Tíminn - 11.01.1987, Blaðsíða 10

Tíminn - 11.01.1987, Blaðsíða 10
10 Tíminn Sunnudagur 11.janúar1987 Á síðasta ári tókst tveimur norskum strákum að svíkja út jafnvirði rúmlega 20 milljóna íslenskra króna úr norskum bönkum og af krítar- kortafyrirtækjum. Þegar upp komst þóttu svik þessi með hreinum ólíkindum. Hér fer frásögn annars höfuðpaursins af þessu ótrúlega ævintýri þeirra félaga, frásögn sem fyrst og fremst sýnir hve ótrúlega auðvelt er að svindla ef þú bara kannt að brosa rétt og koma vel fyrir... r S apríl 1986 voru tveir flunku- nýir BMW bílar á leiðinni til Gautaborgar. Geir Langseth keyrði annan, svartan BMW 325i, en félagi hans hvítan 320i. Þeir félagar töluðu saman í bíla- símann og höfðu meðferðis tæp- ar 700 þús. kr. - peninga sem tveir elskulegir bankar í Osló höfðu útvegað síðdegis á föstu- dag. Nú voru þeir félagar á leið til Gautaborgar að njóta lífsins. Þeir höfðu tekið ákvörðun: Nú skyldu ekki vera takmörk fyrir neinu. Þetta var upphafið að ævintýrinu sem gengið hefur undir nafninu „Stóraslemma 1986“ í Noregi. Geir situr í íbúðinni sinni við Majorstuen í Osló. Eins og er er hann frjáls maður en dómurinn fellur á nýja árinu. Hann ætlar að taka því sem að höndum ber - tveggja til þriggja ára fangelsi kannski. Hann segir frá vegna þess að hann langar til þess: Það er erfitt að geyma svona ótrúlegt ævintýri með sjálfum sér - nú þegar því er lokið. Geir er aðeins 24 ára og væri orðinn rafvirki ef hann hefði farið vcnjulegar leiðir. En nú verður hann að koma skikk á sín mál og það getur tekið nokkur ár. Byrjunin var einföld. Hann starfaði hjá fjármögn- unarfyrirtæki sem einkum lánaði til bílaviðskipta. Þetta var ágætt starf sem vinir hans kunnu að meta. Geir sá nefnilega um að útvega þeim lán, 500-900 þús. á mann. Hann vissi ósköp vel að vinirnir gátu ekki staðið í skilum - en það var jú ekki hans mál. Sjálfur fékk hann lánaðar 1200 þús. kr. og keypti sér Mercedes Bens 190. Enginn þeirra félaga borgaði af lánun- um, ekki Geir heldur, og þarf- irnar jukust sífellt og hugmynd- irnar urðu villtari. |_| ■ ANN seldi Bensinn með dúndrandi tapi á 400 þús. og keypti sér Chevy og tókst að fá lánaðar 500 þús. í Den Norske Creditbank sem er stærsti banki Noregs, en þar hafði hann haft viðskipti í nokkurn tíma. Þar með var allt til reiðu. Geir og einn félaga hans skelltu sér til Kanarí þar sem þeir urðu brátt þekktir undir nafninu „Les grand noruega loco banditos" - klikkuðu stórþjófarnir frá Nor- egi. Þeir leigðu sér bát í heila viku sem kostaði 8 þús. á dag. Á hótelinu var ekki sparað og kampavín var eins og hver annar svaladrykkur. Þeir félagarnir urðu brúnir og hraustlegir - ungir menn á leiðinni að takast á við lífið. - En hvað kostaði þessi hálfi mánuður? „Rúmlega 500 þús.“ segir Geir og lækkaði í stereogræjun- um með fjarstýringunni. Hann segir frá í rólegheitunum og sýnir myndir frá Kanari', en hann hefur reyndar fæstar þeirra því lögreglan tók þær - þær verða notaðar sem sönnunar- gögn í réttinum. ^^^FTUR til Noregs þar sem ljúfa lífinu er lifað. En það er vetur og kalt og Geir langar í sumar og sól. Aftur eru það peningar frá Den Norske Credit- bank og hann fer til Kanarí 19. mars. Til baka eftir viku og aftur er búið að eyða um 200 þús. „Loco bandito" kemur heim brúnn og sællegur. Á veitingastaðnum þar sem hann er fastagestur hittir hann annan svindlara, aðeins 22 ára, þeir finna hver annan. Þeir hafa svipaða sýn í fjármálaheiminum og sömu sýn á lífið - því skal lifað! ■ ^Að var haldið til á fínum hótelum og fæðið í fínna lagi ásamt kampavíni og freyðiböð- um. M.a. var rússneskur kavíar mikilvægur hluti fæðisins, þó svo að Geir væri eiginlega aldrei hrifinn af honum. „Ég varð leiður á Chevanum og seldi hann, en þá gerðist það stórkostlega. Einn félaga minna hafði misst ökuskírteinið en hafði bráðabirgðaleyfi. Ég fékk hann til að skrá nýjan BMW fyrir mig á sitt nafn. Sjálfur hafði ég ekki ökuskírteini og varð því að fá lánað leyfisbréfið hans. Með það fór ég til bifreiða- eftirlitsins. Ég var auðvitað brúnn og sællegur, því máttu trúa. Ég segist verða að fá , ökuskírteinið mitt í hvelli. Fyrst segir stelpan í afgreiðslunni að það sé ekki hægt, en þegar ég er búinn að tala við hana smástund er það skyndilega í lagi. Ég fer og læt taka af mér passamyndir og aftur til baka. Að fimm mínútum liðnum er ég kominn með ökuskírteini með mynd af mér en öðru nafni upp á vasann. Þetta er auðvitað algert rugl en það opnast möguleikar fyrir að láta nýja draumóra rætast." Hann er nú ákveðnari í tali. Kannski saknar hann spennunn- ar. Hann segir nei, en um leið jánkar hann líka. „Það var jú helvíti gaman...“

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.