Tíminn - 14.02.1987, Qupperneq 16

Tíminn - 14.02.1987, Qupperneq 16
Reykjanes Grindvíkingar Aöalfundur Framsóknarfélags Grindavíkur veröur haldinn í Festi (Litla sal) sunnudaginn 15. febrúar kl. 16.00. Á fundinum mæta efstu menn á lista Framsóknarflokksins í Reykjaneskjördæmi. Félagar og stuöningsmenn fjölmenniö. Stjórnin Kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins í Reykjaneskjördæmi er í Hamraborg 5, Kópa- vogi. Skrifstofan er opin alla daga frá 9.00-18.30. Kosningastjóri er Hermann Sveinbjörnsson. Simar skrifstofunnar eru 91-40225 - 40226. Verið velkomin. Félagsvist Skagfirðingafélagsins Skagfiröingafélagiö í Reykjavík heldur félagsvist í Drangey, Síðumúla 35, sunnu- daginn 15. febr. kl. 14.00. Árshátíð Húnvetningafélagsins Húnvetningafélagið í Reykjavík heldur árshátíð sína í dag, laugard. 14. febr. í Domus Medica og hefst hún með borð- haldi kl. 19.00. Til skemmtunar verður m.a.: Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur og Karlakórinn Lóuþrælar syngur undir stjórn Úlafar Pálsdóttur. Dans. Hljóm- sveit Birgis Gunnlaugssonar sér um fjörið. Félagsvist Húnvetningafélagsins Húnvetningafélagið í Reykjavík heldur félagsvist í dag, laugard. 14. febr. kl. 14.00 í félagsheimilinu Skeifunni 17. Allir velkomnir. Safnaðarfélag Ásprestakalls Aðalfundur Safnaðarfélags Áspresta- kalls verður þriðjudaginn 17. febrúar kl. 20.30 í félagsheimili kirkjunnar við Vesturbrún. Venjuleg aðalfundarstörf. Vesturland Borgnesingar - Nærsveitir Þriggja kvölda félagsvist hefst í samkomuhúsinu í Borgarnesi föstudaginn 13. febrúar kl. 20.30. Tvö seinni spilakvöldin veröa 27. febrúar og 13. mars. Veitt veröa verðlaun á hverju spilakvöldi. Síðan verða veitt glæsileg verölaun fyrir besta samanlagöa árangurinn á öllum þremur spila- kvöldunum. Allt spilaáhugafólk hjartanlega velkomið. Framsóknarfélag Borgarness. Keflavíkurkirkja Sunnudagaskóli kl. 11.00 í umsjá Málfríðar Jóhannsdóttur fóstru og Ragnars Karlssonar æskulýðsfulltrúa. Munið skólabílinn. Sóknarprestur Spilakvöld í Kársnessókn Spilakvöld verður í Kársnessókn í Kópavogi í safnaðarheimilinu Borgum mánudaginn 16. febrúar kl. 20.30. Nefndin Miðstjórnarfundur SUF Miðstjórnarfundur Sambands ungra framsóknarmanna verður hald- inn að Bifröst í Borgarfirði laugardaginn 21. febrúar nk. og hefst kl. 10. Mætum öll. SUF Listasafn ASÍ: Ýmis aðföng Dagana 14.-22. febrúar sýnir Listasafn ASÍ, Grensásvegi 16, ýmis listaverk sem safninu hafa borist á síðustu árum. Lista- safnið er opið virka daga kl. 16:00-20:00 og um helgar kl. 14:00-20:00. Psoriasis- sjúklingar Ákveðin er ferð fyrir psoriasissjúklinga 9. apríl nk. til eyjarinnar Lanzarote á heilsugæslustöðina Pan- orama. Þeir sem hafa þörf fyrir slíka ferð snúi sér til húðsjúkdómalækna og fái vottorð hjá þeim. Sendi það merkt nafni, heimilisfangi, nafnnúmeri og síma til Tryggingastofnunar ríkisins Laugavegi 114, 3. hæð. Umsóknir verða að berast fyrir 1. mars. Tryggingastofnun ríkisins Bændur athugið Vegna óvissu um verðlagningu á ull hafa Álafoss og Iðnaðardeild Sambandsins neyðst til að hætta móttöku á ull. Vonast er til að ekki líði á löngu þar til hægt verður að hefja móttöku að nýju. Álafoss Iðnaðardeiid Sambandsins Til sölu einbýlishús Til sölu stórt einbýlishús í Seljahverfi í Reykjavík. Stærð hússins er 460m2, innbyggður bílskúr, möguleikar á séríbúð og eða vinnuað- stöðu. Teikningar eru til sýnis á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir æskulýðsfulltrúi í síma 622215 INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAl Fríkirkjuvag! 3 — Simi 25800 Ráðstefna BSRB um gildi og framtíð opinberrar þjónustu Bandalag starfsmanna ríkis og bæja efnir til ráðstefnu undir heitinu „Ráð- stefna um gildi og framtíð opinberrar þjónustu". Ráðstefnanerhaldin íBorgar- túni 6, Reykjavík, á 45 ára afmæli BSRB 14. febrúar og hefst kl. 08:45. Á ráðstefnunni er einkum ætlað að fjalla um opinberan rekstur eins og hann er nú og hugsanlegar breytingar í framtíð- inni. Ennfremur um stöðu starfsmanna hins opinber, launakjör o.fl. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu BSRB. Taflfélag Reykjavíkur Febrúar-hraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur verður á morgun, sunnud. 15. febrúar kl. 20.00. Félag áhugamanna um bókmenntir Bókmenntagagnrýni f dag, laugard. 14. febr., verður fundur Félags áhugamanna um bók- menntir á þessu ári. Fundarefnið er bókmenntagagnrýni. Framsögumaður verður dr. Orn Olafsson. en auk hans munu tveir rithöfundar og tveir gagn- rýnendur ræða efnið, þau Sigurður A. Magnússon og Steinunn Sigurðardóttir annars vegar, en hins vegar Páll Vals- son og Súsanna Svavarsdóttir. Fundurinn verður haldinn í ODDA, næsta húsi við Norræna húsið og hefst kl. 14.00. Allir velkomnir. Stjórnin Kökusala Kvenfélags Laugarnessóknar Kvenfélag Laugarnessóknar vill minna á aðal-kökusölu sína í safnaðarheimil- inu sunnudaginn 15. þ.m. eftir messu kl. 15.00. Tekið á móti kökum frá kl. 10.00 f.h. sama dag. Dostoévskí-myndir íMÍR Sunnud. 15. febr. kl. 16:00 verður kvikmyndin „26 dagar í lífi Dostoévskís" sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10. Sunnud. 22. febrúar verður svo myndin „Fávitinn" sem gerð er eftir samnefndri skáldsögu höfundarins.sýnd á sama stað. Aðgangur að kvikmyndasýningum MlR er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyftr. Tónleikar í Norræna húsinu á sunnudag Bandaríski cellóleikarinn Nina G. Flyer er nú stödd hér á landi og mun halda tvenna tónleika á næstunni. Nina var búsett og starfaði hér á landi á árunum 1977-78. Pá bauðst henni sóló-cellista- staðan við Sinfóníuhljómsveitina í Jerú- salem í ísrael. Hún gegndi því starfi í sex ár, en býr nú í San Fransisco og hefur komið mjög oft fram þar að undanfömu, bæði í kammertónlist og sem einleikari. Með Ninu munu leika Guðný Guð- mundsdóttir konsertmeistari og Cather- ine Williams píanóleikari, sem starfar hjá íslensku ópemnni. Tónleikarnir verða í Norræna húsinu sunnud. 15. febr. kl. 17:00 og í Gerðubergi mánud. 16. febr. kl. 20:30. Á efnisskránni verður sónatína fyrir fiðlu og celló eftir Honegger sónata fyrir celló og pfanó eftir Shostakovich, þrjú smálög eftir Frank Bridge og tríó op. 70 nr. 1 í D-dúr eftir Beethoven. Aðgangur verður seldur við inngang- inn. Nina G. Flyer Guðný Guðmundsdóttir Catherine Williams Laugardagsganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga Frístunda- hópsins Hana nú í Kópavogi verður á morgun, laugard. 14. febrúar. Lagt af stað frá Digranesvegi 12, kl. 10.00. Mark- mið göngunnar er: Samvera, súrefni, hreyfing. Hækkandi sól. Skemmtilegur félagsskapur. Heitt molakaffi á boðstól- um. Allir velkomnir. Sunnudagsferðir F.í. Kl. 13:00 Skarðsmýrarfjall (597). Ekið að Kolviðarhóli og gengið upp Hellis- skarð og þaðan á Skarðsmýrarfjall. Ki. 13:00 Innstidalur-austur fyrír Skarðsmýrartjall /skíðaganga. Ekið aust- ur fyrir Hveradali og gengið á skíðum milli hrauns og hlíða í Innstadal. Brottför verður frá Umferðarmiðstöð- inni, austanmegin. Farmiðar við bíl (500 kr.) . Munið helgarferðina í Borgarfjörð 20.- 22. febrúar. Gist á Varmalandi. Sunnudagsferð Útivistar Sunnud. 15. febr. kl. 13.00: Hrauns- sandur - Hrólfsvík. Stórstraumsfjömferð og létt ganga austan Grindavíkur. Margt forvitnilegt að skoða. Áð við Bláa lónið á heimleið. Brottför frá BSl, bensínsölu. Farmiðar við bíl (600 kr.) frítt er fyrir böm með fullorðnum. Útivist, ferðafélag Laugardagur 14. febrúar 1987 Sovéski sendiherrann gestur MÍR Nýskipaður sendiherra Sovétríkjanna á Islandi, Igor N. Krasavin, verður sér- stakur gestur MÍR, Menningartengsla fslands og Ráðstjórnarríkjanna, á „opnu húsi“ félagsins að Vatnsstíg 10 laugard. 14. febrúar kl. 15:00. Sendiherrann ræðir þá um viðhorfin í Sovétríkjunum eftir nýafstaðinn fund miðstjórnar Kommún- istaflokksins og þróun sovéskra félags- og efnahagsmála í náinni framtíð. Mál sendi- herrans verður túlkað á íslensku og hann mun svara fyrirspurnum sem fram kunna að koma. Að venju verða kaffiveitingar á boð- stólum í „opnu húsi“ MfR og sagt verður frá félagsstarfinu framundan, m.a. fyrir- huguðum hópferðum til Sovétríkjanna á árinu. Aðgangur að Vatnsstíg 10 er öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Norræna húsið: Andy Warhol í anddyri Enn stendur yfir sýning í anddyri Norræna hússins á verkum eftir Andy Warhol „Andlitsmyndir af Ingrid Bergman“. Sýningin er opin daglega kl. 09:00-19:00, nema sunnudag kl. 12:00- 19:00 „Dönsku villingamir" í kjallara Norræna hússins f sýningarsölum í kjallara Norræna hússins stendur enn sýning dönsku listam- annanna 13, „Dönsku villinganna", sem sýna 58 verk, ntálverk og skúlptúra, sem eru unnin á árunum 1982-’86. Sýningin er opin daglega kl. 14:00-19:00 til 23. febrú- ar. „Ensemble 4“ í Norræna húsinu Á morgun, laugard. 14. febrúar kl. 16:00 heldur danska kammersveitin „Ens- emble 4“ tónleika í Norræna húsinu. 1 kammersveitinni eru Inke Kesseler, píanó, Atli Sigfússon, fiðla, Finn Winsloc, fiðla og lágfiðla og Palle Christ- ensen, sem leikur á selló. Pau stofnuðu kammersveitina 1983, en öll hafa þau spilað með kammersveitum og sinfóníu- hljómsveitum um árabil, m.a. í Sinfóníu- hljómsveit S- Jótlands. Verkefnaskrá „Ensemble 4“ er fjöl- breytt: barokktónlist og nútímatónlist, kvartettar, tríó, tvíleiks- og einleiksverk og sónötur. Á tónleikunum í Norræna húsinu leika þau píanókvartett eftir Herman D. Koppel, saminn 1986, píanókvartett í g-moll eftir W.A. Mozart og píanókvar- tett eftir Johannes Brahms. Til fróðleiks má geta þess, að Atli Sigfússon er sonarsonur Sigfúsar Einars- sonar tónskálds. Aðgöngumiðar verða seldir við inn- ganginn. Ferðastyrkir Letterstedtska sjóðsins fslandsnefnd Letterstedtska sjóðsins hefur ákveðið að veita ferðastyrki á árinu 1986 til íslenskra fræði- og vísindamanna, sem ferðast vilja til Norðurlanda á árinu í rannsóknarskyni. Tekið skal fram, að ekki er um eiginlega námsferðastyrki að ræða, heldur koma þeir einir til greina, sem lokið hafa námi en hyggja á frekari rannsóknir eða þekkingarleit á sínu sviði. Umsóknir skal senda til íslandsnefndar Letterstedtska sjóðsins, c0 Þór Magnús- son, Þjóðminjasafn íslands, Pósthólf 1489, 121 Reykjavík, fyrir 15. mars 1987. Hann veitir einnig nánari upplýsingar. Opna Árdagamótið 15. febrúar Sunnudaginn 15. febrúar mun Nem- endafélag Fjölbrautaskólans við Ármúla halda opið skákmót. Tefldar verða 9 umferðir eftir Monrad-kerfi. Góð verð- laun eru í boði. Öllumer heimil þátttaka. Mótið hefst kl. 13:00 og verður teflt í sal Ármúlaskóla. Umhugsunartími er 15 mínútur á mann. Fimm verðlaun í boði (1. verðl. 8.000 kr.) Þátttökugjald er kr. 200.- 13. febrúar 1987 kl. 09.15 Kaup Sala Bandaríkjadollar.....39,330 39.450 Sterllngspund........59,652 59,8340 Kanadadollar.........29,232 29,321 Dönsk króna.......... 5,6918 5,7091 Norskkróna........... 5,6070 5,6241 Sænsk króna.......... 6,0304 6,0488 Finnsktmark.......... 8,6052 8,6314 Franskurfranki....... 6,4555 6,4752 Belgískur franki BEC .. 1,0378 1,0410 Svissneskur franki...25,4070 25,4845 Hollensk gyllini.....19,0414 19,0995 Vestur-þýskt mark....21,5065 21,5721 ítölsk líra.......... 0,03020 0,03029 Austurrískur sch..... 3,0559 3,0653 Portúg. escudo....... 0,2760 0,2768 Spánskur peseti...... 0,3048 0,3057 Japanskt yen......... 0,25547 0,25625 Irskt pund...........57,2250 57,4000 SDR þann 22.01 ......49,6087 49,7604

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.