Tíminn - 07.10.1986, Síða 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 7. október 1986
ÚTLÖND
FRÉTTAYFIRLIT
PARIS — Jacques Chirac
forsætisráðherra Frakklands
sagði engar samningaviðræð-
ur fara fram við þá sem ábyrgir
væru fyrir sprengjutilræðunum
í París í síðasta mánuði. Yfir-
lýsing Chirac kom skömmu
eftir að skæruliðahópurinn Is-
lamic Jihad (Heilagt stríð) hafði
gefið úttilkynningu í Beirút þar
sem liðsmenn hans buðust til
að skipta á þremur frönskum
gíslum og sautján mönnum
sem haldið er í Kuwait eftir
sprengjutilræði sem þeir
frömdu þar árið 1983.
BEIRÚT — Israelskir or*
ustuflugvélar gerðu loftárás á
Norður-Libanon og beindu
skothríð sinni að svæði sem
Sýrlendingar ráða. Palestínsk-
ir aðilar lýstu yfir auknum
áhyggjum og ótta við ísraelska
skotárás.
GENF — Ahmed Zaki Yam-
ani olíumálaráðherra Saudi-'
Arabíu sagði við upphaf fundar
OPEC samtakanna að reynt
yrði að hækka olíuverð og ná
því í 17-19 dollara á tunnu.
Olíuverð nú er um 15 dollarar
á tunnu.
LUNDÚNIR — Mikill þrýst-
ingur var á gengi bæði Banda-
ríkjadals og Sterlingspunds á
gjaldeyrismörkuðum í gæreftir
verðlækkun þeirra í síðustu
viku.
BAHREIN — Stjómvöld í
Irak, sem nú eiga við mikla
fjárhagsörðugleika að stríða
vegna hins endalausa stríðs
við íran og lágs olíuverðs, hafa
farið þess á leit við erlendar
lanastofnanir að þær endur-
skipuleggif afborgarnir á 500
milljóna dollara láni.
LUNDÚNIR — Stjórnvöld í
Sýrlandi voru viðriðin áætlun
um að sprengja ísraelska far-
þegaflugvél í loft upp í apríl
síðastliðnum. Upp komst um
áætlunina áður en flugvélin,
sem hafði 375 manns innan-
borðs, fór í loftið frá Heathrow-
flugvelli. Það var ákærandinn í
máli Jórdanans, sem handtek-
inn var vegna tilræðisins, er
hélt þessu fram í gær.
PEKING — Ráðherrar frá
Kína og Sovétríkjunum hófu
viðræður er miða að því að
bæta samskipti þessara stór-
þjóða.
CHANDIGARH, Indland-
Hinir öfgasinnuðu síkhar sem
reyndu að ráða yfirmann lög-
reglunnar í Punjabhéraði af
dögum í síðustu viku reyndu
einnig að eyðileggja fjarskipta-
og öryggisbúnað lögreglunnar
og tókst það reyndar að nokkru
leyti.
Sovéski
kjarnorkukafbáturinn:
Sökkí
Atlants-
hafið
Atburðarásin í samskiptum stórveldanna hefur verið hröð síðustu vikurnar. Hér ræða þeir Reagan Bandaríkjaforseti
og Shevardnadze utanríkisráðherra Sovétríkjanna málin í Hvíta húsinu.
Leiðtogafundurinn:
Hröð atburðarás
eykur bjartsýni
Washington-Reuter
Atburðarásin í samskiptum
bandarískra og sovéskra stjórnvalda
að undanförnu hefur orðið til þess
að nokkur bjartsýni ríkir nú meðal
stjórnmálaskýrenda um útkomuna
af fundi þeirra Reagans Bandaríkja-
forseta og Gorbatsjovs Sovétleið-
toga hér í Reykjavík um næstu helgi.
Nýjustu atburðirnir, koma so-
véska andófsmannsins Yuri Orlovs
til Bandaríkjanna og hversu tiltölu-
lega fljótt Gorbatsjov tilkynnti
Reagan um sprenginguna í
kjarnorkukafbátnum sovéska, gætu
táknað árangur í afvopnunarmálum
að sögn stjórnmálasérfræðinga.
Sérfræðingarnir benda þó einnig á
að leiðtogarnir tveir gætu eins ein-
angrað atburði síðustu sex vikna er
þeir halda fund sinn í Reykjavík.
Atburðarásin áðurnefnda hófst
þann 22. ágúst síðastliðinn er so-
véskur starfsmaður Sameinuðu
þjóðanna var handtekinn í Banda-
ríkjunum og sakaður um njósnir.
Viku síðar var bandaríski blaðamað-
urinn Nicholas Daniloff handtekinn
í Moskvu, einnig sakaður um
njósnir.
Suður-Afríka:
Nýr f lokkur
- Sameinaði kristilegi sáttaflokkurinn
hyggst bjóða fram til þings
Á næstu vikum voru mennirnir
báðir ieystir úr haldi og Ieyft að
halda til síns heima og Orlov var
leyft að halda vestur yfir járntjaldið
eftir að hafa dvalið í tvö og hálft ár
í Síberíu án síns vilja.
Þrátt fyrir mikil samskipti stór-
veldanna tveggja að undanförnu er
þó ólíklegt að viðræður leiðtoganna
í Reykjavík fari mikið út fyrir af-
vopnunarmálaþrasið sem Henry
Kissinger fyrrum utanríkisráðherra
Bandaríkjanna kallaði reyndar
„talnaleik" í grein sem hann ritaði í
vikublaðið Newsweek í gær.
Vonir eru þó bundnar við sam-
komulag ellegar drög að samkomu-
lagi er tengist meðaldrægum kjarn-
orkueldflaugum risaveldanna í
Evrópu og almenningur vonar að
líkindum einnig að leiðtogarnir
semji um bann við tilraunum með
kjarnorkuvopn.
Reuter
Sovéski kjarnorkukafbáturinn
sem eldur kviknaði í síðastliðinn
föstudag og varð þremur mönn-
um að bana sökk í gærdag. Það
var bandaríska varnarmálaráðu-
neytið sem skýrði frá þessu fyrst
en síðar tilkynnti sovéska frétta-
stofan Tass frá atburðinum.
Tass sagði að þrátt fyrir tilraun-
ir áhafnarmeðlima bg sovéskra
skipa hefði ekki tekist að bjarga
kafbátnum.
Talsmaður bandaríska varn-
armálaráðherrans Caspars Wein-
bergers sagði að áhöfn kafbáts-
ins, af Yankee 1 tegund, hefði
verið bjargað í aðra bátá áður en
kafbáturinn sökk í Atlántshafið,
um þúsund kílómetra norð-aust-
ur af Bermúda.
Eldurinn í kafbátnum var að
mestu slökktur í fyrradag og var
hann tekinn í tog af sovéska
skipinu Krasnogvardeysk. Ekki
er vitað með vissu hvað olli
sprengingunni á föstudaginn er
leiddi til eldsins og síðar að kafbát-
urinn sökk.
Ónefndur hernaðarsérfræðing-
ur hjá NATO sagði í gær að
líklegast hefði vél einnar kjarn-
orkueldflaugarinnar bilað og við
það hefði gas og eldsneyti borist
inn í einn tankanna sem geymir
kjarnorkueldflaugar.
Kjarnorkukafbáturinn sovéski
gat ihutt 16 SSN-6 kjarnorkueld-
flaugar. Hann var einn nokkurra
kafbáta sem sigla reglulega undan
ströndum Bandaríkjanna.
Mikhail Gorbatsjov Sovétleið-
togi tilkynnti Reagan Bandaríkja-
forseta fjótlega um slys þetta og
hélt því fram að engin hætta væri
á að eldflaugunum yrði skotið af
slysni né að geislavirk efni brytust
út.
Bandaríkjastjórn virtist vera á
sama máli og Sovétleiðtoginn í
þessu efni ■ en Caspar Weinberg-
er varnarmálaráðherra dró þó í
efa að aðeins þrír af áhöfn kaf-
bátsins hefðu látist.
Jóhannesarborg-Reuter
Svartir prestar og bæjarráðsmenn
í Suður-Afríku tilkynntu um stofnun
nýs, hófsams stjórnmálaflokks í gær.
í honum er fólk af öllum kynþáttum.
Nýi flokkurinn nefnist Sameinaði
kristilegi sáttaflokkurinn (SKS)
Annar leiðtoga hans er Isaac Mok-
oena biskup og sagði hann í gær að
flokkurinn berðist gegn ofbeldi og
kynþáttamisrétti.
Mokoena er formaður kirkjusam-
taka í landinu sem fimm milljónir
svertingja eru aðilar að.
Hinn Ieiðtogi nýja flokksins, Tam-
asanga Linda, bæjarstjóri í svert-
ingjabyggð í Austur-Capehéraði,
neitaði orðrómi um að flokkurinn
væri styrktur af stjórnvöldum.
„Við tökum ekki við neinu frá
ríkisstjórninni. Það erólykt af þeirra
peningum,“ sagði Linda.
Linda og fleiri bæjarráðsmenn í
hverfum svartra hafa mátt þola ógn-
anir af hálfu baráttusinnaðra svert-
ingja sem telja þá starfa með stjórn-
völdum. Sumir bæjarráðsmenn hafa
verið brenndir til bana í óeirðunum
síðustu þrjátíu mánuðina sem kost-
að hafa rúmlega tvö þúsund manns
lífið.
Linda sagði að flokkur sinn myndi
bjóða fram til þings ef kosningar
færu fram á næsta ári og yrðu hvítir
og litaðir meðlimir hans í kjöri.
Svertingjar landsins, sem telja um
24 milljónir, hafa enga fulltrúa á
þingi.
Svíþjóð:
FLOTTAMANNA-
FJÖLDINN NÆR
ÓVIDRÁDANLEGUR
Stokkhólmur*Reutcr
Yfirmaður sænska innflytjenda-
eftirlitsins sagði i gær að fjöldi
flóttamanna sem veitt hcfur verið
hæli í Svíþjöð hefði nú náð há-
marki og iandið gæti ekki ráðið við
núverandi straurn þeirra inn í
Svíþjóð.
„Við erum á mörkum þcss að
ráða við ástandið," sagði Thord .
Palmlund framkvæmdastjóri inn-
flytjcndaráðsins í samtali við blað-
ið Dagens Nyheter, stærsta morg-
unblað Svía.
Samkvæmt síðustu tölum ráðsins
er nú um 1700 flóttamönnum veitt
hæli mánaðarlega, þrisvar sinnum
hærri tala en fyrr á þessu ári.
Flestir flóttamannannakomafráíran
Belgía:
Leki í kjarnorkuveri
Brussel-Reuter
Einu af sjö kjarnorkuverunt Belga
var lokað í gær eftir að smáleka varð
vart í aðalkælikerfi versins. Nokkuð
af geislvirku vatni lak út.
Talsmaöur fyrirtækisins sem rckur
kjarnorkuver þetta, sem er í um 30
kílómctra fjarlægð frá Liege, sagði
að hinn 900 megavatta kjarnakljúfur
versins yrði lokaður alla þessa viku.
Talsmaðurinn sagði að enginn
hefði verið að vinna við þann stað
sem vatnið lak út og íbúarnir í
grennd við verið væri engin. hætta
búin.
Kjarnorkuvcrið var sett í gang
árið 1983 og er eitt þriggja í hinni
svokölluðu Tihangesamstæðu.
Kjarnorka er notuð til að framleiða
tvo þriðju allrar raforku sem Belgar
nota.
ÚTLÖND