Tíminn - 23.10.1986, Qupperneq 20

Tíminn - 23.10.1986, Qupperneq 20
' " '• s; ' ií - HHHBHHI AUGLYSINGAR 1 83 00 III liinillllli llllilHlliiTillÍMillllllllMllill I GÆRKVOLD voru 5 leikir á íslandsmótinu í hand- knattleik, 1. deild karla. Þá var og heil umferö í Evrópukeppn- inni í knattspyrnu og úrslit réöust einnig í Reykjavíkur- mótinu í blaki. Sjá íþróttasiðu bls. 10-11. STRUMmftNIR HRESSA KÆIA Fimmtudagur 23. október 1986 Þingmannalaun hækka síst meira en önnur segja reiknimeistarar fjármálaráðuneytisins um launabreytingum sé talið að laun sem ASÍ og VSÍ semji um hækki að meðaltali um 29% milli áranna 1985 og 1986. -HEI „Meðalhækkunin milli ára - hjá þeim sem nú fengu launahækkun með kjaradómi - er að jafnaði innan við 30% og því alveg hægt að fullyrða, að ef eitthvað er, þá liggur hún í neðri kantinum miðað við hækkanir hjá öðrum ríkisstarfs- mönnum á sama tíma,“ sagði Indriði H. Þorláksson í fjármálaráðuneyt- inu. En þar hafa menn nú reiknað út samanburð á launahækkunum sem æðstu embættismenn ríkisins og al- þingismenn hafa fengið eftir kjara- dóm nýlega miðað við aðra ríkis- starfsmenn. Fréttir um mun meiri launahækk- anir þessum hóp til handa en t.d. BHMR sagði Indriði því ekki standast. Enda sú hækkun sem tals- menn BHMR hafi gefiö upp - 24% frá upphafi til loka árs - a.m.k. 4% of lág. Indriði sagði tvær viðmiðanir not- aðar við samanburöinn. Annars veg- ar meðalhækkun launa milli áranna 1985 og 1986. Sú hækkun verði milli 29 og 30% hjá lang flestum þeirra sem taka laun eftir kjaradóms- ákvörðuninni, þar með töldum al- þingismönnum. Sú hækkun meðal- launa er talin um 30% hjá BSRB, um 31% hjá BHMR og um 38% hjá BK (kennarar)., Hins vegar er reiknuð út hækkun frá ársbyrjun til ársloka 1986. Þá hækkun sagði Indriði í lang flestum tilvikum 30,8% hjá þeim er taka laun eftir þessari nýju kjaradóms- ákvörðun. Samsvarandi tölur annar- ra eru: 21,3% hjá BSRB, 28,5% hjá BHMR og 34,5% hjá BK að meðal- tali. Undantekningarnar frá framan- greindum tölum hvað varðar æðstu embættismennina sagði Indriði þær, að dómarar hafi nú allir verið færðir í sama flokk og einnig fengið flokka- hækkanir - enda áður verið í lægsta flokknum. Hjá þeim verði hækkun milli ára tæplega 33%, en hækkun frá ársbyrjun til ársloka 35,3 til 44,8%. Þá haft og tvö stöðuheiti, verðlagsstjóri og tollgæslustjóri, ver- ið hækkuð um flokka og fái 39,9% hækkun frá ársbyrjun til ársloka. Þróun launa opinberra starfs- manna milli áranna 1985 og 1986 kemur fram í fjárlagafrumvarpinu fyrir 1987, og eru sögð hækka mis- jafnlega á yfirstandandi ári. Þess gæti m.a. að BSRB hafi fengið launahækkanir fyrr á árinu en BHMR. Þá hafi einstakarstarfsstétt- ir hjá ríkinu fengið mismikla hækkun. Þannig hækki laun félaga í BK um 35% frá ársbyrjun til ársloka og lögreglumanna um 37,8%. Kjara- dómur hafi í júlí s.l. hækkað laun félaga BHMR almennt um 6-12%, sem metið er 9% að meðaltali í framangreindum tölum, og auk þess 3% áfangahækkun í desember n.k. í fjárlagafrumvarpinu segir að samanburður á þróun launa opin- berra starfsmanna og þeirra er starfa á almennum vinnumarkaði liggi ekki ljós fyrir. Að því er næst verði komist hækki kauptaxtar almennt um 20-21% frá upphafi til loka árs, sem verði 24-25% að viðbættu áætl- uðu 3-4% launaskriði. Út frá þckkt- Hallgríms' kirkja vígð á sunnudag Hailgrímskirkja verður vígð á sunnudag eftir að hafa verið í byggingu í 40 ár og er nú veríð að leggja síðustu hönd á kirkjuna fyrír vígsluna. Þessi mynd var tekin í gær þegar veríð var að ganga frá flísalagningu á kirkju- gólfiltu. Tímamynd: Fétur Umferðarátak hafið: Framsókn Vestfjöröum: Skorað á Gunnlaug Finnsson „í kjölfar ákvörðunar Stein- gríms Hermannssonar forsætis- ráðherra umað bjóða sig fram í Reykjaneskjördæmi við næstu Alþingiskosningar færir fundur í Framsóknarfélagi Önfirðinga Steingrími Hermannssyni þakkir fyrir vel unnin störf í þágu Vest- fjarðakjördæmis á umliðnum árum. Jafnframt skorar fundur- inn á Gunnlaug Finnsson fyrrver- andi alþingismann að gefa kost á sér við skoðanakönnun flokksins sem fram á að fara á næstunni.“ Þessa samþvkkt gerðu framsókn- armenn í Önundarfirði einróma á fundi í félaginu í fyrrakvöld. Tfminn hafði samband við Gunnlaug Finnsson kaupfélags- stjóra á Flateyri og fyrrverandi alþingismann og innti hann eftir því hvort hann hygðist taka þess- ari áskorun.„Ég er nú ekki búinn að gefa svar við þessari áskorun ennþá, en ég veit að einhver hreyfing er fyrir þessu. Hins veg- ar vil ég vita betur hversu sterk þessi hreyfing er áður en ég segi já eða nei,“ sagði Gunnlaugur. Gunnlaugur sagði jafnframt að hann hefði ekki hugsað sér að fara út í harðan slag, en ef í Ijós kæmi að nokkuð almennur stuðn- ingur væri fyrir þessu kæmi vel til greina að hann slægi til. Hann sagði að sú ákvörðun Steingríms að fara fram á Reykjanesi hefði breytt mjög stöðunni í framboðs- málum fíokksins á Vestfjörðum. Ólafur Þ. Þórðarson annar þingmaður Framsóknarflokksins á Vestfjörðum sagði í blaðavið- tali nýlega að ekki væri víst að hann hefði hug á að fara aftur fram f kjördætninu, og enn mun vera óljóst hvað hann hyggst fyrir. -BG Omerktir bílar gera viðvart - um þá ökumenn sem ekki virða umferðarljós, stöðvunarskyldu og notkun stefnuljósa Umferðarráð og lögregla um allt iand mun á næstu dögum efna til sérstaks umferðarátaks í samráði við dómsmálaráðuneytið. Átakið beinist einkum að því að auka virð-1 ingu ökuinanna fyrir uniferð á ís-. landi og ein leið til þess er að virða umferðarljós, stöðvunarskyldu og. stefnuljósanotkun. Átakinu verður m.a. fylgt eftir með því að á gatnamótum verður komið fyrir ómerktum bifreiðum sem gera lögreglubíl í'nágrenni við- vart um þá bíla sem aka yfir á rauðu ljósi. Eftirlit með notkun stefnuljósa og stöðvunarskyldu verður háttað á sama veg. Umferðarráð kynnti átakið áj blaðamannafundi í gær ásamt yfir- Iögregluþjónum Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar og Kefla- víkur. Þar kom fram að ástæða þess að átaki þessu er komið á er vaxandi árátta margra ökumanna að aka yfir gatnamót á rauðu ljósi, að þeir virða ekki stöðvunarskyldu og nota stefnuljós illa eða ekki. Þar sem stöðvunarskyldu er komið á krefjast aðstæður þess og stórháskalegt er að virða hana ekki. Það sama er að segja um akstur yfir gatnamót á rauðu ljósi.„Slíkt háttalag sæmir ekki hugsandi mönnum og er hrein ' vanvirða við samferðamenn," sagði Óli H. Þórðarson framkvæmdastjóri Umferðarráðs. Yfirlögregluþjónar tóku undir orð Óla og sögðu að fólk á íslandi yrði að fara að gera sér grein fyrir því að það gengur ekki að ætla sér að komast á fimm mínútum þá vegalengd sem þarfnast tíu mín- útna. Óskar Ólason yfirlögregluþjónn í Reykjavík upplýsti að það sem af er árs hefðu um 10.000 ökumenn í Reykjavík verið kærðir. Algengustu orsakir árekstra eru að stöðvunar- skylda og biðskylda eru ekki virt,; almennur umferðarréttur ekki held- ur og einnig eru aftanákeyrslur al- geng orsök. í skoðanakönnun sem Hagvangur gerði fyrir Umferðarráð nú nýverið og náði til 1000 manna á aldrinum 18-67 ára á öllu landinu, kom fram að hugarfarsbreyting hefur átt sér stað varðandi bílbeltanotkun á Is- landi. Helmingur þeirra sem spurðir voru notar bílbelti að jafnaði og er það 8% aukning frá sams konar könnun Hagvangs frá árinu 1984. Konur eru duglegri að nota bílbelti en karlar eða 55,9% kvenna á móti 41,1% karla. Höfuðborgarbúar voru einnig iðnari við notkun bílbelta en annað fólk á landinu. Athygli vekur að þeir sem vilja að sektarákvæðum sé beitt við þá sem ekki nota bílbelti eru fleiri en þeir sem nota bílbeltin sjálfir að jafnaði, eða 52% spurðra. Þar eru konur líka ákveðnari en karlar. Eftir. því sem fólk er yngra er það meira fylgjandi notkun bílbelta og sektum ef þau eru ekki notuð. Noktun barnabtl- stóla hefur einnig aukist um meira en helming frá því sem var í könnun- inni 1984. í könnuninni var fólk beðið að nefna þá þætti sem það teldi stuðla að auknu umferðaröryggi. Flestir nefndu aukna virðingu fyrir umferð- arreglum eða 18,6%. Notkun bíl- belta var nefnd í 16,3% svaranna en einnig töldu 15,2% að minni hraði í umferðinni stuðlaði að auknu ör- yggi. Annað sem nefnt var, var aukin löggæsla, fræðsla og áróður. -ABS

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.