Tíminn - 07.10.1986, Side 12

Tíminn - 07.10.1986, Side 12
12 Tíminn Þriðjudagur 7. október 1986 Allt á hvolfi í Reykjavík Það er vægt til orða tckiö að mannlíf í Reykjavík sé komið á annan endann vegna fundar þcirra Reagans Bandaríkjaforseta og Gor- batsjovs Sovétleiðtoga um næstu helgi. Allt er orðið fullt af útlcnding- um í Reykjavík og út um land; menn með sjónvarpsmyndavélar og hljóð- nema eru orönir algengari sjón en blaðburðarbörn; og út um allt er vcrið aö grafa skurði fyrir flciri og meiri símakapla og ljósíciðara mcð- an annarsstaðar er keppst við að moka ofan í þær holur og skurði sem gatnagerðarmenn geröu í sumar. Nú ríkir hálfgcrt lofttóm í kring- um fundinn. Eftir að fyrstu fréttir af honum bárust gerðust atburðirnir hraðar en auga á festi. Nú hefur hinsvegar liægt á. Verið er að þétta í götin í undirbúningnum en það er í sjálfu sér ekki sérlega fréttnæmt. Það er samt mikið um að vcra í bænum þegar aö er gáð og hér á síðunni hal'a Ijósmyndarar Tímans fest á filmu l'ólk scm allt á það sameiginlcgt að vcra að vinna að leiðtogaíundinum. i Jt Reykjavíkurborg verður að „ganga úr rúmi“ fyrir þjóðarlciðtogunum, en borgin hefur notað Höfða fyrir móttökur síðustu tvo áratugi. Davíð Oddsson borgarstjóri virðist vera eitthvað hugsi yfir þessu. Þar sem hann Stendur á tröppum hússins. Tímamynd-Pétur Reykvikingar geta hugsað til stórveldaleiðtoganna með hlýhug þessa dagana því allt kapp hefur vcrið lagt á að Ijúka ýmsum gatnaframkvæmdum sem angrað hafa borgarbúa í sumar. fyrir fundinn um helgina. Hér er hriiin yfir IVIikluhrautinn að vcrða tilbúin. Tímamynd-Pélur Ákveðið hefur verið að fundir þcirra Reagans og Gorbatsjovs fari fram í Hölða. Tímumyud-SvL'rnr Loftnetsdiskar spretta upp á húsum í miðhænum í kringum sendiráð Bandaríkjanna og á þcim húsum sem fréttamenn fá til afnota. Tímamynd-Pélur. Fjöldi erlendra fréttamanna hefur dvalið hér á landið síðan ákveðið var að halda fund Reagans og Gorbatsjovs á fslandi. Þeir hafa auðvitað orðið að kynna löndum sínum þessa furðuþjóð sem býr lengst norður í Atlantshafi og lifir þar íallsnægtum en trúir samt á drauga. Hér sést fréttamaður NBC sjónvarpsstöðvarinnar flytja fréttapistil með Tjörnina í baksýn. Tímamynd-Sverrir Hér ráða þeir sem skipuleggja eiga fjölmiðlaþjónustu, m.a. Helgi Ágústsson sendiráðsfulltrúi í Washington sem kallaður var sérstaklega heim til þess verkefnis, og Jón Hákon Magnússon. Og að sjálfsögðu er fréttamaður í baksýn. Sendiráð Bandaríkjanna og Sovétríkjanna hafa tekið hátt á þriðja hundrað leigubíla á leigu fram að fundinum um helgina. Hér sést hluti bílaflotans sem Bandaríkjamenn hafa tryggt sér. Tímamynd-Pélur Tímamynd-Sverrir

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.