Tíminn - 15.10.1986, Síða 5

Tíminn - 15.10.1986, Síða 5
Miðvikudagur 15. október 1986 Tíminn 5 UTLÖND Belgía: Stjórnarfall vegna tungumáladeilna ? Krussel-Keuter Wilfred Martens forsætisráð- herra Bclgíu sagði á þingi í gær að hann hefði átt fund mcð Baudouin kóngi og lagt þar fram afsagnar- beiðni hinnar fjögurra flokka sam- steypustjórnar sinnar. Kóngurinn hefur þó ekki enn ákveðið að verða við henni. „Hans hátign hefur ekki tekið ákvörðun," sagði Martens í ræðu sinni á þingi. Tilkynning hins fimmtíu ára gamla forsætisráðherra fylgir í kjölfar tungumáladeilu sem sundr- að hefur stjórninni er samanstend- ur af hollensku- og frönskumæl- andi aðilum. Talsmaður ríkisstjórnarinnar sagði í gær að líklegt væri að kóngurinn biði með í nokkra daga að taka ákvörðun svo samningavið- ræður um deiluna gætu átt sér stað. Rifrildið innan stjórnarinnar, sem samanstendur af mið- og hægriflokkum, má rekja til upp- sagnar frönskumælandi bæjar- stjóra í sveitahéraði einu vegna vanþekkingar á hollensku máli. Þessi afsögn hefur vakið upp heitar tungumáladeilur milli hinna frönskumælandi vallóna í suðri og hollenskumælandi llæmingja í norðri. kjölfar Reykjavíkurfundar: Shultz vill hitta Shevardnadze í Vín Washington-Reuter George Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði í gær að stjórn sín vildi byggja ofan á viðræður þeirra Mikhail Gorbatsjovs Sovét- Gyðingurinn Wiesel hlaut Friðarverðlaun Nóbels Osló-Reuter Elie Wiesel, gyðingur sem lifði af vist í útrýmingarbúðum nasista og notaði fyrstur orðið „Holocaust" (útrýming) til að lýsa drápunum á gyðingum í síðari heimsstyrjöldinni, fékk í gær Friðarverðlaun Nóbeis fyrir árið 1986. Wiesel fæddist í Rúmeníu fyrir 58 árum en hefur haft bandarískan ríkisborgararétt síðan árið 1963. Hann sagðist í samtali við Reuter fréttastofuna vera mjög hrærður vegna útnefningar hinnar fimm manna nóbelsverðlaunanefndar: „Þetta er mjög sérstakur dagur fyrir mig. Ég er á valdi minninganna," sagði Wiesel á heimili sínu í Nýju Jórvík. í tilkynningu nefndarinnar var Wiesel sagður vera sendiboði til mannkynsins og boða frið, mannlega reisn og friðþægingu. Wiesel hefur barist þreytulaust gegn mannréttindabrotum og hefur skrifað meira en þrjátíu bækur er margar fjalla um útrýmingarherferð- ina á hendur gyðingum á nasista- tímabilinu. Hann var sjálfur tekinn höndum í heimahéraði sínu Transylvaníu ásamt fjölskyldu sinni, þá aðeins fimmtán ára að aldri, og sendur til útrýmingarbúða nasista. Egil Aarvík, formaður norsku nóbelsverðlaunanefndarinnar, minntist einnig á frábært starf írsku rokkstjörnunnar Bob Geldofs er hann tilkynnti um útnefninguna en Geldof þótti af mörgum líklegur til að hreppa verðlaunin fyrir söfnunar- starfsitt íþágu sveltandi Afríkubúa. leiðtoga og Ronald Reagans Banda- ríkjaforseta í Reykjavík um síðustu helgi. Hann bætti við að hann hefði í huga að ræða við Eduard Shev- ardnadze utanríkisráðherra Sovét- ríkjanna í Vínarborg í næsta mán- uði. „Við verðum báðir á Vínarfundin- um og ég er viss um að við komunt á fundi,“ sagði Shultz í sjónvarpsvið- tali og átti þar við fund þar sem Helsinkimannréttindasáttmálinn verður tekinn til endurskoðunar. Báðir aðilar hafa gefið í skyn að tillögur þeirra í afvopnunarmálum liggi á borðinu og megi taka til umræðu. Shultz vill hitta Shevardnadze í Vín Tanzania: Asnalegur sparnaður Dar Es Salaam-Reuter Ali Hassan Mwini forseti Tanz- aníu hvatti í vikunni alla bændur til að notast við asna og uxakerrur til að flytja uppskeru sína á markaði. Forsetinn sagði beiðnina stafa af því að þjóðin hefði ekki efni á að sóa erlendum gjaldeyri í flutninga- bíla og bensín. Mwini sagði þetta í ræðu sem hann hélt í Mekctahéraði í suður- hluta landsins. Hann bætti því við að ríkisstjórnin hygðist setja upp asnaræktunarstöðvar til að hvetja til meiri notkunar á dýrum sem flutingsafli. BILALEIGA Útibú í kringum landið REYKJAVIK:. 91-31815/686915 AKUREYRI:... 96-21715/23515 BORGARNES:......... 93-7618 BLÖNDUÓS:.... 95-4350/4568 SAUÐÁRKRÓKUR: . 95-5913/5969 SIGLUFJÖRÐUR:.... 96-71489 HÚSAVÍK:... 96-41940/41594 EGILSSTAÐIR: ..... 97-1550 VOPNAFJÖRÐUR: . 97-3145/3121 FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166 HÖFN HORNAFIRÐI: . 97-8303 interRerrt Fréttaskýring: Jarðskjálftarnir auka á vanda Duartestjórnar Um 40% af ríkisútgjöldum fara í stríöið — Bandaríkinsendaumeinamilljóndollara á degi hverjum til stjórnarinnar Járnhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk. Pósthólf 10180 San Sulvador - Reuter Jarðskjálftarnir miklu í El Salvador munu einungis gera stjórn Jose Napoleon Duarte, sem bandarísk stjórnvöld styðja, erfiðara fyrir að binda enda á borgarastyrjöldina í landinu og bæta fársjúkt efnahagslíf. Þetta var haft eftir stjórnarerindrek- um og stjórnmálaskýrendum í gær. Embættismenn stjórnarinnar von- ast eftir þjóðareiningu í kjölfar jarð- skjálftans kröftuga síðastliðinn. föstudag ( og fleiri sem eftir hafa fylgt) sem varð að minnsta kosti 976 manneskjum að bana og hugsanlega hátt í tvö þúsund. Líta þeir í þessu sambandi til samstöðunnar í Mexíkó eftir jarðskjálftana þar á síðasta ári. Stjórnmálaskýrendur efast þó mjög um að af þjóðareiningu verði. „Bardagarnir halda áfram og ég efast mjög um að vopnahlé verði gert. Aðilar talast ekki við," sagði einn vestrænn stjórnarcrindreki í gær. Vinstrisinnaðir skæruliðar Fara- bundo Marti þjóðfrelsishersins lýstu yfir vopnahléi daginn eftir jarð- skjálftann en stjórnin neitaði öllu slíku og hefur síðan sakað skærulið- ana um nokkrar árásaraðgerðir. Stjórnvöld eru sögð óttast mjög að margt af því fólki sem missti heimili sín í jarðskjálftanum í höf- uðborginni San Salvador, allt upp í 200 þúsund manns, haldi út í sveitir til liðs við skæruliða. Flestir þeirra heimlislausu eru fátækt fólk. Að minnsta kosti sextíu þúsund manns, margir fórnarlömb hægri- sinnaðra dauðasveita, hafa misst líf- ið í hinu sjö ára gamla borgarastríði í landinu. Mikil óánægja er í EI Salvador, bæði meðal verkafólks og hægrisinn- aðra kauphéðna, vegna hins slæma efnahagsástands. Duarte þarf nú að fást við eyðileggingu upp á tvo milljarða dollara ofan á 37% at- vinnuleysi og 27% skerðingu á tekj- um síðustu fimm árin. Skæruliðar hafa gert margar árásir á efnahagsleg skotmörk og um 40% af ríkisútgjöldunum fara til hersins. Af ummælum Edwin Corr sendi- herra Bandaríkjanna í landinu má ráða að Reaganstjórnin muni í kjölf- ar jarðskjálftans auka fjárhagsstyrk sinn, sem nú er um ein milljón dollara á hverjum degi (eða rúmlega 14 milljarðar íslenskra króna á ári hverju) til stjórnar Duarte til að hún geti haldið uppi baráttunni gegn vinstrisinnuðum skæruliðum. Tannlæknastofa á Akureyri Hef opnaö tannlækningastofu í Kaupangi viö Mýrarveg. Viötalstímar eftir samkomulagi í síma 27070. Haukur Valtýsson tannlæknir. s CONTINENTAL Betri barðar undir bílinn allt árið hjá Hjólbarðaverslun Vesturbæjar, Ægissíðu 104. Sími S 23470 —-------------i'J

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.