu bílstjóra af mörgum stöðvum. Undirritaður kynntist Sigurði þeg- ar hann hóf akstur á Sendibílastöð- inni h/f. og störfuðum við saman í stjórn stöðvarinnar í mörg ár. Reynsla hans af félagsmálum kom okkur yngri mönnum mjög til góða, róleg yfirvegun og að skoða hvert mál frá fleiri en einni hlið varð okkur farsælt. Hann var alla tíð mikill framsóknarmaður og þegar hann kvæntist inn í sjálfstæðisfjölskyldu á Nesinu, þótti þar kominn kynlegur kvistur á Nesið en þar voru fram- sóknarmenn sjaldséðir fuglar. Hann dreif upp félag framsóknarmanna og mun það hafa verið með mestum blóma í hans tíð. Hann sat í hrepps- nefnd fyrir Framsókn í 8, ár. Ekki mátti hann heyra neitt illt um Framsókn, þess vegna varð hann oft fyrir léttum skotum af okkar hálfu, en hann svaraði og sendi boltann glettinn til baka. Framsóknarmenn voru góðir menn og væru þeir líka úr Breiðdaln- urn þá voru þeir frábærir. Ef rætt var um einhvern, þá vildi hann vita hverra manna hann væri og hvaðan. Síðastliðin ár hefur Sigurður verið meira og minna rúmfastur en hann hafði síma við rúm sitt og sinnti ýmsum málum fyrir félagið, hringdi í embættismenn til þess að fá leið- réttingu á málum sendibílstjóra og var hann þá mjög fylginn sér. Fram á síðustu stundu snérist hugur hans um sendibílstjóra, gang mála hjá sinni stöð og stéttarfélaginu þar sem honurn fannst hann eiga margt ógert og háði hann harða baráttu í von um að ná heilsu, en árangurslaust. Þegar hann sá að hverju stefndi, sagði hann mér að stundum vorkenndi hann læknum sínum, öllurn þessum ágætismönnum sem reyndu að lappa upp á sig án þess að hafa nokkuð af varahlutum, í staðinn fyrirónýtt. Þá væru bifvélavirkjarnir ólíkt betur settir. Það er sagt að hinir góðu deyi ungir, en sannir gæðamenn, eins og Sigurður var, eru ungir þar til þeir deyja, Sigurður hefur nú farið í sinn síðasta „utanbæjartúr,“ við vitum ekki hver er næstur „á prjóni“, en þegar þar að kemur vitum við að Sigurður mun greiða götu okkar. Ástu og börnunum sendum við sam- úðarkveðjur, félagarnir og starfsfólk Sendibílastöðvarinnar. Krístinn Arason

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.