Tíminn - 17.03.1987, Side 7

Tíminn - 17.03.1987, Side 7
Þriðjudagur 17. mars 1987 llillllllllllllli!!!llllllll fréttaskýring ijillillillllllli'lliliíiÍjlllMl^rlillllliílliliy MiííílHllllimillf..!illlilll!i!i;: ■H;illli'!!:^;.!llllllllllllll!':j:il[íllil!l!l!llllv;Jlllllll Byggðastofnun - loðdýrarækt á íslandi: Tíminn 7 Ónýtt fjárhús mættu vel verða víti til varnaðar Mikill fjármagnskostnaður getur orðið loðdýraræktinni erfitt ok segja skýrsluhöfundar MYND 6 FJÖLDI MINKA OG REFA EFTIR FÓÐURSTÖÐVASVÆÐUM Fjöldi dýra 5000 4000 3000 2000 1000 0 ■■ Minkar B Refir ŒE Fjöldi búa Fjöldi minka og refa eftir fóflurstöðvasvcöum: Myndin sýnir hvar fóður- stöflvar eru starfræktar og má lesa af henni hve mörgum loðdýrabúum hver stöð þjónar. Fjöldi dýra á svæðinu er sýndur sem hæð súlu við fóðurstöðina. bannig scst að lang flestir minkar eru í Eyjafirði, milli 4 og 5 þúsund dýr, en rcfir eru flcstir á Suðurlandi, um 3000 dýr. Sjá kafla 8. Sjö loðdýTabú á suðvcsturhomi landsins eru sýnd scm eitt fóður- stöðvarsvæði. I>ar er ekki fóðurstöð en búin sjá hvert um sitt fóður. MVND 32 Þúsund skinn HEIMSFRAMLEIOSLA BLÁREFASKINNA Heimsframleiðsla blárefaskinna: Á myndinni er sýndur fjöldi blárcfaskinna a markaði á Vcslurlöndum. MVND 35 Milljónir VERÐMÆTI HEIMSFRAMLEIÐSLU BLÁREFASKINNA Verðmrti heimsframleiðslu blárefaskinr.a: Súlumar eru fcngnar mcð því að margfalda saman magn og mcðalvcrð f\TÍr hvcrt ár á föstu vcrðlagi í árslok 1986. Þótt fjöldi blárefaskinna hafi tvöfaldast frá 1978 til 1985 var heildarverð- mæti þeirra helmingi minna síðara árið. Um 1.100 loðdýrabú verða í land- inu eftir 10 ár verði aukningin sú sama og síðustu 3-5 ár, en um 500 bú ef álíka mikið bætist við dýrastofn- inn árlega og gerðist 1985. „Líklegt er að raunveruleikinn verði ein- hversstaðar þarna á milli,“ er niður- staða starfshóps á vegum Byggða- stofnunar í skýrslu um loðdýrarækt áíslandi. Núeru loðdýrabú um200. Samkeppni um fiskúrganginn Starfshópurinn telur að það verði skortur á fjármagni ásamt arðsemi sem mestu ráði um framhaldið. Framboð á fiskúrgangi skipti einnig máli, en talið er að hann hækki í verði með vaxandi eftirspurn og samkeppni um hann. Til framleiðslu hvers refaskinns þarf 110-130 kg af fóðri, sem að mestu er fiskúrgangur, enda er fóðrið um helmingur alls rekstrarkostnaðar refabúanna. Til að hagkvæmni náist í fóður- framleiðslunni þarf loðdýrabúunum að fjölga. Á hinn bógin óttast skýrsluhöfundar að miklir styrkir og ódýrt fjármagn hvetji menn til of- fjárfestingar í fóðurstöðvum, en þær njóta nú meiri opinberrar fyrir- greiðslu en nokkur önnur atvinnu- grein. Byggingar tvöfatt dýrari en í Finnlandi „Fram hjá því verður ekki horft að mikill fjármagnskostnaður getur orðið íslenskri loðdýrarækt erfitt ok“. Áætlað er að byggingar og búnaður kosti hér um 33.600 kr. fyrir hverja refalæðu og 13.900 fyrir minkalæðu, án söluskatts, en t.d. 19.000 kr. og 7.000 kr. í Finnlandi. Þessi munur jafngildir um 1,20 kr. á hvert fóðurkíló í refaræktinni. Að nokkru stafar hann af því að hér þarf vandaðri byggingar, en er að sumu leyti óskýranlegur. Óþörf fjárhús víti til vamaðar „Loðdýrarækt á íslandi er enn á slíku tilraunastigi að ekki er hægt með neinni vissu að staðhæfa að þörf verði fyrir slík hús eftir 10 eða 15 ár. Reynist ekki rekstrargrundvöllur fyrir loðdýrarækt munu menn standa uppi með ónothæfar byggingar og afborganabyrði af lánum án þess að hafa af þeim nokkrar tekjur," segja skýrsluhöfundar, sem telja langan afskriftartíma skapa vanda við svo sérhæfðar byggingar. Þeir mæla með að menn byrji loðdýrabúskapinn t.d. í gömlum fjárhúsum - áður en þeir leggi í stórfjárfestingar. Einnig komi til greina að nota þau áfram undir hvolpa. Það megi vel verða loðdýra- ræktinni víti til varnaðar hvernig nú sé ástatt um þá miklu fjárfestingu er liggi í fjölda nýlegra fjárhúsa sem ekki sé lengur þörf fyrir. Tíminn hefur áður sagt frá því áliti hópsins að blárefarækt sé og verði vonlaus taprekstur. í því dæmi var þó að hluta reiknað með meiri hagkvæmni heldur en hér hefur verið í raun, svo sem að hús væru fyllt strax í upphafi, bærilegri frjó- semi, og 8 kr. fóðurverði sem í raun væri 7 til 10,50 kr.. Vonbetri um minkinn Minkaræktin er talin gefa mögu- leika á mun betri afkomu en blárefa- ræktin við hagstæð skilyrði. f minka- dæminu er reiknað með 700 læða búi og að það gefi af sér 3.311 þús. kr. brúttótekjur hvar af um 516 þús. kr. verði eftir sem laun á ári. Meðal forsendna eru: 4,3 skinn á paraða læðu, 56 kg fóðurnotkun á skinn og 1.100 kr. skinnaverð. Með 1.400 kr. meðalverði gætu bændur haft mjög góð laun, en slíkt verð náist þó tæplega nema í mjög góðum árum. Fram kemur að bæði skortir á í gæðaflokkum og eftirsóttustu lita- samsetningum til að íslenskir bænd- ur hafi náð heimsmarkaðsverði að meðaltali fyrir sín skinn, þar hafi minkabændur þó náð betri árangri en hinir. Heimsframleiðsla minkaskinna hefur vaxið úr tæplega 20 millj. upp í rúmlega 33 millj. skinna á um 6 árum, og þar af er hátt í helmingur- inn á Norðurlöndunum. Verðið hef- ur farið upp og niður og nokkur verðlækkun átt sér stað en ekki í beinum tengslum við aukið framboð eins og á blárefamarkaðinum, enda vöxturinn ekki nærri eins mikill. Fjöldi blárefa fimmfaldast Framleiðsla blárefaskinna hefur fimmfaldast - úr um 600 þús. skinn- um í 3 milljónir - á rúmum áratug. Þar af koma um 2 millj. skinna frá Finnlandi. Blendingsræktun blárefa og silfurrefa hófst að ráði 1980 og um 360 þús. slík komu á markað frá Norðurlöndunum 1985. Þessi skinn seljast á mun hærra verði en blá- refaskinn. Þótt mjög hátt verð hafi fengist fyrir mörg þau litaafbrigði sem fram hafa komið hafa sölusam- tökin Saga Furs nokkrar áhyggjur af því að ekki verði hægt að selja óendanlega margar tegundir lita- afbrigða á refaskinnum. Vitnað er til þess að það sama hafi átt sér stað í minkaskinnum, en að lokum hafi einungis örfá litaafbrigði verið eftir sem sígild markaðsvara. Þó ekki sé ástæða til annars en að taka þátt í þessum leik sé ljóst að slík tilrauna- starfsemi geti verið góð fyrir einn og einn bónda en aldrei fyrir þá alla. Hvort hægt verði að nýta innlenda mel- rakkann til blöndunar fari eftir niðurstöðum rannsókna sem nú standa yfir. Óttast iága vexti og styrki „Engin atvinnustarfsemi sem ver- ið er að byggja upp á íslandi núna býr við jafn mikla opinbera fyrir- greiðslu og fóðurstöðvar. Því er afar mikilvægt að rétt sé að verki staðið í uppbyggingunni þar sem þeir aðilar sem að rekstri þeirra standa hafa ekki mikið aðhald af markaði annars vegar eða fjármagnskostnaði hins vegar. Auk þess er hér um að ræða nýja atvinnugrein þar sem ekki er um mikla reynslu að ræða,“ segja skýrsluhöfundar. Frystigeymsla geysidýr Þeir reiknuðu út stofnkostnað 2.000 tonna, 5.000 tonna og 15.000 tonna fóðurstöðva og telja hann um 24, 37 og 59 millj. króna. Fram- leiðslukostnaður á kíló fóðurs er talinn frá 10-11 kr. í illa nýttum stöðvum, en að hann geti farið niður í 6-7 krónur við bestu nýtingu. Athygli vekur að kostnaður við fryst- ingu og geymslu á fiskúrgangi er mjög mikill, eða um 3,25 kr. á kg í þrjá mánuði. Sækja megi ferskan fiskúrgang allt að 350 kílómetra leið án þess að kostnaður verði hærri en við frosinn og geymdan fiskúrgang. Flutningskostnað á fóðrinu til bænda er sagt erfitt að reikna út enda aðstæður allar mjög misjafnar. -HEI

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.