Tíminn - 17.03.1987, Blaðsíða 6

Tíminn - 17.03.1987, Blaðsíða 6
6 Tíminn Tíminn MÁLSVARIFRJALSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjóri: Aðstoðarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason NíelsÁrni Lund OddurÓlafsson Birgir Guðmundsson Eggert Skúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 (tæknideild) og 686306 (ritstjórn). Verð í lausasölu 50.- kr. og 60.- kr. um helgar. Áskrift 500.- Tíminn 70 ára Þegar Tíminn var stofnaður fyrir 70 árum voru aldahvörf í íslenskri þjóðmálabaráttu. Deilum við Dani um landsréttindi var að ljúka og fullveldið blasti við. Eldri stjórnmálasamtök voru að leysast upp vegna skorts á ágreiningi og voru reyndar útbrunnin eftir langvarandi þras við herraþjóðina í baráttunni sem leiddi til þess að ísland varð fullvalda ríki. Innlend endurreisn blasti við og stjórnmálaflokkar voru stofnaðir, og er enn búið við það flokkakerfi, sem varð til upp úr umróti sjálfstæðisbaráttunnar. Tíminn hefur frá upphafi verið málgagn Framsóknarflokks- ins og baráttutæki til eflingar félagshyggju og samvinnu. En dagblað hefur mörgum öðrum skyldum að gegna en að túlka stefnu og störf stjórnmálamanna. Tíminn leitast við að vera áreiðanlegur fréttamiðill og koma á framfæri skoðunum af ýmsum toga og að taka þátt í þeirri umræðu sem hæst ber hverju sinni. Langur vegur er frá því að frumherjarnir höfðu ritstjórnar- aðstöðu á borðkríli við hliðina á setjaravélinni hjá Jóni Þórðarsyni, og sömdu þar og sendu skeyti sín í óvægilegri stjórnmálabaráttu þeirra ára. Tíminn hefur vaxið með öðrum umsvifum í þjóðfélaginu, tækni fleygt fram og aðrar kröfur gerðar til blaða og blaðamennsku en á þeim tíma þegar þjóðin var að fóta sig fyrstu sporin á braut sjálfstæðisins. En enn er í fullu gildi sú stefna sem mörkuð var í forystugrein fyrsta tölublaðs Tímans 17. mars 1917. „Þetta blað mun eftir föngum beitast fyrir heilbrigðri framfarastefnu í landsmálunum. Þar þarf að gæta samræmis, hvorki að hlynna um of að einum atvinnuveginum á kostnað annars, né hefja einn bæ eða eitt hérað á kostnað annarra landshluta, því að takmarkið er framför alls landsins og allrar þjóðarinn- ar.“ ísland er annað og betra land en það var fyrir 70 árum. Framfarir miklar á flestum sviðum, menntun almenn og örbirgð hefur verið útrýmt. Stéttaskipting er hverfandi og það velferðarríki sem brautryðjendurnir sáu í hillingum er orðið að veruleika. En sjálfstæðisbaráttan er viðvarandi og sama er að segja um togstreituna um skiptingu auðsins. Félagshyggja og samvinna eru hugtök sem enn eru í fullu gildi og eins sú stefna að gæta samræmis á milli atvinnuvega og landshluta. Þótt margt hafi breyst á Tíminn enn hlutverki að gegna, að vera í fararbroddi þeirra afla sem beita sér fyrir félagslegu réttlæti, einstaklingsfrelsi og jöfnuði milli atvinn- uvega og landshluta. Á þessum sviðum verður endanlegu takmarki aldrei náð og verða þeir sem aðhyllast samvinnu og félagshyggju sífellt að halda vöku sinni. Tíminn hefur fylgt þróun þjóðfélagsins og ávallt reynt að hafa áhrif á hana til hins betra. Blaðið er sífellt barn síns tíma og nú á 70 ára ferli þess stendur yfir mikið breytingaskeið. Tölvutæknin hefur verið tekin í notkun í prentsmiðju og á ritstjórn. Blaðið er auðunnara en áður og betur prentað. Brátt verður ný prentsmiðja tekin í notkun og verið er að reisa hús yfir hana og einnig alla starfsemi Tímans. Með betri tækni og aðstöðu allri er stefnt að því að gefa út enn betra blað, fjölbreyttara og læsilegra. Hraðfara fjölmiðla- bylting nær einnig til dagblaðanna og reynslan sýnir að þau standa af sér allan gauragang rafeindaútsendinga. Þau styrkjast fremur en hitt við samkeppnina. Tíminn mun því hér eftir sem hingað til leggja sitt af mörkum til margháttaðrar þj óðmálaumræðu. Dagblað væri lítils virði án lesenda. Tíminn hefur átt því láni að fagna að eiga dyggan lesendahóp og mun kappkosta að veita honum þá þjónustu sem hann á kröfu á. Nú þegar áttundi áratugurinn er að hefjast í lífshlaupi blaðsins, eru öll skilyrði fyrir hendi að efla það og bæta, og að því er stefnt. Tíminn mun hér eftir sem hingað til leggja sitt af mörkum til að gera gott land enn betra. Þriðjudagur 17. mars 1987 GARRI Jón Baldvín vill reka Jóhannas. Jóharmcsar Mikið tilstand var í Alþýðu- flokknum, þegar Jón Sigurðssoo, þjóðhagsstjóri, gaf kost á sér til þingframboðs fyrir flokkinn. Flokksformaðurinn Jón Baldvin kynnti nafna sinn sem eins konar erfðaprins, er væri réttborinn til forustunnar. Lét formaðurian reyndar að því liggja, að hann væri reiðubúinn að víkja fyrir prinsin- um, þegar hinum síðarnefnda þóknaðist að taka við. Einn Jón vill reka Jóhannes Hér er þess að geta, að Jón Baldvin hafði skorið upp herör gegn dr. Jóhannesi Nordal, seðla- bankastjóra. Hafði Jón lýst því yfir, að liann myndi reka Jóhannes, ef hann öðlaðist völd til þess. Hefir Aiþýðuflokkurinn síðan verið í upp- sveiflu, enda eru peningamálin í ólestri og óvinsældir Jóhannesar verulegar. llllllllllllllllllllllll VÍTT OG Jón Sigurðsson vW ekki reka Jóhannes. Annar Jón viH ekki reka Jéhannee Eftir að Jón Sigurðsson kom til skjalanna, kveður við annan tón. Jón ætlar ekki að „reka“ Jóhaan- es, svo sem hann greinir frá í Helgarpóstinum 11. des. sl.. í Morgunblaðinu 25/11 sór Jón Sig- urðsson af sér greiu, sem birst hafði í Alþýðublaðinu 18/11 og fjallaði um tilgangsleysi Seðla- bankans eftir samþykkt laga um vaxtafrelsi. Nokkru síðar gekk sjálfur ritstjóri Alþýðublaðsins, Arni Gunnarsson, frarn fyrir skjöldu í Morgunblaðinu og hvít- þvoði Jón Sigurðsson af annarri grein í Alþýðublaðinn, sem Stak- steinahöfundur hafði kennt Jóni. Llm svipað leyti var í Alþýðubtað- inu dregið í land með stóryrði Jóns Buldvins um brottrekstur Jóhann- esar. Hvers vegna? Hvernig verður þetta skýrt? Jón Sigurðsson er skjólstæðingur Jó- hannesar Nordals. Hann starfaði með Jóhannesi innan vébanda Jóhannes ræ&ur þvf sem hann viH, þar á me&al yfir báðum Jónunum. Efnahagsstofnunarinnar sálugu. Við slit hennar var Nordal Jóni innan handar við að koma á fót hagrannsóknadeild og síðan Þjóð- hagsstofnun 1974 með sum verk- efni frá Efnahagsstofnun og önnur frá Hagstofu. Þjóðhagsstofnun var í þeim skiiningi atvinnubótafyrir- tæki handa Jóni Sigurðssyni. Einn varnagli var þó sleginn: Stofnunin var fjármögnuð að hálfu ieyti af Seðlabankanum, þannig að Jó- hannes Nordal hefir þar bæði tögl og hagldir. Jón Sigurðsson hefir nánast verið útibússtjóri Jóhannes- ar. Svo sem áður segir, fer lítið orð af stjóm Jóhannesar á pcningamál- um landsins, en þeim mun meira af valdastreitu hans. Honum hefir oftast tekist að ráða vali viðskipta- ráðherra, sem fer með bankamál- in, þar með vali tveggja Matthíasa. Nýjasta herbragð Nordals er að senda Jón Sigurðsson inn«forustu- lið Alþýðuflokksins. Með þeim hætti hefir hann skotið Jóni Bald- vm ref fyrir rass. Hreystiyrði Jóns Baldvins um að reka seðlabanka- stjórann eru orðin að engu. Garri Tíminn í sjötíu ár Tíminn hefur nú komið út í 70 ár. Allt frá upphafi hefur hann lagt áherslu á vönduð fréttaskrif en auk þess verið opinn fyrir hvers konar umræðu sem í gangi er hverju sinni. Tíminn er og hefur verið gefinn út af Framsóknarflokknum og þar af leiðandi haldið á lofti stefnu. hans og barist fyrir málstað Fram- sóknarflokksins. Er þörf fyrir pólitískt málgagn? Þeirri spurningu hefur oft verið velt upp hvort pólitísk málgögn eigi rétt á sér og hvort þau hafi þau áhrif sem til er ætlast. Þessu er að sjálfsögðu erfitt að svara og ekki hægt að nefna nein ákveðin dæmi sem sanna slíkt. Hins vegar má spyrja á móti hvort t.d. staða Framsóknarflokksins væri sú sama ef hann hefði ekki málgagn og það sama á við um Sjálfstæðisflokkinn og Morgunblaðið og Alþýð- ubandalagið og Þjóðviljann. Nú er það svo að einhverjum finnst það ekki við hæfi að dagblöð gefi sig upp sem stuðningsafl við ákveðinn stjórnmálaflokk. Þannig forðast Dagblaðið að kenna sig við Sjálfstæðisflokkinn og heldur því mjög á lofti að það sé frjálst og óháð. Undir það skal tekið að D.V. er eflaust frjálst en óháð getur það ekki talist. Þeir sem fylgjast með skrifum þess sjá aug- ljóslega tengsl þess við hægri öflin í landinu og þar með Sjálfstæðis- flokkinn. Þetta er ekkert undarlegt þar sem að blaðinu standa ýmsir af hörðustu stuðningsmönum þess flokks. Fyrir ári síðan eða svo taldi Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins að það væri úrelt að flokkar gæfu út dagblöð og ef mig minnir rétt nefndi hann því til sönnunar uppsveiflu Alþýðu- flokksins sem varla var hægt að þakka útbreiðslu eða áróðursgildi Alþýðublaðsins. Þetta var ekki svo vitlaust ályktað en þess bar þó að gæta að þá voru ekki kosningar á næsta leiti og dagblöðin ekki í neinum kosningaklæðnaði. Þar af leiðandi fékk Jón Baldvin og hans lið heilmikla umfjöllun á síðum blaðanna enda uppákomur hans og hans manna margar og nokkuð skondnar. Nú á formaðurinn hins vegar erfiðar með að fá sinn áróður birtan í blöðum andstæðinga Al- þýðuflokksins og má sjá að við- brögðin eru þau að reynt hefur verið að blása nokkru lífi í Alþýð- ublaðið og því dreift meðal fólks hvort sem það biður um eða ekki. Vera má að hann hafi fundið þörfina á því að koma málstað sínum til skila. Framtíð Tímans og ann- arra dagblaða Á síðustu árum og þá einkum allra síðustu mánuðum hafa orðið miklar breytingar í fjölmiðlun. Nýjar útvarpsstsöðvar eru komnar af stað, sem eru með fréttatíma á klukkustundarfresti allan sólar- hringinn, önnur sjórnvarpsstöð er komin til viðbótar ríkissjónvarpinu og mikil samkeppni þeirra á milli og aragrúi er af hvers kyns tímarit- um sem berjast um hylli lesenda. Þetta er þó ekki nema byrjunin á því sem koma skal ef dæma má spádóma og fréttir þar að lútandi. Það er því ekki nema von að menn velti því fyrir sér hvort dagblöðin, sem í flestum tilvikum eru dæmd til að vera á eftir með fréttir, eigi framtíð fyrir sér. Mín skoðun er sú að svo sé. Dagblöðin þurfa vissulega að taka breytingum f takt við tímann hverju sinni en þau hafa sína sérstöðu meðal annarra fjölmiðla og sú sérstaða verður ekki frá þeim tekin. Hvað Tímann áhrærir hefur hann átt sín blómaskeið og öldu- dali. Þrátt fyrir áföll stendur hann traustum fótum og mun hér eftir sem hingað til leggja metnað sinn í að þjóna lesendum sínum sem best. nál.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.