Tíminn - 28.09.1986, Qupperneq 2
2 Tíminn
Sunnudagur 28. september 1986
Ávaxtaeftirréttir
Bestu ábætisréttirnir eru úr nýjum ávöxtum. Það er hægt að bera þá
fram einsogþeir eru eða saxa þáofan í jógúrt eða kotasælu. Skál af kæld-
um vínberj um er falleg borðskreyting jafnt því að vera ábætisréttur með
ögn af osti. Viðönnur tilefni má reyna heita ávaxtarétti, til dæmisávaxta-
böku.
Eplasósa
epli
sjávarsalt
kanell
sítrónusneiðar
vanilla
Þvoið eplin, afhýðið þau ogskerið í fjóra hluta. Skerið kjarnahúsin úr.
Látið eplin í pott og látið vatn þannig að það fljóti næstum yfir. Bætið við
ögn af salti og sítrónu eftir smekk. Sjóðið þangað til eplin eru orðin mjúk,
þá eru þau marin í blandara eða matvinnsluvél. Látið nú maukið aftur í
pottinn og kryddið með kanel og vanillu eftir smekk. Sjóðið þangað til
eplasósan er mátulega þykk.
Ambrosía
4 appelsínur
2 bollar kókosmjöl
4 bananar
1-4 msk. hunang
Afhýðið appelsínurnar, skerið þær í bita og hreinsið vel alla steina úr
þeim. Skerið banana í sneiðar. Blandið öllu vel saman oggerið sætt með
hunangi eftir smekk.
Eplabaka
bökuskelin:
'A tsk salt
l'/2 bolli heilhveiti
2 msk matarolía
4-6 msk kalt vatn
Blandiðsaman salti og hveiti. Nuddið olíunni saman við þangað til hún
hefur jafnast vel um hveitið. Bætið út í vatniðeinni matskeið í einuþangað
til deigið loðir saman. Breiðið út á hveitistráðu borði. Leggið deigið yfir
bökuformiðog þrýstið því lauslega niður með forminu. Skerið utan með.
Fyllingin:
4 bollar niðurskorin epli
Vi bolli hunang
2 msk srnjör
1 msk sítrónusafi
1 tsk kanell eða kardemomma
haframjöl
Fyllið bökuskelina með eplabitunum. Hellið hunanginu jafnt yfir eplin.
Látið litla smjörbita hingað og þangað. Stráið yfir kryddi og ýrið yfir
sítrónusafa. Nuddið nú haframjöli saman við afganginn af bökudeiginu
þangað til það er orðið eins og gróft rasp og stráið því yfir eplin. Bakið
við 175°C í 35-40 mínútur.
Jógúrt ávaxtafrauð
1 bolli jógúrt
safi úr einni appelsínu
2 bollar ný eða frosin jarðarber
1 msk hunang
1 stór dós ananaskurl í eigin safa
Vi bolli undanrennuduft.
Blandið öllu saman í blandara þangað til það er orðið jafnt. Frystið.
Þegar frauðið er hálffrosið er það tekið út og þeytt hraustlega í því. Þetta
minnkar ískrystallana. Frystið alveg.
TÓNLEKAR BUBBA
0G MX-21
Fyrstu sjálfstæðu tónleikar
Bubba Morthens og MX-21 í
Reykjavík verða í Austurbæjar-
bfó laugardagskvöldið 4. okt-
óber. Hér er um að ræða tvenna
tónleika og hefjast hinir fyrri kl.
19.00 en hinir síðari kl. 22.00.
Reyndar eru þetta fyrstu rokk-
tónleikar Bubba í Reykjavík í
um það bil 2 ár. Að vísu kom
Bubbi og MX-21 fram á Reykja-
víkurhátíðinni um daginn'.
Hljómsveitin vakti þar strax gíf-
urlega athygli, en þeir tónleikar
voru raunverulega aðeins for-
smekkurinn af því sem koma
skal.
Yfirskrift tónleikanna í Aust-
urbæjarbíó er Frelsi til sölu, sem
er samheiti fyrir hina væntan-
legu stúdíóplötu Bubba. Á þess-
um tónleikum kynnir Bubbi
ásamt MX-21 í fyrsta sinn aðdá-
endum sínum efni piötunnar í
heild. Hér er um að ræða efni
plötunnar, sem Bubbi hefur ver-
ið að vinna að með hléum að
vísu í heilt ár, með meðlimum
sænsku hljómsveitarinnar Im-
periet.
Fyrri tónleikarnir hefjast með
því að Bubbi kemur fram einn í
hálfa klukkustund. Að því loknu
tekur við hljómsveitin Ný augu,
með einn af athyglisverðustu
tónlistarmönnum þessa árs í
broddi fylkingar, 'Bjarna
Tryggvason. Eftir hlé kemur svo
Bubbi ásamt MX-21 og spila í
rúma klukkustund.
Seinni tónleikarnir, sem hefj-
ast klukkan 22.00 eru með sama
sniði nema að þá verðum við
líklega flest vitni að í fyrsta sinn
uppákomu „dreptanbillý“ tríós-
ins, Langa Sela og skuggunum.
Hér eru mættir á ný saman þrír
af fyrrum meðlimum hinnar óg-
leymanlegu hljómsveitar
Oxzmá. Líkt og á fyrri tón-
leikunum mun svo Bubbi og
MX-21 ljúka tónleikunum. For-
sala aðgöngumiða verður sem
hér segir:
Reykjavík: Hljómplötuversl-
anir. Selfoss: 29. sept. MM búð-
inni. Keflavík: 30. sept.
Hljómval. Akranes: 31. sept.
Við viljum jafnframt benda
fólki á, sem býr víðsvegar á
landsbyggðinni, að snúa sér til
Flugleiða, sem bjóða sérfargjöld
og miða á þessa tónleika.
„THE CLARKS“
í Evrópn
Um þessar mundir skemmtir
hljómsveitin „The Clarks“ gest-
um veitingahússins Evrópu við
Borgartún.
Hljómsveitin The Clarks á
rætur sínar að rekja til Hollands
og er skipuð fjórmenningunum
Micha Hasfeld, Michael Esc-
hauzier, Peter van Schie og Phil
Neal.
The Clarks sérhæfa sig í tón-
list sjöunda áratugarins. Peir
leika einvörðungu tónlist sem
sló í gegn á sínum tíma og allir
kannast við. Elvis, Cliff, Bítl-
arnir, Stones, Kinks og the Who
eiga m.a. lög á prógrammi The
Clarks.
Undanfarna 12 mánuði hafa
The Clarks verið á tónleikaferð
sem þeir kalla „Magical History
Tour“. Þeir hafa allsstaðar feng-
ið mjög góðar móttökur enda er
tónlistin og sviðsframkoman
bæði hress og skemmtileg.
Félagar „The Clarks" sérhæfa sig í tónlist sjöunda áratugarins.