Tíminn - 26.06.1986, Page 8
8 Tíminn
ÍÞRÓTTIR
■ Einn af ráðamönnum FIFA
hrósaði cnska landsliðinu fyrir að
taka marki Maradonu með still-
ingu. „Ákvörðun dómarans var
slæm fyrir Englendinga en þeir
tóku henni eins og menn og
sýndu gott fordæmi og sýnishorn
af heiðarleika enskra knatt-
spyrnumanna," sagði Guido Tog-
nomi einn af blaðafulltrúum
FIFA. Það hefði verið gaman að
sjá til leikmanna Paraguay ef þeir
hefðu orðið fyrir barðinu á hendi
Maradona.
■ Ef þú er í Frakklandi oggetur
borgað 160 þúsund krónur nú
þegar þá færðu möguleika á fari
með Concord-þotu til Mcxíkó og
miða á úrslitaleikinn í keppninni.
Air France (franska fluglelagið)
stendur fyrir þcssari ferð og þegar
eru llest sæti bókuð. Frakkar eru
nefnilega vissir um að komast í
úrslitin.
■ Maradona licfur sagt að hann
hafi ekki skorað gegn Englend-
ingum með hcndinni af ásettu
ráði. „Boltinn fór í mig en það
var óvart. Ég hélt um tíma að
jafnvel Shilton hefði slcgið hann
sjálfur í markið,“ sagði litli snáð-
inn í pistli sem hann ritar í argcnt-
ínska blaðið Tiempo Argcntino.
■ Það eru ekki aðeins leikmenn
á knattspyrnuvellinum sem hafa
fengið að sjá rauð og gul spjöld.
í vináttuleik á milli forráðamanna
FIFA og skipuleggjenda HM þá
fór allt í bál og brand. Tveir
leikmenn, einn úr hvoru liði,
voru reknir af velli í þessum
vináttuleik sem spilaður var af
fullri hörku.
■ Samkvæmt töluni frá Mexíkó
þá hafa yfir tvær milljónir manna
horft á lciki HM í Mexíkó. Flestir
sáu leik Mexíkó og Paraguay á
Aztec-leikvellinum eða 114 þús-
und en fæstir mættu á leik Ung-
verja og Kanadamanna eða tæp
14 þúsund. Tölurnar sem gefnar
eru upp eru oft ekki í samræmi
við það seni virðist vera á völlun-
um en þessar tölur munu þó gilda
er HM verður að sagnfræði.
■ Brasilíska landsliðið fór á inis
við fjölda fólks sem beið þeirra á
flugvellinum í Ríó er liðið kom
heim til Brasilíu um daginn. Lcik-
menn og forráðamenn liðsins
héldu að fólkið myndi hreyta i þá
ókvæðisorðum en svo var þó
ekki. Allir tóku vel á móti leik-
mönnum og var ekki að sjá annað
en fólk væri ánægt með knatt-
spyrnuna sem liðið sýndi - var
annað hægt. Þá voru mörg skilti
á lofti sem fyrirgáfu Zico víta-
spyrnuatvikið gegn Frökkum.
■ Einn veðmálabanki í London
hefur ákveðið að borga út þeim
sem veðjuðu á jafntefli í leiknum
gegn Argcntínu. Forráðamenn
veðbankans segja að markið hafi
verið ólöglegt og að leikurinn
hafi endað 1-1 og verði það að
teljast móralskur sigur fyrir Eng-
lendinga. Bankinn greiðir þó
einnig þeim er veðjuðu á 2-1
sigur Argentínu.
■ Fyrirliði Spánverja á HM,
Jose Camacho, varð leikjahæsti
leikmaður Spánar er hann spilaði
gegn Belgum um daginn. Það var
69 landsleikur hans og sló hann
þar með met Luis Arconada fyrr-
um markmanns Spánverja.
Fimmtudagur 26. júní 1986
Wimbledon:
Connors úr leik
Nú er Wimbledon tennis-
keppnin hafin og þegar í fyrstu
umferð eru stjörnurnar farnar að
falla úr leik. Stærsta stjarnan sem
varð að láta sér nægja að falla úr
í fyrstu umferð er Jimmy
Connors. Hann tapaði fyrir landa
sínum Bandaríkjamanninum Ro-
bert Seguso í hörkuleik 6-3 3-6
7-6 7-6. Connors er nú 33 ár og
vildu margir verða til þess að spá
því að þetta yrði hans síðasta
Wimbledon keppni en hann hefur
þegar unnið tvær. Connors sjálf-
ur sagði að það væri hans að
ákveða hvort hann myndi keppa
í fleiri Wimbledon-mótum eður
ei.
Meðal annarra sem voru slegn-
ir út voru Guillermo Vilas og
kvennstjarnan Pam Shriver sem
talin er sú fimmta besta í heimin-
um. Hún tapaði fyrir löndu sini
frá Bandaríkjunum Betsy Nagels-
en.
Heimsmet
Bandaríski sundmaðurinn
Matt Biondi bætti heimsmet sitt í
lOOm skriðsundi á bandaríska
meistaramótinu í sundi í fyrra-
dag. Hann fór metrana 100 á
48,74 og bætti fyrra met sitt um
meira en tvo tíundu úr sekúndu.
„Ég er auðvitað mjög glaður. Ég
synti vel og vissi að ég átti
tækifæri á að nálgast heimsmetið
og það tókst,“ sagði ánægður
Biondi eftir metið.
Þetta er annað heimsmetið sem
sett er á mótinu en Pablo Morales
setti heimsmet í 100 m flugsundi.
Þá hafa verið sett þrjú bandarísk
met á mótinu sem er úrtökumót
Bandaríkjamanna fyrir HM í
sundi sem fram fer í Madrid í
sumar.
Úr landsleiknum í gærkvöldi. Ásta B. á hér í höggi við varnarkonu Færeyinga.
Landsleikur í kvennaknattspyrnu, Ísland-Færeyjar:
Öruggur sigur íslands
Lokatölur uröu 6-0 en heföu geta orðið 10-0.
Engin mótstaða svo heitið gæti
íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu vann öruggan sigur á því
færeyska á Kópavogsvelli í gær-
kvöldi. Lokatölur uðru 6-0 en sigur-
inn hefði getða orðið stærri ef öll
færi hefðu nýst. Færeyinga ráttu tvö
góð færi í leiknum og hefðu átt að
skora úr öðru þeirra en tókst ekki.
Það var Ásta B. sem opnaði
ntarkareikning íslands er hún fékk
stutta stungu og skoraði af öryggi.
Þetta var á 10 mínútu en næsta mark
kom ekki fyrr en á 40 mínútu. Þá
skoraði Erla Rafnsdóttir með skalla
eftir ágæta sókn íslands. Þannig var
staðan í leikhlci 2-0.
í síðari hálfleik tókst íslensku
stúlkunum betur upp í sóknarleik
sínum og náðu betri nýtingu á
færurn. Strax eftir 10 mínútna leik í
síðari hálfleik kom fallegt ntark frá
Erlu Rafnsdóttur. Arna gaf fyrir og
Erla skallaði í slá og út. Hún náði
boltanum hinsvegar sjálf aftur með
fallegri hjólhestaspyrnu og boltinn
Len Bias (34) í leik með Maryland
Háskólaliðinu.
söng í netinu 3-0. Síðan komu mörk-
in jafnt og þétt. Karitas átti skot í slá
áður en samkona hennar úr ÍA,
Vanda Sigurgeirsdóttir skoraði með
skoti af 20 metra færi, 4-0. Þá var
brotið á Ástu B. inní vítateig og
Ásta M. skoraði af öryggi úr vftinu
5-0. Lokaorðin átti síðan Arna
Steinsen, sem átt hafði góðan leik og
lagt upp tvö markanna. Hún fékk
boltann frá Ástu M. eftir aukaspyrnu
og þrumaði t' netið 6-0 og leikurinn
úti.
íslenska liðið verður ekki dæmt af
þessum leik. Til þess var mótstaðan
of lítil. Stelpurnar náðu þó þokka-
legum samleiksköflum og áttu fjölda
færa. Þær hefðu þó mátt draga
Færeyingana meir út á völlinn og
auðvelda sér þannig að brjótast í
gegn. Erfitt er að gera upp á milli
einstakra leikmanna íslands en Erla,
Arna og Karitas áttu allar þokkaleg-
an leik. Færcyingar hefðu getað
skorað eitt mark eftir mistök í vörn-
íslands en tókst ekki.
Kókaín varð
Bias að falli
Nú er það ljóst að körfuknattleiks-
maðurinn Len Bias, sem Boston
Celtics höfðu gert samning við um
að leika með liðinu eftir nám í
Maryland Háskólanum, lést eftir að
hafa tekið kókaín. Læknar sem hafa
rannsakað hvernig andlát hans bar
að segja að notkun kókaíns hafi
orsakað hjartaslag og andlát hans.
Bias hafði verið að skemmta sér
nóttina áður til að fagna því að
Celtics höfðu gert samning við hann
en hann var þó hófmaður á áfengi að
sögn kunnugra og neytti ekki eitur-
lyfja. Einhver ku þó hafa gefið
hopum „kók“ sem dró hann til
dauða. Nú munu yfirvöld í Maryland
ætla að rannsaka hvernig hann
komst yfir eiturlyfið.
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu:
Þjóðverjar unnu
- Eru komnir í úrslit í fimmta sinn eftir
öruggan sigur á Frökkum
Druumur Frakka um heimsmeist-
aratign varð að engu í gær er þeir
töpuðu fyrir sterkum og skipulögð-
um V-Þjóðverjum með tveimur
mörkum gegn engu. Andreas
Brehme náði forystunni fyrir Þjóð-
verja strax á 9. mínútu er hann
skoraði úr aukaspyrnu. Eftir það
Erlameð 10
Um helgina voru fyrstu leikirn-
ir ■ bikarkeppni kvenna í knatt-
spyrnu. Urslit urðu þau að Blik-
arnir unnu FH 19-1 og skoraði
Erla Rafnsdóttir 10 mörk í leikn-
um. Nú, KR vann Selfoss 14-0 og
þar gerði Helena Ólafsdóttir 6
mörk fyrir KR. Loks vann Valur
sigur á Stjörnunni 6-0 og skoraði
Kristín Arnþórsdóttir 4 mörk í
þeim leik. Það voru því gerð 40
mörk í þremur leikjum sem er
ansi mikið og víst er að kvennalið-
in hér á landi eru æði misjöfn.
héldu Þjóðverjar sínum hlut, Frakk-
ar fengu, jú, tækifæri en annaðhvort
fóru þeir illa með þau ellegar að
„Haraldur skósmiður“ markmaður
V-Þjóðverja varði af snilld.
Það var síðan Rudi Völler sem
skoraði á síðustu mínútu leiksins úr
hraðaupphlaupi Þjóðverja.
Þjóðverjar unnu Frakka á HM
árið 1982, sama sagan endurtekur
sig núna. Tæknilega vankunnáttu
bæta Þjóðverjar upp með góðu sam-
spili, skipulagðri vörn og hörku. Þeir
eru komnir í úrslit heimsmeist-
arakeppni í fimmta sinn í níu
keppnum. Met hjá þeim, gott hjá
þeim.
„...Ég á varla orð. Þjóðverjar
geta verið ánægðir með þetta lið,“
sagði Franz Beckenbauer landsliðs-
þjálfari V-Þjóðverja eftir leikinn og
bætti við: „Knattspyrnan sem við
leikum er frábrugðin þeirri frönsku,
ekki eins falleg en árangursríkari og
það sýndi sig“.
HM árið 1990:
ítalir gestgjafar
- Halda HM árið 1990 og þurfa ekki að taka þátt í
undankeppninni
Heimsmeistarakeppnin árið 1990
verður haldin á Ítalíu eins og kunn-
ugt er. ítalska knattpyrnusambandið
vill breyta fyrirkomulagi keppninnar
eitthvað og taka upp riðlakeppni í
annari umferð líka. Mun tillaga
þeirra hljóða uppá að fyrst veðri
spilað í 8 riðlum með þremur liðum
hverjum. Tvö fari áfram og spili þá
f fjórum fjögurra liða riðlum. Hvað
úr verður er ekki gott að segja en
mörgum finnst að breytinga sé þröf
svo ekki þurfi að útkljá allt með
vitaspyrnuKeppm. ltalir veröa gest-
gjafar svo þeir þurfa ekki að taka
þátt í undankeppninni frekar en
fyrir HM í Mexíkó en þá voru þeir
heimsmeistarar. Þá hafa Banda-
ríkjamenn og Marokkó gefið HM
1994 gott auga og hyggjast sækja um
hana.