Tíminn - 26.06.1986, Side 5

Tíminn - 26.06.1986, Side 5
Fimmtudagur 26. júní 1986 Tíminn 5 ÚTLÖND illllliiililillllllilllllill! Illllllllllllll! illlllllllllill Pólýnesía: Flugfélög í vanda vegna yfirþyngdar - Eru íbúar Suður-Kyrrahafseyja feitari en flest annað fólk? Kynþáttakúgunin ■ Suður-Afríku hefur komist í sviðsljósið eftir að stjórn hvíta minnihlutans setti á neyðarástandslög. Leiðtogar Evrópubandalagsríkj- anna þykja líklcgir til að samþykkja einhverjar viðskiptaþvinganir sem beinast gegn Suður-Afríku. Wellington-Reuter Flugfélög sem fljúga til Tonga og Vestur Samoaeyja í Suður Kyrrahafi hafa komist að því að sumir farþeg- anna eru of feitir til að fljúga. Bæði Flugfélag Nýja Sjálands og Flugfélag Pólýnesíu hafa orðið að Ráðstefna Evrópubandalagsríkjanna hefst í dag: Refsiaðgerðir gegn S-Afríku aðalmálið minnka fjölda farþega í vélum sínunt á þessari léið og er ástæðan einfald- lega sú að venjulegur farþegi á flugleiðinni er þyngri er venjulegur farþegi á öðrum leiðum, svo einfalt er það. Flugfélögin hafa orðið að skilja þrettán sæti laus í hinum 113 sæta Boeing 737 vélum sínum og leyfð meðalþyngd hefur verið hækkuð úr 77 kílógrömmum upp í 93 kíló. Þess má geta að TaufÁhau Tupou konungur Tonga er 136 kíló að þyngd og mun hann þurfa sérstak- lega hannað sæti í flugvélum fyrir- tækjanna tveggja er hann heldur á alþjóðlegar ráðstefnur eða annað. Hagg-Reuter Leiðtogar ríkja Evrópubandalags- ins (EC) munu mæta á ráðstefnu bandalagsins sem hefst í Haag í dag. Líklegt er talið að umræðurnar á ráðstefnunni muni fyrst og fremst snúast um hugsanlegar refsiaðgerðir gegn stjórn Suður-Afríku svo og versnandi samband við Bandaríkja- stjórn vegna viðskiptatakmarkanna. I gær benti margt til þess að ríki bandalagsins myndu fallast á ein- hvers konar form viðskiptabanns á Suður-Afríku vegna ofbeldisins í landinu og neyðarástandslaganna sem stjórn hvíta minnihlutans hefur sett á. Samkvæmt heimildum innan bresku ríkisstjórnarinnar, sem hing- að til hefur verið helsti andstæðingur viðskiptabanns á Suður-Afríku, er hún nú reiðubúin til að koma á móts við óskir þeirra sem vilja halda uppi refsiaðgerðum gegn Suður-Afríku. Er talið að Evrópubandalagsríkin samþykki bann á nýjar fjárfestingar í landinu og banni einnig innflutning á úraníum og landbúnaðarvörum frá Suður-Afríku. Embættismenn sögðu í gær að slík samþykkt myndi líklega nægja þeim ríkjum sem hvað harðast hafa gengið í þá átt að fá samþykktar efnahags- legar refsiaðgerðir. Auk refsiaðgerða gegn Suður- Afríkustjórn munu áform banda- rískra stjórnvalda, um að setja tak- mörk á innflutning margvíslegra afurða frá ríkjum Evrópubandalags- ins, vera líkleg til að setja mark sitt á fund þennan. Hin tólf ríki banda- lagsins hafa varað Bandaríkjastjórn við þessum áformum. sent taka eiga gildi þann 1. júlí næstkomandi, og hótað að svara í sömu mynt. Miklar öryggisráðstafanir eru í Haag vegna komu leiðtoga Evrópu- bandalagsríkjanna. Breska samvinnuhreyfingin: Beitir sér gegn aukaefn- um í matvælaframleiðslu - aöalfundur samþykkir herferö Frá Dr. Keys fréttarítara Tímans í Bretlandi: Samvinnuhreyfingin í Bretlandi hefur nú hrundið af stað herferð gegn kemískum efnum í matvælum. Á aðalfundi Breska samvinnusam- bandsins, sem haldinn var fyrir skömmu, var samþykkt ályktun um nauðsyn þess að banna flest kemísk efni eða aukaefni í breskum mat- vælaiðnaði, og að matvælafram- leiðsla á vegum bresku samvinnu- hreyfingarinnar yrði í framtíðinni laus við aukaefni af þessu tagi. Þessi álytkun aðalfundarins kem- ur á sama tíma og Breska heildsölu- samvinnufélagið, sem er risafyrir- tæki tengt samvinnuhreyfingunni, hefur lagt út í sína eigin herferð gegn aukaefnum í framleiðslu sinni, en félagið sér hinum 95 stórmörkuðum og umboðsaðilum kaupfélaganna víðs vegar um Bretland fyrir um 70% af matvælum sem þar eru á boðstólum. Samvinnuhreyfingin vill með þessu gerast forgöngumaður fyrir því að dregið verði úr notkun þeirra 6000 aukaefna sem notuð eru í matinn sem breska þjóðin lætur ofan í sig. „Við teljum að barátta okkar gegn kemískum aukaefnum sé víð- tækari og gangi lengra en flestar þær herferðir sem farnar hafa verið af matvælaframleiðendum í Bret- landi,“ sagði talsmaður Breska heildsölusamvinnufélagsins Martin Henderson í samtali við Tímann. „Á aðalfundinum sem haldinn var í Llandudno í Wales kom fram tillaga frá Breska heildsölusam- vinnufélaginu þar sem farið var fram á að Breska samvinnusambandið aðstoðaði við upplýsingamiðlun varðandi þessi aukaefni," sagði Henderson ennfremur. Athyglin beinist ekki hvað síst að frystri fæðu, þar á meðal fiski ss. fiskstautum. „í vöruþróun á frystri fæðu erum við nú með sérstakt verkefni í gangi þar sem leitast er við að minnka notkun á kemískum aukaefnum," sagði Henderson. Á undanförnum sex mánuðum hefur Heildsölusamvinnufélagið hætt að nota aukaefni í vörur eins og brauð og ís, og komið fram með nýja línu af aukaefnalausum vörum s.s. jógúrt, íspinna, ávexti í dósum og morgunverða kornmeti. Heildsölusamvinnufélagið hefur jafnframt þrýst á við stjórnvöld að koma á fót einföldu og samræmdu merkingakerfi á allar matvörur sem seldar eru í Bretlandi. Aðalfundurinn í Llandudno í Wa- les er sá 117. í röðinni, en í Bresku samvinnuhreyfinginni eru nú um 8 milljón manns og heildarvelta sam- vinnufyrirtækjanna var á síðasta ári um 4850 milljón sterlingspund. Hér er því um umtalsvert afl að ræða, sem getur beitt áhrifum sínum á helstu verslunargötum Bretaveldis. Forseti Alþjóðasamvinnusam- bandsins, Svíinn Lars Marcus, ávarpaði aðalfundinn í Wales, en það er f fyrsta sinn sem hann ávarpar aðalfund breskra samvinnufélaga eftir að hann varð forseti árið 1974. Hann hvatti til aukinnar samvinnu samvinnuhreyfinga í Evrópu og öðr- um löndum og taldi þar ýmsa mögu- Ieika ónotaða sem gætu verið öllum til hagsbóta. - BG Astralía: Heimsins stærsta spilavíti Sydney-Reuter Bandarísk hótela- og spilavítis- keðja og ástralskt byggingarfyrir- tæki hafa tekið höndum saman unt að byggja og reka það sem kallað hefur verið „heimsins stærsta spilavíti". Það var héraðsstjórnin í Nýja Suður-Wales sem tilkynnti um fyrirhugaða byggingu og er um að ræða fyrsta löglega spilavítið á þessum slóðum. Spilavítið verður byggt við höfnina í Sydney á mjög fallcgum útsýnisstað. Gert er ráð fyrir einum 400 veðmálaborðum í hús- inu og hótelherbergin eiga að verða 700 talsins. Spilavítinu sjálfu á að verða lokið árið 1988 en byggingu hótelsins árið 1990. Samningurinn sem fyrirtækin tvö gerðu við héraðsstjórnina gerir ráð fyrir að hún fái 35% af innkomunni á ári hverju sem ku eiga að nema sem samsvarar tíu milljónum íslenskra króna. Búist er við 8,3 milljónum gesta á fyrsta starfsári spilavítis- ins en fimmtán þúsund viðskipta- vinir eiga að geta komist fyrir í húsinu á sama tíma. Skipadeild Sambands- ins mun ferma til ís- lands á næstunni sem hér segir: Aarhus: Alla þriðjudaga Svendborg: Alla miðvikudaga Kaupmannahöfn: Alla fimmtudaga Gautaborg: Alla föstudaga Moss: Alla laugardaga Larvik: Alla laugardaga Hull: Alla mánudaga Antwerpen: Alla þriðjudaga Rotterdam: Alla þriðjudaga Hamborg: Alla miðvikudaga Helsinki: PerTrader ............7/7 Hvassafell.......... 18/7 Gloucester: Jökulfell.............7/7 Jökulfell.............8/7 New York: Jökulfell........... 10/7 Jökulfell........... 18/8 Portsmouth: Jökulfell........... 10/7 Jökulfell........... 10/8 SKIRADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavik Simi 28200 Telex 2101 Ertu hættuleeur í UMFERÐINNI án þess að vita það? Mörg lyf hafa svipuö áhrif og áfengi Kynntu þér vel lyfiö sem þú notar il® Á timabilinu 1. mai til 30. sept. Átimabilinu 1. juni til 31. agust Mánudaga: Frá Stykkishólmi kl 09.00 Þriðjudaga: Fra Stykkishólmi kl. 14.00 Fra Brjánslæk kl 14 00 eftir komu rútu. Til Stykkisholms kl. 18 00 Fra Brjánslæk kl. 18.00 fyrir brottför rútu til Rvk Til Stykkishólms kl. 21 30 Fimmtudaga Samatimataflaog Laugardaga Fra Stykkishólmi kl. 09.00 mánudaga Sigling um suðureyjar Föstudaga: Frá Stykkishólmi kl. 14.00. eftir komu rútu Frá Brjánslæk kl. 15.00 Til Stykkishólms kl. 19.00 Viðkoma i inneyium A tímabilinu 1. júli til 31. áqúst Frá Br|ánslæk kl. 19 30 Miðvikudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00 Til Stykkishólms kl. 23.00 Frá Brjánslæk kl 14.00 Til Stykkishólms kl. 18.00. fyrir brottför rútu Viökoma er ávallt i Flatey á báðum leiðum. Bílaflutninga er nauðsynlegt að panta með fyrirvara. Frá Stykkishólmi: Hjá afgreiislu Baldurs Stykkisholmi.s: 93-8120 Fra Brjanslæk: Hjá Ragnari Guðmundssyni Brjanslæk, s.: 94-2020.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.