Tíminn - 20.09.1986, Síða 1
SPJALDHAGI
allar upplýsingar
á einum staö
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
í STUTTU MÁLI...
AMFETAMÍNMÁLIÐ sem
upp kom á fimmtudag er enn í rann-
sókn hjá fíkniefnalögreglunni. Einn
maður situr í gæsluvarðhaldi og gildir
það næstu þrjár vikur. Hins vegar voru
kona og annar karlmaður sem hand-
tekin voru í tengslum við málið látin
laus í gær eftir yfirheyrslur þar sem
ekki var krafist gæsluvarðhalds yfir
þeim.
KINDAKJÖT og nautakjöt
hækkar nú eftir helgina. Eftir er að
reikna út endanlegt verð en reikna má
með að kindakjöt hækki um rúm 4%
en nautakjöt heldur meira. Fimm-
mannanefnd hefur að undanförnu
fundað urh verðhækkun þessa og lauk
störfum í gærkvöldi en um helgina
verður hækkunin sundurliðuð í hækk-
un til bænda annars vegar og hins
vegar milliliðakostnað.
STYRKURTIL náms í háskóla
í Noregi verður veittur á næsta ári úr
Minningarsjóði Olavs Brunborg. Upp-
hæðin nemur átta þúsund norskum
krónum og er eingöngu veittur karl-
mönnum. Umsóknir um styrkinn ásamt
námsvottorðum og upplýsingum um
nám þurfa að berast skrifstofu H.í. fyrir
1. október 1986.
I
MUGUR og margmenni var
samankominn í Skeiðarétt í gær.
Sveinn Ingvarsson fjallkóngur sagði í
samtali við Tímann að milli 6-7 þúsund
fjár hefði verið réttað í Skeiðaréttum
að þessu sinni. Sagði hann að vel
hefði gengið að smala afréttinn sem er
víðfemur. Sveinn sagði að ekki hefði
verið skortur á smalamönnum oa sagði
hann það vera eftirsóknarvert að kom-
astáfjall.
. ‘ -. . . 'V
EINU BESTA laxveiðisumri í
langan tíma er nú að mestu lokið.
Flestar veiðiár sem enn eru opnar,
bjóða upp á síðasta daginn í dag, 20.
september. Einungis einstaka ár hafa
opið lengur. Flest allar ár voru kjaftfull-
ar af laxi í sumar, og var það helst
veðrið sem gerði mönnum óskunda,
þar sem lítið rigndi.
HÁTÚNSMÁLÍÐ er rannsak- !
að af fullum krafti og þunga hjá Rann- l
í- sóknarlögreglu ríkisins. Þórir Oddsson
settur rannsóknarlögreglustjóri sagði í
samtali við Tímann í gær að ekkert I
væri nýtt að frétta af málinu, en i
yfirheyrslur færu fram.
RÁÐGJAFA-
FYRIRTÆKIÐ Alvarr hf. og
Ferðaskrifstofa Akureyrar efna til hóp- j;
ferðar á alþjóðlega plast- og gúmmí- j
iðnaðarsýningu í Dusseldorf í Þýska-
landi 5. til 13. nóvember. Þetta mun |
vera stærsta sýning sinnar tegundar í
heiminum. Búist er við að um 1700
fyrirtæki frá 37 þjóðlöndum sýni þar
vélar og verkfæri. Auk þess kynna
seljendur vöru sína og koma nýjungum
á framfæri.
STOÐ 2 hefur boðið Sigurveigu
Jónsdóttur fréttamanni sjónvarpsins
starf aðstoðarfréttastjóra og hefur hún
þegið það. Að sögn Ingva Hrafns
Jónssonar fréttastjóra sjónvarpsins
hefur Sigurveig ekki sagt upp störfum
formlega hjá sjónvarpinu ennþá en ef
hún geri það verði að taka ákvörðun
um, hvort hún losni áður en þriggja
mánaða uppsagnartíma hennar lyki.
Þá hefur Páll Magnússon fréttastjóri
Stöðvar 2 boðið Guðna Bragasyni
starf hjá Stöðinni en Guðni hefur
ákveðið að vera áfram hjá sjónvarpinu.
KRUMMI
„Þetta samstarf,
þýðir það ekki
áframhaldandi
Grínpís steik?"
Viöræður sjávarútvegsráðherra íslands og Noregs:
Samstaða um samstarf
við hvalarannsóknir
heimsókn Bjarne Eidem lýkur á morgun
„Við höfum rætt ýmis mál, en
það sem þessa stundina virðist
líklegast að samkomulag náist
um er aukið samstarf í sambandi
við hvalarannsóknir," sagði Hall-
dór Ásgrímsson viðTímann í gær
þegar hann ásamt norska sjávar-
útvegsráðherranum Bjarne Mörk
Eidem sem hér er í opinberri
heimsókn, komu fráVestmanna^
eyjum. Sjávarútvegsráðherrarn-
ir áttu formlegan viðræðufund í
fyrradag, en munu Ijúka viðræð-
um sínum á sérstökum fundi á
Þingvöllum í dag, laugardag.
Halldór sagði að skipting loðnu-
kvótans hefði verið rædd, en
benti á að hér væri um þriggja
landa mál að ræða. Aðspurður
um það hvort Bjarne Eidem hefði
tekið vel í þá hugmynd að Græn-
lendingar fengju 10% af loðnu-
kvótanum og bæði fslendingar og
Norðmenn gæfu eftir af sínum
kvóta sagði Halldór: „Hann vcit
að sjálfsögðu um þetta, en við
getum ekki komist mikið lcngra
ncma á sameiginlcgum fundi allra
landanna".
S j ávarút vegsráðherra rn i r
skoðuðu sig um í Eyjum í gær og
fóru síðan til Þingvalla þar sem
þcir gistu í bústað forsætisráð-
hcrra. í dag átti síðan að skoða
Þingvclli og í kvöld vcrður norska
sjávarútvcgsráðhcrranum haldin
kvöldvcrðarvcisla í boði norska
sendiherrans. Bjarnc Mörk Ei-
dcm og föruncyti lians mun síðan
halda aftur til Norcgs á morgun.
Sjávarútvegsráðherrarnir Bjarne IMörk Eidem frá Noregi og Halldór Ásgrímsson sjást hér við komuna til
Reykjavíkur í gær eftir vel heppnaða Vestmannaeyjaför.
Byggingarkostnaöur:
Fallþungi um kílói yfir meðaltali í Skagafirði:
Um 30 manns vant-
ar í sláturhúsið
Enn vantaði um 30 manns til
starfa við Sláturhús Kaupfélags
Skagfirðinga þegar haustslátrun
hófst þar s.l. miðvikudag, 17. sept-
ember. Um 140 manns þarf til að
sláturhúsið teljist fullmannað en
aðeins hafði tekist að ráða 110
manns þegar starfsemi hófst, að
mestu fólk úr sveitinni og aðkomu-
fólk. Hafa menn ekki miklar vonir
um að takist að fá fleiri að því er
fram kom í samtali við fréttaritara
Tímans, Guttorm Óskarsson á
Sauðárkróki.
Áætlað er að um 45.760 kindum
verði slátrað hjá Kaupfélagi Skag-
firðinga að þessu sinni, en það er
um 1.100 fleira en haustið 1985.
Slátrað verður um 2.100 fjár á dag.
Að sögn Guttorms virðist féð sér-
staklega vænt eftir góðæri sumars-
ins og búast menn við að meðalfall-
þunginn verði um 1 kílói meiri
nú en í fyrra (14,48 árið 1985) og í
venjulegu ári. Nú er hins vegar svo
komið að hár fallþungi er lítil
búbót lengur, þar sem búist er við
að mikið af dilkum sem venjulega
hefði farið í 1. flokk lendi nú niður
í 0-flokk með tilheyrandi verð-
skerðingu sem áætla má að nemi
um 20 kr. á hvert kjötkíló.
Með það í huga að 2 af 3
togurum sem gerðir eru út frá
Sauðárkróki hafa verið frá veiðum
vegna breytinga og bilana síðan í
vor, sem þá olli mönnum þar kvíða
um atvinnuleysi í sumar, var Gutt-
ormur spurður hví svo treglega
hefði gengið að manna sláturhúsið.
Þrátt fyrir þetta sagði hann nóg
hafa verið að gera á Sauðárkróki í
sumar, þau skip sem eftir voru hafi
fiskað ágætlega og fiskvinnslu-
stöðvarnar einnig fengið fisk ann-
arsstaðar frá. Nokkuð mikill iðn-
aður sé líka á Sauðárkróki. Má því
ætla að fólk kunni einnig að vanta
í fiskvinnsluna á Króknum þegar
togararnir 2 koma nú til veiða á ný,
a.m.k. fram yfirsláturtíðina, nema
gripið verði til þess ráðs að láta
einhvcrja þeirra sigla mcð aflann í
haust. - HEI
Uppum
2,25%
Byggingarvísitalan hækkaði
um 2,25% frá ágúst lil scpt-
ember. Á síðustu þrem mánuð-
um, þ.c. frá því hún var síðast
rciknuð lögformlcga út í júní
hefur byggingarvísitalan hækk-
að um 4,02%. Byggingarvísi-
talan er nú 281 stig.
Stærsti hluti hækkunarinnar
nú eð 1,6% stafa af hækkun á
töxtum útseldrar vinnu frá 1.
september. Um 0,2% stafa af
verðhækkunum á innihurðum,
0,1% af hækkun gatnagerðar-
gjalda og um 0,4% af verð-
hækkun á ýmsu byggingarefni.
Þessi 2,25% hækkun milli
ágúst og september jafngildir
30,6% árshækkun. Hækkun
síðustu 3ja mánaða jafngildir
17,1% árshækkun en raun-
verulega hefur byggingarvísi-
talan hækkað um 22,6% á
síðustu 12 mánuðum.
-HEI