Tíminn - 20.09.1986, Síða 4
4 Tíminn
Laugardagur 20. september 1986
SPEGILL
Wllllllllli
■III
Zsa Zsa Gabor á
fleiri hjónabönd að
baki en nokkur kem-
ur tölu á, en hún vill
endilega reyna einu
sinni enn.
Leikarinn Robert
Lichtenberg keypti
prinstitilinn fyrir
peninga og nú vill
Zsa Zsa Gabor eiga
hann. Hann er 25
árum yngri en hún.
ZsaZsa vill verða prinsessa
en er „prinsinn' til sölu?
Heimildir segja að Zsa Zsa Gabor sé 69 ára gömul, sjálf vill
hún ekkert um aldur tala. Hins vegar eru heimildir á reiki um
hvað hún sé búin að eiga marga eiginmenn og þar getur hún
heldur ekki hjálpað upp á sakirnir, hún veit það ekki sjálf. Giskað
er á að þeir séu 8 eða 9.
En eitt er þó víst, Zsa Zsa er ekki af baki dottin og hcfur fullan
hug á því að giftast a.m.k. einu sinni enn. Hún boðaði til
blaðamannafundar á búgarði sínum í Saratoga Springs dag einn
í ágúst og tilkynnti hátíðlega fyrir framan gapandi sjónvarps-
myndavélar að það liði að því að hún gengi upp að altarinu einu
sinni enn. Og brúðguminn væri þýski prinsinn Frederic von
Anhalt.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem nafn þessa þýska „prins“ kemur
fyrir almennings sjónir. Arið 1980 varð uppi fótur og lit þegar
vitnaðist að tengdadóttir Vilhjálms Þýskalandskeisara, Marie.
August von Anhalt, hefði ættleitt óþekktan leikara og þegið
stórfé fyrir. Milligöngu um þessi viðskipti hafði Hans Hermann
Weyer, sem sumir kalla „fallega ræðismanninn“ og alþekktur er
fyrir alls kyns vafasöm viðskipti. Hann dvelst nú í útlegð í
Suður-Ameríku.
Síðan hefur verið hljótt um Frederic prins, öðru nafni Robert
Lichtenberg, þar til nú að honum barst til eyrna að hann væri
heitbundinn Zsa Zsa Gabor! „Það hefur áreiðanlega enginn orðið
eins hissa og ég við þessa frétt,“ segir hann og Zsa Zsa verður að
taka á honum stóra sínum til að sannfæra hann um að svona standi
málin, basta!
En sumir segja að Zsa Zsa viti hvað hún er að gera. Þetta yrði
í fyrsta skipti sem hún giftist eignalausum manni, en hann gæti
hins vegar veitt henni það sem hana hefur alltaf langað í, leyfi
til að bera titilinn prinsessa!
coco Chanel á Islandi
Það er ekki á hverjum degi sem
Chanel sendir nýtt ilmvatn á mark-
aðinn, enda er undirbúningurinn
mjög vandaður. Núna er Chanel
samt að gefa viðskiptavinum sínum
úti um víðan heim kost á því að
kynnast nýjasta ilminum sínum,
COCO, og eru íslenskar konur
komnar í þann forréttindahóp að
geta gengið inn í góða snyrtivöru-
verslun hér á landi og fest kaup á
Coco-snyrtivörum.
Að undanförnu hefur Chanel
verið að kynna Coco í ýmsum
löndum og það hefur verið á boð-
stólum í fríhöfninni í Keflavík um
tíma. En enn eru ýms lönd, sem
ekki hafa fengið að kynnast Coco,
og má þar m.a. nefna Kanada,
Mexíkó og Suður-Ameríkuríkin.
ísland hcfur því síður en svo mætt
afgangi.
Nú cr 62 ár síðan Chanel 5 kom
fyrst á markað og það heldur enn
velli í ilmvatnsheiminum. Það er
þess vegna kannski ekki óeðlilegt
að forráðamenn Chanel geri sér
vonir um að Coco eigi eftir að
njóta vinsælda langt fram á næstu
öld! Coco er fyrsta nýja ilmvatnið
sem Chanel scndir frá sér eftir
dauða Coco Chanel og þess vegna
þótti sjálfsagt að ilmvatnið bæri
nafn hennar.
Góður
felu'
staður
fyrir þýfi
Það lá við að lögregluþjónarnir
fengju áfall, og það beint í hjarta-
stað, þegar innbrotsþjófurinn John
Atkinson sýndi þeim hvar hann
hafði falið þýfið, sem þeir vændu
hann um að hafa stolið. Það var
geymt á sjálfri lögreglustöðinni!
John ergóðkunningi lögreglunn-
ar í Donnybrook í Irlandi og kom
þess vegna oft á lögreglustöðina.
Einu sinni sem oftar var hann
dreginn inn á stöð, ákærður fyrir
innbrot. Og hann hafði sitthvað á
samviskunni. Áður en langt um
leið var hann búinn að játa á sig 7
innbrot, þar sem hann hafði stolið
um 150.000 kr. virði.
Auðvitað var hann spurður hvað
hefði orðið um þýfið og þá var það
sem lögregluþjónunum brá illilega
í brún. John leiddiþá aðskjalaskáp
nokkrum á lögreglustöðinni, stakk
hendinni á bak við hann og dró
fram skartgripi í hrúgum!
John fékk að vísu fangelsisdóm
upp á eitt ár fyrir þjófnaðinn, en
álitshnekkur lögreglunnar var
„Það er greinilegt að John hefur
notað tækifærið þegar hann var
áður staddur hjá okkur á stöðinni
og falið þýfið. En nú verða gerðar
varúðarráðstafanir svo að svona
lagað endurtaki sig ekki,“ sagði
talsmaður lögreglunnar skömm-
ustulegur..
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Aðalfundur Sam-
ands sveitarfélaga:
Varar við hug-
myndum Sverris
Skólaaksturinn, dreifbýlismálefni,
útrýming riðuveiki, heilbrigðiseftirlit,
mengunarvarnir og frárennslismál,
fjölgun heilsugæslulækna og nauð-
syn sérfræðiþjónustu á sviði tann-
lækna, úrbætur í vegamálum, hafn-
armálum og flugmálum var meðal
þess sem ályktað var um á aðaifundi
Sambands sveitarfélaga í Austur-
landskjördæmi, sem haldinn var ný-
lega.
Eindregið er varað við hugmynd-
um menntamálaráðherra um stór-
kostlegan niðurskurð á framlögum
ríkisins til skólaaksturs, heimavist-
argæslu og reksturs mötuneyta.
Ekki er talið óeðlilegt að þessi mál
séu tekin til endurskoðunar með
hagkvæmnissjónarmið í huga, en
minnt á að mörg sveitarfélög séu
ekki í stakk búin til að mæta auknum
útgjöldum vegna reksturs grunn-
skóla nema nýir tekjustofnar komi á
móti til að mæta þeim kostnaði.
Átak til að bæta
heilbrigðiseftirlit
Samþykkt var að beina því til
sveitarfélaga á Austurlandi að gera
átak í því að bæta heilbrigðiseftirlit
og jafnframt áskorun til heilbrigðis-
ráðherra að slíkt eftirlit á lands-
byggðinni verði styrkt á fjárlögum,
þar sem mikill ferðakostnaður tor-
veldaði það m.a. SSA samþykkti að
stefna að því að fullmenntaður heil-
brigðisfulltrúi verði ráðinn til starfa í
fjórðungnum árið 1988.
Styrk til fiski-
mjölsverksmiðja
Samþykkt voru eindregin tilmæli
til stjórnvalda að aftur verði teknir
upp á fjárlögum styrkir til mengunar-
varna við fiskimjölsverksmiðjur og
að þau tryggi að verksmiðjunum
verði gert kleift að taka viðráðanleg
lán til að koma uþþ vörnum gegn
megnun lofts og lagar. Jafnframt var
samþykkt áskorun til sveitarfélaga f
fjórðungnum að þau beiti sér af alefli
fyrir því að koma frárennslismálum
^ íþaðhorfaðmengunhljótistekkiaf.
I Stöðvun riðuveiki
Aðalfundur SSA telur mikla nauð-
syn bera til að stööva útbreiðslu
riðuveiki á Austurlandi. Samþykkt
var stofnun 5 manna nefndar til að
gera tillögur um skipulegan niður-
skurð allra riðuhjarða á svæðinu og
jafnframt áskorun til þingmanna
kjördæmisins um að vinna að því að
nauðsynlegt fjármagn fáist til að
hrinda slíkri áætlun í framkvæmd.
Fleiri iækna
Þrátt fyrir flesta lækna I heimi hér
á landi eru læknaskipti sögð tíð í
einmenningshéruðunum á Austur-
landi og stundum algert læknisleysi.
Enda sé álag á þessa lækna meira
en svo að þeir geti risið undir því til
lengdar. SSA skorar því á heilbrigð-
isyfirvöld og Alþingi að auka fjárveit-
ingu sem nemur tveim læknisstöð-
um, en þeim yrði skipt á milli fjögurra
H-1 stöðva. Einnig var samþykkt að
fela stjórn SSA að koma á fót
starfsnefnd til að fjalla um sérfræði-
þjónustu lækna og tannlækna í
héraðinu og um stefnur í hjúkrunar-
málum.
I Karlar ráðabetri?
I
í stjórn SSA voru kosnir: Björn
Hafþór Guðmundsson á Stöðvar-
firði, Sigfús Guðlaugsson á Reyðar-
firði, Smári Geirsson frá Neskaup-
stað, Aðalbjörn Björnsson úr Vopna-
firði, Birgir Hallvarðsson frá Seyðis-
firði, Ólafur Ragnarsson úr Búlands-
hreppi, Þórketill Sigurðsson úr
Nesjahreppi, Þráinn Jónsson úr
Fellahreppi og Hrafnkell A. Jónsson
á Eskifirði. Jafnframt voru 28 aðal-
menn kosnir í fræðsluráð og ýmsar
nefndir og vekur athygli að af þess-
um 37 manna hóp eru konur aðeins
tvær; Þórdís Bergsdóttir í sam-
göngunefnd og Birna Einarsdóttir í
stjórn SAL.