Tíminn - 14.02.1987, Side 19
Tíminn 19
Laugardagur 14. febrúar 1987
Gladys
Knight,
Patti
LaBelle
og Dionne
Warwicke
syngja
jQj. Kl. 22.30
ív" á sunnudagskvöld
tJ sýnir Sjónvarpið
bandarískan tónlistarþátt þar
sem „soul"-söngkonurnar þrjár
Gladys Knight, Patti LaBelle og
Dionne Warwicke syngja saman
á söngskemmtun í Hollywood
ásamt kvennakór og hljómsveit.
„ Sisters in the Name of Love “
er þessi dagskrá nefnd á frum-
máhnu og má segja að þessar 3
stórstjörnur komi þarna fram
sem „systur". Þaer eiga langa
vináttu að baki, bæði í einkalífi
og á starfsvettvangi, og allar
hafa þær langan söngferil að
baki. í meira en aldarfjórðung
hafa þær sent frá sér hverja
toppsöluplötuna af annarri, það
er að segja hver í sínu lagi, því
að þetta er í fyrsta sinn sem þær
koma fram saman! Þær eru súp-
erstjörnur „sour'tónlistarinnar.
Spaug-
stofan
Kl. 20.35
á mánudagskvöld
bregða áhorfendur
Sjónvarpsins sér í annað sinn í
Spaugstofuna þar sem þeir fé-
lagar Örn Árnason, Þórhallur
Sigurðsson, Sigurður Sigurjóns-
son, Randver Þorláksson og Karl
Ágúst Úlfsson bregða upp skop-
myndum úr tilverunni og koma
víða við í allra kvikinda líki.
Pétur Hjaltested hefur veg og
vanda af tónlistinni og stjórn
upptöku annast Björn Emilsson.
“Við ætlum að leggja mikinn
metnað í útvarpsdagskrána,"
segir Ágústa Ólafsdóttir, for-
maður útvarpsráðs Kvenna-
skólans. Hún er ekki óvön því
að starf a við útvarp, hefur unn-
ið við Rás 2 með skólanum
undanfarin 2 ár.
(Tímamynd GE)
Útrás á
Opnu-
dögum
Þessar vikurnar standa yfir
svokallaðar „Opnudagar" í
framhaldsskólunum og er þá
brugðið út af hversdagslegu
skólastarfi með margvíslegum
hætti. Undanfarin ár hafa sumir
skólarnir starfrækt litlar útvarps-
stöðvar í tengslum við Opnudag-
ana en í ár hafa framhalds-
skólarnir í Reykjavík sameinast
um eina stöð og sendi sem að-
setur hefur í Fjölbrautaskólan-
um í Breiðholti. Þeir hafa gefið
henni nafnið Útrás og sending-
artíðnin er FM 88.6. Útsendingar
heyrast víða í Reykjavík og Kóp-
avogi.
Næstuviku standayfir „Tjarn-
ardagar í Kvennaskólanum og
„Árdagar" í Fjölbrautaskólanum
við Ármúla og þá bera nemendur
þeirra skóla hitann og þungann
af útvarpsdagskránni. Hún
stendur yfir kl. 10-24 samfleytt
og byggist að sjálfsögðu að
mestu leyti á viðtölum og popp-
tórúist.
Kl. 20.00
á mánudagskvöld
tekur Stöð 2 upp enn
eina nýbreytni. Þá verður opin
símalína á stöðinni sem áhorf-
endur geta hringt í til að spyrja
um hitt og þetta sem þeim liggur
á hjarta. 1 sjónvarpssal situr
stjórnandi með einhvern sér við
hlið og leysa þeir úr spurningun-
um.
Línan er opin í 15 mínútur og
verður svo á sama tíma á mánu-
dags-, miðvikudags-, fimmtu-
dags- og föstudagskvöldum.
Ævi Kristjáns Fjallaskálds var
stutt og besti vinur hans var
flaskan, sem varð honum að
fjörtjóni
Kl. 13.30
á sunnudag bregður
Sigrún Björnsdóttir
upp mynd af listamanninum
Óskari Gíslasyni kvikmynda-
gerðarmanni og ljósmyndara á
Rás 1.
Óskar er meðal atkvæðamestu
brautryðjenda í íslenskri kvik-
myndagerð og eru margar
myndir hans nú orðnar merkar
heimildir um liðna tíma. Sem
dæmi má taka mynd Óskars frá
lýðveldishátíðinni 1944. í
þættinum verður rætt við Óskar
sjálfan, samstarfsmenn hans frá
mismunanditímabilum á starfs-
ferh hans, þá Ævar R. Kvaran
leikara og leikstjóra og Helga
Sveinbjörnsson ljósmyndara og
fyrrverandi samstarfsmann Ósk-
ars úr sjónvarpinu. Ennfremur
flytur Erlendur Sveinsson kvik-
myndagerðarmaður erindi um
Óskar, stöðu hans og störf í ís-
lenskri kvikmyndasögu.
Tónhstin í þættinum er eftir
Jórunni Viðar tónskáld og samin
við fyrstu leiknu kvikmyndina
sem Óskar gerði, Síðasta bæinn
í dalnum. Tónhstarflutningurinn
er af upphaflegri hljóðritun 1949.
Nú er frost
á Fróni...
Það er langt um liðið síðan Ósk-
ar Gíslason fór að taka kvik-
myndir og í þá daga voru engir
styrkir eða aðstoð af opinberri
hálfu til kvikmyndagerðar.
Mynd af
lista-
manni:
Oskar
Gíslason
KX. 20.50
á mánudagskvöld
sýnir Sjónvarpið nýja
heimildamynd um Kristján
Fjahaskáld.
Kristján var eitt ástsælasta
skáld nítjándu aldar og orti mörg
kvæði sem enn hfa á vörum fólks,
t.d. „Nú er frost á Fróni" eða
Þorraþræl. Hann lést árið 1869
aðeins 26 ára gamall eftir dapur-
lega ævi sem orðið hefur að þjóð-
sögu með tímanum.
Myndin er um æviferil Krist-
jáns og skáldskap. Litast er um
á æskuslóðum hans í Keld-
uhverfi og á Hólsfjöhum. Skóla-
vist hans í Reykjavík er lýst og
loks er komið við á Vopnafirði
þar sem ævi skáldsins lauk með
hörmulegum hætti. Talað er við
fólk, sem kann sögur afKristjáni,
auk þess sem skáldbróðir hans,
Þorsteinn frá Hamri, leggur orð í
belg. Rúnar Guðbrandsson leik-
ur Fjahaskáldið.
Ath Heimir Sveinsson samdi
og útsetti tónlist. Kristinn Sig-
mundsson syngur Þorraþræl,
Dettifoss og Tárið.
Höfundur og sögumaður er
Matthías Viðar Sæmundsson.
Laugardagur
14. febrúar
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 „Góðan dag, góðir hlustendur" Pétur Pét-
ursson sér um þáttinn. Fréttir eru sagðar kl.
8.00, þá lesin dagskrá og veðurfregnir sagðar
kl. 8.15. Að þeim loknum er lesið úr forustugrein-
um dagþlaðanna en svo heldur Pétur álram að
kynna morgunlögin.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 ( morgunmund. Páttur fyrir börn i tali og
tónum. Umsjón: Heiðdís Norðfjörð. (Frá Akur-
eyri)
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Morguntónleikar. Pianókonsert nr. 4 i c
moll op. 44 eftir Camille Saint-Saéns. Aldo
Ciccolini og Parísarhljómsveitin leika; Serge
Baudo stjórnar.
11.00 Vfslndaþátturinn Umsjón; Stefán Jökuls-
son.
11.40 Næst á dagskrá Stiklað á stóru i dagskrá
útvarps og sjónvarps um helgina og næstu viku.
Umsjón: Trausti Pór Sverrisson.
12.00 Hér og nú. Fréttir og fréttaþáttur í vikulokin
I umsjá fréttamanna útvarps.
12.45 Veðurfregnir.
12.48 Hér og nú, framhald.
13.00 Tilkynningar. Dagskrá. Tónleikar.
14.00 Sinna. Þáttur um listir og menningarmál.
Umsjón Þorgeir Ólafsson
15.00 Tónspegill. Þáttur um tónlist og tónmenntir
á líðandi stund. Umsjón: Magnús Einarsson og
Ólafur Þórðarson.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Framhaldsleikrit barna og unglinga:
„Ævintýri Múmínpabba" ettir Tove Jansson
i leikgerð eftir Camillu Thelestam. Annar þáttur.
leikstjóri: Stefán Baldursson. Leikendur: Þor-
steinn Ö. Stephensen, Þór H. Tuliníus, Þröstur
Leó Gunnarsson, Róberl Arnfinnsson, Aðal-
steinn Bergdal, Harald G. Haraldsson, Jakob
Þór Einarsson, Guðrún Þ. Stephensen, Soffía
Jakobsdóttír og Ragnheiður Arnardóttir.
17.00 Að hlusta á tónlist. 19. þáttur: Enn um
sinfóníur. Umsjón: Atti Heimir Sveinsson.
18.00 fslenskt mál Gunnlaugur Ingólfsson flylur
þáttinn.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Á tvist og bast. Jón Hjartarson rabbar við
hlustendur.
20.00 Harmoníkuþáttur. Umsjón: Sigurður Al-
fonsson.
20.30 „Ætti ég hörpu" Friðrik Hansen á Sauðár-
króki og Ijóð hans. Gunnar Stefánsson tók
saman. Lesari með honum: Hjalti Rögnvalds-
son. (Áður útvarpað í september 1984).
21.00 íslensk einsöngslög. Halldór Vilhelmsson
syngur.
21.20 A réttri hillu Umsjón: örn Ingi. (Frá Akur-
eyri)
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Mannamót. Leikiö á grammófón og litið inn
á samkomu. Kynnir: Leifur Hauksson.
24.00 Fréttir.
00.05 Miðnæturtónleikar Umsjón: Jón Örn Marin-
ósson.
01.00 Dagskráriok.
Næturútvarp á Rás 2 til kl. 03.00.
á
Laugardagur
14. febrúar
9.00 0skalög sjúklinga. Helga Þ. Stephensen
kynnir.
10.00 Morgunþáttur í umsjá Ástu R. Jó-
hannesdóttur.
12.00 Hádegisútvarp með fréttum og léttri tónlist
í umsjón Margrétar Blöndal og Bjarna Dags
Jónssonar.
13.00 Ustapopp í umsjá Gunnars Salvarssonar.
15.00 Vift rásmarkift. Þáttur um tónlist, íþróttir og
sitthvað fleira. Umsjón: Sigurður Sverrisson
ásamt íþróttafréttamönnunum Ingólfi Hannes-
syni og Samúel Emi Erlingssyni.
17.00 Savanna, Ríó og hin tríóin. Svavar Gests
rekursögu íslenskra söngflokka í tali og tónum.
18.00 Fréttir á ensku.
18.10 Hlé
20.00 Kvöldvaktin - Gunnlaugur Sigfússon.
23.00 Á næturvakt með Þorsteini G. Gunnarssyni.
03.00 Dagskrárlok.
Svæðisútvarp virka daga vikunnar
18.00-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og
nágrenni - FM 96,5 MHz.
Um að gera. Þáttur fyrir unglinga og skólafólk
um hvaðeina sem ungt fólk hefur gaman af.
Umsjón: Finnur Magnús Gunnlaugsson.
Laugardagur
14. febrúar
14.55 Enska knattspyrnan - Bein útsending.
Notthingham Forest - West Ham.
16.45 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felixson.
18.05 Spænskukennsla: Hablamos Espanol.
Fjórði þáttur. Spænskunámskeið í þrettán
Nú semja
hlustendur
sjálfir
sakamála-
þrautina
j@ Kl. 9.00
SVjrH á mánudagsmorgun
hefst að venju fjöl-
breyttur morgunpáttur á Rás 2
og er nú í umsjón Kristjáns Sig-
urjónssonar og Sigurðar Þórs
Salvarssonar.
Fastir liðir eru þar eins og
venjulega, s.s. Amsterdampistill
Jóns Ólafssonar, óskalög yngstu
hlustendanna og sakamála-
getraunin. En nú hafa orðið hálf-
gerð hlutverkaskipti í sakamála-
getrauninni. Hlustendur sem
voru orðnir kræfir að ráða þraut-
irnar nú teknir til við að semja
þærsjálfir! Gefst hér gullið tæki-
færi fyrir þá sem lagnir eru að
setja saman slíkar þrautir að
koma þeim á framfæri!
þáttum ætlað byrjendum og Spánarförum. Is-
lenskar skýringar: Guðrún Halla Túlinius.
18.30 Litli græni karlinn Sögumaður Tinna Gunn-
laugsdóttir.
18.35 Þytur í laufi Annar þáttur. Breskur brúðum-
yndaflokkur, framhald fyrri þátta um Móla mold-
vörpu, Fúsa frosk og félaga þeirra. Þýðandi
Jóhanna Þráinsdóttir.
18.55 Háskaslóðir. (Danger Bay) Nýr flokkur -
Fyrsti þáttur. Kanadískur myndaflokkur fyrir
börn og unglinga. Þættirnir eru um dýralækni við
sædýrasafnið i Vancouver og börn hans tvð á
unglingsaldri. Þau lenda í ýmsum ævintýrum
við verndun dýra í sjó og á landi ásamt
fjölskylduvini sem er flugmaður. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdótlir.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Stóra stundin okkar. Umsjón: Elísabet
Brekkan og Erla Rafnsdóttir.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Lottó.
20.35 Dalalif - Selnni hluti. fslensk gaman
mynd um æringjana Þór og Danna sem spreyta
sig nú á skepnuhirðingu og öðrum búskapar-
Laugardagur
14. febrúar
8.00-12.00 Valdis Gunnarsdóttir. Valdís leikur
tónlist úr ýmsum áttum, lítur á það sem
framundan er hér og þar um helgina og tekur á
móti gestum.
Fréttir kl. 8.00 9.00 og 10.00.
12.00-12.30 (fréttum var þetta ekki helst. Rand-
ver Þorláksson, Júlíus Brjánsson, Guðrún Þórð-
ardóttir og Saga Jónsdóttír bregða á leik.
12.30-15.00 Jón Axel á Ijúfum laugardegi. Jón
Axel I góðu stuði enda með öll uppáhaldslögin
ykkar. Aldrei dauður punktur.
Fréttir kl. 14.00.
15.00-17.00 Vinsældalisti Bylgjunnar. Helgi
Rúnar Óskarsson leikur 40 vinsælustu lög
vikunnar.
Fréttir kl. 16.00.
17.00-19.00 Ásgeir Tómasson á laugardegi.
Léttur laugardagur með Ásgeiri, öll gömlu
uppáhaldslögin á sinum stað.
Fréttlrkl. 18.00.
19.00-21.00 Rósa Guðbjartsdóttir lítur yfir atburði
siðustu daga leikur tónlist og spjallar við gesti.
21.00-23.00 Anna Þorláksdóttir i laugardags-
skapi. Anna trekkir upp fyrir kvöldið með tónlist
sem engan ætti að svíkja.
23.00-04.00 Þorsteinn Ásgeirsson nátthrafn Byl-
gjunnar heldur uppi stanslausu fjöri.
4.00- 8 00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Harald-
ur Gíslason leikur tónlist fyrir þá sem fara seint
í háttinn og hina sem fara snemma á fætur.
Laugardagur
14. febrúar
09.00 lukkukrúttin (Monsurnar). Teiknimynd.
09.30 Högni hrekkvísi og Snati snarráöi. Teikni-
mynd.
10.00 Penelópa puntudrós. Teiknimynd.
10.30 Herra T. Teiknimynd.
11.00 Hinn víðfrægi hoppfroskur frá Kalavera-
sýslu. Unglingamynd.
12.00 Hlé._____________________________________
16.00 Hitchock. í afskekktu húsi við sjávarsíðuna
gerast voveiflegir atburðir þegar þokan hvolfist
yfir. _________________________________________
17.00 20 Bleikir Skuggar (20 Shades Of Pink).
Bandarísk kvikmynd frá CBS sjónvarpsstöðinni
með Eli Wallach og Anne Jackson í aðalhlut-
verkum. Miðaldra húsamálari lætur til skarar
skríða og stofnar eigið fyrirtæki. Að ráðum
heimilislæknisins fer hann að hjóla til að slaka
á spennunni.
18.30 Myndrokk.______________________________
19.00 Teiknimynd. Furðubúarnir (Wuzzles).
19.30 Fréttir.
19.55 Undirheimar Miami (Miami Vice). Banda-
rískur sakamálaþáttur með stórsjörnunni Don
Johnson i aðalhlutverki. Lífi Tubbs hangir á
bláþræði þegar Crockett tekur nýtt ástarsam-
band fram yfir skyldustörf.____________________
20.45 Ray Charles. Snillingurinn Ray Charles
syngur og spilar af hjartans lyst og fjölmargar
stórstjörnur koma fram með honum, þ.á.m.
Stevie Wonder, Quincy Jones, Smokey Robin-
son, Glenn Campell, Joe Cocker og fleiri.
22.15 Astin er aldrei þögul (Lbve Is Never Silent).
Áhrifarík bandarísk mynd um togstreitu ungrar
konu þegar hún þarf að velja milli þess að lifa
eigin lífi eða helga líf sittheyrnarlausumforeldr-
um. Aðalhlutverk: Mare Winningham, Phyllis
Frelich.
23.50 Auglýsingastofan (Agency). Bandarísk
kvikmynd frá 1984 með Robert Mitchum, Lee
Majors, Valerine Perrine, Saul Rubinek og
Alexandra Stewart í aðalhlutverkum. Mikilsvert
auglýsingafyrirtæki er skyndilega selt utanað-
komandi aðila. Eftir að hinir nýju eigendur eru
teknir við eiga sér stað umtalsverðar breytingar,.
á örskömmum tíma og með leynd. Þrír starfs-
menn komast á snoðir um að ekki er allt með
felldu varðandi rekstur hinna nýju aðila. Leik-
stjóri er George Kaczender.
01.20 Myndrokk.
03.00 Dagskrárlok.