Tíminn - 17.03.1987, Blaðsíða 8

Tíminn - 17.03.1987, Blaðsíða 8
8 Tíminn, Þriðjudagur 17. mars 1987 Þriðjudagur 17. mars 1987 „Flóttinn“ F angelsis vörðurinn er raunverulegur, en landslagiö sem sést eins og út um brotna múrana er bara plat, - það er málað á vegginn! Listaverkið er kallað „Flóttinn“ og er málað af 6 föngum í Reading- fangelsi í Englandi. Kvikmynda- stjörnurnar fara að huga að barneignum þegar fertugs- aldurinn nálgast U RSULA Andress -frægasta Bondstúlka allra tíma - var orðin 44 ára þegar hún eignaðist sitt fyrsta barn, soninn Dimitri, sem verður 7 ára á þessu ári. Hún segir um elskhuga, eiginmenn og börn: „Ástin getur kólnað og eiginmenn horfið á braut, en börnin svíkja mann ekki. Dimitri litli er stóra ástin í lífi mínu í dag.“ Og það voru fleiri sem fetuðu í fótspor Ursulu, því að upp á síð- kastið hefur verið eins og það væri tískufyrirbrigði hjá leikkonum um og yfir fertugt að eignast barn. Sumar höfðu kannski eignast eitt eða fleiri börn á unga aldri, en svo hafði ckki gefist tími til að standa í barneignum, og allt í einu áttuðu þær sig á að tíminn var að hlaupa frá þeim. Sumar barnlausar leikkonur sögðu í viðtölum, að það væri sín heitasta ósk að eignast barn, t.d. Linda Evans (í Dynasty), það er ekki sjaldan sem slíkum ummælum hennar í viðtölum fylgdi mynd af hinni fögru ljóshærðu stjörnu með angurvært bros og sorg í augum. En svo eru sumar af þessum óbyrjum,semsegjahreinlega: „Ég hef ekki áhuga á að eignast börn á þessum aldri“, og má þar nefna Victoriu Principal (Pamela í Dallas). Goldie Hawn eignaðist litla dótt- ur þegar hún var um fertugt. Hún hafði í fyrra hjónabandi sínu eign- ast 2 börn, en segir, að það séu margir kostir við það að vera „gömu!“ mamma, það finni hún greinilega, og hún segist njóta þess nú að gefa sér tíma með barninu, -en það hafi oft skort á tíma og ró- legheit hjá sér áður. Ursula Andress með Dimitri son sinn ársgamlan, en nú er hann orðinn 7 ára og mamman 51 og eignast því líklega ekki fleiri börn. Olivia Newton-John og maður hennar Matt Lattanzi og litla dóttirin Cloe Rose. Olivia var orðin 37 ára þegar hún giftist Matt, sem er 11 árum yngri. Barnið fæddist á fyrsta hjónabandsárinu og foreldrarnir voru í sjöunda himni. Olivia sagði nýlega, að nú þyrfti Cloe Rose endilega að eignast systkini, - og það vseri næst á dagskrá. Goldie Hawn var 41 árs þegar hún eignaðist dótturina Katie, og þó þessi sprellfjöruga gamanleikkona hafi lagt sig fram um að koma fólki til að hlæja í gegnum árin, þá hefur hún líklega aldrei skemmt sér sjálf jafnvel og þegar hún leikur við Katie. Tyne Daly, dökkhærða löggukonan í sjónvarpsþáttunum „Cagney and Lacey “ er nýlega orðin fertug. Hún á tvær dætur á unglingsárum, en nú nýlega eignaðist hún nýjadóttur, Alexandra Betris. Tyne segir, að Alex, eins og litla stelpan er kölluð, hafi ekki komið í heiminn eftir pöntun. Hún hafði samið um að leika í ákveðnum fjölda sjónvarpsþátta, og það var tekið til bragðs að „skrifa óléttuna inn í þáttinn". Hún sést hér ásamt manni sínum, blökkumanninum Georg Stanford Brown, í skrautlegum óléttukjól. ÍÞRÓTTIR lllilllllllllllillllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllillill!! ÍÞRÓTTIR Valsmenn sigruðu FH og þarmeð getur ekkert lið náð Víkingum að stigum í 1. deildinni. Hér er það Júlíus Jónasson sem gerir sig líklegan til að skora í leik Vals og FH. límamynd pjeiur íslandsmótið í handknattleik, 1. deild: Islandsmeistarar! Hæðargarðsliðið tryggði sér titilinn um helgina þótt enn séu þrjár umferðir eftir af mótinu Víkingar eru íslandsmeistarar í handknatt- leik árið 1987. Pað varð ljóst á sunnudagskvöld- ið í Laugardalshöllinni. Víkingar sigruðu þá Hauka 25-21 og FH-ingar lágu fyrir Valsmönn- um. Þó enn séu þrjár umferðir eftir af tslands- mótinu hefur hið stórgóða Víkingslið þegar varið titil sinn frá því í fyrra. Að vísu var lítill íslandsmeistarabragur á leik Víkinga gegn Haukum, þeir framkvæmdu þó það sem nauðsynlegt var gegn Haukum sem með tapinu „unnu“ sér nánast þann vafasama rétt að leika í 2. deild að ári. Fyrri hálfleikurinn var jafn, Haukarnir þó óheppnir að þeirra mesta skytta, Sigurjón Sigurðsson, meiddist snemma á hné og haltraði eftir það en Gunnar Einarsson hélt Haukunum við efnið með góðri markvörslu. Staðan 10-8 fyrir Víkinga í hléi. í síðari hálfleik héldu Víkingar forystunni og sá þá Bjarki Sigurðsson aðallega um að skora úr hominu, frábær leikmaður í sókn en þarf aðeins að bæta varnarleikinn. Aðrir leikmenn íslandsmeistaranna höfðu frekar hægt um sig, sem oft vill verða þegar langþráðu takmarki er meira og minna náð. Það er full ástæða til að hrósa Árna Indriða- syni þjálfara Víkings og leikmönnum hans fyrir góða frammistöðu í vetur. Liðið er góð blanda ungra og efnilegra leikmanna svo og þeirra sem eldri og reyndari eru. Mörkin: Víkingur: Bjarki Sigurðsson 10, Siggeir Magnússon 5, Karl Þráinsson 3, Guð- mundur Guðmundsson 2, Árni Friðleifsson 2, Hilmar Sigurgíslason 2 og Sigurður Ragnarsson 1. Haukar: Sigurjón Sigurðsson 7, Pétur Guðnason 5, Þórir Gíslason 2, Jón Hauksson 2, Ólafur Jóhannesson 2, Ingimar Haraldsson 1, Jón Örn Stefánsson 1 og Helgi Harðarson 1. íslandsmótið í borðtennis: Tómas og Ragnhildur unnu Tómas Guðjónsson KR varði íslandsmeistar- atitil sinn í meistaraflokki karla um helgina en Ragnhildur Sigurðardóttir UMSB varð Islands- meistari í meistaraflokki kvenna. Tómas sigraði nafna sinn Sölvason KR í úrslitum og tryggði sér þar með sinn 9. íslandsmeistaratitil. Ragnhildur lagði Ástu Ur- bancic Erninum að velli í úrslitaleik f kvenna- flokki. í 1. flokki karla sigraði Bjarni Kristjánsson UMFK, Elín Eva Grímsdóttir KR sigraði í 1. flokki kvenna og Elías Elíasson Stjörnunni í 2. flokki karla. 1 tvíliðaleik karla urðu þeir Tómasar Guðjónsson og Sölvason úr KR hlutskarpastir, unnu Jóhannes Hauksson og Örn Fransson úr sama félagi í úrslitaleik. Ragnhildur Sigurðardóttir og Kristín Njálsdótt- ir úr UMSB unnu Ástu Urbancic Erninum og Elísabetu Ólafsdóttur KR í tvíliðaleik kvenna og þau Ásta Urbancic Erninum og Tómas Guðjónsson KR unnu Ragnhildi Sigurðardótt- ur UMSB og Hilmar Konráðsson Víkingi í úrslitaleik í tvenndarleik. í úrslitum í einliðaleik öldunga sigraði Ragn- ar Ragnarsson Emil Pálsson og Þórður Þorvarð- arson og Jóhann Örn Sigurjónsson sigruðu Ólaf H. Ólafsson og Birki Þ. Gunnarsson í tvíliða- leik. Þeir eru allir í Erninum.. Handknattleikur, 1. deild: Öflugir Valsmenn unnu ötula FH-inga Valsmenn fengu sjaldan tíma til að taka lífinu létt er þeir mættu FH-ingum í 1. deildarkeppninni í handknattleik í Laugardalshöll á sunnudagskvöldið. Valur hafði fjög- ur mörk yfir í hálfleik, 14-10, en FH-ingar söxuðu jafnt og þétt á forskotið í síðari háfleik, tókst að jafna en urðu að lúta í lægra haldi fyrir Völsurum sem unnu með 29 mörkum gegn 27. Valsarar eru í firnagóðu formi, léku hratt og vel gegn Hafnfirðing- unum, sem með sigri hefðu enn átt möguleika á Islandsmeistaratitlin- um, og náðu fljótlega yfirhöndinni. Lítið gekk hinsvegar upp hjá FH, fjögur víti í súginn í fyrri hálfleik og annað eftir því. FH-ingar eiga stórefnilega leik- menn og mikið af þeim í þokkabót. Strákar á borð við Hálfdán Þórðar- son og Einar Hjaltason fengu að spreyta sig og stóðu sig vel og reyndar FH-ingar sem heild. Þrjú mörk frá Stefáni Halldórssyni í lok leiksins tryggðu þó Völsurum sigur- inn í lokin. Jakob Sigurðsson var bestur Valsmanna, skoraði 8 mörk og gerði aðra góða hluti. Stefán Halldórsson skoraði 7 mörk og Valdimar Gríms- son 5, nokkur þeirra með sérlega fallegum innstökkum úr horninu. Júlíus Jónasson, 4 mörk, Geir Sveinsson og Theódór Guðfinnsson, 2 mörk hvor, og Þorbjörn Guð- mundsson, 1 mark, skoruðu einnig fyrir Val. Bergur Þorgeirsson stóð sig með ágætum í markinu. FH-ingarnir ungu börðust vel þótt margt gengi þeim á móti. Héðinn Gilsson var í góðri vörslu Þorbjörns Guðmundssonar í fyrri hálfleik en færðist allur í aukana í síðari hálfleik og var þá geysihættulegur. Annars var það heildarsvipur liðsins sem var hvað mest áberandi, sá svipur gæti átt eftir að færa liðinu nokkra titla á komandi árum. Mörk FH: Héðinn Gilsson 6, Óskar Helgason 6(5), Einar Hjaltason 4, Gunnar Bein- teinsson 4, Guðjón Árnason 2, Stef- án Kristjánsson 2, Óskar Ármanns- son 1, Pétur Petersen 1 og Hálfdán Þórðarson 1. Staðan: Úrslit í 1. deild karla á íslands- mótinu í handknattleik urðu þessi 115. umferð: KA-Breiðablik............... 26-23 Fram-Stjarnan .............. 23-29 KR-Ármann................... 26-17 Víkingur-Haukar............. 25-21 Valur-FH.................... 29-27 Staðan er þá þannig þegar 3 umferðir eru eftir: Vikingur ... .. 15 13 1 367-310 27 Valur .. 15 9 2 4388-343 20 Breiðablik . . . 15 9 2 4 352-343 20 FH . 15 9 1 5 383-346 19 Stjarnan . — . 15 7 2 6 380-354 16 KA . 15 7 2 6 347-344 16 KR . 15 6 1 8 311-335 13 Fram . 14 5 0 9 333-337 10 Haukar . 15 2 2 11 312-370 6 Árxnann . . . . . 14 0 1 13 263-350 1 Körfuknattleikur - 2. deild: Ljóst hvaða lið leika í úrslitum Nú er orðið Ijóst hvaða lið það eru sem berjast um sæti í 1, deild í körfuknattleiknum. Það eru UÍA, Léttir, Skallagrímur og HSK sem urðu efst og leika um 1. deildarsætið. Liðin keppa öll gegn öllum og sigur- vegararnirfara í 1. deild næsta vetur. Bikarkeppnin í blaki, undanúrslit: Þróttur úr leik! - tapaði 2-3 fyrir KA á Akureyri Frá Gylfa Kristjunssyni á Akureyri: KA-menn verða andstæðingar ÍS í úrslitum í bikarkeppni karla í blaki. KA vann fslands- og bikar- meistara Þróttar í hörkuleik á Ak- ureyri um helgina. Söguleg úrslit fyrir KA sem hcfur verið í stöðugri sókn í allan vetur. Úrslitin í leikn- um 3-2. KA vann fyrstu hrinuna 15-8 eftir að hafa komist í 11-6. Þróttar- ar voru ekki af baki dottnir og unnu næstu tvær hrinur 15-13 og 15-10 en KA náði að jafna leikinn 2-2 með 15-4 sigri í 4. hrinunni. í úrslitahrinunni var jafnt lengst af, KA komst síðan yfir 13-10 og vann síðan 15- 12. Glæsilegur árangur hjá KA enda var vel fagnað í leikslok. Þess má geta að í lið Þróttar vantaði uppspilarann og fyrirlið- ann Leif Harðarson sem á við hnémeiðs! að stríða. Önnur úrslit í undanúrslitum urðu þau að í karlaflokki vann ÍS Fram 3-2 (10-15, 15-7, 15-10, 13- 15, 15-11) og í kvennaflokki eru það ÍS og Breiðablik sem leika til úrslita, IS vann Þrótt 3-2 (15-8, 6-15, 15-12, 11-15, 15-7) og UBK vann KA 3-1 (15-1, 15-10, 3-15, 15-2). Úrslitaleikirnir verða laugardag- inn 4. apríl í Digranesi. Tíminn 9 Enska bikarkeppnin: Tottenham-Leeds? Dregið var í undanúrslit ensku bikarkeppninnar í knattspymu í gær. Liðin drógust þannig saman: Watford-Tottenham (Leika á Villa Park í Birminghant) Coventry-Leeds (Lcika á Hillsborough í Sheffield) Leikirnir verða laugardaginn 11. apríl á hlutlausum völlum. Tottenham þykir vera sigur- stranglegasta liðið en Watford kemur til með að veita því harða keppni. Watford tapaði úrslifaleik gegn Everton 1984 en Tottenham vann bikarinn árin 1981 og 82 en síðan hcfur liðið ckki komist í úrslit. Leeds er að leika í undanúrslit- unt í 8. skipti en Coventry í fyrsta. f H ðVAHI Danniörk 1982 Gullverðlaun fsland 1982 Gullverölaun Danmörk 1985 Gullverðlaun ísland 1985 9 * Gullverðlaún Bandaríkin 1986 98 stig af 100

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.