Tíminn - 14.02.1987, Qupperneq 11

Tíminn - 14.02.1987, Qupperneq 11
Laugardagur 14. febrúar 1987 Tíminn 11 ÍÞRÓTTIR Landsleikur í handknattleik U-18 ára: Ísland-V-Þýskaland: Afar auðveldur leikur - hjá íslendingum er Þjóðverjar voru lagðir í Firðinum í gærkvöldi íslensku piltarnir í landsliðinu í handknattleik 18 ára og yngri áttu ekki í erfiðleikum með kollega sína frá V-Þýskalandi er þeir áttust við í handknattleikslandsleik í Hafnar- firði í gærkvöldi. íslensku piltarnir sigruðu leikinn auðveldlega 25-20 eftir að hafa komist í 21-11 í upphafi síðari hálfleiks. Þessi leikur var leikur kattarins að músinni þó ekki virtust Þjóðverjarn- ir árennilegir í upphafi leiksins og sérstaklega ekki fyrir hann. Þeir voru að jafnaði stærri en okkar leikmenn og sérstaka athygli vakti leikmaður nr. 8, Volker Zerbe að nafni. Hann er svo stór að Héðinn Gilsson varð að líta upp til hans til að heilsa honum. Zerbe var þó aðeins langur en enginn handknatt- leiksmaður. Þar hafði þó Héðinn vinninginn. íslendingarnir spiluðu handknattleik sem byggði á sam- vinnu á meðan ekkert gekk hjá stórum Þjóðverjunum. Til að byrja með voru bæði liðin nokkuð taugaóstyrk og staðan var 3-3 eftir stutta stund. Þá hrukku íslendingarnir í gang með frábærri markvörslu Bergsveins Bergsveins- sonar úr FH og góðum mörkum jafnt úr hraðaupphlaupum sem skynsamlega byggðum sóknum. Staðan breyttist í 9-4 og 13-7 í leikhléi. í síðari hálfleik voru íslensku piltarnir einráðir á vellinum til að byrja með og þegar hálfleikurinn var hálfnaður var staðan orðin 21-11 og leikurinn úti. Geir Hallsteinsson lét þá aðalleikmenn íslenska liðsins hvíla sig og leyfði öllum vara- mönnunum að spreyta sig. Leikur- inn riðlaðist nokkuð við þetta en Iþróttaviðburðir helgarinnar Judo Sveitakeppni Judosambands- ins er á dagskrá í dag og hefst í Kennaraháskólanum kl. 10.00. Sund Unglingamót KR í sundi hefst í Sundhöll Reykjavíkur á morgun og því lýkur á mánudagskvöld. Þetta er opið mót. Skíöi Einar Ólafsson keppir í 15 km göngu á Heimsmeistaramótinu í Oberstdorf á morgun. Keppt verður í alpagreinum unglinga 13-14 ára á Siglufirði í dag og á morgun. sigurinn var þó aldrei í hættu. Bergsveinn Bergsveinsson mark- vörður átti frábæran leik og varði ein 16-17 skot þar af eitt víti. Þá vakti athygli snjall og stuttur hornamaður úr Aftureldingu, Sigurður Sveins- son. Hann skoraði 6 mörk í leiknum og flest þeirra á afar skemmtilegan hátt. „Reyndu“ leikmennirnir Árni Friðleifsson, Héðinn Gilsson og Konráð Ólafsson stóðu sig allir vel og Þorsteinn Guðjónsson úr KR spilaði vörnina mjög vel. Sterkur og útsjónsamur leikmaður. Hjá Þjóðverjunum var fátt um fína drætti. Þorsteinn stoppaði ris- ann Zerbe algjörlega og aðrir kom- ust lítt áleiðis gegn hreyfanlegri vörn íslendinganna. Vörnin var spiluð framarlega og Þjóðverjar áttu ekkert línuspil. Konráð Ólafsson skoraði mest íslendinganna eða 8 mörk (3) en Sigurður gerði 6 og Árni og Héðinn 3 hvor. Hjá Þjóðverjum gerði horna- maðurinn Brandes 4 mörk. Liðin eigast aftur við í dag kl. 3 í Digranesi og er ástæða til að hvetja alla til að fylgjast með þessum skemmtilegu leikmönnum. Héðinn Gilsson stóð fyrir sínu í leiknum þó hér hafi honum skrikað fótur gegn hávaxinni vörn Þjóðverja. Tímamynd Pjetur. Úrvalsdeildin í körfuknattleik: Njarðvíkingar unnu Sigruðu KR 72-67 eftir að KR-ingar höfðu verið yfir lengst af Njarðvíkingar sigruðu KR-inga með 72 stigum gegn 67 í leik liðanna í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í Njarðvík í gærkvöld. Leikurinn var fremur slakur. KR-ingar höfðu for- ystuna allt fram í miðjan síðari hálfleik og voru yfir í leikhléi 40-35. Guðni Guðnason lék best KR- inga og Ástþór Ingason átti einnig ágætan leik en í liði UMFN var enginn sem bar af nema hvað Valur Ingimundarson átti ágætan loka- sprett. „Sóknin var slök hjá okkur og við komum ekki með réttu hugarfari til leiks, ekki nógu ákveðnir," sagði Valur Ingimundarson eftir leikinn Stigin, UMFN: Valur 22, Jóhann- es 14, Helgi 10, Kristinn 8, fsak 6, Teitur 6, Hreiðar 4, Árni 2. KR: Guðni 24, Ástþór 16, Guðmundur 14, Þorsteinn 8, Ólafur 5. Dómarar voru Bergur Steingríms- son og Jóhann Dagur Björnsson. Körfuknattleikur - 1. deild kvenna: Sigur hjá UMFG! Handknattleikur-2. deild: Toppliðasigrar Það fór allt samkvæmt áætlun í 2. deildinni í handbolta í gærkvöld, að svo miklu leyti sem hægt er að tala um áætlun í íþróttum. ÍR vann Reyni Sand- gerði 33-23 og Fylkir vann ÍA 23-13. Leik Gróttu og UMFA var hinsvegar frestað til þriðjudags- kvölds. ÍR-ingar eru efstir í deildinni með 22 stig, Afturelding hefur 16, Þór Akureyri 16, ÍBV 14, ÍBK og HK 12, Grótta og Fylkir 9 og í A 2 stig. Grindavíkurstúlkur unnu sinn fyrsta sigur í 1. deild kvenna í körfunni í gærkvöld er þær lögðu UMFN að velli. Lokatölur urðu 33-32 eftir að staðan í hálfleik var 24-13 UMFG í hag. Stigahæstar, UMFG: Marta 7, Sigríður og Svan- hildur 6 hvor. UMFN: Sigríður 12, Þórunn 8. HM í norrænum greinum: ’ Jahrenfyrst Anne Jahren frá Noregi sigraði í 10 km skíðagöngu kvenna í Oberst- dorf í gær, Marjo Matikainen frá Finnlandi varð í 2. sæti og Brit Pettersen Noregi þriðja. Körfuknattleikur - 1. deild karla: ÞórogUMFG Þórsarar sigruðu Tindastólsmenn með 72 stigum gegn 62 í 1. deildinni í körfu á Sauðárkróki í gærkvöld en staðan í hálfleik var 35-31 Þór í hag. Mikið var um mistök í leiknum sem var fremur slakur. Atkvæðamestur Þórsara var fvar Webster en Eyjólf- ur Sverrisson gegndi því hlutverki hjá UMFT. Þá sigruðu Grindvíkingar UBK með 95 stigum gegn 72 eftir að staðan í hálfleik var 51-27 UMFG í hag. Iþróttaviðburðir helgarinnar A Handknatt- leikur Unglingalandsliðið, skipað piltum undir 18 ára aldri leikur tvo landsleiki við jafnaldra sína frá V-Þýskalandi og verða þeir báðir í Digranesi, í dag og á morgun kl. 15.00. I 1. deild kvenna verða fjórir leikir: ÍBV-Valur laugard. kl. 14.00 í Eyjum, KR-Fram sunnud. kl. 20.00 í Höllinni og Víkingur- Stjarnan kl. 21.30 á sama stað, FH-Ármann sunnud. kl. 20.00 Hafnarfirði. Einn leikur verður í 2. deild karla, ÍBV-ÍBK í Eyjum kl. 14.45 laugardag. Körfuknatt- leikur Engir leikir eru á dagskrá í dag en á niorgun, sunnudag, leika Fram og Haukar kl. 20.00 í Hagaskóla í úrvalsdeildinni en ÍBK og Valur á sama tíma í Keflavík. í 1. deild karla mætast ÍR og ÍS kl. 14.00 í Seljaskóla og ÍR og ÍBK á sama stað kl. 15.30 í 1. deild kvenna. Frjálsar _____________ íþróttir Sex fslendingar verða meðal keppenda á Norðurlandameist- aramótinu í Osló, Oddný Árna- dóttir, Svanhildur Kristjónsdótt- ir, Þórdís Gísladóttir, Hjörtur Gíslason, Kristján Gissurarson og Sigurður T. Sigurðsson. Flóahlaup Umf. Samhygðar hefst kl. 14.00 í dag við Vorsabæ í Gaulverjabæjarhrcppi og er vegalengdin 10 km. Badminton Átta unglingar 16 ára og yngri keppa fyrir fslands hönd í Evrópukeppni B-þjóða sem hald- in er í fyrsta skipti. Keppt er í Strasbourg i Frakklandi. Keppt er í fjórum riðlum á þessu 12 þjóða móti og eru íslendingar í riðli með Austurríki og Sviss. Mcistaramót TBR verður hald- ið í TBR húsinu við Gnoðarvog um helgina. Blak Einn leikur verður í hikar- keppninni í meistaraflokki karla, ÍS og Víkingur mætast í dag kl. 17.30 i Hagaskóla. Fimleikar Unglingamót í fimleikum verð- ur í fullum gangi í Laugardalshöll í dag og hefst kl. 14.00. Keppend- ur verða um 200 talsins.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.