Tíminn - 23.10.1986, Qupperneq 11

Tíminn - 23.10.1986, Qupperneq 11
Hans brotinn Hans Guðmundsson KR-ingur handarbrotnaði í leik KA og KR á Akureyri í gærkvöldi og kemur það sér vægast sagt illa fyrir KR-liðið. „Þetta er það versta sem gat komið fyrir okkur. Hans var að komast í sitt gamla góða form og verður sennilega frá í 5-6 vikur,“ sagði Ólafur Jónsson þjálfari KR eftir leikinn. Hans var nokkuð seinn í gang í leiknum í gær en sýndi þegar á leikinn leið að hann er ein styrk- asta stoð KR-liðsins þannig að þetta er afar slæmt áfall fyrir KR-inga. 10 Tíminn Fimmtudagur 23. október 1986 Fimmtudagur 23. október 1986 Tíminn 11 liÍÍBlííl Ibd^ttip ■lllllllll..............................................llllllllll.....................................................................................................................................Illlllllllllllllllllllllliilllll..Illllllllllllllll......Illlllllllllllllll........................Illllllllllllllllllllllliiii,.. íþróttir ..................................................................SIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHS'........................... ................................................................. ............................................-.............. A Evrópumótunum í knattspyrnu Evrópukeppni meisturalióa Reul Mudrid (Spáni)*Juventu<> (Ítalíu)........................................ t*D Vitkovicc (Tékkóslóvakíu)-l*orto (Portúg.)......................................1-0 Koscnhorg (Nor.)-Rauða Stjurnun (Júgósl.).......................................0-3 Munchcn (V-I»)-Austria Vín (Austurr.)...........................................2-0 Andcrlccht (Kelg.)-Stcuu (Rúmeníu)........... . ................................3-0 Celtic (Skotl.)-Dynarao KÍcv (Sovét.) ..........................................1-1 Bröndhy (Danin.)-Dynurao Berlin (A-P)....................................... 2-1 Evrópukeppni bikarhafa: Rupid Vin (Austurr.)-I.okomotiv (\-Þ).......................................... 1-1 Rcal Zaragoza (Spáni)-Wre\ham (Wales) ..........................................0-0 Vitosha (Búlgariu)-Velez Mostar (Júg.)........................................ 2-0 Torpedo Moskva (Sovét)-Stuttgart (V-I»)....................................... 2-0 Katowice (Póll.)-Sion (Sviss)................................................. 2-2 Tirana (Alhaníu)-Malniö (Svíþjóö)...............................................0-3 Ajax (llollandi)-Olympiakos (Grikkl.)...........................................4-0 Evrópukcppni félagsliða (UEFA): Groningen (Holi.)-Xamax (Sviss) ............................................... 0-0 Bevcrcn (Bclgíu)-Atlctico Bilbao (Spáni)........................................3-1 Widzew Lodz (Póll.)-Uerdingen (V-l») ...........................................0-0 Lcgina Warsaw (Póll.)-lnter Milano (ítulia) .................................. 3-2 Guimaraes (Portúg.)-Atletico Madríd (Sp.) .................................... 2-0 Gladhach (V-Þ)-Feyenoord (Iloll.).............................................. 5-1 Studcntesc (Rúmeníu)-Ghcnt (Bdgíu)..............................................3-0 Torino (Ítuliu)-Kuha Eto Gyocr (Ungv.) ....................................... 4-0 Dukla Prag ( I ekk.)-l.evcrkuscn (V-l») ...................................... 0-0 Barcclona (Spáni)-Sporting (Portúgal)...........................................1-0 Iladjuk Split (Júg.)-Plovdiv (Búlg.) ...........................................3-1 Tyrol (Austurr.)-Standard Liege (Belg.)....................................... 2-1 Göthenburg (Svíþ.)-Brandcnhurg (A-Þ)............................................2-0 Toulouse (Frakkl.)-Spartak Moskva (Sov.)........................................3-1 Dundce Utd. (Skotl.)-Craiova (Rúmcniu) .........................................3-0 íslendingaliðin: Anderlecht vann Steua Búkarest! íslendingaliðunum í Evrópu- keppninni gekk nokkuð misjafnlega í gærkvöld, Anderlecht sem Arnór Guðjohnsen leikur með sigraði Evr- ópumeistarana Steua Búkarest 3-0 en Arnóri tókst ekki að skora í þeim leik. Stuttgart sem Ásgeir Sigurvins- son leikur með tapaði 0-2 fyrir Torpedo Moskvu og Bayern Uer- dingen og Atli Eðvaldsson gerðu markalaust jafntefli við Widzew Lodz í Póllandi. Árangur Anderlecht verður að teljast mjög góður og var nokkuð sem ekki var búist við. Reykjavíkurmótið í blaki: Þróttur vann IS Þrótturum tókst í gærkvöldi að halda Reykjavíkurmeistaratitlinum í blaki með því að sigra ÍS í æsi- spennandi úrslitaleik sem tók nærri tvo tíma. Fyrir leikinn var ljóst að Þróttarar máttu tapa aðeins einni hrinu til að halda titlinum. Próttur vann fyrstu tvær hrinurnar 15-13 og 15-13 eftir að hafa verið undir mest allan tímann. I’riðju hrinuna vann ÍS 17-15 en þá höfðu þeir verið undir mest allan tímann. í fjórðu hrinunni komust Stúdentar í 14-13, voru að- eins einu stigi frá því að verða Reykjavíkurmeistarar en eftir mikla baráttu tókst Þrótturum að knýja fram sigur, 16-14, tæpara gat það ekki verið. Víkingar og Fram léku einni í gærkvöld og sigraði Víkingur 3-0. þeir urðu þar með í 3. sæti. Héðinn Gilsson skorar eiM af mörkum FH-inga í leiknum í gærkvöld. Tímamynd Pjetur Tíu mínútna jarðarför - FH-ingar kafsigldu Stjörnuna á síðustu mínútunum í Digranesi í gær og unnu stórsigur. Einbeitingi og sigurvilji á síðustu 10 mínútunum tryggði FH-ingum sigur í viður- eigninni við Stjörnuna úr Garðabæ í 1. deild íslandsmótsins í handknattleik í gær- kvöldi. Þetta var jafnframt fyrsti sigur FH-inga á íslandsmótinu og fögnuður í þeirra herbúðum mikill. Lokatölur urðu 31-23 eða sannkölluð jarðarför. Það var þó ekki fyrr en á síðustu 10 mínútunum sem FH-ingar tóku á honum stóra sínum með hjálp heilaleysis Stjörnu- leikmannanna sem spiluðu eins og börn - eða eigum við að segja spiluðu alls ekki. Staðan var 22-21 fyrir FH og 10 mínútur eftir. Áhangendur Stjörnunnar voru rétt að byrja að hvetja sína menn eftir að hafa hreytt í dómarana nær allan leiktímann. Þá gerðist það. Leikmenn FH tóku uppá því að spila mjög hreyfanlega vörn ásamt því að halda áfram að taka tvo leikmenn úr umferð hjá Stjörnunni eins og þeir höfðu gert mest allan leikinn. Fjórir gegn fjórum áttu leikmennirnir úr Garðabæ ekkert svar og boltinn var sleginn úr höndum þeirra hvað eftir annað. Staðan breyttist fljótlega í 24-21 og síðan 31-22 og áhangendur Stjörnunnar byrjuðu aftur að hreyta í dómarana. Nágrannaslagnum lauk síðan með 31-23 sigri Hafnfirðinga - og það sanngjarnt þó eflaust hefði markamunurinn getað orðið minni. Ef rennt er yfir leikinn í stuttu máli fram að tíu mínútna jarðarförinni þá var það Stjarnan sem skoraði fyrsta markið og hélt forystu í leiknum þar til FH komst yfir 9-8. Þá misstu Stjörnuleikmenn markvörð sinn útaf eftir að hann hafði stöðvað Þorgils Ottar í hraðaupplaupi á mjög svo grófan hátt. FH hafði síðan yfir í leikhléi 15-14. Hannes Leifsson jafnaði fyrir Stjörnuna í upphafi síðari hálfleiks en FH-ingar náðu undirtökunum aftur og voru þetta 1-3 mörk yfir nánast þar til á loka mínútunum 10 sem oft er getið hér á undan. Þegar svo virtist sem Garðbæingar væru að jafna sig aftur þá kviknaði vel á FH-ingum og einbeiting þeirra fleytti þeim í stórsigur. FH-ingar tefla fram ungu liði og má segja að allir strákarnir hafi staðið sig vel undir stjórn Þorgils Ottars og Guðjóns Árnasonar sem verða að teljast „gömlu refirnir" í liðinu. Markvörðurinn Magnús Árnason varði mjög vel og hinir héldu haus er mikið bar undir. Það sama verður ekki sagt um Stjörnuleikmennina. Þegar syrta tók í álinn þá hættu þeir að spila handbolta heldur fóru að hnoðast hver í sínu horni og það skilaði engu nema hraðaupphlaupum fyrir FH. Óskar Ármannsson skoraði mest Hafn- firðinga eða 8 þar af 4 úr vítum en Guðjón gerði 7 og Þorgils 6. Hjá Stjörnunni var Hannes með 10 (6) en Sigurjón, sem var þeirra besti maður eerði 5. ÞB íslandsmótið í handknattleik 1. deild: „Virðumst þurfa kjafts högg til að fara í gang“ „Ég er auðvitað ánægður með stigin úr þessum leik og leikinn sjálfan, þetta var opinn og skemmtilegur ieikur og KA á örugglega eftir að hala inn slatta af stigum hér í vetur,“ sagði Ólafur Jónsson þjálfari KR eftir að KR hafði sigrað KA 22-16 á Akureyri í gærkvöld í 1. deildinni. Staðan í leikhlé var 9-5 fyrir KR og segja má að sigur liðsins hafi aldrei verið í neinni hættu. „Mínir menn virðast þurfa að fá kjafts- högg til að fara í gang,“ sagði hinsvegar Brynjar Kvaran þjálfari ogmarkvörður KA eftir leikinn, „við fengum skell á móti Fram en unnum síðan FH. Þó skoruðum við ekki nema 5 mörk í fyrri hálfleik hér í kvöld en fórum svo í gang í síðari hálfleik, það virðist þurfa hugarfarsbreytingu hjá lið- inu.“ KR komst strax yfir með mörkum frá Hans Guðmundssyni og Jóhannesi Stefáns- syni. Lengst af munaði tveimur til þremur mörkum á liðunum í fyrri hálfleik, lítið var skorað enda sóknarleikur liðanna hug- myndasnauður svo ekki sé meira sagt, gegn sæmilegum vömum. 1 síðari hálfleik minnkaði KA muninn í 3 mörk, 10-7 en KR-ingar náðu aftur undir- tökunum og komust í 17-9. KA menn vom sem svefngenglar á þessum tíma, létu hirða af sér boltann í sókninni hvað eftir annað og ekki var heil brú í leik liðsins. En þegar hér var komið sögu og leikurinn raunveru- lega tapaður fyrir KA fóru þeir að klóra í bakkann. Þeir skoruðu 5 mörk í röð og minnkuðu muninn í 17-14 þegar 7 mínútur voru eftir. Þá varði Gísli Felix Bjamason hinsvegar víti frá Guðmundi Guðmunds- syni og Jóhannes Stefánsson svaraði með marki úr vítakasti hinumegin á vellinum. Hafi KA átt möguleika þá fór hann þama. Bæði lið léku þokkalegan vamarleik á köflum í þessum leik og markverðirnir vörðu vel, Gísli Felix hjá KR nokkuð jafnt en Brynjar mest á kaflanum í síðari hálfleik þegar KA skoraði 5 mörk í röð. Sóknar- leikurinn var hinsvegar afar slakur hjá KA þegar á heildina er litið og þar hafði KR það umfram sem til þurfti til að vinna. Bestu menn KR í þessum leik voru Konráð Ólafsson sem var beittastur í sókninni og Þorsteinn Guðjónsson sem er mjög alhliða sterkur spilari og grimmur í vörn. Þá sótti Hans Guðmundsson í sig veðrið í síðari hálfleik þar til hann meiddist og varð að yfirgefa völlinn. Ekki er ástæða til að hrósa neinum leikmanni KA öðrum fremur fyrir þennan leik, liðið var afar slakt og verður greinilega að táka sig verulega á. Mörk KR skomðu Konráð Ólafsson 5, Hans Guðmundsson 5, Guðmundur Pálma- son 3, Guðmundur Albertsson 3, Jóhannes Stefánsson 2, Þorsteinn Guðjónsson 2, Peter Paulsen 1 og Páll Ólafsson 1. Mörk KA skoruðu: Guðmundur Guð- mundsson 4, Pétur Bjamason 3, Jón Kristj- ánsson 3, Friðjón Jónsson 2, Hafþór Heim- isson 2 og Jóhannes Bjarnason 2. Dómarar voru Björn Jóhannesson og Sigurður Baldursson og voru þeim mjög mislagðar hendur, sérstaklega Sigurði sem dæmdi oft furðulega. „Það er eins og við höfum gert þessum mönnum eitthvað, þeir dæmdu á móti okkur þegar við unnum FH á dögunum og þeir dæmdu á móti okkur í kvöld,“ sagði Brynjar Kvaran eftir leikinn. En slök dómgæsla réði þó alls ekki úrslitum að þessu sinni. Evrópukeppnin í knattspyrnu: Real Madrid sigraði - í risaslagnum gegn Juventus -Tacconi bjargaði Juventus frá stórtapi Leikmenn Real Madrid tóku fé- laga sína hjá Juventus í kennslu- stund í knattspyrnu í Madrid í gær- kvöldi en frábær markvarsla Stefáns Tacconi í marki ítalanna gerði það að verkum að sigur Spánverjanna varð ekki stærri en raun bar vitni eða 1-0. 100.000 áhorfendur sáu þennan bráðskemmtilega leik sem uppfyllti allar væntingar heimamanna að því undanskildu að mörkin létu standa á sér. Það var Emilio Butragueno sem skoraði sigurmark Spánverjanna eft- ir fyrirgjöf frá Miguel „Chendo" Porlan. Eftir þennan leik telja menn Ju- ventus vera líklegra en Real Ma- drid til að komast áfram í keppninni, Juventus er mjög sterkt lið á heima- velli og 1-0 tap gerir þeim lítið til. Það má því vera að „sýnikennsla" hins fjölþjóða Madridarliðs verði þeim til lítils gagns, þegar á allt er litið eru það mörkin sem telja, ekki fegurð knattspyrnunnar. Ekki eru taldar miklar líkur á að Juventus þurfi að eiga við Steua Búkarest fari svo að þeir komist áfram, Arnór Guðjohnsen og félag- ar í Anderlecht hafa að ölium líkind- um séð fyrir því. EgiU Jóhannsson Framari átti góðan leik í gærkvðldi. Hér undirbýr hann árás. íslandsmótið í handknattleik, 1. deild: Æsilegur Valssigur - Höllin titraði er Valur sigraði Fram með einu marki í gærkvöldi Það var titringur í Laugardalshöll- inni í gærkvöldi þegar Reykjavíkur- liðin Valur og Fram áttust við i I. deildinni í handknattleik. Titringur því þegar um fimm mínútur voru til leiksloka var staðan jöfn 24-24 og menn rifu hár sitt eða skegg í æsingi. Valdimar Grímsson Valsmaður var þó ekki taugaspenntari en svo að hann tryggði sínum mönnum sigur- inn með tveimur mörkunt undir lokin á meðan Frömurum tókst að- eins að senda knöttinn einu sinni réttu boðleiðina. Sem sagt, 26-25 • fyrir Val í hröðum og spennandi leik þar sem mikið var um mistök á báða bóga. Framarar með Danann Per Skaar- up þjálfara og leikstjórnanda í farar- broddi byrjuðu betur, Skaarup gaf sendingar í bak og fyrir og virkaði líflegur og Guðmundur A. Jónsson í markinu varði tvö vítaskot. Er líða tók á fyrri hálfleikinn sigu þó Vals- menn framúr og máttu þakka það Pálma Jónssyni sem er jafnvígur á handbolta sem fótbolta. Pálmi skor- aði grimmt úr hraðaupphlaupum og Valsarar leiddu í hléi 15-12. Síðari hálfleikurinn byrjaði með látum, sérstaklega hjá Stefáni Hall- dórssyni Valsmanni. Stefán fékk sitt tækifæri til að koma inn á og skoraði fjögur mörk á örskömmum tíma, öflugur leikmaður með keppnisskap mikið. Allt virtist því stefna í sigur Vals- manna og Jón Pétur Jónsson þjálfari virkaði yfirmáta rólegur á hliðarlín- unni. 23-20 þegar sjö mínútur voru eftir en þá settu Framarar í fimmta gír og eins og áður sagði munaði aðeins hársbreidd að þeim tækist að sigra Hlíðarendapiltanna í skemmti- legunt leik. Bæði þessi lið verða í toppbarátt- unni í vetur ef þau spila af líkum krafti og í gærkvöldi. Valsmenn eru með gott lið, sérlega hættulegir í hraðaupphlaupunum og hafa skyttur á borð við Stefán Halldórsson og Júlíus Jónasson sem reyndar var langt frá sínu besta. Hann komst ekki á blað í markaskoruninni, aldrei þessu vant, var reyndar tekinn úr umferð mikinn hluta leiksins og reyndist sú aðferð Frömurum nokk- uð drjúg. Framliðið hefur minni breidd. Per Skaarup sá danski er góður leikntað- ur þó þungur sé. Sendingar hans afbragð og varnarleikurinn sterkur. Fyrir utan hann bera Egill Jóhanns- son og Birgir Sigurðsson á lfnunni hitann og þungann af spilinu. Ungur leikmaður, Júlíus Gunnarsson skor- aði tvö falleg mörk og er efni í stórskyttu. Egill skoraði reyndar níu mörk fyrir Framliðið og eyddi þess utan ekki ntikið af skotum, ákaflega góður leikmaður fyrir sitt lið. Markvarsla Framara er betri en sú hjá Val. Guðmundur A. Jónsson fyrrum Þróttari er sterkur í Fram- markiiru og á framtíðina fyrir sér. Mörkin: Valur: Pálmi 6, Valdimarö (2) , Stefán 5, Jakob 4, Þorbjörn 3, Geir 1 og Þórður 1. Fram: Egill 9 (3) , Birgir 6, Jón Árni 4, Júlíus 2, Per Skaarup 2, Ólafur 1 og Hermann 1. Molar Frá Guðmundi Fr. Jónsasyni fréttarítara Tímans í Lundunum. ■ Manchester United hefur far- ið fram á að fá greidd 825.000 pund (um 5 milljónir ísl. króna); fyrir Jesper Olsen en forráða- mönnum Borussia Mönchenglad- bach finnst sú upphæð full há. Allt er því enn óráðið með hvort Olsen fer til Gladbach. ■ 15.000 stuðningsmenn Charl- ton hafa skrifað undir lista þar sem þeir fara fram á að Charlton spili heimaleiki sína á The Valley sem hefur verið heimavöllur liðs- ins frá upphafi að undanskildu síðastliðnu ári. Þann tíma hefur liðið leikið heimaleiki sína á Sel- hurst Park, heimavelli Crystal Palace. Talið er að lagfæringar á The Valley muni kosta um eina milljón punda. ■ Alan Ball framkvæmdastjóri Portsmouth var engan veginn ánægður með framkomu stuðn- ingsmanna Leeds í leik liðanna á laugardaginn. Svörtu leik- mennirnir hjá Portsmouth, Noel Blake og Vince Hilare fengu að heyra það hjá stuðningsmönnum Leeds, það var öskrað og púað á þá í hvert sinn sem þeir snertu knöttinn í leiknum. Var haft eftir Ball að hann hefði aldrei lent í öðru eins og að leikmennirnir tveir hefðu verið alveg miður sín eftir leikinn. ■ David Pleat framvæmdastjóri Tottenham hefur sett Paul Miller, Danny Thomas og Chris Hug- hton á sölulista en hann hefur þegar selt Mark Falco til Watford og lánað varamarkamanninn Tony Park til Oxford. ■ Billy Hamilton, norður-írski landsliðsmaðurinn sem hefur spilað með Oxford síðastliðin ár hefur orðið að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla. ■ Mike Fillery. Qucens Park Rangers sem hefur verið meiddur í bakinu síðan í apríl virðist vera að komast í sitt gamla form aftur því hann skoraði tvö mörk í leik með varaliðinu í vikunni. Blikarnir unnu Hauka „Búnir aö fá sjálfstraustiö,“ segir Geir „Strákarnir eru búnir að fá sjálfs- traustið aftur, það er alveg greini- legt. Haukarnir eru mjög erfiðir heim að sækja og við höfum alltaf tapað fyrir þeim hér,“ sagði Geir Hallsteinsson þjálfari Breiðabliks eftir að lið hans sigraði Hauka í 1. deild karla á íslandsmótinu í hand- knattleik í gærkvöld. „Næsti leikur er gegn Stjörnunni 9. nóvember og þann leik ætlum við að vinna,“ sagði Geir. Leikurinn fór hægt af stað, sérstak- lega voru þó Blikarnir seinir í gang í sókninni. Haukar komust í 2-0 og það var ekki fyrr en eftir 13 mínútur sent Blikunum tókst að jafna, 5-5. Eftir það var jafnt á því sem næst öllum tölum út hálfleikinn, staðan í hálfleik var 11-11 og skoraði Björn Jónsson síðasta mark Blikanna úr vítaskoti þegar leiktíminn var út- runninn. í seinni hálfleik tóku leikmenn Breiðabliks Sigurjón Sigurðsson skyttu þeirra Haukamanna úr um- ferð og reyndist það nokkuð vel. Um miðjan hálfleikinn komust Breiðabliksmenn yfir 15-16 og eftir það tókst Haukum aðeins einu sinni að jafna, 21-21 þrátt fyrir tilraunir Hauka til að trufla sókn Breiðabliks með því að taka Aðalstein Jónsson úr umferð. Hraðinn í leiknum jókst mjög eftir því sem leið á hann og var oft á tíðum mikið um mistök á báða bóga. Markverðir beggja liða vörðu ágæt- lega, Ólafur Guðjónsson í marki Hauka í fyrri hálfleik og Guðmund- ur Hrafnkelsson í Blikamarkinu í þeim síðari. Útileikmenn beggja liða voru svipaðir, enginn einn sem stóð uppúr. Mörk Breiðabliks skoruðu: Björn Jónsson 11 (7), Aðalsteinn Jónsson i og Jón Þórir Jónsson 4 hvor, Svavar 1 Magnússon 2, Kristján Halldórsson, Paul Dempsey ogSigþór Jóhannsson eitt mark hver. Fyrir Hauka skoruðu: Árni Sverris- son 6, Helgi Á. Harðarson 4, Sigur- jón Sigurðsson 4 (1), Pétur Guðna- son 3, Eggert ísdal 2, Ágúst S. Karlsson og Sigurður Ö. Arnarson eitt mark hvor. Dómarar voru Guðmundur Kol- beinsson og Þorgeir Pálsson og voru þeir slakir. íslandsmótið í handknattleik, 1. deild: Víkingar sigruðu Ármannsjaxlana - Baráttuglaðir Ármenningar máttu þola 20-17 tap gegn íslandsmeisturum Víkings sem sett hafa stefnuna á enn einn titilinn Víkingar eru í sigurham um þessar mundir. Það sýndu þeir í gærkvöldi er þeir sigruðu Ármenninga með 20 mörkum gcgn 17 eftir að staðan í hálfleik hafði vcrið 8-5 Hæðagarð- spiltunum í vil. Sigurinn vannst þó ekki á góðum leik, reyndar voru margir Víking- anna langt frá sínu besta, lykilmenn eins og Árni Friðleifsson og Siggeir Magnússon. Ármenningargenguþví á lagið og voru reyndar nálægt því að jafna undir lok leiksins. Staðan undir lokin var allt í einu orðin 18-17, áhorfendum og leik- mönnum Víkinga til dulítillar undr- unar því Ármenningar voru allt annað en hættulegir í sóknarleik sínum. Tvö mörk undir lokin náðu Úrslit þó að tryggja íslandsmeisturum Vík- ings sigurinn og heldur sigurganga liðsins því áfram. Ármenningar léku skynsamlega mest allan leikinn, héldu marka- skoruninni niðri með góðri baráttu í vörninni og löngum sóknum, reynd- ar nokkrum sinnum svo löngum að töf var dæmd. Liðið hefur engar stórstjörnur en vinnur vel saman og gæti átt eftir að reynast mörgum stærri liðanna skeinuhætt. Guðmundur Friðriksson varði mark Ármenninga vel nær allan leikinn og Theodór Jóhannesson varamarkvörður gerði slíkt hið sama þegar hann kom inn á undir lokin. „Gamli jaxlinn“ Óskar Ásmundsson lék vel fyrir Ármenninga, var þeirra bestur auk Einars Naby sem þó var helst til of ragur að fara upp í veruleg skot. Kannski hefur það dregið nokkuð úr skotgleði Ármenninga að lands- liðsmarkvörðurinn Kristján Sig- mundsson varði Víkingsmarkið af alþekktri kunnáttu. Hann varði rúm- lega tíu skot og var mörg markvarsl- an sem kennslubókardæmi fyrir yngri og óreyndari menn í faginu. Aðrir leikmenn Víkings eiga ekki mikið hrós skilið fyrir þennan leik, helst að Hilmar Sigurgíslason sýndi lit auk Bjarka Sigurðssonar sem ávallt yljar handboltaaðdáendum með fallegum mörkum úr horninu, sannarlega landsliðsefni á ferðinni þar. Mörkin: Víkingur: Karl 5 (3), Bjarki 4, Siggeir 3, Guð. Guð. 3, Hilmar 3, Einar 1 og Árni 1. Ármann: Óskar 6 (5), Einar 3, Haukur 2, Þráinn 2, Einar Ó. 2, Friðrik 1 og Hans 1.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.