Tíminn - 26.06.1986, Blaðsíða 4

Tíminn - 26.06.1986, Blaðsíða 4
4 Tíminn LADDA Á SÖGU Skemmtidagskrá Ladda á Sögu var flutt alls 60 sinnum á föstudags- og laugardagskvöldum í Súlnasal fram á vor. Það voru hvorki meira né minna en 20 þúsund manns sem komu til að sjá Ladda. Troðfullt var á allar sýningarnar. Laddi brá sér í gervi fjölda persóna, svo sem Þórðar húsvarðar, Eiríks Fjalar og Tanna. Á sýningunum naut Laddi aðstoðar Halla bróður síns og einnig dansara frá Dansstúdíói Sóleyjar. Stjórnandi sýningarinnar var Egill Eðvaldsson, útsetning tónlistar var í höndum Gunnars Þórðarsonar og hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar lék á sýningunum. Kynnir var Páll Þorsteinsson. Síðasta sýning Ladda á Sögu — og sú 60. — var 7. júní. Þá var þeim sem hlut áttu að máli þakkað og þeir kallaðir fram á sviðið með Ladda þetta kvöld. Forsvarsmenn Gildis hf. sem sér um veitingareksturinn á Sögu tóku á móti gestum við innganginn með blómum, — og 20 þúsundasti gesturinn var sérstaklega verðlaunaður. _ n kveður á Sögu eftir 60 sýningar fyrir fullu húsr Laddi - Þórhallur Sigurðsson - kveður a i. 20 þúsund manns sáu sýningarnar. 20 þúsund manns sáu 20 þúsundasti gesturinn á skemmtidagskrá Ladda á Sögu var Lóa Rún Kristins- dóttir. Hér sést Wilhelm Wessman, framkvæmda- stjóri Gildis hf. bjóða hana velkomna. Lóa Rún hlaut í verðlaun gistingu fyrir tvo í svítu hótelsins ásamt kvöldverði í Grillinu og morgunverð við brottför. Fimmtudagur 26. júní 1986 ÚTLÖND FRETTAYFIRLIT JOHANNESARBORG — Yfirvöld í Suður-Afríku aflýstu upplýsingarfundi um átök í landinu sem haldinn hefur verið daglega síðan neyðarástandslögin tóku aildi. Upplýsingamálaráðuneytið sagði fundinum hafa verið af- lýst vegna þess að skyndileg fækkun hefoi orðið á ofbeldis- aðgerðum. Þá var breska stjórnmálamanninum Denis Healey neitað að fá að heim- sækja svarta stjórnmála- leiðtogann Nelson Mandela sem situr í fangelsi í Höfða- borg. LUNDÚNIR — Oliver Tambo leiðtogi Afríska þjóðar- ráðsins yfirgaf Bretland eftir að hafa átt fund með ráðherra bresku stjórnarinnar. Hann sagði við brottförina verða ánægður ef breska stjórnin myndi viðurkenna samtök hans. Allan Boesak, svartur leiðtogi kirkjunnar í Suður-Afr- íku, kom hinsvegartil Lundúna í gær en sagði á fréttamanna- fundi að hann gæti ekki sagt allt sem hann vildi um ástandið í Suður-Afríku vegna neyðar- ástandslaganna. BARIONI, Júgóslavía- Ráðstefna OPEC ríkjanna, sem haldinn er á hálfs árs fresti, hófst með kosningu nýs forseta samtakanna og var olíumálaráðherra Nígeríu fyrir valinu. Líklegt er talið að deilur um framleiðslukvóta og verð eigi eftir að setja svip sinn á ráostefnuna. TEL AVIV — Avraham Shalom yfirmaður ísraelsku ör- yggisþjónustunnar sagði upp starfi sínu í gær eftir að Chaim Herzog forseti hafði lofað hon- um að engin opinber rannsókn færi fram á ákærum um, að hann hefði látið taka af lífi tvo arabíska skæruliða sem í haldi voru. AMMAN — Ný byltingar- samtök araba sögðust bera ábyrgð á sprengingunum sem ollu miklum eldi í helstu olíu- hreinsunarstöð Kuwait í síð- ustu viku. MOSKVA — Jóhannes Rau, kanslaraefni vestur- þýska sósíaldemókrata, lagði áherslu á andstöðu flokks síns við kjarnorkunotkun í viðræð- um sem hann átti við Vitaly Vorotniov meðlim forætis- nefndar sovéska kommúnista- flokksins. Tass fréttastofan sagði Rau einnig hafa átt við- ræður við Mikhail Gorbatsjov leiðtoga Sovétríkjanna en ekki voru gefnar nánari fréttir af þeim fundi. MANILA — George Shultz utanríkisráðherra afhenti stjórninni á Filippseyjum 200 milljónir Bandaríkjadollara sem fara eiga í aðstoo til íbúa landsins. Háttsettir embættis- menn á Filippseyjum hafa hinsvegar gagnrýnt fjárveiting- una og segja hana ekki vera aðstoð heldur leigu fyrir banda- j herstöðvarnar á eynni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.