Tíminn - 26.06.1986, Síða 12
12 Tíminn
Til sölu
notaðar
dráttarvélar
MF-130 árg. ’65
MF-35 X árg. ’62
Zetor-6945 4x4 árg. ’79
Zetor-4911 árg. ’80
Zetor-4911 árg. ’80
m/ ámoksturstækjum
Zetor-7211 árg. ’85
Góð greiðslukjör
Jámhálsi 2 Sími 83266 TIORvk.
PÖsthólf 10180
Varahlutir
í FORD
Jámhálsi 2 Sími 83266 TIORvk.
Pósthólf 10180
Járnhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk.
Pósthólf 10180
Vélaeigendur:
TAKIÐ EFTIR!!!
Eigum fyrirliggjandi eða útvegum
með stuttum fyrirvaraeftirfarandi:
x Alia helstu varahluti fyrir
Caterpillar og Komatsu
vinnuvélar.
x Beltakeðjur og aðra
undirvagnshluti'í allargerðir
beltavéla.
x Slitstál, skerablöð og
tannarhorn fyrir jarðýtur og
veghefla.
x Riftannaodda fyrir jarðýtur.
x Spyrnubolta og skerabolta
allar stærðir.
x Stjórnventla og vökvadælur
fyrir 12/24 volta kerfi.
x Slitplötur og aðra varahluti í
mulningsvélar.
x Hörpunet allar stærðir fyrir
malarhörpur.
x Færibönd og varahluti í
færibönd.
x Drifkeðjurogfæribandakeðjur
fyrir verksmiðjur og
landbúnaðarvélar. Einnig fyrir
lyftara, vökvakrana, rafstöðvar,
loftpressur, götusópa,
dráttarvélar og flutningatæki.
ALLT Á EINUM STAÐ:
Og við teljum niður
verðbólguna hraðar en margir
aðrir.
VÉLAKAUP h/f
Sími641045
VIÐ SELJUM
ALLABÍLA
Láttu skrá
bílinn strax
BÍLASALAN
Vélar og
vagnar
LANDSBYGGÐAR-
ÞJÓNUSTAN
Sími 99-1504-1506
Eyrarvegi 15 Selfossi
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:.....91-31815/686915
AKUREYRI:.......96-21715/23515
BORGARNES:.............93-7618
BLÖNDUÓS:.........95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR: ....95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489
HÚSAVÍK:........96-41940/41594
EGILSSTAÐIR:...........97-1550
VOPNAFJÖRÐUR:.....97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ......97-8303
interRent
DANSLEIKJAHALDARAR!
Tökum aö okkur spilamennsku.
Spilum alhliðá dansmúsík.
TVÍL
Uppl. í síma 91-651141 (v.s.: 91-687641)
lilllllllllllllllllll DAGBÓK 1111
Útivistarferðir
Helgarferðir 27.-29. júní
1) I^órsinörk - Gist í Útivistarskálanum
Básum. Gönguferöir við allra hæfi, m.a.
í Teigstungur, sem hafa opnast með
tilkomu göngubrúar á Hruná. Hægt er að
fá sumarleyfisdvöl í Básum. Hægt t.d. að
dvelja milli ferða. Ferðir eru bæði á
sunnudögum og á miðvikudagsmorgnum.
Næsta miðvikudagsferð er 2. júlí. Frábær
gistiaðstaða.
2) Haukadalsskarð - Tröllakrikja - Gull-
borgarhellar Gist í húsum. Gengið um
hina fornu þjóðleið úr Hrútafirði í Dali.
3) Fjölskylduferð í Viðey um helgina.
Brottför á laugardag kl. 13.30 og tjaldað
við nýja skálann. Odýr ferð. Dagsferðir
með leiðsögn verða bæði á laugardag og
sunnudag. Upplýsingar og farmiðar á
skrifstofunni Grófinni 1, símar: 14606 og
23732
Dags- og kvöldferðir
Ferðafélags íslands
1) Laugardag 28. júní kl. 08.00: Ferð á
Heklu (1491 m) Ferðin tekur um 10 klst.
2) Laugardag28. júní kl. 13.00: Viðeyjar-
ferð Siglt frá Sundahöfn, 6-7 mín. sigling.
Veitingar í Viðeyjarnausti (ekki innifalið
í verði).
3) Sunnud. 29. júní kl. 08.00: Dagsferð í
Þórsmörk
4) Sunnud. 29. júní kl. 10.00: Fagradalsfj-
all - Núpshlíðarháls - Vigdísarvellir.
5) Sunnud. 29. júní kl. 13.00: Krísuvík -
Hattur - Hetta - Vigdísarvellir. Ekið til
Krísuvíkur gengið yfir Sveifluháls að
Vigdísarvöllum.
Brottför í dagsferðirnar frá Umferð-
armistöðinni, austanmegin. Farmiðar við
bíl.
Helgarferðir Ferðafélags
íslands 27.-29. júní
l'órsmork gist í Skagfjörðsskála. Ný og
bætt hreinlætisaðstaða, útigrill. Sumar-
leyfi hjá Ferðafélaginu í Pórsmörk er
hagstætt fyrir alla. Upplýsingar á skrif-
stofunni.
Helgarferð 4.-6. júlí
Hagavatn - Jarlhettur Gist v/ Hagavatn
og farnar gönguferðir þaðan.
Hlöðuvellir - Brúarárskörð: Gist við
Hagavatn 1 nótt, á laugardager gengtö ad
Hlöðuvöllum og gist þar, sunnudag geng-
iö um Brúarárskörð að Geysi.
Ferðafélag íslands.
Sumarferð
Rangæingafélagsins
Rangæingafélagið í Reykjavík fer sína
árlegu sumarferð nk. laugardag, 28. júní.
Lagt verður af stað frá Umferðarmiðstöð-
inni kl. 08.00. Ekið verður um
Hvolhrepp, Fljótshlíð, Eyjafjöll og kom-
ið við að Skógum. Verður Þórður Tómas-
son leiðsögumaður þar. A bakaleið verð-
ur ekið um Landeyjar. Kvöldkaffi verður
drukkið í félagshcimilinu Hvoli. Nánari
upplýsingar veitir stjórnin.
Sumarferð
Húnvetningafélagsins
Hin árlega sumarferð Húnvetningafé-
lagsins í Reykjavík verður farin 28. júní
n.k. Að þessu sinni liggur leiðin um
Þjórsárdal og uppsveitir Árnessýslu,
virkjunarsvæði skoðað og helstu sögu-
staðir, fararstjóri cr Guðmundur Guð-
brandsson.
Á heimleið verður samciginleg máltíð
snædd á Flúðum og er verð hennar
innifalið í fargjaldinu, sem er kr. 1500,-
fyrir fullorðna, en 700,- fyrir börn yngri
en 12 ára.
Lagt verður af stað kl. 08.00 frá
félagsheimilinu Skeifunni 17. Þátttaka
tilkynnist fyrir 26. júní til Brynhildar í
síma 75211, Bjarna í síma 74732 og
Aðalsteins, sími 19863.
Jónsmessumót
Árnesingafélagsins
Hið árlega Jónsmessumót Árnesinga-
félagsins í Reykjavík verður haldið laug-
ardaginn 28. júni í Hótel Örk í Hvera-
gerði. Mótið hefst með borðhaldi kl.
19.00 og verður dagskrá þess að nokkru
leyti helguð 40 ára afmæli Hveragerðis-
hrepps. Til skemmtunar verður dagskrá
frá Leikfélagi Hveragerðis og söngur
tríós ungs fólks frá Selfossi. Að loknu
borðhaldi verður dansleikur þar sem
hljómsveit Jakobs Jónssonar lcikur fyrir
dansi.
Nemenda- og kennarasamband
Hússtjórnarskóla Suður-
lands heldur fund
Nemenda- og kennarasamband Hús-
stjórnarskóla Suðurlands heldur félags-
fund fimmtudaginn 26. júní n.k. aðHótel
Esju og hefst fundurinn kl. 20.30.
Allir gamlir nemendur og kennarar eru
hvattir til að mæta og hitta gömlu, góðu
félagana. Kaffiveitingar verða á boðstól-
um og ýms mál rædd. Heimatilbúin
skemmtiatriði - eins og þau gerast best á
Laugarvatni. Mætum öll. - Stjömin.
Fimmtudagur 26. júní 1986
lllllllllllllllll
Hátíðarguðsþjónusta
á vegum Þingvallakirkju:
Horft til kristnitökuafmælis
Sunnudaginn 29. júní 1986 verður efnt
til hátíðarguðsþjónustu á vegum Þing-
vallakirkju. Tilefni hátíðarinnar er m.a.
sú umræða um undirbúning kristnitökuaf-
mælis, sem fram hefur fariö undangengin
misseri.
Dagskrá hátíðarinnar verður á þessa
leið:
1. Guðsþjónusta hefst kl. 14.00 í stóra
salnum í Hótel Valhöll. Sóknarprestur
annast altarisþjónustu. Formaður Þing-
vallancfndar, Þórarinn Sigurjónsson al-
þingismaður. predikar. Félagar úr kór
Langholtskirkju syngja. Söngstjóri er Jón
Stefánsson. Ólöf Kolbrún Harðardóttir
syngur einsöng. Jón Sigurðsson og Snæ-
björn Jónsson leika á trompeta. Meðal
annars verður frumflutt tónverk, sem
Atli Heimir Sveinsson færir hátíðargest-
um. Ungmenni úr Þingvallasöfnuði lesa
ritningartexta. Meðhjálpari erSveinbjörn
Jóhannesson, safnaðarfulltrúi Þingvalla-
safnaðar. Ávarp biskups (slands, herra
Péturs Sigurgeirssonar.
2. KI. 15.10 flytur séra Jónas Gíslason,
dósent í kirkjusögu við Háskóla íslands,
erindi, sem nefnist: „Kristnitakan á Al-
þingi og aðdragandi hennar".
3. Síðdegiskaffi verður til sölu í Hótel
Valhöll kr. 16.00.
NORRÆNA HÚSIÐ
POHJOLAN TALO
NORDENSHUS
Opið hús í Norræna húsinu
Fimmtudaginn 26. júní kl. 20.30 hcfst
árviss sumardagskrá Norræna hússins
undir nafninu Opið hús. Þessi sumardag-
skrá hefur verið fastur liður í starfsemi
hússins undanfarin ár og jafnan verið vel
sótt, bæði af erlendum ferðamönnum og
íslcndingum. Dagskráin er einkum sett
saman mcð tilliti til norrænna ferðamanna
og flutt á einhverju Norðurlandamál-
anna. Leitast er við að kynna ýmsa þætti
íslenskrar menningar, svo sem sögu
landsins og náttúru, bókmenntir og listir,
og hafa fengist til þess færir menn, hver á
sínu sviði. Áð hverju erindi loknu er gert
kaffihlé og síðan sýnd einhver af Islands-
ntyndum Osvalds Knudsen.
Kaffistofa Norræna hússins og bóka-
safnið verður opin frameftir á fimmtudög-
um í sumar, eða svo lengi sem Opið hús
verður á dagskrá, og sú nýbreytni verður
tekin upp, að bækur um Island og hljóm-
plötur með íslenskri tónlist verða til sölu
í bókasafninu.
Á fyrsta „Opna húss“-kvöldinu, nú á
fimmludaginn, heldur Guðmundur Sig-
valdason, jarðfræðingur, fyrirlestur á
dönsku um eldstöðvar og heita hveri á
fslandi og sýnd verður kvikmynd Ósvalds
Knudsen „Eldur í Heimaey" með norsku
tali.
Aðgangur er ókeypis og allir eru vel-
komnir. Islendingar ekki síður en erlendir
ferðamenn. Dagskráin hefst sem fyrr
segir kl. 20.30.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Þjóðleikhúsið um helgina:
Með vífið í lúkunum í Logalandi,
Stykkishólmi og Hellissandi
Þjóðleikhúsið leggur í leikför annað
árið í röð. Nú er það gamanleikurinn
„Með vffið í lúkunum", eftir Ray Cooney
scm sýndur verður út um landið. Að
þessu sinni verður farið um Vesturland og
Vestfirði. Fyrsta sýningin í leikförinni
verður á morgun (föstud. 27. júní) í
Logalandi í Reykholtsdal, Borgarfirði,
önnur sýning verður í Félagsheimilinu í
Stykkishólmi á laugardagskvöld (28. júní)
og þriðja sýningin verður í Félagsheintil-
inu Röst á Hellissandi á sunnudagskvöld.
Leikstjóri þessarar sýningar er Benedikt
Árnason, en með helstu hlutverk fara:
Örn Árnason, Þórunn Magnea Magnús-
dóttir, Anna Kristín Arngrímsdóttir, Sig-
urður Sigurjónsson, Pálmi Gestsson, Sig-
urður Skúlason og Randver Þorláksson.
Allar sýningarnar hefjast kl.21.00.
Eftir þessar sýningar helgarinnar verð-
ur farið um Búðardal til Vestfjarða.
Ættarmót
Afkomendur Einars Finnbogasonar,
fyrrum bónda og hreppstjóra, Þórisholti
Reynishverfi í Mýrdal, sem um þessar
mundir væri 123 ára, hafa - að frumkvæði
Hrefnu Finnbogadóttur, Prestshúsum,
Mýrdal ákveðið að koma saman í Reyk-
Iholti í Borgarfirði laugardaginn 28. júní
kl. 16.00.
Hótel Edda í Reykholti mun annast
veitingar og gistingu að ósk hvers og eins.
Tímaritið Þroskahjálp
Annað tölublað af fjórum árlegum af
timaritinu Þroskahjálp er komið út. Út-
gefandi er Landssamtökin Þroskahjálp. í
ritinu eru ýmsar greinar, upplýsingar og
fróðleikur um málefni fatlaðra. Leiðarinn
segir m.a.: „Aukin þekking á málefnum
fatlaðra hlýtur að leiða til minnkandi
fordóma og aukinnar samkenndar gagn-
vart fötluðu fólki. Leggja verður áherslu
á að ófatlaðir geti haft gagn og gaman af
samneyti við fatlaða. „Félagsfréttir birtast
frá Vestmannaeyjum og viðtöl við for-
eldra, fagfólk og framkvæmdastjóra
Svæðisstjórnar Suðurlands. Viðtal er við
Önnu Hermannsdóttur fyrrv. deildar-
stjóra um skipulagsbreytingu á starfsemi
í Kjarvalshúsi og rætt er við nýráðinn
forstöðumann á Greininga- og ráðgjafastöð
ríkisins, Stefán Hreiðarsson. Fleiri grein-
ar og ferðasögur eru í blaðinu og sagt frá
fræðslunámskeiði fyrir foreldra fatlaðra
barna og bækur á léttu máli fyrir þroska-
hefta. Þá eru í blaðinu fastir þættir, svo
sem „Af starfi samtakanna“, þar sem
jafnan er greint frá þeim verkefnum sem
Þroskahjálp vinnur að hverju sinni.
Tímaritið Þroskahjálp kemur út fjórum
sinnum á ári. Það er sent áskrifendum og
er til sölu á skrifstofu Þroskahjálpar að
Nóatúni 17, 105 Reykjavík. Einnig á
blaðsölustöðum og í bókabúðum.
Áskriftarsími er 91-29901.
ABC
Barna- og tómstundablað
ABCernýkomiöút.Á forsíðu er mynd
af leikurunum Karli Ágúst Úlfssyni, Sig-
urði Sigurjónssyni og Erni Arnarsyni.
Myndina tók Jens Alexandersson.
I þessu blaði er miki skátaefni, enda er
ABC málgagn Bandalags íslenskra skáta,
en gefið út af Frjálsu framtaki hf. í
blaðinu eru sögur og viðtöl. Skírteinið
hans Skúla heitir smásaga fyrir börn.
Viðtal er við Söndru Kim, sem varð í fyrsta
sæti í Eurovision söngvakeppninni, og
margar myndir. Texti og myndir eru eftir
Þorgrím Þráinsson. I miðju blaði er
litmynd af söngkonunni ungu. Mikið er af
föndri, þrautum, teiknimyndasögum og
margt fleira létt og skemmtilegt efni er í
ABC. Ritstjórar eru Margrét Thorlacius og
Benjamín Árnason.
Háls-, nef- og eymalæknir
á Norðurlandi eystra
og Austurlandi
Einar Sindrason háls-, nef- og eyrna-
læknir ásamt öðrum sérfræðingum
Heyrnar- og talmeinastöðvar (slands
verða á ferð á Norðurlandi eystra og
Austurlandi dagana 7.-13. júlí n.k. Rann-
sökuð verður heyrn og tal og útvegið
heyrnartæki. Farið verður á eftirtalda
staði.
Kópasker...................... 7. júlí
Raufarhöfn ................... 8. júlí
Þórshöfn ..................... 9. júlí
Vopnafjörður...................10. júlí
Egilsstaðir........... 11. og 12. júlí
Seyðisfjörður .................13. júlí
Tekið á móti tímapöntunum á viðkom-
andi heilsugæslustöð og er fólki bent á að
panta tíma sem fyrst.