Tíminn - 14.02.1987, Síða 7
Tíminn 7
Laugardagur 14. febrúar 1987
Fitzgerald forsætisráðherra frlands og Thatcher forsætisráðherra Bretlands undirrita ensk-írska sáttmálann. Um hann
er nú deilt í kosningabaráttunni á írlandi
írland:
Styttist í kosningar
Byggð og
atvinnulíf 1985
Ritið Byggð og atvinnulíf 1985 er komið út. í ritinu
eru upplýsingar um byggð og atvinnulíf á íslandi
einkum fyrir árið 1985. Ritið kemur að nokkru leyti
í stað ritraðarinnar Vinnumarkaðurinn sem gefin
var út fyrir árin 1980-1984. Fjallað er um stöðu
landsbyggðarinnar, birtar upplýsingar um breyt-
ingar á fólksfjölda 1970-1985, ársverk og meðal-
laun 1985 og aflaverðmæti 1979-1985 fyrir stærri
þéttbýlisstaðina og framreikningur mannfjöldans
eftir héruðum þar sem hliðsjón er tekin af innan-
landsflutningum síðustu árin.
Skýrslan Byggð og atvinnuiíf er nú til dreifingar
hjá Bóksölu stúdenta, Bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar, Bókabúð Máls og menningar og
Byggðastofnun.
Byggðastofnun
RAUDARÁRSTlG 25 • SlMI 25133» PÓSTHÖLF 5110 • 125 REYKJAVlK
- Fitzgerald forsætisráðherra og Haughey leiðtogi helsta stjórnar-
andstöðuflokksins rifust í sjónvarpi í vikunni
Dyflinni-Reuter
Norður-írland var tilefni mikilla
deilna í fyrrakvöld milli Garret
Fitzgeralds forsætisráðherra frlands
og Charles Haughey, leiðtoga
stjórnarandstöðunnar, í eina sjón-
varpseinvígi þeirra fyrir kosningarn-
ar sem fara fram á þriðjudaginn.
Stjórnmálakapparnir tveir deildu
hart um ensk-írska sáttmálann sem
Fitzgerald skrifaði undir ásamt Mar-
gréti Thatcher árið 1985.
Sáttmálinn veitir írsku stjórninni
nokkur áhrif í málefnum Norður-ír-
lands þó völd hennar séu að vísu
aðeins bundin við ráðgefandi tillög-
ur.
Haughey, sem samkvæmt skoð-
anakönnunum þykir líklegur til að
leiða flokk sinn Fianna Fail til sigurs
í kosningunum í næstu viku, gagn-
rýndi sáttmálann mjög og taldi að
með honum hefði írska stjórnin í
raun fallist á að breska stjórnin hefði
rétt til að ráða yfir hluta af landinu.
Báðir stjórnmálaforingjarnir lof-
uðu í byrjun kosningabaráttunar að
gera málefni Norður-írlands, þar
sem 2500 manns hafa látist í átökum
kaþólikka og mótmælenda síðan
árið 1969, ekki að kosningamáli og
reyndar stóð hin harða deila þeirra í
sjónvarpseinvíginu um ensk-írska
sáttmálann aðeins í sex mínútur.
Rökræður Fitzgeralds og Haug-
hey stóðu yfir í alls 80 mínútur og
slæmt efnahagsástand landsins var
aðalumræðuefnið. Haughey, sem nú
reynir að komast í forsætisráðherra-
stólinn í þriðja skiptið, sakaði Fitz-
gerald um að hafa látið erlendar
skuldir landsins tvöfaldast á síðustu
fjórum árum. Fitzgerald sagði hins-
Enska biskupakirkjan:
Sumir karlar út fái
konur að koma inn
Lundúnir - Rcuter
Einn af æðstu mönnum innan
ensku biskupakirkjunnar hótaði í
vikunni að yfirgefa söfnuð sinn yrði
svo að kirkjan samþykkti að konur
gætu fengið að vígjast til embætta
innan kirkjunnar.
Graham Leonard, biskup í
Lundúnum sem er harður andstæð-
ingur kvenpresta, sagðist frekar
myndi starfa innan grísk-kaþólsku
eða rómversk- kaþólsku kirkjunnar
heldur en með konum innan ensku
biskupakirkjunnar. Leonard er
þriðji æðsti biskupinn innan kirkju-
deildar sinnar.
Kirkjuþing ensku biskupakir-
kjunnar samþykkti í grundvallaratr-
iðum árið 1984 að leyfa vígslu kven-
presta en síðar í þessum mánuði
mun það koma saman til að ræða
nánar hvernig hægt sé að koma
þessari samþykkt í framkvæmd.
Búast má við að heitt verði í
kolunum á komandi kirkjuþingi og
hefur hinn 65 ára gamli Leonard sagt
að hann hafi átján þúsund fylgis-
menn á bak við sig sem allir myndu
hugsa sig tvisvar um, yrði samþykkt
að leyfa konum að gegna embætti
prests.
Fjölmargar álitsgerðir hafa verið
gefnar út um kvenprestavígsluna
síðan hún var samþykkt árið 1984 og
einnig hafa farið fram miklar umræð-
ur innan kirkjunnar um málið.
Embættismenn hennar telja að það
verði í fyrsta lagi árið 1990 sem
konur fái að vígjast til prests.
Sovéska fréttastofan Tass:
Fólk alltof duglítið
Moskva-Rcutcr
Fólksfjölgun í Sovétríkjunum er
of hæg þrátt fyrir að landsmönnum
hefði fjölgað um 2,9 milljónir á
síðasta ári og fólksfjöldinn hefði
verið 281,7 milljónir þann 1. janúar.
Það var sovéska fréttastofan Tass
sem skýrði frá þessu viðhorfi í gær.
Tass hafði eftir forráðamönnum
hagstofu þeirra Sovétmanna að þrátt
fyrir árlega fjölgun upp á 0,9% að
meðaltali frá árinu 1970 til ársins
1985 væri fjölgunin ekki nóg. Frétta-
stofan bætti við að nú væri unnið að
því að auka aðstoð í ýmiskonar
formi til fjölskyldna í landinu.
Fólksfjölgunin í Sovétríkjunum
hefur verið ansi ójöfn á undanförn-
um árum, mest hefur fjölgunin verið
í Mið-Asíulýðveldunum en slavn-
eskum íbúum fjölgar lítið og hafa
stjórnvöld af því áhyggjur því valda-
stöður í landinu falla vanalega í
hendur þeim.
vegar að Fianna Fail flokkur Haug-
heys hefði þrefaldað ríkisútgjöldin
sfðustu fimm árin sem hann var við
völd.
í gær virtist sem Fitzgerald hefði
haft betur í sjónvarpseinvíginu.
Samkvæmt niðurstöðum skoðana-
könnunar sem birt var í írska blaðinu
Independent hafa vinsældir Fianna
Fail minnkað um 2% og farið niður
í 46%. Flokkur Fitzgerald, Fine
Gael, vann hinsvegar á og studdu
25% aðspurðra hann. Næstir í röð-
inni voru svo framfarasinnaðir dem-
ókratar með 16% fylgi. Sá flokkur
gæti átt eftir að halda um lykilinn í
komandi stjórnarmyndunarviðræð-
um að afloknum kosningunum.
R
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVIK:. 91-31815/686915
AKUREYRI:.... 96-21715/23515
BORGARNES:......... 93-7618
BLÖNDUÓS:..... 95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR: . 95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:...... 96-71489
HÚSAVÍK:.... 96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: ...... 97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: . 97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: .. 97-8303
interRent
tíIHIÍfl
Jámhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk.
I Pósthólf 10180
Notaðar búvélar
URSUS C 1004 100 ha. 4WD árg. ’82
MF 550 47 ha. árg. 77
FORD 3000 67 ha. árg. ’67
URSUS 7362 65 ha. árg. ’82
URSUS 360 60 ha. árg. 78
URSUS 385 85 ha. árg. 79
URSUS 385 85 ha. 4WD. árg. ’81
IMT 577 78 ha. 4WD. árg. ’85
IH 574 70 ha. m/ámoksturst. árg. 72
NEW HOLLAND 378 heybindivél árg. ’82
DUKS baggafærib. 15 m. m/rafmótor ’86
WELGER heyhl. vagn 28 rúmm. ’82
HEUMA múgavél 6 hjóla, dragt. ’82
SANTINI heyhl.vagn 2ja öxla,
30 rúmm. ’83
Gott verð - Góð greiðslukjör
eiaborg Bútækni hf. Sími 686655/686680
St. Jósefsspítali
Landakoti
Fóstrur
Dagheimiliö Brekkukot auglýsir eftir fóstru hálfan
daginn f.h. Upplýsingar veittar í síma 19600/250
milli kl. 9.00 og 15.00 alla virka daga.
Reykjavík 12. febrúar 1987
Laus staða
Laus er til umsóknar við Kennaraháskóla íslands staða dósents í
uppeldisgreinum. Meginverkefni væntanlegs dósents er kennsla og
rannsóknir á sviði sérkennslufræða. Gert er ráð fyrir að ráðið verði (
stöðuna frá 1. ágúst 1987.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda,
rannsóknir og ritsmíðar, svo og námsferil, oc 1 ulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavik, fyrir 12. mars
nk.
Menntamálaráðuneytið 12.*- .r 1987