Tíminn - 07.10.1986, Qupperneq 2

Tíminn - 07.10.1986, Qupperneq 2
2 Tíminn Þriðjudagur 7. október 1986 SKÁK Sigur Kasparovs í 22. skákinni batt enda á vonir Karpovs: Kasparov heldur titlin um eftir jafntefli í gær Garrí Kasparov skril'ar hjá sér leik í einni alþeim 95 skákuni sem þeir hafa teflt á röskum tveimur áruin. Staðan er 48:47, heimsmeistaranum í hag. Garrí Rasparov heldur heims- meistaratitlinum sínum næsta árið a.m.k. Hann vann úrslitasigur s.l. laugardag þcgar 22. skák einvígis- ins var leidd til lykta. Tvísýn staða rcyndist unnin, þvert ofan í spá- dóma fjöhnargra skáksérfræðinga sem töldu Karpov eiga að lialda jöfnu með bestu talfmennsku. Uið- leikur Kasparovs rcyndist hinsveg- ar óvcnjulega magnaður og það tók hann ekki nema sex leiki að gera út uni tallið. Lokastefið var óvenju skemmtilegt. I'rátt fyrir tapið átti Karpov enn möguleika á sigri tækist honum að vinna 23. skákina sem tefld var í gær. En Ijóst var að hann var búinn að missa móöinn. Karpov tcfldi vélrænt og náði eiígu tangarhaldi á stiiðunni, greinilega örþrcyttur eft- ir mikinn darraöadans í síöustu skákum. Eftir 52 leiki var Kaspar- ov búinn að jafna taflið og gott betur og Karpov bauð jafntefli. sem í raun gilti sem uppgjöf í tilraun til að endurheimta heims- meistaratignina. Kasparov hafði þá hlotiö 12 vinninga gegn II vinning- um Karpovs og þar sem reglur kveða á um að heimsmcistari haldi titlinum á jöfnu má Kasparov tapa. síðustu skákinni sem verður tefld á miövikudaginn. Allmikiö verö- launafc er í húfi en skiptir þá félaga engu því þeir halá báðir heitið því áð láta verðlaunin renna óskipt til fórnarlamba kjarnorkuhörmung- anna í Tjernóhýl. Það má því búast viö stuttu jafntefli í síðustu skák- inni. Karpov sest væntanlega aftur að tafli í byrjun næsta árs og þá gegn Andrei Sokolov, sem samkvæmt fréttum frá Riga hcfur unnið ein- vígi sitt viö Artur Jusupov cftir afleita byrjun. Sokolov er á svipuðu reki og Kasparov en að mínu viti á Karpov alla möguleika á sigri. Hann hefur ckki teflt cinvígi í áskorenda- keppni í 12 ár þannig að segja má aö nýr kafli hefjist nú í ferli hans. En það veröur gaman að sjá hvort Garrí nái að halda titlinum jaln lcngi og mótstöðumaðurinn sem var hcimsmcistari samfleytt í 10 ár eða allt frá því að Bobby Fischcr afsalaði scr titlinum án keppni jafnvel þó svo Filippseyingar hafi boðist til að halda einvígið um verðlaunafé scm nam 5 milljónum Bandaríkjadala. Hart tefldar skákir Það scm cinkennt hefur einvígi Kasparovs og Karpovs nú er fyrst og frentst gcysilcga mikil barátta einkum í seinni hlutanum þar sem teflt var af hrcinni grimmd. Fyrstu 12 skákirnar voru tcfldar í London og strax þar skaut upp kollinum gamalt vandamál hjá Karpov; hann átti erfitt mcð byrjanir mótstöðu- mannsins scm á sér engan líkan í þeim þætti skákarinnar. Kasparov náði forystunni nteð sigri í fjórðu skákinni eftir að hafa misst af auðveldum vinningi í 2. skákinni. Karpov svaraði fyrir sig með sigri í fimmtu skákinni og var á góðri lcið með að ná sigri í sjöundu skákinni sem hefði þýtt forystuhlutverk hans í einvíginu. En hann missti laxinn og varð að gcra sér að góðu jafntefli. Kasparov gekk strax <r lagið og vann sigur í flókinni átt- undu skák og tók þar með foryst- una. Jafntefli varð í síðustu skákunum í Lundúnaþættinum en Karpov gerði sérstaklega hat- ramma tilraun til að jafna í II. skákinni en jafntefli varð niöur- staðan. Margir töldu flutninginn til Len- ingrad vera hagstæðan Karpov sem er þar hagvanur. Svo rcyndist ekki vera í fyrstu. Karpov tcfldi illa í 14. skákinni og tapaöi og í 16. skákinni töfraði Kasparov fram vinning á næsta ótrúlcgan hátt. Hann var þar með kominn með þriggja vinninga forskot og aðcins virtist formsatriöi að ljúka einvíginu. Karpov sýndi aðdáunarvcrða staðfestu og tcfldi af mikilli hörku í næstu þrenturskák- um og uppskar jafn marga vinn- inga. Hann hafði þar með náð að jafna mctin og allt gat gerst. Kannski hefur hann gengið cinum of mikið á umframorkuna því hann átti enga alvarlega tilraun til að ná yfirhöndinni í þeim tveimur skák- um sent fylgdu. báðum lauk með jafntefli. Lokin á 21. skákinni báru þess vitni að Kasparov var að komast aftur í form, hann tefldi af mikilli hugkvæmni eftir að skákin hafði farið í bið og e.t.v. hefur sú skák sannfært Karpov um að orka Kasparovs væri næg. 22. skákin réði svo úrslitum. Kasparov náði mun betri stöðu út úr byrjuninni cn Karpov varðist af hörku. Skákin fór í bið eftir 40 leiki og við fyrstu sýn virtist sent Karpov ætti alla möguleika á að ná jöfnu. En annað kom á daginn, Kasparov hugsaði sig um biðleikinn í 23 mínútur og fann stórkostlegt framhald og Karpov varð að lýsa sig sigraðan. Það hlýtur að hafa tekið á taugarn- ar að þurfa að bíða eftir því heila nótt hvaö kæmi upp úr umslaginu og illur grunur Karpovs var staðfestur cr vinningsleikurinn 41. Re5-d7t var þar kominn. Með lyktum þessa einvígis er bundinn endi á baráttu sem á sér ekki líka í skáksögunni. Á röskum tveimur árum hafa þeir kapparnir teflt 95 skákir, staðan er 48:47, Kasparov í vil. Engan gat grunað hvernig færi þegar Karpov hafði náð 5:0 forystu í fyrsta einvíginu. Karpov getur vcrið fullsæmdur af frammistöðu sinni í þessu einvígi en það er ckki nema einn heims- meistari og^.Garrí Kasparov, undra- bárnið fra Baku ber þann titil með glæsileik. En ólíkt öðrum snillingi Bobby Fisher, ciga skák- unnendur eftir að njóta verka lians sem heimsmeistara um mörg ókomin ár. 22. skákin Skákin fór í bið á föstudags- kvöldið. Framhaldið var óvænt og glæsilegt og það læðist jafnvcl að manni sá grunur að Karpov og hans menn hafi ekki komið auga á snilldaráætlun Kasparovs: (Vinningsleikurinn) 41. .. Hxd4 (Svartur á ckket't bctra.) 42. Rf8+ Kh6 (Auðvitað ckki 42. - Kg8 43. Hb8 og svartur er glataður.) 43. Hb4! (Þessi stórsnjalli leikurgerir út urn taflið. Svartur er varnarlaus hverju sem hann leikur.) 43. .. Hc4 (Kannski var meira viðnám í 43. - Hxb4 axb4 d4 cn hvítur vinnur eftir 45. b5 d.3 46. b6d2 47.Dd2 dl(D) 48. Dxdl Df4+ 49. Kgl Dc3+ 50. Khl o.s.frv.) 44. Hxc4 dxc4 45. Dd6! c3 (Eini leikurinn til varnar hótuninni 46. Dd2+) 46. Dd4! - Svartur fær ekki varnað hótuninni 47. De3+ o.s.frv. Karpov gafst því upp. Stórkostleg tafllok sem ntinna á skákþraut. Þarna komst Kasparov yfir á ný. 11 '/t: 10*/? og braut Karpov endan- lega niður. Það voru ekki mikil tilþrif í taflmennsku hvíts í skák- inni í gær og Kasparov fékk jafn- teflið næsta auöveldlega. 23. cinvígisskák: Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Garrí Kasparov Enskur leikur 1. Rf3 (í fyrsta og eina skiptið í einvíginu sem Karpov leikur ekki 1. d4. 1. .. Rf6 2. c4 b6 3. g3 c5 4. Bg2 Bb7 5. 0-0 g6 6. Rc3 Bg7 7. d4 cxd4 8. Dxd4 d6 9. Hdl Rbd7 10. b3 Hc8 11. Bb2 0-0 12. De3 a6 13. Hacl He8 14. Bal (Taflmennska Karpovs í þessari skák er ósköp máttlaus og honum tekst aldrei að koma sér niður á heilsteypta áætlun.) 14. .. Hc5!? (Óvæntur lcikur en fyllilega rétt- lætanlegur. Kasparov reynir að hrifsa til sín frumkvæðið.) 15. a4 Da8 16. Rel Hf5 17. Bxb7 Dxb7 18. f3 h5 19. Rg2 Hc5 (Hann telur réttast að snúa til baka eftir vel heppnað ferðalag. Svartur hefur nú ekkert að óttast.) 20. Bb2 Hcc8 21. Ba3 Rc5 22. Hbl Re6 23. Dd3 Rc7 (Með það fyrir augum að sprengja upp með b6 - b5.) 24. Rf4 b5 25. cxb5 axb5 26. Rxb5 Rxb5 27. Dxb5 Dxb5 28. axb5 Hb8 29. Bb2 Hb7. (Svartur mátti vara sig á 29. - Hxb5 30. Bxf6 Bxf6 31. Rd5 og hvítur nær frumkvæðinu vegna hótunar- innar 32. Re7.) 30. b6 Heb8 (Hugmyndin var sú sama og gat um í aths. hér að framan.) 31. b4 Rd7 32. Bxg7 - Karpov bauð jafntefli eftir að hafa leikið þessum leik. Staðreynd- in er sú að hann á undir högg að ' sækja eftir 32. - Kxg7 og má vanda sig til að ná jöfnu sem ætti þó að vera hægt með bestu taflmennsku. Og nú má Karpov bíða eftir nýju tækifæri til að endurheimta heims- meistaratitilinn. Hann mætir Andrei Sokolov í upphafi næsta árs í einvígi um réttinn til að skora á Kasparov. 24. skákin og sú síðasta verður tefld á morgun miðvikudag og hefur Kasparov hvítt. Staðan: Kasparov 12 - Karpov 11.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.