Tíminn - 11.01.1987, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Sunnudagur 11. janúar 1987 •
G varð 75 ára
þann 19. september sl. og þá
fannst mér kominn tími til að
fara að hætta, segir Andrés Finn-
bogason, skipstjóri, sem í 15 ár
hefur verið aðalstarfsmaður
Loönunefndar, eða allt frá stofn-
un hennar sem var um áramót
1973-74. Petta hefur verið mikið
og erilsamt starf, eins og þeir
mörgu skipstjórar sem samskipti
hafa átt við Andrés á þessum
árum geta vottað og Andrés hef-
ur rækt það af samviskusemi og
dugnaði, sem honum var launað
með fagurri gjöf frá loðnuskip-
stjórum nú er hann lét af
störfum. í tilefni af þessum tíma-
mótum áttum við viðtal við
Andrés, sem vissulega kann frá
mörgu að segja, þar sem hann
hefur hrærst í miðri hringiðu
sjómennsku og útgerðar allt frá
16 ára aldri.
„Já, ég var ekki nema sextán
ára þegar ég fyrst gerðist for-
maður, en það var á mínum
fyrsta bát, Svani, tveggja og
hálfs tonna trillu á Bíldudal.
Manni finnst eftir á að hyggja að
maður hafi axlað ansi mikla
ábyrgð með þessu, strákhvolpur-
inn, að vera í formennsku á báti
með fjölskyldumönnum innan
borðs. En allt gekk þetta þó á -
fallaiaust sem betur fór. Ekki
urðu eftirtekjurnar þó alltaf þær
sem maður vonaði og ég man að
árið 1932 áttum við hundrað tonn
af verkuðum saltfiski, sem ætla
mætti að hefði ekki verið svo lít-
Þennan kjörgrip, loðnu úr
skírasilfri, færðu skipstjórar
Andrési, þegar hann lét af
störfum.
Tímamynd Sverrir
Rætt við Andrés
Finnbogason
sem hættir nú hjá
Loðnunefnd eftir
fimmtán ára feril