Tíminn - 14.02.1987, Qupperneq 4
4 Tíminn
Dcsirce Nosbusch hefur alla kosti til að bera
sem eina kvikmyndastjörnu geta prýtt. Samt
hefur stjörnudýrðin látið á sér standa. Hún
kennir nafninu sínu um.
Désirée
er búin
að taka
sér nýtt
nafn,
- og bíður nú eftir
heimsfrægðinni!
Hvorki í hjónabandi sínu og Ro-
berts Taylor né í seinna hjóna-
bandi sínu með Frank Fay hefur
leikkonunni orðið að þeirrí ósk
sinni að eignast barn, - en hin
fagra leikkona Linda Evans varð
mikil vinkona hennar, þrátt fyrir
mikinn aldursmun þeirra, og hún
segir Barböru hafa veríð sér sem
besta móðir frá fyrstu kynnum
þeirra. Þær hafa nú upp á síðkast-
ið leikið töluvert saman í fram-
haldsþáttunum Dynasty og The
Colbys.
Barbara með eiginmanni sínum,
Robert Taylor, sem þótti á sínum
tíma með allra glæsilegustu kvik-
myndaleikurum sem þá þckktust
- en lítur út fyrir að vera 20 árum yngri!
Barbara Stanwyck var
áratugum saman ein af
vinsælustu kvikmynda-
leikkonum í heimi, en
það eru varla aðrir en þeir sem
komnir eru á miðjan aldur - og
þaðan af eldri - sem muna eftir
henni þegar hún var upp á sitt
besta. Þó hafa verið endursýndar í
sjónvarpi sumar af myndum
hennar, t.d. „Skakkt númer“, sem
var sýnt hér í sjónvarpinu fyrir
nokkru.
En sjónvarpsáhorfendur muna
áreiðaníega eftir Barböru sem ríka
búgarðseigandanum í Ástralíu í
framhaldsmyndaflokknum „Þyrn-
ifuglarnir".
Barbara hafði dregið sig í hlé og
hætt kvikmyndaleik að mestu, þeg-
ar stjórnendur Dynasty-þáttanna
fóru að prjóna við þá þætti með
sjónvarpsþáttum um sömu persón-
urnar í þáttum sem kallaðir voru
„The Colbys" , en þá ieituðu þeir
til Stanwyck og hún sló til og lék í
nokkrum þáttum. Seinna sagði hún
að hún nennti ekki að standa í
þessu lengur. Það væri miklu
skemmtilegra að dunda í garðinum
heima hjá sér, og hún væri nú
komin á þann aldur að hún vildi
helst ekkert gera nema það sem
hún hefði ánægju af.
Barbara er fædd 1907 í Brook-
lyn, New York og segist hafa átt
erfiða æsku, og hún hafi orðið að
spjara sig sjálf. Þess vegna hafi hún
orðið sá „töffari“ sem hún alla tíð
hefur verið.
Vinir hennar segja, að hún hafi
aðeins átt eina stóra ást í h'finu, en
það var leikarinn Robert Taylor
(f.1911 og d. 1969). Þau Barbara
og Robert voru í hjónabandi í 12
ár, 1939-’51. Sagt er að Barbara
hafi hætt lífi sínu við að reyna að
bjarga gömlum bréfum frá honum
þegar heimili hennar fyrir utan
Hollywood varð skógareldi að
bráð.
Við afhendingu Oscars-verð-
launanna 1982 fékk Barbara
Stanwyck sérstakan Oscar fyrir
„langan og glæsilegan leikferil í
kvikmyndum og sem ein af vinsæl-
ustu og fallegustu leikkonum hvíta
tjaldsins".
Barbara Stanwyck tekur við Osc-
ars-verðlaunum sínum 1982. Það
er ekki hægt að sjá að hún sé
þarna 75 ára gömul kona
BARBARA
STANWYCK
verður áttræð
á þessu ári
Désirée Nosbusch er ekki nema 21
árs gömul en er búin að vera eftir-
læti þýskra sjónvarpsáhorfenda í
mörg ár. Og reyndar hefur frægð
hennar og vinsældir náð víðar. Hún er nefni-
lega mikil málamanneskja og var ekki nema
rétt fermd þegar hún var valin sem kynnir á
söngvakeppni sjónvarpsstöðva í Evrópu vegna
málakunnáttunnar.
En nú er svo komið að Désirée nægir ekki
að hafa lagt Evrópu að fótum sér. Hún stefnir
að heimsfrægð og leiðin að henni liggur auðvit-
að gegnum Hollywood. Þangað er Désirée
komin, en heimsfrægðin lætur eitthvað á sér
standa þrátt fyrir fullkomna enskukunnáttu
Désirées.
Hún er nú komin að þeirri niðurstöðu að það
sé nafn hennar sem komi í veg fyrir að hún fái
að sýna hvað í henni býr. „Enginn Ameríkani
getur sagt Nosbusch,” segir hún. Og þá er bara
að skipta um nafn. „Becker" varð fyrir valinu.
Einhver spurði hvort hún hefði nokkuð haft
tennisleikarann Boris Becker í huga, en hann
er enn frægari en hún. „Ef einhver spyr hvort
ég sé systir hans neita ég því harðlega," segir
Désirée - nú Becker!
Laugardagur 14. febrúar 1987
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Grindavík
Heilsugæslumál
Mikil gróska hefur verið í heilsu-
gæslumálum Grindvíkinga að
undanförnu, en í byrjun þessa kjör-
tímabils var stofnuð heilsugæslu-
nefnd bæjarins. Málefni heilsugæslu
og sjúkrahúss hefur verið mjög í
umræðunni í Grindavík, eins og
reyndar annars staðar á Suðurnesj-
um.
Áætlað er að Grindavíkurbær
þurfi að greiða 3.3 milljónir af kostn-
aði við Heilsugæslu Suðurnesja og
eru raddir um að Grindvíkingar ættu
að segja skilið við Heilsugæsluna
og standa alfarið á eigin fótum. Á
núverandi fjárlögum er gert ráð fyrir
fjárveitingu til byggingar heilsu-
gæslustöðvar í Grindavík. Mál þetta
er þó enn á umræðustigi, en Heilsu-
gæslunefnd vinnur af fullum krafti
að málinu og fór m.a. í skoðunarferð
sl. haust. Þá voru skoðaðar fjórar
heilsugæslustöðvar.
Eitt af síðustu verkum bæjar-
stjórnar Grindavíkur á síðasta ári
var að ákveða að útbúa aðstöðu
fyrir sjúkraþjálfara og verður henni
líklega komið fyrir í nýja íþróttahús-
inu. Sjúkraþjálfari er þegar fluttur til
Grindavíkur og er reiknað með að
hann hefji fullt starf með vorinu.
Rýrnandi fasteigna*
tekjur bæjarsjóðs
Tekjur bæjarsjóðs af fasteignum
munu rýrna um 1.5 - 2 milljónir króna
frá því sem gert var ráð fyrir vegna
lækkunar á fasteignamati í Grinda-
vík. Fasteignamat ríkisins lækkaði
fasteignamatsstuðulinn í Grindavík
um 10%. Fasteignamatið er því nú
64.5% af fasteignamati í Reykjavík,
en var á árinu 1985 71.4% af
Reykjavíkurmatinu.
Slitlag og
gangstéttagerð
Til að vega upp á móti tekjumissi
vegna lækkaðs fasteignamat mun
bæjarstjórn leggja 25% álag á fast-
eignaskattana næstu 10 árin eins
og heimilt er samkvæmt lögum.
Sjóðurinn sem þannig myndast mun
verða nýttur til að hraða fram-
kvæmdum við lagningu bundins slit-
lags á götum Grindavíkur og til
gangstéttagerðar.
Góð innheimta
bæjarsjóðs
Innheimta bæjarsjóðs Grindavík-
ur var á síðasta ári betri en nokkru
sinni síðan 1981. Alls voru innheimt
76.17% af gjöldum síðasta kjör-
tímabils, en hefur verið mun minna
undanfarin ár. ( nokkrum tilvikum
tók bæjarsjóður hlutabréf upp í
skuldir, en þau auka ekki fram-
kvæmdagetu bæjarsjóðs nema
þeim sé komið í verð.
Undanfarin ár hefur bæjarsjóður
neyðst til að taka meiri lán en
æskilegt væri, vegna skorts á fé til
framkvæmda og greiðslna. Kemur
það til vegna lélegra skila á gjöldum
til bæjarsjóðs.
Kostnaður við
akstur fatlaðra
Bæjarráð Grindavíkur samþykKti
í haust að óska eftir því við Sam-
band Sveitarfélaga á Suðurnesjum
(SSS) að kostnaði af akstri fatlaðra
verði skipt á milli sveitarfélaganna í
hlutfalli við íbúafjölda. Á fundi SSS
þegar bréf bæjarstjóra Grindavíkur
um þetta efni var tekið fyrir, var
samþykkt að leggja til við sveitar-
stjórnir að kostnaðarskipting vegna
aksturs fatlaðra skólabarna verði
skipt í hlutfalli við íbúafjölda.
Brunavarnir
Fyrir nokkru var Slökkviliði
Grindavíkur sagt upp því húsnæði
sem það hefur haft til afnota. Á fundi
SSS fyrir nokkru var hins vegar tekið
fyrir erindi frá Brunavörnum Suður-
nesja þar sem farið er fram á að
SSS hefji viðræður við hreppsnefnd
Miðneshrepps og bæjarstjórn
Grindavíkur um fulla aðild þeirra að
Brunavörnum Suðurnesja. Stjórn
SSS samþykkti að beita sér fyrir að
viðræður milli viðkomandi aðila fari
fram.
-HM