Tíminn - 20.09.1986, Side 3

Tíminn - 20.09.1986, Side 3
Laugardagur 20. september 1986 Björg Bjarnadóttir forstööumaður Blindrabókasafnsins, Gísli Helgason og Arnþór Helgason. Veriö er aö prenta „Ég er kölluð Lilla“ cftir Þórð Helgason. (Tímamynd-Sverrir) Bylting í bókaútgáfu Um þessar mundir má segja að bylting hafi orðið á sviði blindra- bókagerðar á Islandi. Henni veldur ný blindraletursprentvél sem nýlega hefur verið keypt til landsins og ritvinnslukerfi sem hannað hefur verið af Hilmari Skarphéðinssyni verkfræðingi. Með ritvinnslukerfi þessu er hægt að færa texta á ýmsum tölvutækum formum til vinnslu inn- an þess, með nokkrum lagfæringum þó þannig að hæfi betur blindraletr- inu. Prentvélin prentar textann báðum megin á blöðin en áður var blindra- letur einungis hægt að prenta öðru megin á blöðin. Einnig er hægt að nota ritvinnslukerfið til þess að fram- leiða blindraleturstexta á segul- bandssnældum fyrir Versabraille tæki sem eru tölvur ætlaðar fyrir blinda. Með tilkomu prentvélarinn- ar á að vera hægt að framleiða allt upp í 50 bækur á ári en til að byrja rneð vonast mcnn til að a.m.k. tuttugu bækur verði prentaðar á ári. Nú þegar hafa verið prentaðar 7 bækur á nýju prentvélina og aðrar 7 eru tilbúnar til prentunar. Fyrsta bókin sem prentuð var á prentvélina var „Af mönnum ertu kominn" eftir Einar Braga. Blindraletursprentvélin kostaði 1.400 þúsund og framlag Gísla Helgasonar vegur þyngst, þar sem hann gaf milljón króna hagnað sem varð af sölu hljómplötu hans Ástar- játning en einnig komu mörg félag- asamtök og einstaklingar með fram- lög til kaupanna. ABS Merkúr fer til Ólafsfjarðar Útgerðarfyrirtækið Sæberg á Ólafsfirði hefur keypt togarann Merkúr af Ríkisábyrgðarsjóði fyrir urn 281 milljón króna. Sæberg átti fjórða hæsta tilboðið í skipið. en þeir sem buðu betur ýmist féllu frá tilboðum sínum eða gátu ekki upp- fyllt þau útborgunarskilyrði sem Ríkisábyrgðarsjóður setti. Gunnar Sigvaldason fram- kvæmdastjóri Sæbergs sagði í sant- tali við Tímann í gær að skipið sem nú er verið að breyta í frystitogara í Noregi, væri væntanlegt til Olafs- fjarðar í kringum áramótin. Með skipinu fylgja 1100 tonn af kvóta og sagði Gunnar að skipið yrði gert út á sóknarmark á næsta ári auk þess að þeir hefðu rækjuveiðar upp á að hlaupa. Á Merkúr, sem mun fá nýtt nafn á næstunni, verður 26-28 manna áhöfn. Auk þess má gera ráð fyrir að um atvinnuaukningu verði að ræða í landi vegna þjónustu við skipið. Sæberg gerir út tvo ísfisktogara, Sólberg og Ólaf Bekk. -BG „Samtök opinberra starfsmanna": Aðeins hugmynd „Þessari hugmynd var varpað laus- lega fram af Hauki Helgasyni á síðasta stjórnarfundi BSRB, til þess að kanna hvort þessi félög, BSRB, BHMR og BK gætu ekki átt frekara samstarf en nú er, en það er ómögu- legt að segja nokkuð um það á þessu stigi hvernig þessi mál kunna að þróast," sagði Albert Kristinsson, fyrsti varaformaður BSRB þegar Tíminn leitaði fregna hjá honum um frétt í fjölmiðlun að ný samtök opinberra starfsmanna væru í deigl- unni. „En mín skoðun er sú að allt sem gæti orðið til að styrkja samtökin sem heild, er auðvitað af hinu góða, sama í hvaða formi það gæti verið. En það hefur ekki verið rætt form- lega hvorki við BHMR né BK,“ sagði Albert Kristinsson. „Mér sýnist nú helst að fjölmiðl- arnir séu að búa hér til einhver ný samtök, og þetta hefur alls ekki verið neitt rætt innan okkar vé- banda,“ sagði Birgir Björn Sigur- jónsson, hagfræðingur BHMR. „Hins vegar get ég ímyndað mér að ef við fáum sambærilegan samn- ingsrétt eins og önnur stéttarfélög fá, almennan stéttarfélagsrétt. þá kæmi vel til álita að hafa samskonar samstarfsform eins og önnur stéttar- félög, samanber ASI. En við eigum fyrst eftir að sjá hvað verður í þessum samningsréttarmálum og eins og staðan er í dag, þá eru þessi þrjú heildarsamtök með býsna vel afmörkuð og skilgreind svið. Ég er hins vegar sannfærður um það, að ef þessi þrjú samtök ríkisstarfsmanna mæta aftur jafn miklu grundvallar- máli eins og samningsrétturinn er, að þá muni þessi samtök ræðast aftur við, en ég er nú ekki búinn að sjá nein heildarsamtök mynduð úr öllum þessum samtökum," sagði Birgir Björn Sigurjónsson. phh ERIIM AÐ FÁ IMISSAN SUNNY #87 3ja dyra, 5 dyra og 4ra dyra sendan Gerið ekki bílakaupin í ár fyrr en þið hafið séð Nissan Sunny '87 BETRI BÍLL BÝÐST ÞÉR VARLA INGVAR HELGASON HF. Sýningarsalurinn/Rauðagerði. simi 33S60.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.