Tíminn - 11.01.1987, Qupperneq 8
8 Tíminii
Sunnudagur 11.janúar1987
Sunnudagur 11.janúar1987
Tíminn 9
„Alltaf dreymt um að
vinna með Meryl“
Heimili Jack Nicholsons í
Hollywood stendur á hæð fyrir
ofan autt gil - nokkuð sem er
heldur óvenjulegt í þessu þétt-
býlu hæðum þar sem hver er
ofan í öðrum. Þrátt fyrir hlið
og að hægt sé að fylgjast með
gestum í gegnum myndavélar
lítur heimilið ekki út eins og
virki. Innan dyra er talsvert af
málverkum á veggjum, m.a.
eftir Matisse og Picasso. Við
borðstofuborðið eru tvö plaköt
af Jack og Mery! Streep í
hlutverkum sínum í Heart-
burn, mynd sem byggð er á sögu
Noru Ephron um stormasaint
hjónaband sitt og Carls Bern-
stein, fyrrum blaðamanns á
Washington Post.
„Ég var byrjaður að vinna
þremur dögum eftir að ég las
handritið,“ segir hann og
glottir. „Mig hafði alltaf
dreymt um að vinna með
Meryl, undir öðrum kringum-
stæðum hefði ég sennilega ekki
tekið hlutverkinu."
Honum hefur verið lýst sem
ósköp venjulegum manni þó
svo að honum hafi jafnframt
tekist að sveipa sig dálítilli
duiúð. Óskarsverðlaunin sem
hann hefur hlotið fyrir leik
sinn í Gaukshreiörinu og
Tearms Of Endearment, auk sex
útnefninga eru opinberar
viðurkenningar sem votta um
hæfileika manns sem aldrei
hefur skriðið fyrir almennings-
álitinu í Hollywood. 1985 varð
hann svo þeirrar ánægju að-
njótandi að vinkona hans í
meira en áratug, Anjelica
Huston, vann til Óskarsverð-
launa fyrir leik sinn í Prizzi’z
Honour þar sem hann lék sjálf-
ur aðalhlutverkið.
Heartburn er fertugasta
myndin sem hann leikur í og sú
þriðja undir stjórn Mike
Nichols. Þau Meryl urðu brátt
fórnarlömb sögusagna og voru
talin eiga í ástarsambandi með-
an á töku myndarinnar stóð.
Þau höfðu farið saman á tón-
leika með Bruce Springsteen.
„En við vorum fyrir allra aug-
um.“ Þegar tökur myndarinnar
hófust lýsti Mike andrúmsloft-
inu sem „rafmögnuðu af
spennu“. En Jack segir: „Mer-
yl er virkilega indæl kona og
frábær leikkona og okkur tekst
að vinna mjög vel saman. En
það er líka allt og sumt. Þar að
auki er hún hamingjusamlega
gift kona og þriggja barna
móðir.“
„ Anjelica er mín kona“
Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem nafn hans er bendlað við
kvenkynsmótleikara. Susan
Anspach á unglingspilt sem
hún heldur fram að sé sonur
hans. Til að vera sanngjarn
gagnvart honum þá hefur hann
aldrei neitað kvennafari sínu.
Og hafi hann á sér orð sem
kvennabósi þá hefur hann jú
viðurkennt að hann hafi áhuga’
á kynlífi.
En hvað með sundur - sam-
an sambandið við Anjelicu?
Hann er sagður hafa beðið
hennar margoft. Að sögn vinar
eru þau mun ástfangnari nú en
þegar þau hittust fyrst. „Hann
var bölvaður gosi - ekki einu
sinni Warren Beatty hafði við
honum - en það er búið. Núna
virðist hann ekki hafa áhuga á
neinni annarri.“
Sjálfur segir hann: „Anjelica
er mín kona og ég er viss um
að hún hefur heyrt sögurnar
um mig og Meryl þó hún hafi
ekki talað um það við mig. Þú
verður hreinlega að sætta þig
við ákveðna hluti í þessu starfi,
sem þarf þó ekki að þýða að
það geti ekki sært þig.“
Hann heldur því fram að
vinna hans taki mið af því sem
Anjelica er að gera. „Ég nenni
ekki að sitja einhvers staðar
með hendur í skauti meðan
hún er að vinna svo ég tek að
mér fleiri verkefni en ég myndi
kannski annars gera.“
Hann hefur mjög ákveðnar
skoðanir á lífinu og tilverunni.
Hins vegar er hann mjög
ánægður með þá stefnu sem líf
hans og ferill sem leikari hafa
tekið; hann tekur engu sem
gefnu og þakkar hvert happ.
Eins og hann segir; „Vinátta er
happ, ást er happ og yfirleitt
góð samskipti við annað fólk
er happ.
Ég er líka tiltölulega einföld
manngerð í starfi rnínu og
langar ekki til að falla í þær
gryfjur sem ég reyni að vara
aðra við: Að gefa sér ekki tíma
til að njóta lífsins. Ég hef verið
verulega lánsamur. Mér hefur
tekist að sjá björtu hliðar til-
verunnar þrátt fyrir allt það
neikvæða."
Myndir eins og Heartburn
eru ekki gerðar á hverjum
degi. „Þetta er saga af nútíma-
fólki, mér og þér. Ég er svo
lánsamur að vera að gera þær
myndir sem mig langar til að
gera og mér gengur vel. Ég ber
virðingu, bæði fyrir sjálfum
Hver kannast
ekki við glottið
og augnaráðið
sem hvort
tveggja er
ógleymanlegt.
Hollywood
stjarnan Jack
Nicholson er þó
laus við
sjálfumgleði
margra kollega
sinna og telur sig
lánsaman að
vegna svo vel í
starfi sem raun
ber vitni.
mér og samstarfsfólki mínu
eins og Mike og Meryl.“
Mike Nichols hefur lýst Jack
sem „manninum sem tekur að
sér hlutverk sem aðrir hafa
hafnað eða myndu hafa hafnað
og gerir úr þeim þvílík meist-
araverk að engan hefði getað
dreymt ... frábær leikari. Þú
átt erfitt með að sjá neina
tækni þetta virðist bara vera
lífið sjálft."
Jack viðurkennir að notfæra
sér lífsreynslu sína þegar hann
er að leika, en æska hans og
uppvöxtur gerðu hann snemma
lífsreyndan.
Stelpur og föt aðal
áhugamálin
Sjálfur segist hann hafa
fæðst óskilgetinn 1937 í krepp-
unni. Fjölskyldan var úr milli-
stétt en hafði misst allt sitt og
hann því dæmigert fóstureyð-
ingartilfelli miðað við aðstæður
í dag. Hann ólst upp í þeirri trú
að afi hans og amma væru
foreldrar hans en að mamma
hans, June, væri elsta systir
sín. Afi hans var drykkjumað-
ur og sjaldan heima og það var
amman sem liélt öllu gangandi.
Með hjálp June, systur hennar
Lorraine og manns hennar ól
amman hann upp.
Hann þekkti aldrei raun-
verulegan föður sinn en
Shorty, maður Lorraine var
„eins góður faðir og hver
annar“.
Allir elskuðu hann. „Ein-
faldur maður en mörg eru þau
ljóðin sem ég hef samið í huga
mér um þær háleitu tilfinningar
sem hann kveikti í brjósti mér.
Við jarðarförina hans í fyrra
hitti ég fólk, sextugar konur
sem höfðu þekkt hann frá því
í barnaskóla. Allt sem þær
gátu sagt var að hann hefði
alltaf notið lífsins. Og það var
satt, hann hafði skilning á líf-
inu og ég vona að ég hafi hann
líka.“
Jack byrjaði í skóla 1950.
Honurn gekk vel og stelpur og
föt urðu fljótlega aðal áhuga-
málin. Hann hafði gaman af
því að vera vel klæddur og var
venjulega með svartan kúlu-
hatt á höfði sem hann segist
hafa eignast eftir umferðarslys
þar sem prestur hafi verið við-
riðinn. Sextán ára hætti hann í
skóla og fór til móður sinnar í
Los Angeles. Hann fékk vinnu
í teiknimyndadeildinni hjá
MGM, sá allar frægustu stjörn-
ur tímabilsins og varð ástfang-
inn af Grace Kelly og Ritu
Moreno. Á þessum árum eign-
Vinningar í H.H.Í 1987: 9 á kr. 2.000.000; 108 á kr. 1.000.000; 216 á kr. 100.000;
2.160 á kr. 20.000; 10.071 á kr. 10.000; 122.202 á kr. 5.000; 234 aukavinningar á kr. 20.000.
Samtals 135.000 vinningar á kr. 907.200.000.
HAPPDRÆTTI
HÁSKÖLA ÍSLANDS
Vœnlegast til vinnings
ARGUS/SÍA
mjög mikið og ég leyni hana
fáu svo hún ætti að hafa ágæta
mynd af því hvernig karlmaður
er.“
Meistari þess óvænta
Hvað framtíðina varðar von-
ast hann til að fá tækifæri til að
leikstýra. Hann hefur nýlega
keypt kvikmyndaréttinn að
nokkuð umdeildri ævisögu
Napóleons sem hann vonast til
að geta framleitt og stjórnað.
„Ég hef stjórnað leikurum
sem eru að leika í kvikmynd í
fyrsta skipti og það sem ég hef
reynt að kenna þeim er að láta
innblásturinn ráða ferðinni, þá
sjaldan hann kemur yfir mann.
iÞað þarf að leggja áherslu á
það hvar frelsið í leiknum ligg-
ur til að unnt sé að ná fram
hinu óvænta."
Jack Nicholson er svo sann-
arlega meistari þess óvænta,
nokkuð sem vel kemur fram í
því hvernig þau Meryl hittust
fyrst. „Ég sat og var að hafa
mig til og leit út eins og and-
skotinn sjálfur, Þá er bankað á
dyrnar og hann segir: Hæ,
þetta er Jack Nicholson, get ég
fengið að fara á klósettið hjá
þér?“
Þýtt RR
Með Anjelicu Huston og Meryl Streep.
aðist hann einnig marga bestu
vini sína. Síðan fór hann smátt
og smátt að sækja á brattann.
Það var þó ekki fyrr en 15
árum síðar sem stóra tækifærið
kom.
Það var í Easy Rider og sá
frami kostaði hann hjónaband-
ið við leikkonuna Söndru
Knight, en þau áttu dóttur,
Jennifer. í millitíðinni höfðu
bæði mamma hans og amma
dáið.
Easy Rider vann til verð-
Iauna í Cannes og gerði Nichol-
son að stóru nafni. Hann nýtti
sér það til fullnustu. „Ég var
tilbúinn og hafði unnið hörðum
höndum að því að verða þekkt-
ur leikari og nú þegar tækifærið
kom gat ég ekki sleppt því.“
Jennifer, sem var fimm ára
þegar þau skildu, er núna 22ja.
„Hún fór í skóla á Hawai og ég
■ sá hana lítið fyrr en núna á
seinni árum. Hún er farin að
vinna við kvikmyndir og hefur
fengið tilboð um að gerast
listráðunautur við framleiðslu
Miami Vice þáttanna. Ég er
mjög stoltur af henni.“
- Hvað, en eitthvað, hefur
hann sagt dóttur sinni um
karimenn?
„Ekki mjög mikið, vegna
þess að hún umgengst mig
Jack Nicholson
Hef verið verulega lánsamur