Tíminn - 17.03.1987, Blaðsíða 11
Tíminn 11
Þriðjudagur 17. mars 1987
llllHHmilllllllHII ÍÞRÓTTIR :'!I; .:i;i
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
KR kemst í úrslitin
- eftir öruggan sigur á Val á sunnudagskvöldið
Ástþór Ingason á fleygiferð í hraðaupphlaupi, kominn framhjá 1
Tómasi Holton og Sturlu Örlygssyni. Hann lenti mjög illa eftir að ,
hann skoraði og tognaði á ökla. Þá var ekki um annað að gera en
að veita félögunum andlegan stuðning og hlusta auk þess á lýsingu
á leik Hauka og ÍBK í útvarpinu.
KR-ingar tryggðu sér sæti í úrslita-
keppni úrvalsdeildarinnar með því
að leggja Valsmenn að velli 83-62 í
leik liðanna á sunndagskvöldið. Þeir
hefðu reyndar komist áfram þrátt
fyrir tap því ÍBK vann Hauka en
strax í upphafi leiks var ljóst að
KR-ingar ætluðu ekki að láta ÍBK
koma sér í úrslitin.
Leikurinn var strax mjög hraður
en KR-ingar virtust hafa undirtökin.
Þar munaði mest um að fráköstin
voru oftar þeirra. Munurinn jókst
jafnt og þétt fram að hálfleik og var
orðinn 19 stig, 49-30 þegar hlé var
gert. Enn bættu KR-ingar við og
komust í 30 stiga mun, 74-44
skömmu eftir miðjan síðari hálfleik.
Þá settu bæði lið varamenn sína inná
og annars mjög skemmtilegur og vel
leikinn leikur datt niður á lægra
plan. Síðustu 8 mínúturnar skoruðu
KR-ingar 9 stig en Valsmenn 15 og
lokatölur urðu sem fyrr sagði 83-62.
Bestu menn KR voru Guðni
Guðnason, Ólafur Guðmundsson og
Garðar Jóhannsson en hjá Val bar
Sturla Örlygsson af. Stig KR-inga
gerðu: Garðar 21, Guðni 20, Ólafur
17, Ástþór 9, Skúli 6, Guðmundur
og Matthías 3 hvor, Þorsteinn 2. Stig
Vals: Sturla 16, Tómas 11, Torfi 10,
Einar og Páll 8 hvor, Bárður 5,
Björn og Svali 2 hvor.
Dómarar voru Sigurður Valur
Halldórsson og Jóhann Dagur
Björnsson og dæmdu þeir alveg
þokkalega.
Tímamynd Pjetur.
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Haukar úr leik
Síðasta mínútan í viðureign
Hauka og Keflvíkinga í úrvalsdeild-
inni í körfu í Hafnarfirði um helgina
var æsispennandi. Jón Kr. Gíslason
skoraði úr einu vítaskoti, staðan þá
70-68 fyrir gestina af Suðurnesjun-
um. Reynir Kristjánsson komst í
hraðaupphlaup en Gylfi Þorkelsson
sýndi frábæra vörn og sló boltann út
af. Fjórar sekúndur eftir og enn
komast Haukar í færi, fvar Ásgríms-
son undir körfunni en tókst ekki að
skora og Haukar urðu þar með að
viðurkenna ósigur sinn og sætta sig
við að komast ekki í úrslitakeppnina
um íslandsmeistaratitilinn þetta
árið.
Haukarnir höfðu yfirleitt á bratt-
ann að sækja gegn sterkum Keflvík-
ingum, leiddu þó í hléi 31-28 en
misstu fljótt niður það forskot í
sfðari hálfleik. Þegar upp var staðið
kom svo í ljós að úrslit leiksins höfðu
enga þýðingu fyrir Hauka því KR-
ingar höfðu á sama tíma lagt Val að
velli og tryggt sér réttinn til að leika
gegn Njarðvíkingum í úrslitakeppn-
inni á kostnað Haukanna.
Guðjón Skúlason skoraði mest
fyrir Keflavík, 21 stig alls. Sigurður
Ingimundarson skoraði 14 stig, Gylfi
Þorkelsson, 12 stig og Jón Kr. 11
stig. Gylfi og bróðir hans Hreinn
sýndu að vanda snjallan leik í vörn
sem sókn. Ingólfur Haraldsson og
Hreinn skoruðu 6 stig hvor.
Pálmar Sigurðsson var að venju
stigahæstur Hauka með 23 stig. ívar
Ásgrímsson átti mjög góðan leik og
skoraði 22 stig. Ólafur Rafnsson, 9
stig, Ingimar Jónsson, 8 stig, Reynir
Kristjánsson, 4 stig og Bogi Hjálm-
týsson, 2 stig, skoruðu einnig fyrir
Hauka.
Njarðvíkingar unnu
Frá Margréti Sanders á Suðumcsjum:
Njarðvíkingar sigrðu Fram með
90 stigum gegn 75 í Ieik liðanna á
sunnudagskvöld eftir að staðan í
hálfleik var 45-35.
Framarar voru yfir í byrjun en
eftir miðjan fyrri hálfleik komust
Njarðvíkingar yfir og eftir það var
ekki spurning um hvort liðið bæri
sigur úr býtum. Leikurinn var lítt
spennandi enda skipti hann engu
máli.
Teitur Örlygsson átti stórleik í
fyrri hálfleik en aðrir Njarðvíkingar
voru fremur slakir. Hjá Fram voru
Símon Ólafsson og Auðunn Elísson
bestir.
fsak Tómasson fyrirliði UMFN
tók við deildarbikarnum, sigurlaun-
um Njarðvíkinga sem eru deildar-
meistarar.
Stig Njarðvíkinga: Teitur Örlygs-
son 31 (þar af 25 í fyrri hálfleik),
Hreiðar Hreiðarsson 15, Árni Lárus-
son 11, Helgi Rafnsson 9, ísak
Tómasson 7, Valur Ingimundarson
6, Kristinn Einarsson 5, Ellert
Magnússon 4, Hafsteinn Hilmarsson
3.
Stig Fram: Símon Ólafsson 17,
Auðunn Elísson 15, Þorvaldur
Geirsson 10, Jóhann Bjarnason 9,
Jón Júlíusson 8, Ómar Þráinsson 7,
Guðbrandur Lárusson 4, Helgi Sig-
urgeirsson 2, Örn Hauksson 2, Þor-
steinn Guðmundsson 1.
Dómarar Sigurður Valgeirsson og
Ómar Scheving.
Handknattleikur:
Þórí
1 .deild?
Frá Gylfa Krístjánssyni á Akureyri:
„Ég er bjartsýnn á að við náum að klára
þetta dæmi og komast upp í 1. deild. Við
eigum þrjá leiki eftir og þurfum þrjú stig úr
þeim til að vera öruggir" sagði Erlendur
Hermannsson þjálfari Þórs í handbolta en
liðið vann tvo fyrirhafnarlitla sigra gegn ÍA á
Akureyri um helgina. Einn af leikjunum sem
Þór á eftir er heimaleikur gegn ÍBV og nægir
Þór sigur í þeim leik til að komast upp. Einnig
gætu Þórsarar tryggt sér 1. deildarsæti um
næstu helgi ef þeir ná þremur stigum úr
útileikjum sínum gegn lR og iBK.
Þótt forföll væru í Þórsliðinu í leikjunum
gegn Akranesi var aldrei nein spuming um
hvora megin sigramir myndu lenda. Þór vann
fyrri leikinn 29-19 eftir að hafa haft yfir 12-10
í hálfleik. Markahæstir Þórsara vora Gunnar
Gunnarsson með 7 og Ingólfur Samúelsson
með 4 en hjá ÍA Engilbert Þórðarson með 5
og Pétur Bjömsson með 4.
Yfirburðir Þórs vora enn meiri í síðari
leiknum sem liðið vann 33-19 eftir 16-8 í
hálfleik. Sigurpáll Aðalsteinsson skoraði 12
mörk fyrir Þór en Lárus Heiðarsson 7 fyrir
Akranes.
Sjúkrahús
Skagfirðinga
óskar að ráða eftirtalið starfsfólk:
1. Hjúkrunarfræðinga til sumarafleysinga, einnig í
föst störf áfram.
2. Ljósmóður til sumarafleysinga og í fast starf.
3. Meinatækni til sumarafleysinga.
4. Sjúkraliða til sumarafleysinga og í störf áfram.
5. Sjúkraþjálfa til sumarafleysinga.
Einnig vantar hjúkrunarfræðinga til sumarafleys-
inga á Heilsugæslustöðina á Sauðárkróki og
Hofsósi.
Upplýsingar um laun og fleira veita fyrir sjúkrahús
Birgittas. 5270, fyrirheilsugæslu Elísabets. 5270.
Hjúkrunarforstjórar
DATSUN 280 C diesel
árg. 1980 tn söiu.
Mjög góður bíll.
Upplýsingar í síma 93-3958
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Gatnamála-
stjórans í Reykjavík óskar eftir tilboðum í viðgerðir á
steyptum gangstéttum víðs vegar í Reykjavík, áætlað
magn u.þ.b. 10.000 m2.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi
3 Reykjavík gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Tilboðin
verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 31. mars 1987
kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVlKURBORGAR
Frílcirkjuvagi 3 — Sími 25800
Framhaldsnám við
Fósturskóla íslands
Innritun stendur yfir í eins árs framhaldsdeild fyrir
fóstrur með nokkra starfsreynslu sem hyggja á
forstöðustörf og störf er varða ráðgjöf og umsjón
dagvistarheimila. Námið hefst í byrjun september
1987 og því lýkur í maí 1988.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl n.k.
Skólastjóri
TÓNUSMRSKÓU
KÓPNOGS
Aifhól&veg 11 Pósthólf 149 Slmi 410 66
Frá Tónlistarskóla
Kópavogs
Fyrstu vortónleikarnir verða
haldnir í sal skólans Hamraborg
11 3. hæð miðvikudaginn 18.
mars kl. 20.30.
Skólastjóri
ÍSLENSKA ÓPERAN
__imi
Fyrir mistök var auglýstur aðalfundur hjá Styrktar-
félagi íslensku óperunnar, sem ekki verður
haldinn. Auglýsing um aðalfund birtist innan tíðar.