Tíminn - 15.10.1986, Side 1

Tíminn - 15.10.1986, Side 1
f W ^ ^ STOFNAÐUR1917 I íminn SPJALDHAGI allar upplýsingar á einum staö SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. w' KAUPVERÐVIÐISíMjódd inni er, samkvæmt áreiöanlegum heimildum Tímans, 250 milljónir króna. Tilefni þess aö Tíminn birtir kaupverðíð er aö eftir innblaösgrein í Tímanum í gær barst blaðinu upp- hringing þar sem heimildarmaðurTím- ans tjáði blaðinu kaupverðið. Það er sem sagt 250 milljónir króna. MAÐUR UM um þrítugt hefur játað á sig nauðgun á liðlega fimmtugri konu í gamla kirkjugarðinum í Reykja- vík nú fyrir nokkru. Hafði maðurinn verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Hann mun sitja áfram í gæsluvarðhaldi vegna kröfu um að geðrannsókn fari fram. UNDIRSKRIFTA- HERFERÐ hefst í dag um allt land. Utanríkismáladeild Flokks mannsins skipuleggur herferðina, en hreyfingar á borð við Græna framtíð og Samhygð og fleiri taka þátt í þessu átaki. Markmioið með undirskrifta- söfnuninni er að skora á ríkisstjórn ís- lands að friðlýsa ísland. PRESTSKOSNING í Hruna. hefur farið fram, en atkvæði verða þó ekki talin fyrr en á morgun. Umsækj- endur voru fjórir; þeir Halldór Reynis- son forsetaritari, séra Haraldur M. Kristjánsson, Jón fsleifsson cand. theol, og séra Önundur Björnsson. Á kjörskrá eru 383 og var kjörsókn um 80%. MATTHÍAS Bjarnason sam- gönguráðherra mun skipa efsta sæti lista sjálfstæðismanna á Vestfjörðum samkvæmt prófkjöri sem þar fór fram um helgina. Þorvaldur Garðar Kristjánsson var í öðru sæti og Einar K. Guðfinnsson í því þriðja. Þessirþrír fengu langflest atkvæði og var kosning þeirra bindandi. KVENNALISTINN mun á laugardaginn halda ráðstefnu um at- vinnumál í Hafnarfirði. Markmið ráð- stefnunnar er að vekja athygli á hlut- deild kvenna í hinum ýmsu atvinnu- greinum og efla frumkvæði þeirra og virkni með mótun stefnu í atvinnumál- um þjóðarinnar. Ráðstefnan verður haldin í húsi Slysavarnafélagsins, Hjallahrauni 9, Hafnarfirði. Ráðstefnan hefst klukkan 10 um morguninn og er gert ráð fyrir að henni Ijúki klukkan 16. MINNINGARFYRIR- LESTUR um Sigurð S. Magnús- son prófessor verður haldinn í kennslusal Hjúkrunarskóla íslands á Landspítalanum klukkan 13:15 á föstudag. Fyrirlesturinn heldur Sir Malcolm Macnaughton frá Glasgow Háskóla. Sigurður lést fyrir réttu ári síðan, þann 21. okt. 1985. ÍRANSKUR maður sem hefur innbrot að atvinnu varð fjórum fingrum fátækari í gær. Dagblaðið Kayhan skýrði frá því að fjórir fingur hægri handar atvinnuþjófs hefðu verið skorn- ir af samkvæmt múhameðstrú og tór athöfn þessi fram i almenningsgarði í Teheran. SOVESKUR sálfræöingur hef- ur verið dæmdur í níu ára fangelsi í Mið-Asíuríkinu Kirgizia. Hann á að hafa skipulagt ýmiskonar „kúrsa" t.d. í yoga og indverskri heimspeki, tekið fé fyrir og sængað hjá mörgum kvenkyns þátttakendum. Dagblað í höfuðborg ríkisins, Frunze, sagði hugmyndaflug mannsins ekki hafa átt sér nein takmörk. KRUMMI „Þá er það loksins komið á hreint.“ Þessi ákvörðun hefur valdið mér meiri áhyggjum en jafnvel sjálfur leiðtogafundurinn, sagði Steingrímur Hermannsson er hann skýrði Tímanum frá því að hann ætlaði fram í Reykjaneskjördæmi. (Trmamynd Pjetur) Steingrímur fram í Reykjaneskjördæmi: LÍFSSPURSMÁL FYRIR FLOKKINN - aö styrkja sig í þéttbýlinu Steingrímur Ilermannsson til- kynnti í gærkvöldi að hann mundi gefa kost á sér til framboðs í Reykjaneskjördæmi í næstu kosn- ingum. Hann skýrði frá þcssari ákvörðun á kjördæmisþingi fram- sóknarmanna í kjördæminu, sem haldið var í Hafnariirði. Allt frá því að Steingrímur settist á þing hefur hann verið þingmaður Vest- fjarðakjördæmis. Nokkuð er uni Iiðið síðan fram- sóknarmenn í Reykjaneskjördæmi { hófu að skora á flokksformanninn að bjóða sig þar fram, enda er hann búsettur í kjördæminu. Steingrímur hefur veit þessu máli mikið fyrir sér og nú er ákvörðunin tekin. Tíminn hafði tal af formanni Framsóknarflokksins og spurði { hvort þetta hafi verið erfið ákvörð- [ un og hver væri ástæða þess að hann kysi að skipta um kjördæmi. - Þessi ákvörðun hefur kannski valdið mér meiri áhyggjum en jafnvel sjálfur leiðtogafundurinn, sagði Steingrímur. Ég er reyndar búinn að segja aftur og aftur að ég kysi helst að halda áfram þing- mennsku fyrir Vestfirðinga. Fyrir þá byrjaði ég mína þingsetu og fyrir vestan á ég mikið af vinum og kunningjum og góðum stuðnings- mönnum. Af þeim sökum hef ég til þessa svarað þeim fjölmörgu áskorun- um, sem ég hef fengið um að fara fram á Reykjanesi eða í Reykjavík með neii. En það eru æði margir sem ekki taka það svar gott og gilt og satt að segja hefur þrýstingur um þetta efni aukist mjög, ekki aðeins úr þessum kjördæmum. sér- staklega nú úr Reykjaneskjör- dæmi, heldur Iíka víðar af landinu. Hclstu rökin eru þau að það sé flokknum lífsspursmál, að styrkja sig vel í þéttbýlinu og margir vísað til þeirra orða minna, að í næstu kosningum kunni á það að reyna hvort að flokkurinn verður aftur öflugur flokkur um Iand allt eða heldur lítill dreifbýlisflokkur. Framsókna rltokkurinn og boð- skapur hans á ekkert síður erindi í þéttbýli en dreifbýli. Nánar á bls. 2. OÓ Kjördæmisþing Framsóknar í Reykjanesi: Fjórir gáfu kost á sér - Steingrímur hylltur meö lófataki Á fjölmennu kjördæmisþingi Framsóknarflokks í Reykjanes- kjördæmi, sem haldið var í Hafn- arfirði í gærkvöld. tilkynntu fjórir aðilar um ákvörðun sína að fara í framboð fyrir flokkinn í kom- andi alþingiskosningum. Þeir eru auk Steingríms Hermanns- sonar, Jóhann Einvarðsson að- stoðarráðherra, Níels Árni Lund ritstjóri Tímans og Inga Þyrí Kjartansdóttir snyrtifræðingur. Þingið sem var mjög fjölmennt hyllti Steingrím Hermannsson forsætisráðherra ákaflega eftir að hann tilkynnti um ákvörðun sína að bjóða sig fram f Reykjanes- kjördæmi. Fundargestir og full- trúar risu úr sætum og hylltu Steingrím með dynjandi lófataki. Einn fundargesta sem Tíminn ræddi við í gærkvöldi sagði að mikill baráttuandi hefði ríkt á fundinum og tilkynning ráðherr- ans og annarra hefði aukið við þann baráttuanda. Þingið sem haldið var í gær- kvöldi er aðeins fyrri hluti. Seinni hluti þingsins vefður haldinn laugardaginn 22. nóvember í veit- ingahúsinu Glaumbergi í Kefla- vík. Níels Ami Lund, rítstjóri. Jóhann Einvarðsson, aðstoðarráðherra. Inga Þyrí Kjartansdóttir, snyrtifiræðingur.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.