Tíminn - 08.10.1986, Side 10

Tíminn - 08.10.1986, Side 10
10 Tíminn BÓKMENNTIR Óaðgengileg ástamál Matthias Viðar Sæmundsson: Ást og útlegö, form og hugmyndafræði í islenskri sagnagerð 1850-1920, Studia Islandica 44, Rvk. 1986. Ritröðin Studia Islandica hóf göngu sína 1937 og hefur komið út reglulega síðan og flutt ritgerðir um íslensk fræði, í seinni tíð fyrst og fremst um íslenskar bókmenntir og sögu þeirra. Nú er nýkomið út 44. bindi þess og hefur það að geyma allýtarlega rannsókn eftir Matthías Viðar Sæmundsson á íslenskum skáldsögum frá árabilinu 1850-1920. Nánar til tekið er þar á ferðinni rannsókn á upphafi íslenskrar skáld- sagnagerðar, allt frá sögum Jóns Thoroddsen, Pilti og stúlku og Manni og konu. Þræðinum er síðan fylgt áfram fram um 1920 þegar segja má að skáldsagnagcrðin hafi verið komin til nokkurs þroska. Matthías takmarkar verkefnið þó verulega, og hann er hér alls ekki að skrifa þátt úr íslenskri bókmennta- sögu. Nánar til tekið cr þessu þannig varið að hann rannsakar sérstaklcga afstöðu höfunda þessara sagna, eins og hún birtist í verkum þeirra, til ástamála og hjónabands. Petta er raunar ckki nema eðlileg aðferð, því að svo vill til að flestar ef ckki allar þessar sögur snúast að meira cða minna leyti um flækjur í ástamálum eða aflciöingar slíks. Þcssar flækjur stafa yfirleitt af þjóðfélagsviðhorfum eða stéttaskiptingu, scm eru clsk- endununi andstæð, og af því leiðir þau cðlilegu vinnubrögð Itans að rannsaka ástaflækjurnar fyrst og fremst út frá því þjóðfélagi sem endurspeglast í sögunum. Með öðr- um oröum er hann að rannsaka það hvernig ríkjandi þjóðfélagsskoðan- ir, svo sem fordómar foreldra, eða þá aðstæður eins og mismunur á efnahag, verða til þess að elskend- urnir í sögunum fá ekki, eða eiga ekki að fá, að njótast. Það er nýstárlegt í þessu verki að höfundur bcitir allmikið skýringar- myndum og töfluyfirlitum til þess að gera framsetningu sína greinilegri. Þetta er í samræmi við nýlega stefnu í rannsóknum bókmennta setn hefur vcrið að ryðja sér til rúms erlendis og síðan hér heima nú undanfarið. Þessi aðferð gctur orðið til skilnings- áuka ef vel er á haldið, og að því er ég best man er þetta fyrsta rannsókn- in á bók hér á landi þar sem þessu cr bcitt, þó að það hafi raunar sést hér áður í nokkrum tímaritsgreinum. Af öðru. sem minnir á þetta og snertir íslenskar bókmenntir, man ég ekki í svipinn cftir nema bók á ensku scm kom út fyrir allmörgum árum og margir áhugamenn um fornbókmcnntir kannast við. Hún hcitir The Icclandic Faniily Saga og er eftir Bandaríkjaniann að nafni Theodore M. Andersson. Þar setti hann upp yfirlit í töfluformi um byggingu íslcndingasagna og reyndi síðan að fella söguþráðinn í einstök- um sögum að þessu yfirliti sínu. í bók sinni fjallar Matthías Viðar fyrst um nokkra höfunda frá róman- Matthías Viðar Sæmundsson. tíska tímabilinu, þau Jón Thor- oddsen, Jón Mýrdal. Pál Sigurðsso.n og Torfhildi Þ. Hóm. Síðan víkur máli hans að raunsæishöfundum scm hann fjallar um í tveimur köflum. Koma þar fyrst þeir Jón Ólafsson, Gestur Pálsson og Þorgils gjallandi, en síðan þeir Jónas Jónasson frá Hrafnagili, Jón Trausti, Einar H. Kvaran ogGuðmundur Friðjónsson. Loks fjallar hann um sögur eftir nokkra höfunda sem venjulega eru tengdir við nýrómantík, þá Jónas Guðlaugsson, Einar Benediktsson og Jóhann Gunnar Sigurðsson. Rannsókn hans er mjög ýtarleg og víða komið við. Líkt og við má búast fyrirfram kemur þarna í Ijós að skáldsagnagerðin er tiltölulega frumstæð framan af, sögurnar eru einfaldar að gerð og viðfangsefnin rista grunnt. Þctta á jafnt við um persónur og ástamálaflækjurnar sem sögurnar snúast um, en síðar breytist þetta smátt og smátt. Þá verða sögurnar flóknari að gerð, og ein helsta breytingin virðist vera sú að þá fari höfundar í vaxandi mæli að leita eftir svörum við spurningum sem snerta sjálfan tilganginn í mann- legu lífi og þýðingu þá sem samband karls og konu liefur og varðar þær gátur. En hér cr þó að öðru að gæta. Það hefur lengstaf verið talinn sjálfsagð- ur hlutur að vcrk um rannsóknir á íslenskuni fræðum ætti að skrifa á nokkurn veginn skammlausri ís- lensku. og helst nokkru betur, Hér hefur höfundur Itins vegar þann háttinn á að hann slettir hiklaust crlendum orðum, og gerir raunar mikið af því. Svo dæmi séu gripin af handahófi þá notar 'hann þarna orð cins og „erótískur", „útópískur", „ídeall", „demónskur", „kaótísk- ur”, „kosmískur", „karnivalskur", „mýþískur", og eru þá aðcins fá talin af mörgum. Þetta er í þeim mæli að það verður að teljast veru- lcgur galli á bókinni, enda sjálfsögð krafa að fræðimenn sýni móðurmál- inu þá virðingu að reyna að þýða slík erlend orð en taka þau ekki hrá upp Miðvikudagur 8. október 1986 í texta sína. Ef menn þurfa endilega að sýna lærdóm sinn og lestur þá er betra að gera það með öðrum hætti en þessum. Þetta mætti þó máski fyrirgefa ef ekki kæmi fleira til. Eitt það fyrsta, sem verðandi fræðimenn þurfa að temja sér, er að skrifa skipulega um efni sín og temja sér rökrétta fram- setningu. Á það skortir því miður mikið í þessari bók. Höfundurinn veður beinlínis yfir efni sitt og lætur allt flakka sem honum dettur í hug, skylt og óskylt. Mcðal annars er töluvert stór hluti af efni bókarinnar sóttur í sálfræðilegar kennisetning- ar. sem höfundur virðist hafa per- sónulegan áhuga á, en sýnast þó eiga vægast sagt mjög takmarkað erindi inn í rannsókn á bóknicnntaverkum eins og þá sem hér er á ferðinni. Af þessu leiðir líka að endurtekn- ingar verða margar í bókinni og öll framsetningin er með þeim hætti að það tefur verulega fyrir þeini sem vilja kynna scr efni hennar og niður- stöður. Þetta er mjög slæniur galli á annars áhugaverðu verki, og til dæmis held ég að höfundur hefði getað haft drjúgt gagn af því að lesa vandlega bók Anderssons, sem ég nefndi, eða aðra álíka, og draga af henni lærdóma. Síðan hefði hann átt að ganga á verk sitt, stytta það verulega og endurskrifa, sem hefði gefið mun markvissara, aðgengi- legra og á allan hátt gagnlegra verk frá hendi hans. Burtséð frá þessu er frágangur bókarinnar naumast aðfinnsluverð- ur, nema hvað bókfræðileg skrá um útgáfur þeirra verka, sem þarna er fjallað um, hefði gjarnan mátt fylgja. Auk þess skal á það minnst að kápur ritanna í Studia Islandica hafa verið nánast óbreyttar í bráðuni hálfa öld. Er ekki kominn tími til að fara að gefa þeim andlitslyftingu? -esig ^ Verkstjóri - járniðnaðarmenn Viljum ráða verkstjóra og járniðnaðarmenn til starfa við vélsmiðju Kaupfélags Rangæinga Hvols- velli. Upplýsingar gefur Ólafur Ólafsson kaupfélags- stjóri sími 99-8121. Kaupfélag Rangæinga Hvolsvelli S Deildarstjórastarf Viljum ráða vanan deildarstjóratil starfa í sölubúð, sem selur meðal annars verkfæri, byggingavörur og heimilistæki. Upplýsingar gefur Ólafur Ólafsson kaupfélags- stjóri sími 99-8121. Kaupfélag Rangæinga Hvolsvelli Læknastofa Hef opnað í Læknastöðinni hf. Álfheimum 74. Tímapantanir í síma 686311 alla virka daga frá kl. 9.00 til 17.00. Uggi Agnarsson Sérgrein lyflækningar og hjartasjúkdómar Bústofn til sölu Ungar ærtil sölu á Vatnsnesi í V-Húnavatnssýslu. Upplýsingar í síma 95-1548. Alþjóðleg ráðstefna um geðhjúkrun Dagana 23.-25. september sl. var haldin í London þriðja alþjóða ráð- stefnan um geðhjúkrun. Þessi ráð- stefna er haldin á þriggja ára fresti. Fjöldi þátttakenda var yfir 600 og voru þeir frá öllum heimsálfum. Hér bar svo við að meiri hluti þátttak- enda voru karlmenn. Yfirskrift ráð- stefnunnar var að þessusinni „Hátíð þekkingarinnar". Fyrirkomulag var á þann veg að fyrir hádegi voru fyrirlestrar um ýmsa þætti í geðhjúkrun á fjölmörg- um sviðum. Eftir matarhlé voru vinnuhópar og eftir kaffi voru síðan sameiginlegir fundir þar sem hægt var að velja um mismunandi fræðslu- efni. Hildegard Peplau, fyrrverandi prófessor í geðhjúkrun við Rutgers- háskóla í Bandaríkjunum opnaði ráðstefnuna og ræddi um: „Hæfni innan geðhjúkrunar í nútíð og framtíð". I öðrum fyrirlestrum var m.a. fjallað um fyrirbyggjandi að- ferðir í vinnu með börn í hættuhóp- um, uni færni í vinnu með félagslega einangraða einstaklinga, um fjöl- skyldumeðferð og áhrif umhverfis á aldraða með geðræn vandamál. Skýrt var frá hópvinnu með drykkjusjúklinga og árangur þeirrar vinnu sýndur á línuriti. Ljóst er að gífurleg aukning er á starfsemi geðhjúkrunarfræðinga úti í samfélaginu víðast um heim. Þann- ig vinna getur leitt til þess að einstak- lingurinn þurfi ekki á sjúkrahúsdvöl að halda eða stytt þá dvöl til muna. Einnig er liður í eftirmeðferð að geðhjúkrunarfræðingur vitjar sjúkl-1 ings eftir dvöl á geðdeild og styður hann þannig til að takast á við | erfiðleikana í því umhverfi sem hann þekkir. Þessar aðferðir valda minni rösk- un á lífi einstaklingsins og eru fjár- fslensku þátttakcndurnir á ráðstefnunni ■ London. Jóhanna Stefánsdóttir, Þórunn Pálsdóttir, Elísabet Ingólfsdóttir, Nanna Jónasdóttir og Björk Guðjónsdóttir. Á myndina vantar Gyðu Thorsteinsson. hagslega hagkvæmar fyrir þjóðfélag- F.h. Geðhjúkrunardeildar ið. Hér á íslandi er því brýn þörf á Hjúkrunarfélags íslands, starfsemi sem þessari. JóhannaStefánsdóttir, formaður.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.