Tíminn - 20.09.1986, Page 11
Laugardagur20.september1986 Tíminn 11
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIH IPROTTIR .......... .......... .......... ............. ........... ............. ............... ........I...IHIIIIIIIIII.Illlllllllllll.................■III....
Enska knattspyrnan:
Rush og Clarke mætast
Ian Rush markaskorarinn mikli hjá Liverpool
Þýska knattspyrnan:
Góðar sigurlíkur hjá Stuttgart
í dag verður leikin 7. umfcrð
þýsku knattspyrnunnar. Efsta lið
deildarinnar, Bayern Munchen leik-
ur gegn Gladbach á heimavclli en
Gladbach er í 13. sæti í deildinni
mcð 6 stig. Miinchen hefur 10 stig.
Stuttgart sem Ásgeir Sigurvinsson
leikur með og er í 5. sæti með 8 slig
rnætir Diisseldorf sem er i 17. og
næst neðsta sæti með aðcins þrjú
stig. Diisscldorf hcfur leikið 3 leiki
á útivelli og tapað. þcim öllum.
Sigurlíkur Ásgeirs og félaga ættu að
vera miklar því leikurinn fcr fram í
Stuttgart. í leikjum liðanna í fyrra
sigraði Stuttgart tvívegis, 5-0 og 7-0.
Ucrdingen sem Atli Eðvaldsson
leikur með kcppir á heimavelli gegn
Köln. Uerdingen er í II. sæti mcð 6
stig íyrir leikinn. en Köln í því
fjórtánda mcð 3 stig.
íþróttir helgarinnar:
Lítið um að vera hérlendis
- í viðureign Southampton og Liverpool í dag
Um helgina verður lítið um að
vera á íþróttasviðinu hér innan-
lands. Þessa dagana er hálfgert
millibilsástand, sumaríþróttunum
að mestu lokið að frátöldum
Evrópukeppnum í knattspyrnu og
vetraríþróttirnar varla hafnar.
1 dag verður fram haldið keppni
á Reykjavíkurmótunum í hand-
knattleik og körfuknattleik. Hand-
knattleiksmótið fer fram í Selja-
skóla. Kl. 14 í dag keppa KR og
Víkingur í kvennaflokki, Frani og
Ármann keppa strax á eftir einnig
í kvennaflokki og loks Víkingur og
Fylkir í karlaflokki. í körfuknatt-
leiknum hefst keppni einnig kl. 14
í Hagaskóla með leik Vals og ÍS í
karlaflokki. Þá keppa KR og ÍR í
karlaflokki og loks 1R og ÍS í
kvcnnaflokki. Á morgun hefst
keppni í handknattleiknum kl.
18.45 og vcrða einnig þrír leikir á
dagskrá þá. Þá er á ntorgun Götu-
boðhlaup Frjálsíþróttasambands-
ins og hefst það við KR heimilið
við Frostaskjól kl. 11.
Ian Rush markaskorarinn mikli
hjá Liverpool og Colin Clarke
markahæsti leikmaður 1. deildar á
þessu ári mætast í fyrsta skipti á
knattspyrnuvellinum í dag þegar
Liverpool keppir í Southampton.
Clarke hefur skorað 7 mörk í 1.
deild það sem af er tímabilinu, þar
af einu sinni þrennu. Hann vakti
mikla athygli í fyrra þegar hann
skoraði 26 mörk í 46 leikjum með
Bournemouth í 3. deild. Eitt af
liðunum sem sýndi honum áhuga var
Torino á Ítalíu, nágrannafélag Ju-
ventus. En Clarke ákvað að leika
áfram í Englandi og gekk til liðs við
Southampton að loknu Heimsmeist-
aramótinu í Mexíkó í sumar þar sem
hann keppti með norður-írska
landsliðinu.
Rush hefur skorað 5 ntörk í haust.
Það er merkileg staðreynd að þeim
leikjum sem Rush hefur skorað
mark í hefur Liverpool ekki tapað,
ekki einum einasta.
Knattspyrnuunnendur og leik-
menn í Southampton eru líkast til
fegnir að landsliðsmarkvörðurinn
góðkunni Peter Shilton er kominn á
stjá aftur, en hann hefur verið
meiddur. Pað veitir ekki af reyndum
markmanni þar sem Rush er á
ferðinni með knöttinn.
Af öðrum leikjum dagsins má
nefna viðureign Chelsea og efsta
liðsins. Nottingham Forest. Forest
má ekki við tapi í leiknum því
Liverpool cr með jafn mörg stig í
öðru sæti. Everton er í þriðja sæti og
þeir mæta Manchester United á
morgun.
Nýjar greinar
áOLíSeoul
Á Ólympíuleikunum í Seoul 1988
verður bætt við tveimur nýjum
keppnisgreinum frá því sem verið
hefur.
Þetta er hvorttveggja viðbót við
greinar sem áður hefur verið keppt
í. Greinarnar eru 50 m skriðsund og
sveitakeppni í bogfimi. Áður hefur
verið keppt í einstaklingskeppni í
bogfimi. I sundi hefur ekki verið
synt styttri vegalengd en 100 m
hingað til.
Gordillo ekki með
Spænski landsliðsþjálfarinn í
knattspyrnu, Miguel Munoz kom
mjög á óvart f gær er hann tilkynnti
spænska landsliðshópinn fyrir vin-
áttulandsleik gegn Grikkjum sem
verður leikinn á miðvikudag. Hann
valdi miðvallarleikmanninn Rafael
Gordillo frá Real Madrit ekki í 16
manna hópinn. Gordillo er einn af
leikreyndustu landsliðsmönnum
Spánverja með 63 leiki að baki.
í stað Gordillo kemur Eusebio
Sacristan frá Valladolid sem þykir
efnilegur mjög. Að öðru leyti er liðið
óbreytt frá þvf í Mexíkó.
Rush sektaður
Ian Rush var í gær sektaður um
upphæð sem nemur um 30.000 ísl.
kr. fyrir að sýna „móðgandi og
óviðeigandi framkomu" í leik gegn
Manchester City fyrir mánuði. Hann
var einnig áminntur um að láta slíkt
ekki gerast aftur og gert að greiða
málskostnað.
Hann slapp við bann þar sem
hann hefur aðeins verið bókaður
tvisvar á síðustu 6 árum og þykir það
einstök prúðmennska.
Dodds snýr heim
Skoski knattspyrnumaðurinn
Davie Dodds snéri í gær heim að
nýju eftir misheppnaðan feril hjá
Xamax í Sviss sem stóð aðeins í 3
mánuði. Hann mun leika með Aber-
deen í dag gegn Clydeband en í Sviss
komst hann aldrei í aðalliðið hjá
Xamax.
VERÐTRYGGÐIR REIKNINGAR
MEÐ FÖSTUM VÖXTUM
VEXTIR
^HMÁNADA
Q/ VEXTIR
■O 24ifiliiA
m ea
AVOXTUN SEMMUNARUM
SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF.