Tíminn - 23.10.1986, Síða 2
Fimmtudagur 23. október 1986
Lántökugjaldi og
vöxtum hafnað
- lýsir sig reiöubúiö aö standa aö breytinga-
tillögum með námsmönnum
Framkvæmdastjórn Sambands
ungra framsóknarmanna hefur sam-
þykkt ályktun varðandi drög að
lögum um LÍN.
Framkvæmdastjórn SUF álítur
að í drögum þessum sé nú hrundið á
bak aftur þeirri aðför sem sýndi sig
í skýrslu menntamálaráðherra um
Lánasjóð íslenskra námsmanna í
vor og SUF fagnar því.
Hins vegar er SUF á móti lántöku-
gjaldi og vöxtum af hluta lánanna
eins og lagt er til í drögunum og vísar
til fyrri ályktana sinna í því efni.
Einnig (trekar SUF að nauðsynlegt
sé að bera allar breytingar á lögum
LÍN undirnámsmannahreyfingarnar
og að tekið verði tillit til álits þeirra.
SUF treystir menntamálaráðherra
til þess að gera það.
Ennfremur lýsir stjórn SUF sig
reiðubúna til þess að styðja rök-
studdar breytingatillögur náms-
mannahreyfinganna við tillögur
stjórnskipuðu nefndarinnar sem
unnið hefur drögin að lögum um
LÍN, ef þær eru fólgnar í því að LÍN
tryggi jafna aðstöðu til náms, að
tekið sé tillit til aðstæðna náms-
manna meðan á námi stendur, að
við endurgreiðslur lánþega sé tekið
tillit til tekna hans að námi loknu og
að endurheimtuhlutfall verði sem
næst 100%. Ef þessum markmiðum
verði hægt að ná, þá gegni LÍN því
hlutverki sem SUF telur að honum
sé ætlað.
ABS
Samkeppnissvæðið séð frá Iðnó. Ráðhúsið á að standa þar sem nú eru bflastæði og Tjarnargata 11 þar sem
borgarskrifstofumar hafa aðsetur.
Samkeppni um:
Ráðhús Reykjavíkur
að Vonarstræti 11
- á aö vera 3375 fermetrar á stærö
VEGNA KAUPA 0G LEIGU
Breytingar hjá Sambandinu:
Kjartan P.
Kjartansson
tekur
við Fjárhagsdeild
- og fleira framundan
2 Tíminn
Samband ungra framsóknarmanna:
Samkeppnin er háð samkvæmt
samkeppnisreglum Arkitektafélags
íslands og útboðslýsingu borgar-
stjórnar. Dómnefnd skipa af hálfu
útbjóðanda, þau Davíð Oddsson
borgarstjóri sem jafnframt er for-
maðurdómnefndar, Sigrún Magnús-
dóttir borgarfulltrúi og Þorvaldur S.
Þorvaldsson forstöðumaður borgar-
skipulags Reykjavíkur. Af hálfu
Arkitektafélags íslands þeir Guðni
Pálsson og Þorsteinn Gunnarsson
arkitektar. Skiladagur er 4. mars,
1987 og verðlaunafé er samtals kr.
2.100.000,- en þrenn verðlaun verða-
veitt auk þess sem dómnefnd er
heimilt að kaupa tillögur fyrir allt að
kr. 600.000,- ‘ -ABS
Barnaverndarfélag Reykjavíkur aflagt:
Kvennaathvarfi
færðir peningar
- samkvæmt ósk stofnanda félagsins
Á fundi í stjórn Barnaverndarfé-
lags Reykjavíkur, þann 18. septemb-
er s.l. var ákveðið að félagið hætti
störfum. Jafnframt var samþykkt að
afhenda dr. Matthíasi Jónassyni,
stofnanda félagsins og formanni þess
í 25 ár, þá peninga sem eru í sjóði -
kr. 55.000-ogmegihann verjaþeim
til þeirra mannúðarmála sem hann
óskar. Matthías bað um að fé þetta
yrði afhent Samtökum um kvennaat-
hvarf og að fénu yrði sérstaklega
varið í þágu barna sem dvelja í
athvarfinu.
Fyrir hönd Samtaka um kvennaat-
hvarf tóku við gjöfinni þær Odd-
björg Jónsdóttir barnastarfsmaður í
athvarfinu og Hólmfríður Aradóttir
fyrrverandi barnastarfsmaður í at-
hvarfinu. Peningunum verður varið
til að bæta aðstöðu eldri barnanna í
athvarfinu.
Um leið og Samtök um kvennaat-
hvarf þakka þessa gjöf vilja þau nota
tækifærið og þakka dr. Matthíasi
fyrir áður sýndan velvilja og hlýhug,
en fljótlega eftir að athvarfið var
opnað færði hann samtökunum að
gjöf kr. 50.000,00, sem varið var til
kaupa á útileiktækjum fyrir börn í
athvarfinu.
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
efnir nú til funda með bændum um
allt land til að kynna tilboð Fram-
leiðnisjóðs um kaup eða leigu á
fullvirðisrétti þeirra sem stendur til
15. nóvember. Tilboð Framleiðni-
sjóðs er hluti af búvörusamningnum
milli bænda og landbúnaðarráðu-
neytisins um verðábyrgð á sauðfjár-
afurðum og mjólkurafurðum fyrir
verðlagsárið 1987/1988.
Aðalefni fundanna er að kynna
sauðfjárbændum þá rhöguleika sem
fyrir stuttu hafa verið opnaðir til áð
selja eða leigja fullvirðisréttinn, en á
þessu hausti er möguleiki að fækka
sauðfé um 45-50 þúsund umfram
áður áætlaða fækkun vegna þess að
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
hefur nú ábyrgst hluta fullvirðisrétt-
arins fyrir verðlagsárið 1987/1988
gegn því að aðstoða við riðuniður-
skurð. Sláturleyfishafar munu opna
sláturhús sín á ný til þess að mæta
þessu aukna álagi ef með þarf.
Á fundina með bændum mæta
fulltrúar frá Framleiðnisjóði, Stétt-
arsambandi bænda, landbúnaðar-
ráðuneytinu og fjármálaráðuneyt-
inu. Fjármálaráðuneytið mun á
fundum þessum gera grein fyrir
þeim mjólkur- og kindakjötsbirgð-
um sem ríkið telur sig hafa eignast
og muni safna á næstu árum. Verð-
mæti kindakjötsbirgða 31. ágúst sl.
var 480 milljónir þar af er hlutur
bænda 280 milljónir, en hlutur ríkis-
ins 200 milljónir. Áætlað er að
hlutdeild ríkisins í kindakjötsbirgð-
um landsmanna muni aukast um
1600 tonn næstu 3 ár. Á fundunum í
Borgarfirði og Húnavatnssýslum á
mánudaginn upplýsti Sigurður Þórð-
arson skrifstofustjóri fjármálaráðu-
neytisins að um 500 milljónir króna
myndi kosta að flytja hlut ríkisins til
útlanda og myndi sá kostnaður sam-
svara uppkaupum á framleiðslurétti
á 470 meðalbújörðum.
Nú þegar hafa 200 bændur haft Dr. Matthías afhendir gjöfina á skrifstofu Samtaka um kvennaathvarf. Á
samband við Framleiðnisjóð vegna myndinni eru f.v. Lára Sigurbjörnsdóttir gjaldkeri Bamaverndarfél. Reykja-
tilboðsins og því er ljóst að umfangs- víkur, Pálína Jónsdóttir ritari sama félags, dr. Matthías Jónasson, Hóimfríður
miklar búháttabreytingar gætu orðið Aradóttir, fyrrv. barnastarfsmaður í Kvennaathvarfi og Oddbjörg Jónsdóttir,
á næstunni. ABS barnastarfsmaður í Kvennaathvarfi.
Töluverðar breytingar eru nú
framundan á skipan manna í
nokkrar af heistu trúnaðarstöðum
hjá Sambandinu. Meðal annars
mun Sigurður Á. Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri skrifstofu þess í
London vera á leið heim, og full-
ráðið mun vera að Eggert Á.
Sverrisson framkvæmdastjóri Fjár-
hagsdeildar taki við starfi hans þar
ytra. Við Fjárhagsdeildinni mun
hins vegar taka Kjartan P. Kjar-
tansson.
Ráðamenn í Sambandinu vörð-
ust allra frétta um þetta mál í gær,
en samkvæmt heimildum sem blað-
ið telur áreiðanlegar mun vera frá
því gengið að þessi mannaskipti
komi til framkvæmda nálægt næstu
áramótum. Einnig mun ætlunin að
jafnframt þessu verði nokkur breyt-
ing á deildaskiptingu innan Sam-
bandsins, þannig að m.a. muni
kaupfélagsdeild, starfsmannahald
og auglýsingadeild framvegis heyra
undir Fjárhagsdeildina.
Kjartan P. Kjartansson á langan
feril að baki í starfi hjá Samband-
inu. Hann útskrifaðist úr Sam-
vinnuskólanum 1953, starfaði
næsta ár hjá Skipadeild en var
Borgarstjórn Reykjavíkur efnir
nú til samkeppni um hönnun ráðhúss
Reykjavíkur þar sem aðsetur yfir-
stjórnar Reykjavíkurborgar yrði.
Ráðhúsinu er ætlaður staður á lóð
Vonarstrætis 11 og verði samtals
3375 fermetrar að nettóstærð. í dag
stendur járnklætt timburhús á stein-
sökkli í eigu borgarinnar á lóðinni
og er ætlunin að finna því húsi annan
stað.
Gert er ráð fyrir að húsið hýsi
fundarsali borgarstjórnar og borgar-
ráðs, skrifstofur borgarstjóra, borg-
arritara, borgarlögmanns, borgar-
endurskoðanda, borgarbókara,
starfsmannastjóra lögfræði- og
stjórnsýsludeildar og fjármála- og
hagskýrsludeildar.
í útboðslýsingu segir m.a. að sam-
keppninni sé ætlað að leiða fram
bestu lausn hvað varðar notagildi,
form og fegurð hússins og auðga
með byggingunni umhverfi Tjarnar-
innar og miðbæjarbyggðina í Kvos-
inni. Húsið skal vera vandað að gerð
og með stílhreinu yfirbragði. Höf-
undum er einnig ætlað að gera grein
fyrir frágangi Tjarnarbakkanna og
útliti Vonarstrætis og Tjarnargötu.
Gert er ráð fyrir bílageymslu
starfsmanna í kjallara og jafnvel að
í kjallara eða í tengslum við hann
verði stærri bílageymslur til nota
fyrir um 250 bíla í suðurhluta Kvos-
arinnar. Umferð verður í báðar áttir
á Tjarnargötu og í Vonarstræti verði
3 akgreinar og aðkoma um vinstri -
beygjurein í stóra bílakjallarann.
FUNDIR MED B/ENDUM
Kjartan P. Kjartansson.
síðan um rúmlega eins árs skeið í
Bretlandi við nám í breska sam-
vinnuskólanum í Loughborough.
Síðan fór hann aftur til starfa hjá
Skipadeild og vann þar til 1969 er
hann varð framkvæmdastjóri skrif-
stofu Sambandsins í London. Árið
1977 kom hann heim og tók við
starfi framkvæmdastjóra fyrir
Skipulags- og fræðsludeild sem síð-
ar hlaut nafnið Fræðslu- og kaup-
félagsdeild. Kjartan er kvæntur
Sigríði Nikulásdóttur og eiga þau
þrjár dætur. -esig