Tíminn - 20.09.1986, Side 6
Laugardagur 20. september 1986
Tíminn
ÚTLÖND
FRETTAYFIRLIT
WASHINGTON - George
Shultz utanríkisráöherra
Bandaríkjanna og Eduard
Shevardnadze utanrikisráð-
herra Sovétríkjanna hófu í gær
viðræður sínar um sam:
skiptamál austurs og vesturs. í
gær var talið heldur ólíklegt aö
ráðherrunumtveimurtækistað
ákvarða dagsetningar fyrir
næsta leiðtogafund þeirra Re-
agans og Gorbatsjovs.
PARIS — Jacques Chirac
forsætisráðherra Frakklands
hóf viðræður við leiðtoga
helstu stjórnmálaflokka lands-
ins til að gera þeim grein fyrir
hvað ríkisstjórnin hyggst gera
til að binda enda á sprengjutil-
ræöin sem skelft hafa Parísar-
búa að undanförnu.
STOKKHÓLMUR - Full
trúar frá ríkjum austan sem
vestan við járntjald vonuðust
eftir að samkomulag myndi
nást á síðasta opinbera degi
afvopnunarráðstefnu 35 þjóða
í Stokkhólmi.
TOKYO — Japansstjórn til-
kynnti um nýjar ráðstafanir
sem miða að því að auka
efnahagslega neyslu heima
fyrir en gagnrýnendur ráðstaf-
ananna bæði erlendis og
heima fyrir töldu þær ekki
ganga nógu langt.
LUNDÚNIR - Háttsettur
efnavopnasérfræðingur frá
Sovéfríkjunum jók vonir
manna um að hægt væri að ná
alþjóðlegu samkomulagi um
bann við notkun slíkra vopna.
Slíku banni hefur verið reynt
að koma á undanfarin ár en
ekki tekist.
BELFAST — Lögregla sem
rannsakar nýja öldu morða
milli trúarhópa Norður-írlands
handtók átta menn sem arun-
aðir eru um að vera meolimir
flokks hernaðarsinna úr hópi
mótmælenda.
I
AÞENA — Andreas Papand-
reou forsætisráðherra Grikk-
lands tilkynnti um endurbygg-
ingaráætlun fyrir bæinn Kala-
mata þar sem 20 manns letu
lífið í jarðskjálftum síðastliðinn
laugardag.
BAHREIN — Yfirvöld í Iran
og Irak tilkynntu um harða
bardaga á hæðunum við miðju
vígstöðvanna upp af Persa-
flóa. Hinsvegar deildu aðilarnir
um hverjir hefðu betur í þeim
bardögum.
LUNDÚNIR — Gullverð fór
upp í 15 dollara á únsu, sitt
hæsta verð á síðustu þremur
árum. Ástæðan var sú að fjár-
festingaraðilar snéru sér að
gulli og forðuðust mjög ótrygga
hlutabréfa- og gjaldeyrismark-
aði.
Suður-Afríka:
Efnir Botha forseti
til þingkosninga?
Jóhanncsarborg-Reuter
Neyðarástándslögin í Suður-Ai'r-
íku höfðu staðið yfir í hundrað daga
í gær en ekki bar þó afmælið hclst á
góma í Jóhannesarhorg í gær hcldur
frcttir um að P.W. Botha forseti
hcfði hug á að cfna til kosninga
meðal hvíta minnihlutans nú á næst-
unni.
Botha og flokkúr hans, Þjóðar-
flokkurinn unnu mikilvægan sigur í
aukakosningum síðastliðinn miðviku-
dag og margir stjórnmálaskýrendur
búast við að forsetinn tilkynni um
nýjar kosningar, jafnvel um þessa
helgi.
Dagblaðið Becld, scm hefur góð
sambönd við æðstu ráðamenn
landsins, var með frétt í gær á
forsíöu og var fyrirsögnin: „Pað lítur
út fyrir að verða 26. nóvembcr". Hcr
var átt við hugsanlegan kosninga-
dag.
Blaðið var raunar svo visst í sök
sinni að það sagði Botha annaðhvort
tilkynna urn væntanlegar kosningar
nú um helgina eða á þingi Þjóðar-
flokksins í Capehcraði sem hefst
hinn 29. septembcr.
Forsctinn getur setið fram tii árs-
ins 1989 en í síöasta mánuði gaf
hann í skyn í viðtali að kosningar
yrðu haldnar l'yrir þann tíma.
Heimildarmenn innan suður-afr-
ísku stjórnarinnar sögðu Botha vera
mjög ánægðan með útkomuna úr
aukakosningunum í Kliprivicrhéraöi
í Natallandi. Þar vann Pjóðarflokk-
urinn sigur á harðlínumönnum til
hægri sem berjast undir merkinu
„Höldum Suður-Afríku hvítri".
„Þctta cru merki þess að Suður-
Afríka er sameinuð," sagði Botha
cftir að úrslit urðu Ijós. Á síðasta ári
sigruöu gagnrýnendur Bothá á
hægri vængnum tvívcgis í aukakosn-
ingum og sigurinn á miðvikudaginn
var því Botha og Þjóðarflokknum
mikilvægur.
Síðustu almennu kosningarnar
þ.e.a.s. mcðal hvíta minnihlutans
voru haldnar árið 1981 og með réttu
hefði átt að vera kosið í apríl á þessu
ári. Hinsvegar var ný stjórnarskrá
samþykkt á síðasta ári sem gaf
Botha rétt til að fresta kosningum
fram til ársins 1989 ef honum þókn-
aðist.
Leiðtogar stjórnarandstöðuflokk-
anna sögðust í gær vcra fullkomlega
búnir undir kosningar ef af þeim
yröi. Bæði Neil Ross leiðtogi hins
tiltölulega frjálsynda Framfara-
flokks og Eugene Terre’Blanche
leiðtogi nýnasista bjuggust raunar
við að Botha myndi efna til kosninga
í nóvembcr.
Þjóðarflokkurinn hcfur verið við
völd síðan 1984 og þingmenn hans
sitja nú í 127 af 178 sætum á þingi
hvíta minnihlutans sem telur um
fimm miljónir manna. Heildaríbúa-
tala Suður-Afríku er hinsvegar einar
33 milljónir.
Reagan ræddi viö Shevardnadze:
Óvæntur fundur
Washington-Reuter
Reagan Bandaríkjaforseti átti
óvæntan fund með Eduard
Shevardnadze utanríkisráðherra
Sovétríkjanna í Hvíta húsinu í
gær. Bandaríkjaforseti boðaði
Shevardnadze á fund sinn til að
ræða málefni bandaríska blaða-
mannsins Nicholas Daniloffs sem
Moskvustjórnin sakar um njósnir.
Larry Speakes talsmaður forset-
ans sagði Reagan hafa viljað koma
skoðun sinni á þessu máli beint til
sovéska utanríkisráðherrans sem
er í Washington til að ræða við
George Shultz utanríkisráðherra
Bandaríkjanna um samskipti aust-
urs og vesturs og möguleika á
nýjum leiðtogafundi á þessu ári.
Fundur Reagans og Shevar-
dnadze stóð yfir í rúman klukku-
tíma og eftir það hélt sá sovéski frá
Hvfta húsinu um sömu dyr og hann
hafði komið - bakdyrnar.
Andrúmsloftið var ekki alltof
vinalegt í gær. Shevardnadze var
ekki boðið að sitja hádegisverð
með forsetanum sem er venja og
engar myndatökur voru leyfðar
áður en mennirnir tveir ásamt
aðstoðarfólki gengu til fundarins.
ÚTLÖNP
UMSJÓN:
Heimir
Berqsson
BLAÐAMAÐUR
Margir hurfu sporluust í „óþverrastríðinu“ en nú er það að sannast að það sem niður er sett kemur upp
aftur. Kannski vcrður það mæðruni „hinna týndu“ einhvcr huggun.
Argentína:
Hinir horfnu enn að
koma í leitimar
Cordoha, Argentína-Rcutcr
Enn fleiri jarðneskar leifar hafa
fundist í vatni í Argentínu sem
mannréttindasamtök segja hafa ver-
ið notað til að fleygja í fórnarlömb-
um fyrrverandi herforingjastjórnar.
Fréttastofan Noticias Argentinas
sagði í vikunni að lögregla hefði
fundið jarðneskar leifar rnanna á
botni San Roque vatns sem er við
vinsælan ferðamannastað í Cordo-
bahéraði, unt 800 kílómetra norð-
vestur af höfuðborginni Bucnos Air-
es.
1 Ekki var sagt hve margar beina-
grindur hefðu fundist en síðastliðinn
sunnudag fann lögreglan jarðneskar
leifar fimm manna í vatninu.
Mannréttindasamtök sögðu lík-
in líklega af fórnarlömbum hersins
í hinu svokallaða „óþverrastríði"
sem upphaflega var háð i þeim
tilgangi að binda enda á ofbeldisað-
gerðir vinstri manna á síðasta ára-
tug.
Opinber nefnd sem skipuð var
eftir að lýðræði komst aftur á í
landinu árið 1983 hefur áætlað að
um níu þúsund manns hafi horfið
sporlaust er herforingjastjórnin var
við völd.
Eyðni í Evrópu:
Sviss með
hinn vafasama
heiður að vera
í efsta sæti
Brusscl-Rcutcr
Sviss hefur þann vafasama heiður
að hafa hæstu tíðni eyðnissjúk-
dómsins alræmda af öllum Evr-
ópulöndum. Danmörk er í öðru
sæti og Belgía í því þriðja. Þetta
kont frant í skýrslu belgíska heil-
brigðismálaráðuneytisins sem
birt var í gær.
Síðasta vor var niest unt eyðni
miðað við fólksfjölda í Belgíu en
samkvæmt skýrslunni hefur út-
breiðsla sjúkdómsins verulega
hægt á sér þar í landi.
í Belgíu er alls 171 einstakl-
ingur skráður nteð sjúkdóminn en
aðeins 49 þeirra eru belgískir
ríkisborgarar. Hinir koma er-
lendis frá, flestir frá Zaire til að
leita lækninga við sjúkdómnum.
Zaire erfyrrum belgísk nýlenda.
Eyðnissjúkdómurinn, sem
eyðileggur hæfileika mannslík-
amans til að verjast sýkingu,
getur borist á milli manna á
ýmsan hátt en samkynhneigðir
menn og eiturlyfjasjúklingar eru
helsti áhættuhópurinn.
SPENNUM
BELTIN
sjálfra okkar
vegna!