Tíminn - 17.03.1987, Side 2
Bjargað eftir
næturlangt volk
Ungs Reykvíkings, sem hafði
haldið í vélsleðaferð ásamt tveim-
ur kunningjum sínum, var leitað
af nær öllum björgunarsveitum af
suðvesturhorni landsins.
Mennirnir höfðu lagt upp frá
Sigöldu á föstudagskvöldið á leið
til Landmannalauga. Einn þeirra
varð viðskila við félag sitt þá
bróðurpartur leiðarinnar var að
baki og þegar hann hafði ekki
gert vart við sig á laugardags-
kvöldið voru björgunarsveitir
kvaddar til. Hann fannst heill á
húfi árla sunnudags og var hress
og brattur þrátt fyrir volk um
nóttina.
Hann hafði misst sleðann niður
um ís á Tungná og ekki tekist að
ná honum upp einn. Að sögn
lögreglunnar á Hvolsvelli hafði
verið skipulega staðið að leitinni
og lögreglan verið í sífelldu sam-
bandi við björgunarsveitir úr bíl
við Sigöldu. þj
2 Tíminn,
Húsbyqgjendur
verktakar!
Timbur er okkar fag!
Timburvinnsla KEA framleiðir:
• Límtré
• Allskonar lista
• Panel
í Byggingavörudeild fæst
nánast allt sem húsbyggjendur
og verktakar þarfnast.
Hafið samband!
Þriðjudagur 17. mars 1987
Heiðurslaunahafar sitjandi í fremri
röð en í aftari röð er stjórn
Brunabótafélags fslands
og forstjórar félagsins.
Brunabótafélag
íslands:
Sex
fengu
heiðurs-
laun
Brunabótafélag íslands hefur út-
hlutað árlegum heiðurslaunum
sínum. Jóhannes Þorkesson efna-
fræðingur í Reykjavík hlaut heið-
urslaun í 2 mánuði til að kynna sér
nýjungar á sviði mælitækni og rann-
sókna á brunasýnum þegar grunur
leikur á að um íkveikju sé að ræða.
Ketill Sigurjónsson frá Forsæti í
Villingaholtlshreppi hlaut heiðursla-
un í 2 mánuði til að ljúka smíði á 10
radda pípuorgeli, sem hann hefur
haft í smíðum og er frumsmíð á
íslandi. María Kristjánsdóttir leik-
stjóri frá Húsavík og Þórunn S.
Þorgrímsdóttir leikmyndateiknari
frá Reykavík hlutu saman heiðurs-
laun í 3 mánuði til að auðvelda þeim
að vinna handrit og undirbúnings-
starf fyrir kvikmynd um „Barna-
Arndísi". Sævar Bjarnason alþjóð-
legur skákmeistari frá Reykjavík
hlaut heiðurslaun í 2 mánuði í því
skyni að afla sér stórmeistaratitils
með þátttöku í sterkum alþjóðlegum
skákmótum. Ævar Petersen fugla-
fræðingur í Reykjavík, hlaut heið-
urslaun í þrjá mánuði í því skyni að
ljúka athugunum sínum á fugla lífi
Breiðafjarðareyja og skrásetja ör-
nefni eyjanna.
Barðaströnd:
Samein-
ing f imm
hreppa
ákveðin
-yfirgnæfandi meirihluti
fylgjandi sameiningunni
Um síðastliðna helgi fór fram
atkvæðagreiðsla meðal íbúa 5
hreppa á Barðaströnd um það hvort
sameina skyldi hreppana eða ekki.
Hrepparnir sem um ræðir eru
Geiradalshreppur, Reykhólahrepp-
ur, Gufudalshreppur, Flateyjar-
hreppur og Múlahreppur. íbúar
þessara hreppa samanlagt eru um
390 talsins.
Yfirgnæfandi meirihluti sam-
þykkti sameininguna, eða 165 af 177
sem greiddu atkvæði. 9 voru á móti
sameiningunni og þrír seðlar voru
auðir. Á kjörskrá voru 256 en þó
nokkrir eiga lögheimili í hreppunum
án þess að hafa fast aðsetur.
í Múlahreppi voru aðeins 2 á
kjörskrá en enginn hefur haft fasta
búsetu í hreppnum til nokkurra ára.
Nýja hreppnum hefur ekki verið
gefið nafn og mun það verða verk-
efni sveitarstjórnanna og fulltrúa frá
Félagsmálaráðuneytinu að taka ák-
varðanir um fjármál hreppanna, hve
margir sveitarstjórnarmenn verði í
nýja hreppnum og að gefa honum
nafn. Það er síðan háð ákvörðunar-
valdi Félagsmálaráðuneytisins hve-
nær sameiningin fer formlega fram.
„Með nýjum sveitarstjórnarlögum
hafa skoðanir manna breyst nokkuð
á sameiningu hreppanna. í nýju
lögunum er kveðið á um að sameina
skuli þá hreppa sem hafa færri íbúa
en 50 og ennfremur er óvíst með
framtíð sýslunefnda í nýju lögun-
um“, sagði Grímur Arnórsson á
Tindum, formaðursamstarfsnefndar
um sameiningu hreppanna. ABS