Tíminn - 28.09.1986, Qupperneq 6
... og i stukunni ætlaoi allt vitlaust að verða. Islendingar nutu
þess að vera yfir í leiknum, en það var skammgóður vermir. Á
síðustu mínútu fyrri hálfleiks jöfnuðu sem kunnugt er Sovét-
menn Og þar VÍð Sat.(Tímamynd Pjetur)
Ingólfur Hannesson, íþróttafréttamaður útvarpsins ríkisrekna
og Arnór Guðjohnsen ræðast hér við um leikinn, markið og
guðshendur. (Tímamynd Pjetur)
Bangsarnir rússnesku voru heldur en ekki lúpulegir,
staðan 1-0 fyrir ísland og ástandið jarðarför líkast. (Tímamynd Pjetur)
Á varamannabekknum ríkti að sjálfsögðu ánægja með fyrsta mark
leiksins sem Pétur Pétursson lagði upp og Arnór Guðjohnsen
skoraði.. Tímamynd Pjetur)
6 Timinn
Sunnudagur 28. september 1986
Rússneski
bangsinn
lúpulegur
.ússneski bangsinn hélt heldur en ekki lúpulegur
aftur til herbúða sinna eftir að hafa mistekist að leggja
afkomendur hinna miklu víkinga að Laugardalsvelli.
Eftir jafnan fótboltaleik á miðvikudaginn var örkuðu
Rússar þögulir inn í búningsklefa sinn, en þjálfari þeirra,
hamslaus af reiði, jós úr harmaskálum sínum yfir dómarann
og taldi hann hlutdrægan og dæma íslendingum í vil.
En þeir sem sáu leikinn eru sáttir við úrslitin. Hann var
jafn og bæði lið sýndu skemmtilega knattspyrnu, þótt á
stundum hafi hlaupið illt blóð í leikinn og andstæðingar
sendu hver öðrum morðaugnaráð og stöku sinnum tóninn.
Enda sá dómarinn sér ekki annað fært en að veifa gulu
spjöldunum í báðar áttir til að setja niður í við leikmenn.
Eftir jafnteflið við Frakka, sem lengi verður í minnum
haft, grætti það landann hve illa félagsliðum gekk að eiga
við Sporting Lissabon og Juventus. Það var svart kvöld í
knattspyrnusögunni íslensku (eins og hún sé því ekki
vön!?). En svo sannarlega tóku menn gleði sína á ný þegar
dómarinn blés til leikloka í hálfrökkrinu á Laugardalsvelli
á miðvikudagskvöldið var. ísland var orðið efst eftir tvo
leiki í sínum riðli í Evrópukeppninni og Ijóst má vera af
leiknum að ekkert lið, hversu sterkt og frægt sem það er,
getur sótt íslenska landsliðið heim og verið öruggt um
útkomuna.