Tíminn - 23.10.1986, Side 5
Fimmtudagur 23. október 1986 •
Tíminn 5
Hver skyldi nú ráða yfir okkur?
(Tímamynd Sverrir)
Framsóknarmenn
vilja rannsókn á
valddreifingunni
Hver hefur valdið í íslensku þjóð-
félagi? Það vilja nokkrir þingmenn
Framsóknarflokksins láta kanna.
Fyrsti flutningsmaður þingsályktun-
artillögu þess efnis er Haraldur
Ólafsson og meðflutningsmenn þau
Jón Kristjánsson, Þórarinn Sigur-
jónsson, Ingvar Gíslason, Davíð
Aðalsteinsson og Guðrún Tryggva-
dóttir.
Þingsályktunartillagan, sem er
endurflutt, kveður á um að könnun-
in verði fólgin í því að rannsaka og
greina hvemig háttað er völdum og
valdahlutföllum stofnana og sam-
taka, bæði opinberra og óopinberra.
Skal könnuninni lokið innan þriggja
ára.
í greinargerð með þingsályktunar-
tillögunni kemur m.a. eftirfarandi
fram:
„Á undanförnum árum hafa orðið
allmiklar umræður um hvernig hátt-
að er beitingu valds hér á landi. Þær
umræður hafa einkum snúist um
hvernig valddreifingu er varið, þ.e.
hvernig tengsl hins opinbera, ríkis-
ins, og einstakra sveitarfélaga,
byggðarlaga og landshluta eru. Ein-
nig hefur talsert verið rætt um inn >-
byrðis afstöðu valdastofnana ríkisins
og hvort æskilegt sé að breyta vald-
ahlutföllunum í landinu. Enda þótt
þessar umræður hafi oft á tíðum
verið hinar fróðlegustu hefur nokk-
uð á skort að þær hafi verið mar-
kvissar og stundum hafa hugtök
verið lítt skýrð eða ekki. Sjálft
hugtakið vald er margþætt og engin
ein skilgreining fullnægjandi til að
lýsa eðli þess og áhrifum eða birting-
arformum þess.“
Þá er á það bent í greinargerðinni
„að margs konar dulin og hálfdulin
valdaöfl séu að verki í sérhverju
þjóðfélagi og áhrif þeirra eru oft á
tíðum langtum meiri en birtist í hinu
beina og opinbera valdi. Þetta gerir
nauðsynlegt að rýna djúpt inn í
íslenskt þjóðfélag til þess að greina
megi valdaþræðina, sem þar greinast
í allar áttir“.
Hagnýti rannsóknarinnar telja
flutningsmenn einkum felast í
þrennu.
í fyrsta lagi er með slíkri könnun
á valdi farið inn á rannsóknarsvið
sem ekki hefur veri gefinn mikill
gaumur hér á landi til þessa en
þekking á því er forsenda umræðna
um valddreifingu og valdaskipan í
landinu.
í öðru lagi felur könnunin í sér
rannsókn á lýðræðinu hér á landi,
hvernig það virkar eða virkar ekki,
athugað er hvernig stöðu einstakl-
ingsins er háttað og hvort og hvernig
einstakir hópar ná fram áhugamál-
um sínum.
I þriðja lagi benda flutningsmenn
á að niðurstöður slíkrar könnunar
geti auðveldað landsmönnum að
taka mikilvægar ákvarðanir um
framtíð sína.
Amnesty International:
w
ISLANDSDEILDIN MEÐ
4 „GLEYMDA FANGA“
Amnesty International á Islandi
hefur tekið að sér fjóra samvisku-
fanga af þeim 12 sem alþjóðasamtök
Amnesty völdu í tilefni af alþjóðlegri
viku sem haldin er einu sinni á ári og
tileinkuð er ákveðnum flokki sam-
viskufanga. í ár er vikan tileinkuð
„gleymdum föngum“ en það er ein-
mitt þessi vika sem nú er að líða sem
er tileinkuð þeim.
f tilefni vikunnar afhenda Amn-
esty International samtökin módel-
bréf til þeirra einstaklinga hér á
landi sem vilja styðja baráttu gegn
mannréttindabrotum hvar sem er í
heiminum og aðstöða viðkomandi
fanga við að losna úr haldi. Bréfin
eru skrifuð á viðkomandi tungumáli
en þeim fylgir íslensk þýðing svo og
ágrip af sögu viðkomandi fanga á
íslensku.
Þessir gleymdu fangar eiga það
sameiginlegt að hafa verið teknir
höndum og fangelsaðir eða settir á
geðsjukrahús vegna skoðana sinna.
Yfirvöld gefa ekki upp hvort þeir
eru lífs eða liðnir og vilja ekki
viðurkenna að hafa handtekið þá í
sumum tilfellum. Hins vegar hefur
Amnesty International vitneskju um
fangana frá öðrum föngum sem vita
af þeim og meðferð á þeim eða eftir
öðrum leiðum.
Bréfin sem Amnesty hefur samið
til stuðnings þessum fjórum föngum
eru beiðni til stjórnvalda um að taka
mál fanganna til athugunar og vin-
samlegast að láta þá lausa þar sem
þeir hafi ekki verið teknir höndum
vegna ofbeldisverka og um leið eru
stjórnvöld beðin um að stuðla að því
að fangar sem eru í haldi hjá þeim
fái þá meðferð sem ekki brýtur í
bága við mannréttindi, vegna þess
að heimurinn líti mannréttindabrot
alvarlegum augum.
Anatoly Lupynis hefur verið lok-
aður inni á sovéskum geðsjúkrahús-
um í 15 ár gegn vilja sínum. Anatoly
var tekinn fastur í maí 1971 eftir að
hafa tekið þátt í óopinberum Ijóða-
lestri en hann er Úkraínumaður og
starfaði við tónleikahald. Amnesty
International álítur að hann sé ekki
lokaður inni af læknisfræðilegum
ástæðum heldur fyrir að nota rétt
sinn til tjáningarfrelsis á friðsamleg-
an hátt. Læknar hafa fjórum sinnum
óskað þess að hann verði látinn laus
en dómstólar hafa jafnan vísað því á
bug.
Ilena del Rasario Solares Castillo,
22 ára endurskoðandi í Guatemala
var tekin föst 25. september af
njósnadeild Guatemalahers. Upp-
haflega var skýrt svo frá að hún hefði
verið dæmd í 30 ára fangelsi en
seinna þrættu yfirvöld fyrir að hún
hefði verið tekin föst. Fanga sem
tókst að smygla bréfi úr sama fang-
elsi og Ilena var í síðast er fréttist af
henni sagði að hún væri á lífi og væri
haldið í leynilegu fangelsi.
Chinkangala Faustino Lombe er
fertugur kennari sem verið hefur í
haldi síðan 1978 án þess að ákæra
hafi verið borin fram. Hann er
fyrrverandi félagi í stjórnarand-
stöðuflokknum UPP (United Prog-
ressive Party) sem nú er bannaður í
Zambíu. Honum er haldið föngnum
á forsendum löggjafar sem heimilar
frelsissviptingu í ótiltekinn tíma án
réttinda.
Manan Effendi bin Tjokrohardjo
hefur setið í fangelsi síðan 1965 en
Amnesty International frétti fyrst af
honum árið 1983 þegar hann hafði
setið 18 ár í fangelsi án þess að
nokkur sönnun hafi borist um að
hann hafi tekið þátt í valdaránstil-
raun sem reynd var nokkrum dögum
áður en hann var tekinn höndum.
Eftir valdaránstilraunina voru gerð-
ar stórfelldar hreinsanir og um hálf
milljón manna var drepin. Manan
óttast að verða ekki látin laus fyrr en
í fyrsta lagi árið 1999 en þá verður
hann 79 ára gamall. Núna þjáist
hann af húðsjúkdómi og læknar
óttast að hann fái ekki nauðsynlega
læknisaðstoð í fangelsinu. ABS
SÍBS þingar um helgina:
Jafnmargir deyja
úr reykingum nú
og áður úr berklum
25. þing SÍBS verður haldið að
Vinnuheimilinu að Reykjalundi í
tylosfellssveit helgina 25. og 26. okt-
óber (laugardag og sunnudag)
Auk venjulegra þingstarfa mun
Arne Heimdal frkvstj. Samtaka
astma og ofnæmissjúklinga í Noregi,
verða gestur SÍBS og mun hann
flytja fyrirlestur um starfsemi norsku
samtakanna.
Landsfundur SÍBS var á Akureyri
sl. september og SÍBS hefur haldið
fræðslu- og kynningarfundi í Kefla-
vík og á Selfossi, þar sem flutt voru
fræðsluerindi m.a. um ofnæmi í
öndunarfærum og skaðsemi reyk-
inga.- Einnig um læknismeðferð og
þjálfun lungnasjúklinga.
f fréttatilkynningu frá Samtökun-
um segir, að afleiöingar af völdum
reykinga séu jafn geigvænlegar og
aflciðingar af berklum, þegar þeir
herjuðu í algleymi á þjóðina um það
leyti sem SIBS var stofnað á Vífils-
stöðum árið 1938, en þá létust fjórir
t^nstaklingar úr berklum i hverri
viku. I dag er það einnig svo að í
hverri viku deyja fjórir einstaklingar
af völdum reykingasjúkdóma.
í kjölfar fundanna í Keflavík og á
Selfossi voru stofnaðar tvær nýjar
SÍBS-deildir, Deild Suðurlands og
Suðurnesja.
SÍBS-fréttir hafa komið út fjórum
sinnum á ári á undanförnum tveimur
árum. Núverandi ritstjóri er Hjördt's
Þorsteinsdóttir.
SÍBS-deildir eru nú alls fjórtán
víðs vegar um landið. Þeir sem óska
eftir að gerast félagar geta haft
samband við skrifstofu SÍBS í Suður-
götu 10 í Reykjavík. FormaðurSÍBS
(Sambands íslenskra berkla- og
brjóstholssjúklinga) er Kjartan
Guðnason, Reykjavík.
Sýning
áverkum
Valtýs
Sýningin spannar allan listferil.
Valtýs allt frá því að hann var við
nám í Bandaríkjunum 1944-46 til
verka frá þessu ári. Eru þar alls
127 verk, olíumyndir, mósaík og
gvassmyndir.
í tilefni sýningarinnar hefur
verið gefin út vönduð sýningar-
skrá og litprentað plakat.
Sýningin er opin virka daga frá
kl. 13.30-18.00 enkl. 13.30-22.00
uni helgar.
Auglýsing
frá fjárveitinganefnd
Alþingis
Fjárveitinganefnd Alþingis mun sinna viðtölum
vegna afgreiðslu fjárlaga 1987 frá 27. okt. - 14.
nóv. nk. Beiðnum um viðtöl við nefndina þarf að
koma á framfæri við starfsmann nefndarinnar,
Runólf Birgi Leifsson, í síma 11560 eftir hádegi
eða skriflega eigi síðar en 7. nóvember nk.
Skrifleg erindi um fjárveitingabeiðnir á fjárlögum
1987 þurfa að berast skrifstofu Alþingis fyrir 14.
nóvember nk. ella er óvíst að hægt verði að sinna
þeim.
Fjárveitinganefnd Aiþingis
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir septembermánuð
1986, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi
27. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau
eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til
viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og
með 16. nóvember.
Fjármálaráðuneytið 20. október 1986.
ÁSKRIFTARSÍMl 686300